Vísir - 21.12.1957, Page 6

Vísir - 21.12.1957, Page 6
6 þar til hárrar elli, og við þann bæ var hann jafnan kenndur. — Þar undi Eyjólfur hag sín- um vel og hafði nóg til hnífs og skeiðar. — Jukust vinsældir hans með ári hverju. Samt gat hann ekki stillt sig um að varpa fram stökum við tækifæri, þeg- ar eitthvað skoplegt bar við. Organleikari og listamaður kemur til sögunnar. Árið 1887 fluttist Runólfur Þórðarson frá Fiskilæk í Mela- sveit að Síðumúla. Kvæntist hann það vor Helgu Salómons- dóttur, og fór að búa þar á móti tengda'föður sínum, Saló- mon hreppstjóra Sigurðssyni. Runólfur var maður glaðvær og gáskafullur, söngmaður góð- ur og æfður organleikari. Hann var skartmaður mikill saman- borið við það, sem almennt tiðkaðist með bændum, sem sniðu sig þá yfirleitt ekki að háttum heldri manna. — Run- ólfur var sjálfkjörinn að veizl- um og gleðimótum vegna söng- kunnáttu sinnar og listrænna hæfileika. — Hann var frábær leikari, gat ekki einungis náð málrómi nálega hvers manns. Höfuðburði, vaxtarlagi og öll- um hreyfingum og látbragði náði hann einnig. Með þessu vaktr hann oft hlátur meðal hinna yngri og ósettari manna. Var ég meðal þeirra, sem veitti Runólfi jafnan góða áheyrn. Einn þeirra manna, sem Run- ólfur lék allra bezt, var Eyjólf- ur í Hvammi. — 'Náði hann málrómi hans, orðalagi, höfuð- burði og öllum svipbrigðum. — Var því freistandi fyrir gáskafulla náunga að hlýða á slíkt með aðdáun og verða þá að nokkru leyti samsekir Run- ólfi í skopinu. — Vegna glað- værðar og listfengi stóð Run- ólfur nær heldri mönnum en hinn sauðsvarti almúgi, eins og það var jafnan orðað á þeim dögum. Bæði prestar og kaupmenn tóku honum með dáleikum. Var hann þá einnig í uppgangi efna- lega. Fór hann ekkert dult með ástæður sínar, þar sem hann kom og taldi fram, hvað hann væri fornbýll. — Eitt sinn, er hann reið í Borgarnes, náttaði hann sig þar hjá verzlunar- stjóra. Þurfti hann þá að biðja hann um höft á reiðhesta sína, því að hnappheldunum hefði hann gleymt heima, en þær ætti hann þrjátíu og átta í einni kippu. — Frá þessu var Eyjólfi í Hvammi sagt. Gat hann þá ekki stillt sig um að yrkja skopkvæði. Það hefst mannig: 1. Bóndi einn í byggðum ríkur, Borgarness í kaupstað víkur, faktor gerir finna slíkur, frétta þá hvor annan spur. Ríkur er hann Runólfur. Hreifur gestur hárið strýkur, hefja ræðu mundi. Listamaðurinn lengi sér þar undi. 2. Fulinægt hef ég fjárins gróða, falleg börn og konu góða, gæfan allt mér gerir bjóða, gott er að vera sjálfstæður. Ríkur er hann Runólfur. Metinn er ég meðal þjóða mest á hverjum fundi. Listamaðurinn lengi sér þar undi. 3. Kostulegur kvikfjárgrúi kalla þeir að mér fangi snúi, þá er líka þarft í búi, þrjátíu og átta hnappheldur. Ríkur er hann Runólfur. Verða meiri en vesæll trúi vextir af því pundi. Listamaðurinn lengi sér þar undi. Kvæði þetta var nokkru lengra. Lætur skáldið Runólf lýsa þeim áhrifum, er söngur og hljóðfærasláttur hans hafi á hjörtu manna. — Ekki stóð á því, að Runólfi væri flutt kvæði þetta. — Þótti honum að von- um miður. Spurði hann Eyjólf, hvort hann væri farinn að yrkja um sig skop, og hvers hann ætti að gjalda. — Eyjólfur svarar: „Ekki kveður nú mikið að því, en það litla sem það er á að vera lítilfjörleg þóknun upp í það, sem þú hermir eftir mér“. — Voru þessi skuldaskil ekki rædd frekar. Stökurnar flugu víða. Á þeim tímum, er Eyjólfur kvæntist, ungur og efnalaus, þjakaði örbirgð mjög borg- firzka bændur, sem höíðu fjöl- skyldu fram að færa. Eyjólfur var iðjusamur og heimilisræk- inn, hófsamur í hvívetna og frásneyddur lausung og víni. í Hvammi lagði hann miklastund á matjurtarækt og túngarða- heðslu. — Ljóðagerð hans var aukaatriði, sem eigi mátti eyða tíma í frá knýjandi skyldustörf- um. En tækifærisstökur hans urðu til fyrirhafnarlaust og voru jafnan hentar á lofti og flugu sveit úr sveit. — Sjálfur safnaði hann litlu eða engu af stökum sínum, en undir kvæða- lögum orti hann fátt eitt. — Hann orti þrisvar sinnum bæj- arrímur um Hvítársíðu með tuttugú ára