Morgunblaðið - 30.04.1933, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.04.1933, Blaðsíða 14
10 MORGUNBLAÐIÐ doooooommQ r3E<r>fwwwv?%-!«víiV(r>f5 BYGGINGAREFNI GLER: Rúðugler — valsað 2-3-4-5-6 mm. Slípað rúðugler ca. 5 & 7 mm. Hamrað gler, hvítt og litað, margir lítir og gerðir. Matt gler. „Opalgler“ 3 & 6 mm., margir litir. Spegilgler, slípað og óslípað. Kúpt gler. Nýtt! Litað „Opai“ gler 6 m/m á veggi í baðherbergjum, eldhúsum, forstofum og víðar (í stað flísa), enn- fremur í gluggakistur, skilti kringum búðarglugga (utan) o. fl. Úrval af skrám, húnum og allskonar járnvörum tilheyrandi húsasmíði. Trjesmíðavjelar frá I/S JUNGET, Herning og NORDISK MASKINFABRIK A/S, Köbenhavn. — Athugið vjelasýninguna á Laugaveg 15. KROSSVIÐUR: Birkikrossviður, tvær tegundir, frá 3 til 26 mm. þykkur. Furukrossviður, frá 4 til 8 mm. Eikarkrossviður. Mahognikrossviður. Oregon pine krossviður. Gaboon plötur „FIONIA“ 10-12-16-20-26- 30 mm. Blerslípnn Höfum nú fengið fullkomnari vjelar en áður til að slípa gler og getum því afgreitt með stuttum fyrirvara glerplötur með slípuðum brúnum, t. d. á skrifborð, reykborð, snyrtiborð, afgreiðsluborð í verslunum o. fl. Renni- hurðir með slípuðum brúnum og handgripum, — í skápa, — og glerhillur. „Facet“ slípaðar rúður í hurðir o.s.frv. Höfum ennfremur vjel til að bora göt í glerplötur. Ath. Alt unnið af fagmanni. Reykjavík. sóknar. En það er vitanlega ekki tímabært á þessu stigi málsins að skýra nánar frá þeim undirbún- ingi, sem nú er að fara fram. j Eitt atriði vildi jeg þó nefna að lokum. Meðal húsagerðar- manna er talsverður hugur á að fá innlent einangrunarefni í stað hinna útlendu, sem hingað flytj-1 ast og þykja reynast misjafnlega að ýmsu leyti. Af innlendum efn- um hefir aðallega þrent komið til greina: 1. Froðusteypa, úr sementi og sendi og þess vegna að nokkru leyti úr útlendu efni, þótt væri gerð hjer. Hefir hún verið reynd um nokkur ár utanlands, einkum í Svíþjóð og Danmörku, en vinn- ur furðuhægt útbreiðslu. 2. Pressaður svörður eða reið- ingur. Eru til vjelar, sem geta pressað reiðingstorf í harðar hell ur; og talsvert er um víðáttumikl- ar torfmýrar hjer á landi, svo efni ætti að vera nægilegt fyrir hendi. Aftur er óreynt, hversu slíkar svarðarhellur mundu reyn j ast innan á múrveggi undir net! og múrhúðun, og verður að gera tilraunir með það, áður en lagt sje í mikinn kostnað til að búa þær til. 3. Vikurhellur er þriðja efn- ið. Hafa verið gerðar tilraunir með steyptar vikurhellur innan á múrveggi og eins að steypa heil hús úr vikri, nokkur undanfarin ár, og jafnframt rannsakað vís- indalega einangrunargildi þess- arar vikursteypu. Hafa húsin og hellurnar reynst ágætlega og ein- angrun vikursteypunnar að vera um % korks. Ef unt væri þannig' að fá jafngóða og ódýra innlenda einangrun og besta kork útlend- an, þá virðist auðsætt, að það innlenda ætti að ganga fyrir. — Vikur er til nógur hjer á landi. Hefir hann verið sóttur á bílum austur í Þjórsárdal og steypt úr honum hjer, og Jökulsá á Fjöll- um hefir verið látin flytja hann niður í Axarf jörð og hann tekinn þar og fluttur á notkunarstað- inn. Liggja fyrir bráðabirgðaá- ætlanir um vinslukostnað og vant- ar nú aðeins f je til að hrinda fyr- irtækinu af stað. En það vantar svo víða, og fæst ef viljinn er nógur. Helgi Hermann Eiríksson. Iþróttahreyfingin 9 á Islanði hlýtur að gefa þjóðinni styrk til frjálsari hugsun- ar og frjálsari menningar- brags. Svolítið yfirlit. Vjer Islendingar erum montn- ir af fomsögum vorum og sögu- hetjum. Vjer erum aðallega montnir af þrennu í fari þeirra: að þeir voru siglingaþjóð ágæt, að þeir voru öðrum fremur hirð- skáld höfðingja og að þeir voru íþróttamenn, sem báru af útlend- ingum, hvort sem vopnum átti að skifta, eða þreyta fagrar íþrótt- ir. Minningin um þetta lifir enn, og hún varpar glæsibjarma á þjóðina, sem Island bygði og í- þróttir sona hennar, bæði líkam- legar og andlegar. Enn munum vjer sögumar um Gretti og af- rek hans, ógæfumannsins, sem Ásmundur