Tíminn - 17.07.1964, Blaðsíða 14
Jókanna Sigmundsdóttir
Bæ, Lóni
Fœdd 30. maí 1885. Dáin 21. októ-
ber 1963.
Hún fermdist vorið 1899 næst-
síðasta ár aldarinnar, sem ól okk-
ur sjö fermingarsystkini. Við er-
um enn öll á lífi þennan indæla
vetur og vor, nema hún sem virt-
ist svo hraustbyggð og hetjaií
mesta í hversdagsönn okkar, all-
an fyrr'i helming tuttugustu aldar-
innar. Þetta tímabil, sem hefur
gjörbreytt því gamla sem var og
leitt inn hið nýja sem er og verð-
ur meðan vel árar. Lífsþægindi
má víst nefna það, hvort sem lífs-
hamingja er að því skapi meiri
en áður. Það verður hver einstak-
ur að gera upp við sig.
Við sem gengum út í lífið, og
tekin í Kristinnamanna tölu um
aldamótin, vorum öll vinnufús og
áttum vinnugleði í ríkum mæli.
Höfðum ekki heyrt það þá að
vinna væri böl; sem hið þjáða
mannkyn þyrfti að losna við. I
okkar kveri stóð, að sá sem ekki
vill vinna á ekki heldur mat að
fá. En tímarnir breytast og menn-
irnir með.
Bær í Lóni — landnácnsjörð-
bújörð Úlfljóts lögsögumanns var
ekkert smákot. Þar voru löngum
5—6 bændur og hvert býli hafði
sitt heiti. Heimili Jóhönnu var
Neðri-bær, einn af stærri og betri
pörtunum eins og kallað var.
Fólkið þar var vel sjálfbjarga og
fremur veitandi en þiggjandi í
sveitarfélaginu.
Foreldrar Jóhönnu voru Sig-
mundur Sigmundsson bóndi og
kona háns Sigríður Eiríksdóttíf af
traustum bændaættum komin. En
ekki n'útu þau lengi ánægjulegrar
sambúðar með sinn stóra barna-
hóp. Bóndinn veiktist af lungna-
bólgu eftir kaldsama kaupstaða-
ferð og andaðist eftir fárra daga
sjúkdómslegu. Eftir stóð ekkjan'
með barnahópinn 6 stúlkur og 1
dreng gr til þroska komust,. Hún
táldi nú aðeins um eina leið að
ræða: Búa áfram og ala börnin
upp á sinni föðurleifð. Berjast til
bjargálna, hversu erfitt sem verða
kynni og þetta lánaðist. Hún trúði
á handleiðslu drottins, var dug-
mikil, hraust og létt í spori. Bjó
með börnum sínum í Neðri-bæ í
vel hálfa öld eftir lát manns síns
og vantaði lítið í 100 ár þegar
kallið kom um brottför af þess-
um heimi.
Yngstar B aí systkinahópnum
voru Jóhánna og Sigríður, þær
héldu uppi heimilinu hin síðari
ár, eftir að bróðir þeirra Eiríkur
hafði misst sjónina, þá gamall
maður. Þessum systrum tókst að
búa þannig, að heimili þeirra
naut sömu virðingar og ávalt áð-
KEFLAVIK
og nágrenni
Loftleiðir vilja ráða strax til vinnu í eldhúsi og
veitingasölum félagsins á Keflavíkurflugvelli tvo
karlmenn og tvær konur, sem starfa eiga við af-
greiðslu í matbar, ein aðstoðarmatsvein og sextán
stúlkur til vinnu í eldhúsi og matbúrum. Félagið
vill einni gráða nokkra lærlinga í matreiðslu. —
Umsækjendur geri svo vel að. hafa samband við
ráðningarstjóra Loftleiða og yfirmatsvein, sem
verða til viðtals í skrifstofu Loftleiða á Keflavíkur-
flugvelli mánudaginn 20. þ. m. kl. 2—4 e. h.
Loftleiðir h.f.
n ’
, ... QFÍUIOIR
ur í fremstu röð, þar sem hinar’
fornu dyggðir voru jafnan í heiðri
hafðar. Jóhanna gat bæði verið
bóndinn og húsfreyjan svo var
hún vel verki farin og harðdugleg,
en ekki þurfti að bæta upp hús- j
móðustörf Sigríðar, og um hana
munaði líka við útivinnu. Aldrei |
heyrði ég Jóhönnu kvarta yfir j
kjörum sínum. Jafnvel ekki þó j
banameinið næði tökum á henni. ‘
Kjarkurinn var óbilandi. Hún var
sönn hetja hversdagslífsins. Ýms
ir munu líta svo á, að um þá
konu sé ekki mikið hægt að segja,
sem hvorki átti bónda né börn.
Hennar hlutur hafi hlotið að
vera smár í uppbyggingu okkar
þjóðar. En máishátturinn „Þess
má geta sem gert er“ mælir gegn
þeirri skoðun. Hver sem er sinni
köllun trúr, er þjóð sinni og
landi meira virði, en hinn sem
bregzt eða bognar þegar á móti
blæs.
