Morgunblaðið - 14.06.1956, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.06.1956, Qupperneq 23
Fimmtudagur 14. júni 1956 MORGUKBLAÐIÐ 23 Afmæliskveðfa til Jakobs Tkorairensens ÞETTA verður engin venjuleg af- mælisgrein, heldur rabb eftir dúk I og disk. Mér kom á óvart er ég las í Morgunblaðinu 18. maí, að þú fylltir sjöunda tug aldursárs þáns daginn þann, og brá mér því í heimsókn til þín. Jú, viti menn, þar var fyrir hálf eða heil tylft af rithöfundum (ég taldi þá ekki) svo það var víst ekki um að vill- ast að eitthvað var um að vera. Veitingar voru bornar fram af mikilli rausn þinnar göfugu konu. Já, vel á minnzt, mikið mega kon- ur annarra skálda öfunda Borg- hildi þína af samnefndu kvæði þínu í annarri ljóðabók þinni, Sprettir (1919). Þá bók þykir mér vænzt um af ljóðabókum þínum og oft hef ég farið. „spretti einum í / alla Spretta vegi“, eins og Herdís Andrésdóttir skáldkona kvað til þín, eitt sinn — og énn- fremur: Ekkert létt ég í þeim finn, óðs er þéttur kraftur; gott er þetta, góði minn, gefðu spretti aftur. Síðan þetta var ort hefur þú tekið margan sprett á Pegasus og setla ég, að óhaltur hafi hann ávallt géngið undan þér. Undirritaður hefur áður fyrir áratug síðan þakkað þér í Morg- unblaðinu fyrir allar þínar mörgu og góðu ljóðabækur, sem þú hefur ort og gefið út. En þar sem góð vísa er aldrei of oft kveð- in, þakka ég þér enn fyrír bæk- urnar þínar, einkum ljóðabrek- urnar, því er ei að leyna að þú ert mer miklu kærari sem ljóð- skáld heldur en sagnaskáld. og veldur því fleira en eitt. Það er alkunnugt að þú ert þjóðskáld, og það í gömlum og góðum stíl. Samt hika ég ekki við að fullyrða að þú ert ekki skáld fjöldans, og þú ert heldur ekki maður fjöld- ans, og einmitt fyrir það ertu mér kær. Ég gleymi þvi ei hvað mér þótti skáldið hrjúft við fyrstu kynni, líkt og Grímur Thomsen. En þar var til einhvers að vinna, lílct og óslípaðir gim- steinar eru sum kvæði þín. Það er minna um grjót í námunum þeim. Ég veit að þú kannt mér litlar þakkir fyrir lof um þig og þín verk, en ég ætla ekki að segja meir en ég get með góðri sam- vizku staðið við. Þú veizt að ég skrifa ekki gremar eftir pöntun- um og ég veit að þú yrkir ekki kvæði eftir pöntunum. Þannig á það að vera, af eigin hvötum frjálst og óþvingað, og ég vona að þú erfir það ekki við mig þó að ég sendi þér þessar afmælis- línur, sem eru hvoru tveggja í senn, flítisverk og af vanefnum gjörðar, eins og fleiri mannanna verk. Fólagslíf KnaUspvrnumcnn Þróttar Æfing hjá 2. flokki kl. 8. Hjá meistara og 1. flokk kl. 9. Nefndirnar. I. O. G. T. St. Dröfn nr. 55 Enginn fundur i kvöld vegna Stórstúkuþings. — Æ.t. St. Andvari nr. 265 Fundur í kvöld kl. 8,30. Samkomnr Hjálpræðisherinn 1 kvöld kl. 8,30: Almenn sam- koma. Kapteinn Hansen Ona tal- ar. — Yerið velkomin. Fíladelfía Almenn samkoma kl. 8,30. Ræðu menn: Guðmundur Markússon og Ester Níelsson. Allir velkomnir. Víða má í verkum þínum — í bundnu sem óbundnu máli — finna andúð þína á sýndar- mennsku, enda ert þú enginn meðalmaður í skáldskap þínum, ferð dagfari og náttfari ef því er að skipta og ávallt á kostum. — Efni kvæða þinna skiptir mestu máli, líkt og hjá frænda þínum Bjarna Thorarensen, formið síð- ur, þó fer hvort tveggja oftast- nær snilldarvel saman „sem hár og greiðu, sem brók og læri“ eins og segir í Pétri Gaut Ib- sens. Þú yrkir ekki nema þú haf- ir eitthvað að segja, þú ert eng- inn rímgjálfrari, síður en svo, þú ert skapandi skáld og þú ert vax- andi skáld, það sýnir bezt ljóða- bók þin Hrímnætur (1951) og einmitt vegna þess finnst mér svo lygilegt að hugsa sér þig öðru vísi en ungan að árum. jafn and- lega frjóvan og raun ber vitni, og því