Morgunblaðið - 14.06.1956, Qupperneq 4
4
MORCVNBT/AÐIÐ
Fimmtudak'ur 14. júnt 1956
STAKA
Foringinn Hermann telst aðeins miðiungi merkur,
því mestur hiuti lífs hans er valdastrit.
En Hermann er glíminn og Hermann er feikna sterkur
en helúur lítið fyrir skynsemi og vit.
Og hann hefar ekki þurft þess í Framsóknarflokknum,
því flokkurinn spilar lítið á slíkar nótur.
Hans ideal af yfirgeneral sínum
er iign af heila, en tröllaukinn vinstri fótur.
I dag er 166. dagur ársins.
Fimmiudagur 14. júní.
9. vika sumars.
Árdegisílæði kl. 10,42.
Siðdegisfiæ&i kl. 23,02.
SlysavarSstofa Reykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. (fyrir vitjanir) er á sama stað
kl. 18—8. — Sími 5030.
NæturvörSur er í Reykjavikur-
apóteki, sími 1760. Ennfremur eru
Holts-apótek, Apótek Austurbæj-
ar og Vesturbæjar-apótek opin
daglega tii kl. 8, nema á laugar-
dögum til kl. 4. Holts-apótelc er op-
ið á sunnudögum milli kl. 1 og 4.
Hafnarf jarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga frá kl. 13—
16,00. —
• Veðrið •
I gær var hægviðri um allt
land og víða léttskýjað við strönd
ina. Smáskúrir sums staðar í inn-
sveitum. Kl. 15.00 var 9 stiga
hiti í Reykjavík. 8 stig á Akur-
eyri, 7 sig á Galtarvita og 6 stig
á Dalatanga. Heitast var á Eyr-
arbakka 13 stig, en kaldast á
Dalatanga 6 stig.
Hiti í London kl. 12 var 15
stig, París 15, Berlin 19, Kaup-
mannahöfn 16, Stokkhólmi 15,
Osló 14 Þórshöfn 17 og New
York 23 stig.
• Afmæli •
í dag er Sigurður Jónasson, •
bóndi í Svansvrk í Reykjafjarð-1
arhreppi 70 ára. Sigurður er
fæddur hér í Reylcjahreppi og
hefir alið áilan aldur sinn þar og
búið um 40 ár, jafnan í röð
fremstu bænda sveitarinnar. Dug
legur og framsýnn um marga
hluti er Sigurður. Tekið hefir
hann mikinn þátt I opinberum
störfum í sveit sinni. Var um
langt skeið hreppsnefndarmaður
o.fl. Kvæntur er Sigurður Berg-
þóru Jónsdóttur hinni mestu
mvndarkonu. Flefir heimili 'þeirra
orð á sér fyrir myndarbrag.
P. P.
Sextug verður í dag frú Ingi-
gerður Þorsteinsdóttir, ekkja
Oddg Magnússonar bónda í
Skaftafelli. í dag er frú Ingigerð
ur stödd á heimili bróður síns,
Guðjóns, Heilu á Rangárvöllum.
• Brúðkaup •
Föstudaginn 15. þ.m. verða gef-
in saman í hjónaband í Canada,
Lilja Maria Eylands (Valdimars
J. Eylands), 686 Banning St.,
Winnipeg og Barry Bruce Day.
S.l. sunnudag voru géfin saman'
af séra Garðari Svavarssyni ung
frú Þuríður Björnsdóttir og Kjart
an Baldvinsson. Heimili þeirra
verður að Grundargerði 10.
• Hjónaefni •
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Guðbjörg Guð-
jónsdóttir, verzlunarmær, Rauð-
arárstíg 30 og Eðvarð Ólafsson,
rafvirkjanemi, Kirkjuvegi 9, —
Hafnarfirði.
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Minný Péturs-
dóttir frá Akranesi og Svanberg
Finnbogason frá Dýrafirði.
Á sjómannadaginn opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Katrin Jó-
hannsdóttir, skrifstofum., Ránar-
götu 3 og stud. med. Egill Jacob-
sen, Ránargötu 26.
