Tíminn - 17.07.1964, Side 15
KVEÐJUSAM-
SÆTI k HVOLI
HF—Reyykjavík, 16. júlí.
S. L. MÁNUDAGSKVÖLD var
séra Arngrími Jónssyni og frú Guð
rúnu Hafliðadóttur, prestshjónum
í Odda, haldið kveðjusamsæti í fé-
lagsheimilinu að Hvoli af sóknar-
börnum í Stórólfshvolssókn.
Þau hjón eru nú að flytjast til
Reykjavíkur, þar sem séra Arn-
grímur tekur við prestsembætti í
Háteigssókn. Séra Arngrímur tók
við prestsstörfum í Odda-presta-
kalli fyrir 18 árum, þá aðeins 23
ára að aldri, og hefur starfað þar
síðan. í kveðjuhófinu voru marg
ar ræður fluttar og þeim hjónum
þökkuð góð störf í prestkallinu og
árnað heilla í hinu nýja starfi. —
Sóknarbörn í Stórólfshvolssókn
færðu þeim hjónum veglegar gjaf-
ir.
3 PRESTA-
KÖLL LAUS
BISKUPINN hefur auglýst þrjú
prestaköll laus til umsóknar. Þessi
prestaköll eru: Desjarmýri í N,-
Múlaprófastsdæmi, Hveragerði í
Ámesprófastsdæini og Núpur í
Dýrafirði, í V.-ísafjarðarprófasts-
dæmi. — Umsóknarfrestur er til
15. ágúst.
Reykjavík, 10. júlí 1964.
Frá biskupsskrifstofunni.
CAF ÞJÓÐMINJASAFNINU
MÁL VÍRK AF REYKJA VÍK
MARK WATSON, sem er íslend
ingum að góðu kunnur, hefur sýnt
Þjóðminjasafninu þann mikla höfð
ingsskap að gefa því olíumálverk
af Reykjavík 1862.
Málverkið er eftir enskan mál-
ara að nafni A. W. Fowles, sem
virðist hafa verið hér á ferð með
skipinu Uraniu í júlí 1862. Fowles
var þekktur skipa- og sjávar-
myndamálari, og myndir eftir hann .
eru á söfnum.
i Málverk þetta fannst á fornsölu j
i á eynni Wight 1957, en komst síð- S
; an í eigu Watsons og lét hann
| hreinsa það og laga. Árið eftir
i kom hann með málverkið hingað
og léði það til sýningar í safninu
S um tíma, en nú hefur hann afhent
safninu það til fullrar eignar. Mál-
FULLTRÚIANSVAR í HEIMSÖKN
KJ-Reykjavík, 16. júlí.
HÉR Á LANDI er nú stadd-
ur Ragnar Lund varaformaður
sænska tryggingafélagsins An-
svar, en tryggingafélagið
Ábyrgð h.f. hér á íslandi starf-
ar í beinu sambandi við Ansvar.
Ansvar tryggir eins og
Ábyrgð h.f. aðeins fyrir bind-
iridisfólk, og eru iðgjöld af bif-
reiðatryggingum þeirra- hér á
landi 15% lægri en hjá öðrum
tryggingafélögum. Ragnar
Lund kom hingað til að sitja
norrænt þing bindindisfélaga
ökumanna, en hann er einnig
varaformaður bindindisfélags
sænskra ökumanna (MHF). —
Lund er nokkurs konar fræðslu
málastjóri að atvinnu, hefur
með að gera lýðháskóla, bóka
söfn og fleira viðvíkjandi æsk-
unni í beimalandi sínu. Þá hef-
ur hann síöastiiðin fimmtán ár
tékið virkan þátt í norrænni
samvinnu. Lund sagði frétta-
mönnum ‘ dag að aldur þeirra,
sem not' Cu oa misnotuðu á-
fengi Fæ. *ist sífellt neðar og
oeðar x Sríþjcc
Á næs^unm mun áfengispró-
sentan ■ blóði ökumanna verða
færð í iður í * promill, en er
nú 5 p'omill eins og hér á
landi
NY FRIMERKI
15. JÚLÍ s. 1. gaf póst- og síma-
málastjómin út fjögur ný frímerki
með blómamyndum, en áður eru
komin út tvö í þeirri seríu. Frí-
merkin eru prentuð hjá Courvoisi-
er S/A, La Chaux de Fonds í Sviss
og eru mjög falleg útlits.
