Morgunblaðið - 14.06.1956, Side 3
Fimmtaiagur 14. Júni 1956
MORCUTSBLÁÐIÐ
3
Glerkýr sambandsins
AAÐALFÚNDI Kaupfélags Eyfirðinga konx í Ijós, að Sambandið
hefir ekki talið ástæðu til þess að nota gjaldeyrisyfirfærslur
sínar til þess að kaupa girðingarefni og gaddavír handa norð-
lenzkum bændurn. Hefir Tíminn viljað kenna Sjálfstæðismönnum
um að þeir hafi af illmennsku sinni ekki viljað veita Sambandinu
gjaldeyrisyfirfærslur fyrir girðingaefninu!
Slíkar fullyrðingar falla um sjálfa sig, en síðasti Dagur á Akur-
eyri ber þess glöggt vitni í auglýsingadálkum sínum til hvers Sam-
bandið hefir notað gjaldeyrisyfirfærslur sínar. Þar er ekki annað
auglýst en dýrindis krystall, postulín og glerkýr á sama tíma sem
bændur skortir girðingarefni. Auglýsingin er svohljóðandi og þarf
ekki frekar vitnanna við um hvað Sambandið telur „nauðsyn-
legasta innflutninginn".
Nýjar vörur daglega
Krystall
Postulín
Skartgripir
Þýzkt keramik
og mjög fjölbreytt úrval af
blásnum glervörum.
Athugið verðið áður en þér kaupið annars staðar.
BLÓMABÚÐ K E A
Það er mikil gleði ríkjandi á Suður-Tjörninni, þar sem hin stoltu álftahjón eru að uppfóstra tvo
unga sína, sem komu í heiminn um helgina. Álftarpabbi er árvakur vörður heimilisins í Þorfinns-
hólma og ræðst hiklaust til atlögu gegn hverjum þeim, sem hann telur koma of nærri netgirðing-
unni umhverfis tjörnina og hólmann. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.i
Utanríkisráðfíerrann og Framsókn á Keflavíkurflugvelli
Tt MIN N hcfur fyrir skemmstu kvartað yfir persónulegum
árásum andstæðingablaðanna á utanríkisráðherrann dr. Krist-
inn Guðmundsson og m. a. nefnt Morgunblaðið í því sambandi.
Er það háttur vesalla blaða, með lélegan málstað, og lítt karl-
mannlegt, að kveikna sér með þessu móti við rökföstum ádeilum
á skoðanir og stjórnmálaaðgerðir valdamanna.
Morgunblaðið hefur aldrei haft neina tilhneigingu til persónu-
legra árása á ráðherra Framsóknar í samsteypustjórninni, þó að
Tíminn hins vegar aldrei hafi þreyzt á hverskonar skætingi í garð
ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið hefur farið hlýjum
orðuni um dr. Kristinn Guðmundsson persónulega, enda er hann
flestum stjórnmálamönnum fremur maður óáreitinn, friðsamur og
vinsæll.
Hitt er annaö mál, að það hefur oröið hlutskipti hans að vera
tnerkisberi flokks síns í utanríkismálum, og getur því ekki hjá
því farið, að hann sæti ámæli fyrir stefnu, aðgerðir og bardaga-
hætti Framsóknar í þeim málum.
Þykist Morgunblaðið ekki ganga of nærri æru ráðherrans þó að
þess sé krafizt, að hann standi við orð sín, og skýri þau, eða láti
skýra þan, ef með þarf. Utanríkisráðherra landsins má helzt ekki
tala af sér um mikilvæg efni.
Sænskt blað hafði nýlega þessi ununæli eftir ráðherranum:
„Bandaríkin lofuöu að blanda sér á engan hátt í íslenzk inn-
anríkismál. Þau hafa ekki haldið þetta loforð. Þau hafa ekki
vílað fyrir sér að styðja Sjálfstæðisflokkinn.“
Morgunblaðið gerði fyrirspurn til ráðherra hvort ummælin væru
rétt eftir honum höfð. Hvorki hann né blaö hans svaraði. Þá
bað Morgunblaðið ráðherrann að færa rök fyrir þessum ummælum.
Því var svarað með þögn, bæði af ráðherranum og Timanum. Sú
þögn talar skýrt sínu máli.
Áður hafði ráðherrann látið þessi orð falla í grein í Tímanum:
„Alltaf hefur mér þótt óviðkunnanlegt hið nána samband,
er mér hefur virzt vera milli Sjálfstæðisflokksins og bandarískra
aðila á Keflavíkurflugvelli. Skal það skýrt nánar ef óskað er.“
Þjóðviljinn prentaðí þessi ummæli upp tvívegis, og bað um
þær skýringar, sem ráðherrann hafði boðizt til að gefa, ef þess
væri óskað. En ráðherrann og blað hans þögðu.
Hvað var annað hægt?
PREIMTIVIEME
Getum tekið einn prentnema
í prentsniiðju vora.
JpWjgnnMaíúð
17. júní-blómin
Kaupið í dag- eða á morgun
STÚDEIMTARÓSINA
Blóm og Ávextir, sími 2717.