Garðar Gíslason, stórkaup-
maður og kona hans
eru stödd hér í bænum. — Þau
er að hitta í Þjóðleikhúskjallaran
um í dag, fimmtudag 14. júni, kl.
3,30 til 5,30 e.h.
Það er sjúkt skemmtanalíf, þar
sem áfengi er í hávegum haft.
— TJmdzemisstúlcan.
• Skipaíréttir •
Eimskipafélag íslands h.f.:
Brúarfoss var væntanlegur til
Reykjavíkur á miðnætti 13. þ.m.
Dettifoss fór frá Hull 8. þ.m. til
Leningrad og Kotka. Fjallfoss fór
frá Rotterdam 12. þ.m. til Ham-
borgar. Goðafoss fór frá Reykja-
vik 11. þ.m. til New York. Gull-
foss fór frá Leith 12. þ.m. til
Kaupmannahafnar. Lagarfoss fór
frá Siglufirði í gærdag til Dalvík
ur, Húsavíkur, Norðfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar og þaðan til Ham
borgar og Leningrad. Reykjafoss
fór frá Húsavík í gærmorgun til
Faxaflóahafna. Tröllafoss fór frá
Reykjavík í gærkveldi til Siglu-
fjarðar og Akureyrar og þaðan
til Kaupmannahafnar og Ham-
borgar. Tungufoss er í Reykjavík.
Skipadeild S. í. S.:
Hvasaafell er í Stettin. Arnar-
fell er í Þorlákshöfn. Jökulfell er
í Hamborg. Dlsarfell er í Sku-
denes fer áleiðis til Austur-Þýzka-
lands og Riga. Litlafell losar á
Norðurlandahöfnum. Helgafeli er
á ísafirði.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er væntanleg til Reykja-
víkur í kvöld.
• Flugíerðir •
Flugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug: Gullfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur kl.
17,45 í dag frá Hamborg og Kaup
mannahöfn. Flugvélin fer til Glas
gow og London kl. 08,00 í fyrra-
málið. Væntanleg aftur til Rvíkur
kl. 23,45 sama dag. Sólfaxi fer til
Osló og Kaupmannahafnar kl.
11,00 í fyrramálið. — Innanlands-
flug: 1 dag er ráðgert að fljúga
til Akureyrar (3 ferðir), Egils-
staða, Isafjarðar, Kópaskers, Pat
reksf jarðar, Sauðárkrólcs og Vest-
mannaeyja (2 ferðir). — Á morg-
un er ráðgert að fljúga til Akur-
eyrar (3 ferðir), Egilsstuða, Fag-
urhólsmýrar, Flateyrar, Hólmavík
ur, Hornafjarðar, ísafjarðar, —
ICirkjubæjarklausturs,' Vestmanna
eyja (2 ferðir) og Þingeyrar.
I.oflleiðir h.f.:
Edda er væntanleg kl. 09,00 í
dag frá New York. Flugvélin fer
kl. 10,30 áleiðis til Osló og Luxem-
borgar. Saga er væntanleg kl.
19,00 frá Hamborg, Kaupmanna-
höfn og Bergen. Flugvélin fer kl.
20,30 til New York.
Stúdentar M.R. 1951
halda skemmtifund í kvöld kl.
9 í Tjarnarkaffi, uppi.
Frá Fjáreigendafélaginu
Breiðholtsgirðingin verður smöl
uð á laugardaginn kemur kl. 2.
Áríðandi er, að allir, sem eiga fé
í girðingunni, mæti við smölunina,
því að allt geldfé verður tekið úr
girðingunni og fllutt til fjalls.
Orð lífsins:
Að endingu, hræður, allt sem er
satt, allt sem er sómasamlegt, allt
sem er rétt, allt sem er hreint, allt
Sönn veiðtsaga.
Stangaveiðimaður í Noregi fór
á silungsveiðar upp til heiða og
hafði ófríska konu sína með.
Hann var stöðugt að veiða oy
þegar frúin varð lasinn og þurfti
í skyndi að fara til borgarinnar,
lét hann það ekki á sig fá, en hélt
veiðunum áfram. Eftir að 8 dag-
ar voru liðnir frá burtför konunn
ar, sendi hann svohljóðandi
skey ti:
— Met í dag — 6 punda urriði.