Leikfélög eystra stofna samband
SUNNUDAGINN 5. júlí s.l. var
stofnað á Reyðarfirði Leikfélaga-
samband Austurlands. Stofnendur
sambandsins eru sex leik- og ung-
mennafélög á Austurlandi, en þau
eru: Leikfélag Seyðisfjarðar, Leik
félag Neskaupstaðar, ungmennafé
lagið Egill rauði, Norðfjarðarsveit,
Leikfélag Reyðarfjarðar, Leikfélag
Fáskrúðsfjarðar og Ungmennafé-
lag Stöðfirðinga.
A fundi, sem haldinn var
Reyðarfirði í maílok með forráða-
mönnum þessara félaga og fram-
kvæmdastjóra Bandalags íslenzkra
leikfélaga, var ákveðið að vinna
að stofnun leikfélagasambands —
Unnið var að því í júnímánuði
Öll félög á Austurlandi, sem
hafa leiklist á stefnuskrá sinni og
eru aðildarfélög Bandalags ísl.
leikfélaga, hafa rétt til aðildar að
sambandinu.
Stofnfundinn sátu 16 fulltrúar,
HF-Reykjavík, 16. júlí.
f GÆR lauk umfangsmiklum end
urbótum og breytingum á Hótel
Valhöll á Þingvöllum, sem hófust
um miðjan apríl í vor. Myndarleg
viðbygging hefur verið byggð við
húsið, svo til öll gistiherbergin
hafa verið gerð upp og miklar
endurbætur verið gerðar á sölun-
um niðri. Nýir gluggar hafa ver-
ið settir í allt húsið, heitt og kalt
vatn og loks hefur hótelið fengið
rafmagn frá Sogsvirkjuninni.
1 fyrravor tóku þeir Ragnar
Jónsson og Sigursæll Magnússon
við rekstri hótelsins og hófust þeg
ar handa um að breyta því. Létu
þeir endurbyggja eldhúsið í fyrra
og í ár gerðu þeir upp hótelið.
í öllu hótelinu eru als 56 gisti-
rúm, en 26 þeirra eru í hinum ný-
lagfærðu herbergjum. Þar kostar
gisting yfir nóttina frá 180—450
kr Herbergin hafa verið innrétt-
uf í nokkurs konar baðstofustíl
og er mest allt hráefnið íslenzkt.
Niðri hefur miklu verið breytt, en
gangur og forstofur er viðarklætt
í hólf og gólf. í stærsta salnum
geta borðað í kringum 120 manns,
en þar að auki geta 40 manns
snætt í minni sal. Minjagripjaverzl
un hefur einnig verið komið upp í
húsinu og fyrir utan það er sæl-
gætissala, sem selur ferðafólki
einnig bátaleigu, sem sér ferða- á vatnið.
og ríkti þar mikill áhugi fyrir
öflugu starfi hins nýstofnaða Leik
félagasambands. En eitt aðalmark-
mið þess er að efla samvinnu að-
ildarfélaganna og vinna að sam-
eiginlegum hagsmunamálum þess.
Samkvæmt lögum sambandsins
skal stjórn þess flytjast árlega
milli staða Fyrsta stjórn sam-
bandsins er á Norðfirði, úr Leikfé
lagi Neskaupstaðar og ungmenna-
félaginu Agli rauða
Stjórnina skipa: Birgir Stefáns
son. formaður, Aðalsteinn Ilalldórs
son og Steinþór Þórðarson.
