Vísir - 21.12.1957, Síða 36
36
JÓLABLAÐ VÍSIS
Síðasta innrás norrænna
víktnga í Englamt.
Framh. af 3. síðu.
Est-inn í iylkingu víkinga, og
,"var nú barizt af mikilli grimmd
já báða bóga.
Skyndilega stóðu framherjar
enska hersins andspænis hinum
ilröllslega, vígóða víkingakon-
lingi og úrvalsköppum hans.
Hann hjó báðum höndum, svo
að öllum var bani búinn, sem
sverð hans náði til. Sókn hans
var ómótstæðileg og virtist
vera að snúa bardaganum vík-
ingunum í vil, þegar ör hæfði
hann í óstinn, svo hann féll við
og- hafði af því bana. Skelf-
ingaróp kvað við frá fylkingu
Norðmanna, og enski herinn
herti um leið sókn sína. Hinn
horski hópur tryggra bardaga-
manna umhverfis merki Har-
alds konungs var höggvin nið-
ur smátt og smátt, þar til sjálf-
ur gunnfáni konungs var í
hættu.
Ákaft karizt um brúna.
Nú hófst allsherjar undan-
hald norska hersins í áttina til
brúarinnar. (Á þessu stigi or-
ustunnar virðist víkingaherinn
hafa komizt eftir brúnni yfir á
vinstri bakka árinnar). Bar-
dagaaldan barst nú yfir brúna
og yfir á hinn bakka Derwent-
ár — og út í sjálfa ána.
Undanhald aftursveita
norska hersins virðist hafa ver-
ið varið af kappa miklum í liði
víkinga, trölli að vexti er var
talinn hafa fellt fjörutíu af liði
Engla, áður en hann féll sjálfur
fyrir spjótmanni, er skreið
undir brúna og kom á hann
spjótlagi neðan frá. Að síðustu
komst enski herinn yfir brúna,
(ef til vill hefur áin einnig
verið væð, því sagt er að hún
hafi stíflast af valnum í grennd
við brúna) og fylkti liði aftur
til nýrrar sóknar.
Her víkinganna fylkti sér nú ,
einnig á nýjan leik, undir stjórn i
Tósta jarls og orustan hófst að i
nýju. Sneri her Engla nú aðal-
sókn sinni að fullhugum þeim,
er mynduðu hring um Landeyð-
una, gunnfána innrásarhers-
ins. Sá hluti víkingahersins, er
gætt hafði skipanna, hafði nú
komið til liðs við hina að-
þrengdu félaga sína, undir
stjórn Eysteins orra. Rétti þessi j
liðsstyrkur bardagann um;
stund, svo að ekki mátti á milli
sjá, hvorir sigra mundu, og var
nú barizt af enn meiri grimmd
og ofsa en nokkru sinni áður.
Bardaginn varð að
blóðbaði.
En hamingjan hafði snúizt
gegn hinum sigursælu víking-
um. Haraldur, hinn mikli for-
ingi þeirra, var fallinn. Liðs-
aukinn, sem þeim barst frá
Riccall, hafði gengið alla leið
þaðan, um 25 kílómetra, í her-
klæðum sínum, í síðdegishitan-
um og var því úttaugaður og
ófær til að leggja til bardaga
við ofurefli liðs. Víkingar börð-
ust þó meðan þeir gátu uppi
staðið og féllu að síðustu af
þreytu og mæði. Tósti jarl féll,
særður mörgum sárum og
smám saman féllu allir foringj-
ar víkinga, svo að enginn stóð
uppi.
Allt viðnám var hú brotið á
bak aftur og bardaginn snerist
upp í hreint blóbað, er hélt á-
fram fram í myrkur. Síðasta
innrás Norðmanna í England
var brotin á bak aftur. Hinn
gullni dreki Wessex hafði sigr-
;að Landeyðuna. Sagan greinir
’ekki frá öðrum sigri meiri en
1 þessum sigri Saxakonungs á
innrásarher víkingana haustið
1066.
Nokkrir flóttamenn komust
undan til skipana, og nokkrum
dögum seinna, þegar Ólafur
konungsson hafði unnið eið að
því að halda frið við England
og skilið eftir gisla í Jórvík,
héldu nokkur skip hins mikla
flota, er skömmu áður hafði
siglt upp Úsu með hinn sigur-
sæla víkingaher, út úr mynni
Humbru áleiðis til Orkneyja.
Og síðan féll
Haraldur Guðinason.