— Framúrskarandi fríður.
Daginn eftir fékk hann svar-
skeyti, svohljóðandi:
— Metið slegið — 9 punda
drengur — ófríður — líkur þér.
★
—- Heldur þú að maður geti
orðið vitlaus af ást?
— Á því er enginn vafi, annars
myndi enginn gifta sig.
★
Sjálfskaparvíti.
— Dóttir yðar hefur lofað að
verða konan mín.
— Nú, já, það þýðir ekki að
koma til mín, ég hef enga samúð
með yður. Þér máttuð vita, að illt
hlytist af þessu hangái yðar hér
fimm kvöld í viku.
sem er alskuvert, allt sem er gotí
afspurnar, hvað sem er dyggð, og
hvað sem er lofsvert, hugfestið
það. (Fil. 4, 8.).
Frá Verzlunarmannafél.
Reykjavíkur
Gróðursetningarferð í Heiðmörk
í kvöld. Lagt af stað frá húsi fé-
lagsins í Vonarstræti 4 kl. 7. —
Félagsmenn fjölmenni. — Stj.
Gagnfræðaskólanum
£ Vonarstræti verður sagt upp
fósfcudaginn 15. júnl kl. 11 f.h.
• Útvarpið •
Fimmtudagur 14. júní:
Fastir liðir eins og venjulega.
19.30 Tónleikar: Danslög (plötur)
20.30 Tónleikar (plötur). — 20,50
Erindi: Veðrið í maí o. fl. (Páll
Bergþórsson veðurfræðingur). —
21.15 Tónleikar (plötur). 21,30
Útvarpssagan: „Svartfugl“ eftir
Gunnar Gunnarsson; XVIII. (FT"1'
undur les). 22,10 „Baskerv'
hundurinn“, saga eftir Sir A
hur Conan Doyle; XII. (Þorste'nn
Hannesson les). 22,30 Sinfón' ’ ir
tónleikar (plötur). — 23,10 Dag-
skrárlok.
Fösludagur 15. júní:
Fastir liðir eins og venjulega.
11.15 Lesin dagskrá næstu viku.
19.30 Tónleikar: Harmonikulög
(plötur). 20,30 Tónleikar Sinfón-
iuhljómsveitar íslands í Þjóðleik-
húsinu; fyrri hluti. Stjórnandi:
Wilhelm Schleuning. 21,10 Upp-
lestur: Indriði Indriðason les. vor-
lcvæði eftir Gunnar S. Hafdal. —
21,25 Samsöngur: Comedian Har-
monists syngja (plötur). 21,45
Náttúrlegir hlutir (Ingólfur Da-
víðsson magister). 22,10 Garð-
yrkjuþáttur: Þorvaldur Þorstelns-
son framkvæmdastjóri Sölufélags
garðyrlcjumanna talar um fram-
leiðslu og sölu grænmetis. 22,25
Létt lög (plötur). — 23,00 Dag-
skrárlok.
yður lil þrefaldrar liamingjti,
herra GuSmundur.
★
Skoti.
— Hvers vegna tekurðu svona
löng skref, strákur, þegar þú geng
ur upp stigann, sagði Slcoti við
son sinn.
— Það geri ég til að spara tepp
ið, faðir minn.
— Gott, gott, drengur minn, en
gættu þess að rífa ekki buxurnar
þínar.
★
vncrtgurJiajjhw
FERDIIMAIMD
Of stórar buxur
Bjartsýni.
— Hvað marga ert þú búinn að
fá?, spurði forvitinn náungi, veiði-
mann, er var að dorga.
—- Ef ég næ í þennan sem ég er
að reyna við núna og einn í við-
hót, þá verð ég húinn að fá tvo.
★
Og enn meiri bjartsýni.
— I gær munaði litlu að ég eign
aðist híl. —
— Nú, hvernig stóð á því?
— Þegar ég lcom út, stóð nýr
Fofd fyrir framan húsið hjá mér.
Eg þekkti eigandann og sagði við
hann: „Viltu gefa mér bílinn?“ —
Og þú skilur, ef hann hefði sagt
já, í stað þess'að segja nei, þá ætti
ég bílinn.