Varamenn: Þorlákur Friðriks-
son og Ægir Ármannsson
- Endurskoðendur sambandsins
voru kjörnir frá sömu félögum, en
þeir eru: Stefán Þorleifsson og
Björn Bjarnason.
verkið hefur nú verið hengt upp
tiJ sýnis í safninu.
í sama sal eru nú einnig sýndir
hlutir þeir sem frú Ása Guð-
mundsdóttir Wright, búsett á Trini
dad, hefur gefið safninu nýlega og
áður hefur venð sagt frá í frétt-
um Er það einkum miljið og gott
safn af knipplingum, svo og nokkr
ir vandaðir silfurmunir og fleira
sf listiðnaðar tagi. Allar eru þess-
ar góðu gjafir safninu mikils virði
og nnkillar j akkar verðar.
(Frétt frá Þjóðminjasafninu).
HOFÐING-
LEG GJÖF
í PRESTSBAKKAKIRKJU á
Síðu er gamall ljósahjálmur —
(sennilega frá 17. öld), sem flutt-
ur var þangað úr kirkjunni á
Kirkjubæjarklaustri, er hún var
flutt að Prestsbakka fyrir rúmri
öld.
Ljósahjálmur þessi var svo illa
farinn, að ekki var hægt að nota
hann lengur. Hann var þó látinn
hanga uppi í kirkjunni.
Sóknarprestur og sóknarnefnd
höfðu margreynt að fá gert við
hann, en allir þeir, sem leitað var
ti’ töldu verkið svo vandasamt, að
þeir tóku það ekki að sér.
Frú Gyðríður Pálsdóttir í Segl-
búðum vakti máls á þessu við
þjóðminjavörð, en einnig hann
taldi fyrst litlar líkur til að nokk-
ur fengist til að vinna verkið
Vegna vinskapar þeirra frú Gyð
ríðar og frú Kristínar Andrésdótt-
ur tengdamóður Sveins Guðmunds
sonar forstjóra vélsmiðjunnar Héð
ins leituðu þau þjóðminjavörður
og frú Gyðríður til hans og tók
hann máli þeirra Ijúflega
Verkið var síðan unnið í Héðni
af Guðmundi föðurbróður Sveins
af slíkri kostgæfni, að betur varð
ekki gert.
Þegar að þvi kom að greiða
skyldi fyrir verkið var sóknarnefnd
Prestsbakka tjáð, að frú Kristín
Andrésdóttir gæfi kirkjunni við-
gerðina.
BÆTA ÞJÓNUSTUSTRANDARSTÖÐVA
ÞAR SEM talsverðrar óánægju
og misskilnings hefur orðið vart,
varðandi talstöðvaþjónustu vegna
sfldarsaltenda og útvegsmanna,
þykir póst- og símamálastjórninni
rétt að koma á framfæri eftirfar-
andi athugascmdum:
Hin almenna tilhögun um við-
skipti milli lands og skipa við
strendur þess er sú, að símastjórn
ir viðkomandi lands reka strand-
arstöðvar, sem annast þessa þjón-
ustu.
Vegna staðhátta hér á landi og
að ýmsu leyti sérstæðrar aðstöðn,
meðal annars vegna þess, að síma-
kerfi landsins er víða ekki opið til
þjónustu talsverðan hluta sólar-
hringsins, hefur póst- og síma-
málastjórnin fallizt á að leyfa út-
vegsmönnum og síldarstöðvum
takmarkaða notkun talstöðva,
vegna atvinnurekstrar síns.
Alþjóðareglur kveða skýrt á um
skiptingu tíðnisviða milli hinna
mismunandi greina fjarekiptanna.
Er lögð rík áherzla á, að ekki sé
gengið fram hjá þeirri skiptingu,
svo komizt verði hjá truflunum,
svo sem frékast er unnt.