FRAMSÓKN OG KEFLAVÍKUR-GRÓÐINN
Ekki voru varnarmálin fyrr komin í hendur Framsóknarflokks- ;
ins en sett var á laggirnar sérstakt varnarmálaráðuneyti. Mátti I
cngan íslending ráða til starfa í þjónustu varnarliðsins nema meö j
samþykki þess ráðuneytis — og hefur það alla tíð verið aðaláhuga- j
mál þess, að koma sem flestum Framsóknarmönnum í góða atvinnu
á Keflavíkurflugvelli. Siðan hafa engir verið ráðnir til slíkra j
starfa nema gráöugir Framsóknarmenn, sem hafa lyktað uppi '
hverja matarholu á vellinum, og lagt hana undir sig og sína. Og
nú er þetta fólk huggað með því, að það þurfi engu að kviða þó
að varnarliðið fari — þá taki við íslenzk vallargæzla, og þar með
sé því borgiff.
Samband isl. samvinnufélaga var látiff eignast fjórðung í Aðal-
verktökum, sem hefur með höndum alla mannvirkjagerð á flug- j
vellinum. En dótturfélag Sambandsins selur alla olíu til farþega-
flugvéla.
Og eitt af fyrstu verkum varnarmálaráðuneytisins var aff veita
hlutafélaginu Reginn einkarétt á viðgerðum og viðhaldi allra fast- !
eigna á Keflavíkurflugvelii — en aöaleigendur þess eru nokkrir :
sprengvirðulegir Framsóknarmenn, Helgi Þorsteinsson, Hjálmtýr ,
Pétursson (gjaldkeri Timans) o. fl.
Hvenær sem nú er talað um regin-hneyksli finnst mönnum sem j
crðið sé myndaö af nafni hlutafélagsins Reginn.
Þaff veröur því að teljast mjög líklegt að flokksmenn utanríkis-
ráðherrans liafi beðið hann að stcinþegja framvegis um náið sam-
band milli einstakra stjórnmálaflokka og gróðalindanna á Kefla-
víkurflugvelli. Varnarmálaráðuneytiff virffist aðallega hafa verið
til þess stofnað, að sjá um að sem mest af þeim gróffa rynni til
Framsóknarmanna.
Engum dettur í hug að sakast við dr. Kristinn Guðmundsson
einan um þaö sem ótilhlýðilegt hefur veriff í þeim ágangi.
Svona flokkur er Framsókn — og hefur ævinlega veriff. Kruml-
urnar notaöar til aff hrifsa til sín hvern matarbita sem í næst
— en munnurinn til að óskapast yfir gróðafíkn Sjálfstæðismanna.
Fnunhaldsnóra fyrir hús-
mæðrokennaro í Banmorku
EINS og að undanförnu hefst
námskeið í hússtjórnarvís-
indum við Háskólann í Árósurn
í Danmörku í október n. k. Tekið
er á móti umsóknum þegar, og
ber að senda þær til Special-
kursus i Husholdning ved Aarhus
Universitet, Aarhus, Danmark.
Hægt er að velja um þrjár
greinar eins og áður, og standa
námsskeiðin yfir frá okt.—apríl
eða í sex mánuði. Hinar þrjár
mismunandi greinar eru: A. Nær-
ingar- og fæðuefnafræði. B.
Heimilistækni. C. Heimilishag-
fræði. Ennfremur gefst nemend-
um á öllum þrem námskeiðum
kostur á að hlýða á fyrirlestra í
sálarfræði. Námskeið þessi eru
haldin fyrir húsmæðrakennara,
og sækja þau kennslukonur frá
öllum Norðurlöndum.
Öll kennsla er ókeypis, pg
verður umsóknum svarað jafnóð-
um og þær berast. Einnig gefst
nemendum kostur á mjög hent-
ugu og góðu húsnæði á sérstöku
stúdentaheimili fyrir mjög vægt
verð, og þarf að sækja um það
fyrir 15. ágúst. Allar nánari upp-
lýsingar er hægt að fá hjá Helgu
Sigurðardóttur, skólastjóra Hús-
mæðrakennaraskóla íslands, frá
Specialkursus i Husholdning ved
Aarhus Universitet eða frú Karen
Harrikilde Petersen, Kollegium
7, Aarhus Universitet.
Óska eftir vinnu fyrir
sendiferðobíl
(Chevrolet station, model
1953) eftir kl. 5 síðdegis.
Uppl. i síma 4391. —
(Geymiff auglýsinguna).
Nýtízku suniar-
Kvenföskur
Kvenhanzkar
Barnatöskur
Innkaupaföskur
Vönduð seðlaveski. — Skoð
ið hið glæsilega úrval.
Leðiirrörucleild
Hljóhfærahiíssins
Bankastræti 7
(Efra húsið).
er fróðlegasta og handhægasta
kosningabókin og hcnni einni
fylgir tíu þúsund króna
kosni nga getraun.
F J Ö L V í S
BEZT AB AVGtÝSA
I MORGVmLAÐINV