Eins og nú er frá sagt var
heimilið heimur Jóhönnu fyrst og
fremst. Að heiman fór hún þó
nokkuð á bezta skeiði ævinnar. Til
Austfjarða lá straumur fólks í
atvinnuleit. Þá voru þar hvalveið-
ar, síldar- og fiskveiðar á hverju
sumri og aflasæld. Jóhanna kaus
samt landbúnaðarstörfin og réðst
til prestshjónanna á Kolfreyju-
stað. Þar var gott að vera og verk-
efni næg. Heimilið var góður skóli
í reglusemi, þrifnaði og fjölbreytt
um starfsháttum. Eftir veruna
þarna á Fáskúðsfirði ákvað Jó-
hanna að læra fatasaum. Fór til
Seyðisfjarðar á saumastofu, sem
margar stúlkur sóttu á þeirri tíð.
Af því námi varð þó ekki, því þá
veiktist hún af brjósthimnubólgu,
sem alloft varð fylginautur berkla
veikinnar, sem lagði fjölda fólks
í gröfina austanlands á þessum ár
um, einkum hina ungu.
Að læknisráði fór Jóhanna til
Reykjavíkur og bjóst við sjúkra-
húsvist, sem ekki varð langvinn.
Batinn kom og þá ákveður hún
að ganga í Kvennaskóla-Hús-
mæðradeild, sem Ragnhildur Pét-
ursdóttir frá Engey stóð að, Hófst
þá vinátta þeirra, sem entist alla
ævi. Dvaldi Jóhanna á Háteigi
lengri eða skemmri tíma, er æsku
heimilið mátti án hennar vera.
Hreifst hún mjög af Ragnhildi
og vitnaði oft til hennar, sem fyr-
irmyndar. Jóhanna og systkinin,
Sigríður og Eiríkur, tóku til fóst-
urs og ólu upp son fjallahetjunn-
ar frægu Sigfúsar í Víðidal, Júlíus
Sigfússon varð fóstursonur þeirra
allt frá barnsaldri og mikil stoð
heimilisins er hann náði þroska,
en gerðist brátt sjálfstæður bóndi
í Bæ. Frískur maður, ötull til
allrar vinnu, góður drengur og
verkhagur. Nú er hann fyrir
löngu fluttur á Höfn í Hornafirði
með fjölskyldu sína eins og marg
ir sveitungar hans. Synir hans og
dætur búa nú þar og víðar við
góðan hag, mætis fólk í vaxandi
borg. Barnabörn Júlíusar og konu
hans'munu nú vera um 30. f
blóði Júlíusarsona virðist búhug-
ur borinn og jafnvel fjallaþrá Sig-
fúsar afa þeirra. Einn sonanna á
vildisjörðina Svínhóla í Lóni og
tveir þeirra hafa byggt sumarbú-
staði í Stafafellsfjalli, svo að fólk
þeirra finnur enn ilminn,
er heillaði Sigfús til búsetu í sér-
stæðasta afdal ísl. afréttarlanda.
Systurnar óhanna og Sig-
ríður bjuggu í Bæ með
bróður sínum, svo lengi sem
móðir þeirra lifði, en flutju á
Höfn eftir lát hennar, til dóttur
Júlíusar og manns hennar, hún
er ginnig fósturdóttir þeirra. Þau
byggðu snoturt hús, sem varð nú
heimili systranna og hlaut nafnið
Sólbær. Þar andaðist Jóhanna
heimkomin frá sjúkrahúsvist og
þj^ningum, umvafin ástúð og sól-
arhlýju vandamanna sinna. Hún
hvílir nú hjá ættfólki sínu í Stafa-
féllskirkjugarði.
Blessuð sé minning hennar.
Sigurður Jónsson, Stafafelli.
Margrét Kristjánsdóttir
Blönduósi
Fædd 6. 10. 1888. — D. 19. 5. 1964
Það hefur verið hljótt um hana
Margréti Kristjánsdóttur frá því
að hún féll í valinn. Ég hef verið
að bíða eftir að einhver mér fær-
ari minntist hennar, þessarar
sæmdar- og heiðurskonu. En þar
sem það hefur ekki verið gert, svo
að ég viti, þá ætla ég að minnsta
kosti að þakka henni fyrir öll góð
kynni mér og mínum börnum.
Margrét var fædd og uppalin
hér á Blönduósi og þar af leiðandi
elzti bæjarbúinn. Hún var dóttir
sæmdarhjónanna Kristjáns Hall-
dórssonar, snikkara, og Sigríðar
Sigurðardóttur. Þau voru alltaf
kölluð „Vértshúshjónin“, af því að
þau höfðu veitinga- og gistihús —
og dæturnar voru kallajðar „Verts-
hússystur". Þær voru fimm og
synir tveir. Öll voru þessi börn
fallegt og mannvænlegt fólk. Og
eftir eru nú Kristín, saumakona á
Blönduósi, Óli, póstmeistari á Ak-
ureyri, og Jóhann í Reykjavík.