verður það nú afmælisósk mín til þín að svo megi ávallt verða svo lengi sem lífsanda dregur. Heill þér sjötugum Milton íslenzká! Stefán Rafn. - Haf nfirzka liand- knattleiksliðið Frh. af bls. 14. erum alveg við því búnir að tapa — en munum gera okkar bezta. Ég veit ekki til að ísl. lið hafi nema einu sinni leikið við Dani. Það var ísl. landsliðið 1950 og tapaði innanhúss 20:6 að mig minnir. En leikirnir nú fara allir fram utanhúss. Undir það eru okkar menn búnir eins vel og við getum, hvað langt sem það dugar. ★ Þannig fórust Hallsteini orð. Við heyrum vonandi meira frá þessum hafnfirzku íslandsmeist- urum, áður en þeir leggja í „eld- inn“. Góð afvinna á Siglufirði SIGLUFIRÐI, 11. júní — Góð atvinna hefur verið hér það sém af er þessu vori. Síðustu viku losuðu báðir bæjartogararnir hér fullfermi af karfa. Hafliði land- aði 330 smál. og Elliði 300 smál., sem allt fór til frystingar hér í húsunum. Báðir togararnir fóru strax á veiðar aftur að aflokinni löndun. í dag mun mótorskipið Ingvar Guðjónsson landa hér 60 tonn- um af þorski og Súlan 40 tonr.um. Von er á skipi í dag til að lesta frosinn fisk frá frystihúsunum. Afli hefur verið sáratregur hja þeim bátum, sem róa með línu og munu þeir nú vera að hætta róðr- um. —Guðjón. Fer Alsírmálið fyrir Öryggisráðið 'SAM. ÞJÓÐ., 12. júní: — Fulltrú- ar Asíu- og Afríkuríkja ákváðu í dag að leggja Alsírmálið fyrir öryggisráðið. Þrettán fu’ltrúar hafa ákveðið að rita öryggisráð- inu ýtarlegt bréf um máli, en ekki munu allir fulltrúarnir hafa skuldbundið sig til að undirrita bréfið, þ. á. m. Indland, Ceylon, Filippseyjar, Burma, Tyrkland og Ethíópíu. — Reuter-NTB. STALINGRAD, 12. júní: — Krús- jeff hefir látið svo ummælt að Rússland muni brátt skáka Banda ríkjunum — og verða auðugasta land í heimi. Komst hann svo að orði á samkomu verkamanna í Stalíngrad, er hann var þar stadd ur ásamt gesti sínum, Titó mar- skálki. Bók Buber-Neu- manns DANSKA bókaútgáfan Schön- bergske Forlag hefur sent Mbl. eintak af bókinni „Fange hos Stalin og Hitler“, eftir Marga- rete Buber-Neumann. Bók þessi er mikil raunasaga konu, sem varð að sitja í fangelsi í nærri ára tug. Kom bókin fyrst út á þýzku og hefur vakið mikla athygli. Sagah hefst á því, að þau hjón- in Heinz NeUmann og Margarete voru baráttumenn í þýzka komm únistaflokknum. En þegar Hitler tók við völdum, urðu þau eins og svo margir aðrir róttækir Þjóð verjar að flýja land. Varð það úr, að þau flýðu til sæluríkisins í austri, Rússlands. . En árið 1937 voru þau bæði handtekin ,af rússnesku lögregl- unni N.K.V.D. og flutt til sitt hvorra fangabúðanna í Síberíu. Heinz Neumann lét þar lífið. En árið 1940, þegar vinátta ríkti milli Hitlers og Stalíns, gerðu Rússar það níðingsbragð að afhenda Þjóðverjum fjölda pólitískrá flóttamanná, kommúnista og aðra. Þeirra á meðal var Marga- Mínar innilegustu hjartans þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu mig og sýndu mér ógleymanlegan hlýhug og vináttuvott með góðum gjöfum, blómum og skeytum á áttræðisafmæli mínu. Algóður guð blessi ykkur öll. Helgi Jensson. Lokað eítir hádegi í dag LOKAÐ Ailar deildir fyrirtækisins verða lokaðar eftir klukkan 12 á hádegi í dag. Garðar Gíslason h£. reie Duuer iNeumann. AVtAÖÖdl ai- hentu hana Þjóðverjum í Brest Litovsk 8. febrúar 1940. Þjóð- verjar fluttu hana beint til Rav- ensbrúek fangabúðirnar, sem voru meðal hinna alræmdustu Gestapo-fangabúða. Er lýsing Margarete Buber- Neumann á fangabúðunum bæði í Rússlandi og Þýzkalandi mjög ýtarleg og getur vakið menn upp til umhugsunar, hve ótrúlega margt er líkt með stjórnarfari nazista og kommúnista. Bók þessi verður mönnum e. t. v. enn íhugarverðari eftir að nú- verandi valdhafar Sovétríkjanna hafa viðurkennt að frásagnir af hinum ægilegu fangabúðum eru sannar. Fyrir nokkrum árum hefði hópur manna borið brigður á að frásögn Margarete Buber- Naumann væri rétt, en nú tjáir ekki að bera á móti augljósum staðreyndum um þann smánar- blett, sem fangabúðirnar eru á einvaldsskipulaginu. Synodus verður 26.