Morgunblaðið - 17.06.1944, Síða 29
ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ 17. júní 1944
29
— Vegamdlin í framtíðinni
. tf* cr»nwnh
Fulldregnar línur sýna aðal akvegakerfið nú. Deplalínur sýna helstu fyrirhugaða nýja akfæra vegi.
Framh. af bls. 27.
eru þó enn ógerðir, en vænta má að
Vatnsskarðsvegur verði fullgerður
eftir 2—3 ár og Öxnadalsheiðar eftir
5—6 ár. Má þá vænta, að oft verði
bílfært á vetrum til Akureyrar. —
Yfirleitt ætti ekki að verða mikil
vandkvæði að halda vegum hjer bíl-
færum á vetrum í bygðum, þar sem
veruleg umferðarþörf er. Hinsveg-
ar verður alltaf örðugleikum bundið
að halda þá uppi samgöngum um
fjallvegi. Þar sem veruleg umferð er,
verða notaðar vjelar, snjóýtur og
plógar og hefir þegar fengist nokk-
ur reynsla í því efni. En víða er
flutningaþörf svo lítil, að allt of
kostnaðarsamt verður að halda veg-
unum bílfærum fyrir venjulega bíla.
Hefi jeg trú á, að þar verði í mjög
verulegum mæli notaðir snjóbílar. —
Landslag og staðhættir eru víðast
þannig, að slíkir bílar munu geta
farið ferða sinna greiðlega og full-
nægt flutningaþörfinni þann tíma
árs. Nokkur reynsla hefir þegar
fengist og að loknum ófriðnum munu
vissulega fást hentug farartæki, sem
aka ofan á snjónum.
í fyrra voru sett ný lög um brú-
argerðir og eru þar taldar 178 brýr.
Af þeim eru enn 168 ógerðar, svo
sýnilegt er, að æði mikið er ógert á
því sviði, og vitanlega eru enn fleiri
brýr, sem síðar koma. Þá liggur fyrir
á næstu árum að breikka og endur-
bæta ýmsar eldri brýrnar og er það
verk þegar hafið, sjerstaklega í n^-
grenni Reykjavíkur.
Mönnum hættir ýmsum við að
áfellast vegamálastjórnina fyrir að
hafa ekki verið nógu framsýn og
bygt breiðari og vandaðri vegi og
brýr, en þess ber að gæta, að efni
hafa verið af skornum skamti yfir-
leitt, en þarfirnar hvarvetna miklar.
Var því nauðugur einn kostur að
dreifa vegafjenu víða um land. Allra
síðustu árin hefir verið nokkru
rýmra um fje og vegabætur með
mesta móti, þannig voru dagsverk
manna 200.000 1942, en 159.000 1943.
Til samanburðar má geta þess, að
1925 voru þau 22.500 og á árunum
næstu fyrir ófriðinn 85—95.000.
•
NAUÐSYN VJELANOTKUNAR
TIL ÞESS að geta framkvæmt með
hagsýni vegabætur og viðhald, er
brýn þörf nýtísku stórvirkra vjela,
enda hefir Alþ. viðurkent það og veitt
í ár 1.4 milj. kr. til vjelakaupa til
viðbótar allverulegri upphæð á
síðastliðinu ári. Vonandi tekst áður
langt líður að fá til landsins vjelar
þær, sem þegar hafa verið keyptar.
Það væri góð byrjun, en það er ber-
sýnilegt, að hjer er þörf margra vjela,
einnig vegna örðugleika að flytja
þær langar leiðir. Þá verður og að
breyta um tilhögun á fjárveitingum,
þannig að veittar verði stærri upp-
hæðir árlega til hverrar nýlagning-
ar, en vegirnir flokkaðir og ákveð-
ið hverjir skulu sitja fyrir og full-
gerast.
Aðstaða og nauðsyn vjelanotkunar
hefir skapast á ófriðarárunum, þar
sem fjárhagsleg geta okkar til kaupa
erlendis hefir batnað svo mjög og
verkalaun hjer hækkað stórkostlega,
en kaupverð vjela og rekstrarkostn.
lítið hækkað. Þá er og nú að minsta
kosti næg atvinna og ætti svo að
verða franavegis með bættu skipu-
lagi atvinnulífsins, en ekki eru mörg
ár síðan svo mikil eftirsókn var í
vegavinnu, að jafna varð vinnunni
milli verkfærra manna á heimilum
og nota varð hestkerrur til flutn-
ings á möl í vegi, þar sem fært þótti
í stað bíla, vegna fjárhagsörðugleika.
★
TAKMARKIÐ er nú, að bílfært
verði um hverja sveit og helst heim
á hvern bæ, að minsta kosti þegar
þurt er um, svo og ekki hvað síst,
að aðalvegirnir verði endurbættir svo
að þeir fullnægi sem best flutnings-
þörfinni. Jafnframt verða menn þó
að hafa hugfast, að ekki má vænta
þess, að vegir hjer á landi geti
yfirleitt þolað samanburð við vegi
erlendis, vegna víðáttu landsins og
strjálbygðar, samfara eðlilegri tak-
mörkun fjárhagslegrar getu þjóðar-
innar. Hinsvegar er landslag og veg-
stæði yfirleitt hentugra hjer á landi
til þess að gera ódýra vegi við okkar
hæfi, en víðast hvar annarsstaðar.
Það mun fara hjer eins og í öðrum
löndum, að sífelt kapphlaup verður
milli vegagerðarmanna með ný-
«
tísku vjelum og bílanna. Velt-
ur þá mjög á því, að fje og vjelar
verði fyrir hendi til þess að mæta
kröfum og þörfum umferðar-
innar. — Umferðarþörfin er
þó jafnframt mælikvarði á atvinnu-
lífið og fjárhagslega getu og má því
vænta þess, að sá. mikli áhugi, sem
landsstjórnin og fjárveitingarvaldið
hafa jafnan sýnt vegamálunum stuðli
enn að því, að nægilegt f je verði veitt
til þess að fullnægja sanngjörnum
kröfum um bættar samgöngur.
Svo sem hjer hefir sýnt verið,
eru æði mörg og mikilsverð verkefni
framundan, sem bíða úrlausna á
næsta aldarfjórðungi, mikið og
ánægjulegt starf fyrir þá, er að því
fá að vinna og vonandi giftudrjúgt
fyrir þjóðina, til aukinna framfara
og vellíðunar.
m
Leiðarvísirinn besti
til náins kunnleika á öllu því, sem
gerst hefir í Noregi styrjaldarárin,
er bók Worm Múllers prófessors
Noregur undir oki Nuzismuns.
Fróðleg óg merkileg bók, um
harmsögu og hetjudug norsku
þjóðarinnar
Kaupið og lesið þessa