Vegna eindreginna óska forráða
tnanna bátaflotans, var þó fallizt
á það hér að leyfa talstöðvum út-
gerðarmanna og síldarsaltenda
viðskipti á tíðnum. sem eingöngu
eru ætlaðar til viðskipta milli
skipa og þá því aðeins ,að ekki
væri notuð meiri sendiorka en 20
wött. Rekstur þessara talstöðva
er og háður því skilyrði, að ekki
berist kvartanir vegna þeirra.
Þess má geta, að póst- og síma-
málastjórninni er ekki kunnugt
um, að starfræksla slíkra, stöðva
sem þessara sé leyfð annars stað-
ar en hér á landi, að minnsta
kosti er slíkt ekki leyft í nágranna-
löndum okkar.
Nú nýlega hafa komið fram há-
værar kröfur um meiri langdrægi
þessara stöðva, ýimist vegna
breyttra aflabragða eða dreifingu
veiðisvæðanna og afstöðu þeirra
til afskipunarhafna Hafa af þessu
spunnizt nokkrir árekstrar milli
póst- og símamálastjórnarinnar og
útvegsmanna en á síðastliðnum
vetri náðist um það samkomulag
fyrir milligöngu símaimálaráð-
herra, að leyfðar yrðu langdræg-
ari stöðvar. ef óskað yrði, en þeim
aðeins leyfð afnot af senditíðni
á tíðnisviði, sem ætlað er strand-
arstöðvum, í samræmi við alþjóða
reglur. Jafnframt er sömu aðilum
heimilt að hafa. eftir sem áður,
aflminni stöðvar til viðskipta á
millis'kiptatíðnunum
Reglur þesar gilda iafnt um
alla, án undantekninga
Reynt hefur vo-i*
langt til mts við útvegsmenn og
fært þykir í þessu atriði og eini
sjáanlegi agnúinn á. því, að þessi
tilhögun komi að notum er sá, að
stjórnendur skipanna hafi ekki á-
huga á því að samband náist.
Að lokum skal á það bent, að
stöðvar þessar, sem um hefur ver
ið rætt hér að framan, eru ein-
göngu reknar með eiginhagsmuni
viðkomandi síldarkaupenda og út-
vegsmanna fyrir augum. En þess
misskilnings hefur einmitt gætt í
sambandi við þessi mál, að hér
væri um hina almennu radíóþjón-
ustu póst- og símamálastjórnarinn
ar milli skipa og lands að ræða.
Póst- og símamálastjórnin vinn-
ur stöðugt að því, að bæta þjón-
ustu strandarstöðva sinna. bæði
með endurnýjun tækja stöðv-
anna, svo og með endurbótum og
aukningu símakerfisins í landinu.
Vorið 1960 var tekin í notkun
fullkomin strandarstöð á Rauf-
arhöfn, til þess að bæta þjónust-
una við bátaflotann fyrir Norð-
austurlandi. Sams konar þjónusta
við bátaflotann var opnuð á Norð
firði vorið 1963 og er nú verið að
stórbæta allan tækjabúnað þeirrar
stöðvar.
Að sjálfsögðu mun póst- og
símamálastjórnin halda áfram að
endurbæta hina almennu strand-
arstöðvaþjónustu í landinu, ásamt
símakerfinu almennt. Þegar því
er lokið munu undanþágur. sem
hér hafa verið n'-.fndar, væntan-
lega verða óþarfar og því hverfa.
Þess má að lokum geta. að í
Vestmannaeyjum annast strandar
stöð póst- og símamálastjórnarinn-
ar alla fyrirgreiðslu fyrir bátaflot
ann samkvæmt sérstökum regJum
Hefur það fyrirkomulag gefið á-
gæta raun og hafa útvegsmenn
víðar sýnt áhuga á þvi og hafa
það til ath. Póst og símainálastj.
(í M I N N, föstudaginn 17. iúlí 1964
15