-28. júni í KIRKJURITI, sem út kom nýlega, er m.a. skýrt frá dag- skrá fyrirhugaðrar prestastefnu íslands, sem halda á hér í Reykja- vík 26.—28 júní næstkomandi. Hefst prestastefnan með því að guðsþjónusta verður í Dómkirkj- unni árdegis, en eftir hádegið verður stefnan sett af biskupi landsins í Háskólakapellunni. Meðal erinda sem flutt verða á prestastefnunni eru: Kosning biskups, skipan og störf vígslu- biskupa, og er séra Sveinn Vík- ingur, skrifstofustjóri, framsögu- maðun. Þá verða flutt 2 synodus- erindi og fjallar annað þeirra um Helga menn og hugvísindi og flyt ur það séra Benjamín Kristjáns- son, en síðara synodus-erindið flytur séra Sigurður Guðjónsson prófastur um íslenzkan sálma- kveðskap. Þá verður séra Árelíus Níelsson framsögumaður um er- indi sem hann nefnir: Námsskrár í kristnum fræðum í barnaskól- um og unglinga og fermingarund- Fyrsfa starfsári maf- sveinaskófans lokið MATSVEINA- og veitingaþjóna- skólanum var slitið 31. maí s.l., og var þar með lokið fyrsta starfs ári skólans, en eins og kunnugt er var skólinn vígður af ráðherra Bjarna Benediktssyni 1. nóv. s.l. Skólastjórinn Tryggvi Þorfinns son, sleit skólanum með ræðu. en þar sem þetta er fyrsta starfsár skólans, þá útskrifuðust engir nemendur að þessu sinni. Skólinn starfar i þremur deild- um og við skólann störfuðu aúk skólastjóra 5 kennarar. Maðurinn minn elskulegur og faðir okkar ÓLAFUR HAFSTEINN ÁSBJÖRNSSON, húsgagnabólstrari, lézt mánudaginn 11. júní. Guðný Hreiðarsdóttir, Maj-Britt Kolbrún, AuAur Ilelga, Rannveig Kristín, Hulda Fanný. Maðurinn minn, faðir okkar og sonur ÓSKAR GUÐMUNDSSON, prentari, sem lézt af slysförum hinn 8. þ. m., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. þ. m. kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. .— Þeim, sem vildu minn- ast hins látna, er bent á Slysavarnafélag íslands eða Barnaspítalasjóð Hringsins. Auður Sigurhansdóttir, Anna G. Bjarnadóttir, og dætur. Guðmundur Jónsson. Móðir mín ELÍN MAGNÚSDÓTTIR Hallgeirsey, verður jarðsungin laugardaginn 16. þ.m. Athöfnin hefst með bæn að heimili hennar klukkan eitt e.h. Jarðað verður að Krossi klukkan tvö. Guðjón Jónsson. Útför stjúpföður okkar, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR, trésmiðs, Hallveigarstíg 8, fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 15. þ. m. kl. 1,30 e. h. og hefst með bæn að heimili hins látna, kukkan 12,50 e.h. Hjalti Guðnason, Lúðvíg Guðnason. Jarðarför móður minnar GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR, fer fram að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd laugardaginn 16. þ. m. og hefst kl. 11 árdegis. Ef einhverjir kynnu að vilja minnast hennar, er þeim bent á Hallgrímskirkju í Saurbæ. Fyrir hönd vandamanna Sigurjón Guðjónsson. Faðir okkar og fósturfaðir, KARL JÓHANNSSON, fiskimatsmaður frá Seyðisfirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. júní kl. 1,30 e. h. Kveðjuathöfn verður að Fjallhaga 59, kl. 12,45. Athöfninni verður útvarpað. Svavar Karlsson, Ingibjörg Karlsdóttir, Valborg Karlsdóttir, Karl Michaelsson. Dóra Jóhanncsdóttir Hjartanlega þökkurn við öllum, sem sýnt hafa okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns GUÐMUNDAR BRYNJÓLFSSONAR Ólöf Kristjánsdóttir og börn, Vörum, Sandi. .-ÍC3S

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.