Morgunblaðið - 17.06.1944, Síða 24
24
ÞJOÐHATIÐARBLAÐ 17. júní 1944
'vvwv*;*
Æiisagn frægasta Mendings síðan á þrettándn öld
hins mikla vísindamanns og velgerðarmanns alls mannkynsins
ó
te
3,
móenó
Vísindin um áhrif Ijóss og sólskins á mannslíkamann cru afrek hans,
enda hlaut hann Nobelsverðlaunin á unga aldri fyrir vísindaafrek sín.
Níels Finsen var íslendingur, sonur Flannesar Finsens, amtmanns,
en hann var sonur Ólafs Finsens, assesors við landsyfirrjettinn í
Reykjavík, Hannessonar, biskups í Skálholti, er var sonur Finns bisk-
ups Jónssonar, prófasts Halldórssonar í Hítardal.
Níels Finsen var stúdent hjeðan eins og minningartaflan í Menta-
skólanum segir til um.
ÆVISAGA NÍELS FINSENS er saga um þrotlausa baráttu manns,
sem finnur svo til þjáninga meðbræðra sinna, að hann ann sjálfum
sjer engrar hvíldar í lífinu.
Gieði hans er að hjálpa öðrum. Einkunnarorð Finsens voru:
Sá hefir lifað vel, sem lítið hefir borið á.
Þessi fagra saga, sem enginn getur lesið án þess að verða fyrir
ógleymanlegum áhrifum, á vafalaust eftir að vekja marga landa hans
til að endurskoða líf sitt og lífsviðhorf á þessum mikilvægu tímamótum.
Dr. Gunnlaugur Claessen skrifar ítarlegan formáia.
Bókin fæst í fallegu skinnbandi í öllum bókabúðum.
BÓKASTOFA HELGAFELLS
Aðalstræti 18 — Sími 1653
♦ VWvVVVVVWvVVVVVVVVVVVVV
"•*Wv*»**»*v*?v ♦••
•:•
5:
Mesto alþýðuskdld, sem þjóðin hefir dtt
ítarlega ritgerð um skáldið og list þess skrifar sveitungi og frændi
Páls, Gunnar Gunnarsson skáld á Skriðuklaustri.
Þetta er falleg og mjög vönduð heildarútgáfa og kostar aðeins kr.
55.00 í bókabúðum.
PÁLL ÓLAFSSOIM
Vísur og Ijóð Páls Ólafssonar hafa lifað á vörum íslendinga í yfir
50 ár, og þau munu lifa um allar aldir. Þó hafa ljóðin aðeins einu sinni
áður, fyrir síðustu aldamót, verið gefin út.