millibili. Sem unglingur orti hann bæjarrímur um Hálsasveit og aðra um Norðurárdal, er hann var bóndi í Sveinatungu. Allar voru rímur þessar lausar við ádeilu og gerðu engum gramt í geði, nema ef vera kynni Spila- vísur þær, sem minnzt hefur verið á hér að framan. Nafnkenndustu synirnir. Ég varð gagnkunnugur Eyj- ólfi, þegar hann bjó í Hvammi á efri árum sínum. — Þótt Síðuménn væru jafnan góðir heim að sækja, þótti mér þó skemmtilegast að koma til hans. — Hann var flugnæmur á ljóð og minnugur á sögur, en í bókagrúsk eyddi hann litlum tíma. Öll börn þeirra Hvamms- hjóna voru greindari en fólk er flest. Nafnkenndastir af son- um hans urðu þeir Sæmundur og Jó'hann. Sæmundur var bæði gáfaður og námfús. Hann fór í búnaðar- skólann í Ólafsdal og þar eftir í Menntaskólann í Reykjavík. Varð hann síðar kandídat úr prestaskólanum. — Hann var bæði skáldmæltur og fræði- maður, en dó í blóma lífsins. Um Jóhann Eyjólfsson mætti rita langt mál. Hann fór aldrei í neinn skóla, en studdi með ráð og dáð heimili foreldra sinna, þegar þau voru orðin öldruð og lúin. Jóhann var fluggreindur, mælskur, snarráður og skjótur JÓLABLAÐ VÍSIS til úrræða. Hann varð aldrei ráðþrota, sá hann ótal leiðir opnar, þar sem aðrir sáu enga. En enginn var hann nostrari og lét stundum vaða á súðum. Ekki var hann ævinlega hefl- aður, en djarfur og hispurslaus, skilvís og traustur í öllum við- skiptum. Hann var um eitt skeið alþingismaður Mýra- manna. Þau Hvammshjón, Eyjólfur og Helga, brugðu búi vorið 1908. — Höfðu þau þá búið í sextíu ár. Fóru þau þá að Sveinatungu til Jóhanns og konu hans Ingibjargar Sigurð- ardóttur frá Geirmundarbæ á Akranesi. Helga dó í Sveinatungu 1910, en Eyjólfur dó þar 14. des. 1911. Var hann þá kominn á áttunda ár hins níunda tugar. Forsetinn til fyrirmyndar. Eyjólfur var tæpur meðal- maður á hæð, herðabreiður og i kýttur í hálsi, andlitið frítt og samsvaraði sér vel, augun smá, grá að lit, munnnettur og hýr á svip, jarpur á hár með rak- aðan munn, en skeggkraga stuttklipptan, eins og þá var algengast. — Ekki er ólíklegt, að Jón Sigurðsson forseti hafi verið tekinn þar til fyrirmynd- ar, að minnsta kosti ríkti venja þessi á landi hér alla hans tíð. Jón Sigurðsson á Haukagili skrifaði grein í Óðin um þau Hvammshjón. Fylgja þar mynd ir þeirra. Þar birti Jón einnig nokkuð af hringhendum Eyj- ólfs, en undir þeim bragarhætti orti hann flest ljóð sín. — Jón lýsir Eyjólfi sem heitum trú- manni. Bera þau ljóð, sem í Óðni birtust, ágætt vitni um það, að svo hafi Eyjólfur verið í sínu inzta eðli. Með skopinu, sem var annar þáttur í eðli hans, vildi hann vekja mein- laust gaman. Jón á Haukagili getur þess í grein sinni, að Samson, stjúpi Eyjólfs, hafi verið ekkjumaffur, þegar hann gekk að eiga Þor- björgu. — Ég efast mjög um, i að svo hafi verið. Að minnsta kosti munu þau fjögur börn Samsons, sem talin eru hér .að framan, hafa átt sína móðurina hvert. Jón telur einnig, að Samson hafi drukknað í Hvítá árið 1840. En hann var bóndi á Rauðsgili frá 1841—1850, en það ár mun hann hafa farizt í ánni. í Grímseyjarannál séra Pét- urs Guðmundssonar er Samson talinn frá Augastöðum (sjá II, bindi bls. 319), en þar átti hann aldrei heima. Þorbjörg, ekkja hans, móðir Eyjólfs, lifði til hárrar elli. Hún dó á Sámsstöðum hjá Guð- rúnu, systur sinni, 1878(?) Jónatan Þorsteinsson á Hæli í Flókadal, síðar bóndi á Vatns- hömrum í Andakíl, orti mjög snotur erfiljóð eftir þessa ömmusystur sína. Birtust þau í ísafold og voru hið fyrsta af því tagi, sem kom fyrir almenn- ings augu frá hans hendi. AUKIÐ BURÐARÞOL Með sífelldum endurbótum í gerð og nákvæmni hefur tekizt að auka til muna burðarþol nær allra TIMKEN REGISTERED TRADE MARK: TIMKEN. Licenssd user Britlsh Timken Ltd. KEILIJLEGA Notið því ávallt í tæki yðar TIMKEN-KEILULEGIJR Framleiddar af RITISH TIMKEN LTD Duston - Northampton - England Aðalumboð á íslandi: STÁL H.F., REYKJAVÍK Söluumboð: FALKIIMM H.F VÉLADEILD Sími 1-86-70 — Laugavegi 24. Reykjavík.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.