Langt að baki, á hinum reyr-
vöxnu bökkum lygnrar Der-
wentár, lá bleikur valur blóma
norsku þjóðarinnar. Þúsundir
fallinna æskumanna í blóma
lífsins. Árum saman áttu bein
þeirra eftir að liggja þarna of-
anjarðar, bleik og skinin. Lík
Haralds konungs var fært til
Niðaróss og jarðsett í Maríu-
kirkju, er hann hafði látið
byggja. Lík Tósta jarls var
greftrað í Jórvík — er telja
má kaldhæðni örlaganna — en
sú tortímingarskriða, sem hann
hafði hleypt af stað, hélt áfram.
Innan fjögurra daga frá or-
ustunni við Stanforða-
bryggju, og meðan Haraldur
konungur var enn í Jórvík,
lenti Vilhjálmur bastarður
skipum sínum á óvarinni suður
strönd Englands. Þ. 5. október
var Haraldur kominn til Lund-
úna aftur og tekinn að undir-
búa vörn sína gegn þessum
nýja innrásarher. Honum hafði
auðnazt, eins og hann sagði
sjálfur, „lítil kyrrð“. Níu dög-
um síðar féll þessi vígmóði en
hugprúði konungur helsærður
í hinni rofnu skjaldborg hús-
karla sinna, við Helsingjaporí.
Metnaðarmál Tósta jarls hafði
þannig að síðustu komizt í
framkvæd til óþurftar öllum
landslýð.
England var upp frá þessu
dregið inn á rómversk-evrópsk-
ar brautir og draumurinn um
voldugt enskt-norrænt stór-
Gamíárskvöld —
Framli. af 33:
vegis skuli ekki leyft að skjóta
af byssum eða hafa í frammi
annan hávaða á gamlárskvöld,
því þegar óþokkamenni reyna
að nota sér hátíðaglaðværðina
til að ná sér niðri á óvinum
sínum, þá er kominn tími til
að taka í taumana.“
„En hvers vegna má ekki
hafa eimpípublástur og
klukknahringingar, þótt byss-
urnar þegi?“ segi eg. „Það ger-
ir engum mein.“
„Jæja, auðvitað voru engar
eimpípur til í þá daga,“ segir
afi minn, „en eg var næstum
búinn að gleyma að segja þér
frá, að einhver dygðarsnauður
þrjótur barði Sam Hall í höfuð-
ið með nautabjöllu þessa nótt,
svo að næstum kom gat á höf-
uðkúpuna á honum og þá var
það vopn bannfært líka.“
veldi, er næði yfir alla Norður-
Evrópu, varð að engu í eitt
skipti fyrir öll. „En síðan or-
ustan við Stanforðabryggju
var háð, hafa hinar norrænu
frændþjóðir aldrei stigið á
enska grund öðru vísi en sem
vinir og bandamenn,“ skrifar
Freeman í bók sinni „The Nor-
man Conquest“.
NÝJUNG!
Rheinmetall skrifstofuvélar með kalkipappírs-
litarbandi. Auk þess hægt að nota venjulegt litar-
band. — Prentletur, tugadálkastilli, gleiðletursstilli,
6 ásláttarþungar.
Fyrirliggjandi með 24, £2, 38 og 62 cm. valsi.
Rafmagnsritvélarnar eru komnar.
Pantanir óskast sóttar.
FERÐARITVÉLAR
Við eigum ábyggilega ferðaritvél,
sem hentar yður hvort sem þér
þurfið að nota hana í ferðalag,
í skóla eða á heimili.
a
Rheinmetall samlagningarvélar. Tekur að 100 millj. í
útkomu. Kreditsaldo. Handsnúnar og rafknúnar.
Verð kr. 4316.00 og 6370.00.
Erika er álitin fremst sinnar
gerðar í heiminum. Ennfremur
eigum við Rheinmetall, Groma og
smávélina Kolibri.
Rheinmetall kalkulatorar með geymsluverkum.
Alsjálfvirkir á margföldun og deilingu kr. 20.780.00.
— Hálfsjálfvirkir á margföldun, alsjálfvirkir
í deilingu kr. 15.125.00.
Útvegum allar gerðir prent- og bókbandsvéla, enn-
fremur prent- og gyllingaletur og matrísur í setjara-
vélar. Fyrirliggjandi: Pappasöx 36, 55 og 68 cm.
36 cm. söxin ómissandi fyrir skrifstofur. Ennfremur
fyrirliggjandi prentlitir frá heimsþekktum verksmiðj-
um og heftivír fyrir patentspólur (bókband).
Astra samlagningarvélar,
kreditsaldo. Tekur að 10 millj-
örðum í útkomu. Hraðgeng.
Verð kr. 7200.00.
Vinnuljósgleraugu komin aftur. Ómissandi á hverju
verkstæði, heimili og í hverjum bíl. Fyrirliggjandi
fyrir 6 volta og 12 volta bílgeyma og vasaljósa-
batterí. — Verð kr. 105.00 og kr. 125.00.
Borgarfell h.f.
Klapparstíg 26 - Sími 11372