Margrét var trúuð kona, vel
skapi farin, prúð og elskuleg í
allri framkomu. Ung að árum
giftis thún sínum eina drauma-
prinsi, Þorsteini Bjarnasyni, gáfu-
menni og glæsimenni. Ilann var
kaupmaður og oddviti Blönduós-
hrepps um langt árabil og gaf sig
mikið að stjórnar- og sveitarmál-
um og vann ávallt að þeim með
framsýni og skörungsskap.
Margrét leit upp til bónda síns
og setti allar sínar áhyggjur á
hans breiðu herðar. Hún var
drottning, sem laut vilja hans í
öllu. Þrjátt fyrir það stjórnaði hún
heimili sínu með festu, manndómi
og hjartahlýju.
Mörgum förumanni gaf hún
mat og drykk og margur tók af
sér bakpokann við dyr kaupmanns-
frúarinnar og naut þar bæði hvíld-
ar og gestrisni. Margrét var fríð
kona, vel vaxin og bar með af-
brigðum vel sinn íslenzka búning.
Hún hafði líka mikið, gullbjart
hár, sem alltaf fór vel, snyrtileg
og fín, hvenær sem maður sá
hana. Hún var hljóðlát kona. Það
var alltaf svo mikil ró og festa
yfir hennar lífi og starfi.
Það var eins og maður fyndi sig
alltaf öruggan í návist hennar.
Þó næddu oft naprir stormar og
ölduföll lífsins um sál hennar,
eins og oft vill verða í þessu jarð
neska lífi. En alltaf stóð hún hljóð
lát og örugg í þeirri föstu trú og
trausti, að höndin ósýnilega
sleppti ekki af henni vernd sinni,
heldur styddi hana ávallt, þegar
mest á riði. Og þannig var það,
þegar hún á sínum yngri árum
þurfti að sjá á bak börnum sín-
um tveim. Og maður hennar ætl-
aði að bugast af sorg. Þá hug-
hreysti hún hann. Hún vissi sem
var, að börnin þeirra voru örugg
á landi ljóssins. Af þeim þurfti
ekki að hafa áhyggjur. Þar myndi
þeim líða vel, þar til þau sjálf
mættu þeim bak við móðuna
miklu, þegar kallið kæmi. En
þyngst skullu öldurnar, þegar mað
ur hennar varð bráðkvaddur við
hlið hennar. Þó að hún vissi, að
hann gekk með ólæknandi hjarta-
sjúkdóm, þá hugsaði hún elcki þá
hugsun til enda, að hún ætti eftir
að missa hann frá sér, stóran og
sterkan. En enginn sá eða heyrði
Margréti æðrast eða kvarta. Hún
bar alla sína harma í hljóði með
sínu óbifanlega trúartrausti á
mildi og gæzku góðra vætta. Hún
vissi sem fyrr, að höndin ósýni-
lega leysti þann vanda — sem
þær sýnilegu gera ekki.
Margrét og Þorsteinn eignuðust
5 börn og af þeim lifa Sigríður í
Reykjavík, Auðun, húsgagna-
meistari í Keflavík, og Kristján á
Blönduósi. Margrét heitin ól einn-
ig upp dótturson sinn, Þorstein,
sem hún þurfti að horfa upp á
vanheilsu hjá. Og það barn bar
hún á höndum sér, að heita mátti
til hinztu stundar. Hún umvafði
þennan litla dreng ástúð og blíðu
í þeirri sterku trú, að hann mætti
öðlast fulla heilsu og þrek. Mar-
grét fól þeim einum allar sínar
áhyggjur, sem telur tárin — og
græðir ósýnilegu hjartasárin.
Þau stæðu ekki höllum fæti sum
heimilin nú til dags, ef þau ættu
jafntrausta og skyldurækna hús-
móður og Margrét var. Hún svaf
ekki á verðinum, konan sú, sem
öllu vildi fórna fyrir alla, ekki
sízt heimilið sem hún vék aldrei
frá. Að síðustu vildi ég þakka
Margréti alla hennar miklu hjarta
hlýju og manngæði. Hún var alltaf
minn bezti nágranni, sem ég leit-
aði oft til.
Ég vil einnig fyrir hönd Kven-
félagsins Vöku þakka henni öll
góð störf. Hún var einn af fyrstu
stofnendum þess félags og ávallt
góður félagi, sem lagði öllum góð-
um málum lið.
Guð blessi minningu þína, Mar-
grét mín.
Lifðu heil á ljóssins landi.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir.
RAMMAGERÐINI
GRETTISGÖTU 54;
S í M I - f 9 I O 3
Málverk
Vainslifamyndir
Ljósmyndir
litaðar, af flestum
kaupstöðum landsins
Biblísimyndir
Hinar vinsæiu, iöngu
gangamyndir
Rammar
— kúpt gler
flestar stærSir
AugBýsinga-
sími Tímans
er 19523
14
TfMINN, föstudaglnn 17. lúlí 1964