faðir hans sagði um: „Slyngt yrði þjer um margt,; frændi, ef eigi fylgdi slysin með“. En Grettir svaraði: ,,Þó verður þess getið, sem gert er“. Enn munum vjer Bjöm Hít- dælakappa, þegar hann barðist við berserkinn í Rússlandi, og þegar hann lagðist eftir Hítará ásamt Gretti. Enn í dag eru óteljandi ömefni á landinu bundin við útlagann mikla: Grettistök og Grettis- skyrtur. Enn munum vjer það, er Kjartan Ólafsson þreytti sundið við hinn frægasta íþróttamann, sem þá var á Norðurlöndum, Ól- af konung Tryggvason, þegar Glúmur hljóp niður í gljúfrið undan Skúta, þegar Gísli Súrs- son kepti við þá á Seftjörn, þeg- ar Hörður kepti við Stranda- menn, þegar Gunnar á Hlíðar- enda ljek listir sínar, þegar Kári hljóp út úr eldinum, þegar í- þróttamót voru í öllum sveitum og þangað streymdi mannval úr öllum nærliggjandi hjemðum. Munum líka aðra: Munum það ( er Austmaðurinn á Apavatni ljet Sighvat Þórðarson draga glæsi- ' legasta silunginn, sem þeitf höfðu sjeð, fór heim með hon- j um og krafðist þess að nú æti hann fyrst haus og heila silungs- ins, því að þar væri hvers kvik- indis mest vit er heilinn væri. Sig- h v atur varð síðan aðalskáld vort við hirð Ólafs helga. — Mannvit og skáldskapur þótti líka íþrótt forðum. Munum söguna um Þórarinn Nefjólfsson og Guðmund ríka. „Diplomati" þótti íþrótt á þeim dögum, ekki síður en nú. Sje þetta alt dregið saman í stuttu máli, þá töldu forfeðuri vorir til íþrótta: líkamsmenning, skáldskap og mannvit. Og alt er þetta svo skylt að varla verður á milli dæmt, nema því aðeins, að vjer álítum líkamsmenninguna upphaf og orsök annara mann- kosta, sem forfeðrum vorum er hrósað fyrir. Og það skal gert hjer með. Þegar verslun íslendinga, sigl- ingar og sjálfstæð viðskifti við aðrar þjóðir fór út um þúfur, bap brátt að því, að skáldskapur þeirra og mannvit væri lítils virt af öðrum. En ein íþróttin lifði þó altaf með þjóðinni og var ódrep- anleg: líkamsmenningin, sem kemur svo fagurlega fram í hinni íslensku glímu, gullkom- inu úr íþróttum germanskra þjóða, sem vjer einir höfum bor- ið gæfu til að vemda og gera að vorri eigin íþrótt. Það var því ekki ófyrirsynju að alda íþróttanna hjer á landi byrjaði með því, að hefja ís- lensku glímuna aftur til vegs og virðingar. Þessi íþrótt skapar mönnum innsýn um það, hve nauðsynlegt er að læra og iðka aðrar íþróttir, sem heimsmenn- ingin kennir nú, að hverju bami sje nauðsynlegar. Hjer skal fljótt farið yfir sögu íþróttanna hjer á landi, aðeins drepið á hið helsta. Er þá fyrst að minnast á stofnun Iþróttasam bands íslands, 28. jan. 1912. Mörg íþróttafjelög voru áður stofnuð víðsvegar um landið, en flest þó í Reykjavík. Störfuðu þau sitt á hverju sviði. En með þjóðvakningunni á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar, þess manns, er fyrstur fann að andleg og lík- amleg menning yrði að haldast í hendur á Islandi, til þess að vel gæti farið, reis upp sú stofnun, sem enn í dag nefnist 1. S. í. (1- þróttasamband íslands). Þá höfðu íþróttamenn sjeð, „að sam- einaðir stöndum vjer, sundraðip föllum vjer“, — ef íþróttahreyf- ingin á íslandi átti að koma þjóð- inni að þeim notum, er reykvískir íþróttamenn sóru á aldarafmæli Jóns forseta, 17. júní 1911, að hún skyldi verða.* Það voru Reykvíkingar, sem mynduðu fyrst Iþróttasamband íslands. Voru það 9 fjelög sem stóðu að stofnun sambandsins og er fróðlegt að sjá, til samanburð- ar nú og þá um íþróttahreyfing- una í höfuðstað landsins, hvern- ig hvert af stofnfjelögunum var mönnum skipað: 1. Glímufjelagið Ármann 30 fjelagar. 2. Iþróttafjelagið Kári 27 f je- lagar. 3. Iþróttafjelag Reykjavíkur 70 fjelagar. 4. Knattspymufjelagið Fram 32 fjelagar. 5. Knattspyrnufjelag Reykja- víkur 62 fjelagar. 6. Skautafjelag Reykjavíkur 200 fjelagar. 7. Sundf jelagið Grettir 23 f je- lagar. 8. U. M. F. Iðunn 53 fjelagar. * Fyrir frumkvæði Jóns Sig- urðssonar um eflingu íþrótta í landinu, halda íþróttamenn af- mælisdag hans hátíðlegan á hverju ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.