Morgunblaðið - 14.06.1956, Side 7
Fimmtudagur 14. júni 1956
MORCVNBLAÐÍÐ
7
„Umbóta“-sijórn áronna 1934—’39
rýrði kjör almennings um 15—20%
lbrátf fyrir bafnandi verz lunarárfer&i
Taíla II.
Vörutegundir: Innflutningur í þús. kr.
1933 1935 1936 1937 1938
1. Ávextir .. 1220 1271 541 377 677
2. Vefnaðarvara og fatnaður ... .. 6725 4203 3295 4045 3434
3. Skófatnaður .. 1660 1171 731 1057 655
4. Verkfæri, búsáhöld o. fl. ... .. 3081 1138 1085 1592 1202
5. Hreinlætisvörur 608 374 221 263 267
6. Hljóðfæri, leðurvörur 81 52 41 44 52
7 Úr, klukkur o. fl 99 72 50 62 66
ISÍÐASTA sunnudagsblaði
Tímans birtist 6 dálka grein,
þar sem hinir sókndjörfu Tíma-
menn reyna að verja óstjórn
Hrseðslubandalagsflokkanna 1934
■—39 og þá stórfelldu skerðingu
lífskjara almennings í landinu,
sem leiddi af þeirri óheillastefnu
í efnahagsmálum, scm þá var
fyigt.
HVEKJIR KOMU INN-
FLUTNINGSHÖFTUNUM Á?
I>að má að vissu leyti telja
framför, að í nefndri Tímagrein
er þó sýnd ofurlítil viðleitni til
þess að rökræða alvarleg vanda-
mál, í stað þess að beita gífur-
yitum fullyrðingum einum sam-
an eins og Tíminn hefir nær ein-
göngu gert til pessa.
Heldur fara þeir Timamenn þó
óbjörgulega af stað, þegar þeir
eetla sér, eins og þeh- komast
sjálfir að orði, að fara að ræða
málið „í ljósi staðreyndanna".
Fyrirsögn greinarinnar, sem
prentuð er með geysistóru letri,
hljóðar svo: „Fyrstu i nnflutn-
ingshöftin voru sett, þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn stóð að ríkis-
stjórn“. Hér er „staðreyndunum"
nú dálítið vikið við, því hið
sanna er, að innflutningshöftin
voru sett í október 1931, en þá
íór einlit Framsóknarstjórn enn
með völd. Ríkisstjórn Ásgeirs
Ásgeirssonar, sem Sjálfstæðis-
menn áttu einn ráðherra í, tók
ekki við völdum fyrr en vorið
1932, og er því ekki hægt að
klína því á hana, að hún hafi
komið innflutningshöftunum á.
„KRAFTAVERKI0“
1934—39
Tíminn segir að ríkisstjórnin,
sem sat árin 1934—39 hafi gert
„kraftaverk", og virðist hai'ma
það, að fólk sé nú farið að gleyma
þessum kraftaverkum. Lítið fer
þó fyrir því að varpað sé „ljósi
staðreyndanna" yfir þessi krafta-
verk. Þess er þó getið, að ríkis-
stjórnih hafi látið byggja 1—2
síldarverkmsiðjur á þessum ár-
um, en líklega hefði hvaða ríkis-
stjórn sem setið hefði á þeim
tíma reynt að styðja eflingu síld-
ariðnaðarins, því að hún var ís-
lendingum blátt áfram lífsnauð-
syn, eins og þá stóð á. Það væri
því ekki úr vegi að afhjúpa
kraftaverkið, sem gerðist 1934
nokkru betur í ljósi staðreynd-
anna, ef slíkt gæti orðið hjálp
Tímanum til handa til að bæta úr
því minnisleysi kjósenda. sem
blaðið kvartar yfir.
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði á árunum 1934—39 úr
228 stigum í 271 stig, eða um
19%. Tímakaup verkamanna
hækkaði á sama tima úr kr. 1.40
í kr. 1.45 eða um 3.5%. Rýrnun
kaupmáttar tímakaupsins nam
þannig rúmlega 15%.
Tala atvinnuleysingja í
Reykjavík var sem hér segir ár-
in 1933 og 1938:
1. febr.
1933 ........ 623
1938 ........ 690
Telja má líklegt, að aukning
atvinnuleysis í kaupstööum og
sjávarþorpum utan Reykjavíkur
hafi þó verið meiri en þessar
tölur gefa til kynna, því að at-
vinnan þar er í ríkara mæli háð
afkomu sjávarútvegsins en í
Reykjavík, en sem kunnugt er,
var sjávarútvegurinn sú atvinnu-
grein, sem mest drógst saman á
þessum árum.
Þá mætti loks birta nokkrar
tölur, sem sýna innflutning nokk-
urra almennra neyzluvara árið
1933 og þau 4 ár sem „krafta-
verks“-stjórnin sat við völd. Eru
töturnar teknar úr álitsgerð
þeirra Gylfa Þ. Gíslasonar og
Eysteins Jónssonar um gjald-
eyrismál, en þeir voru skipaðir
í milliþinganefnd, er um þessi
mál fjallaði skömmu eftir byrjun
stríSsins.
(Sjá töflu II)
Þessar tölur þurfa ekki nánari
skýringar við. Innflutningur á
flestum almennum nauðsynjum
var skorinn niður um meira en
helming á valdatímabili „krafta-
verka“-stjórnarinnar, þannig að í
lok þess var orðinn mjög tilfinn-
anlegur skortur þessarra nauð-
synja.
HVER VAR ORSÖK IIINS
SÍVERSNANDI ÁSTANDS
I EFNAHAGSMÁLUM
1934—39?
Það er nú að vísu út fyrir sig
engin sönnun fyrir slæmu stjórn-
arfari, þótt lífsafkoma almenn-
ings versni á einhverju tímabili.
Þjóðarbúið getur auðvitað orðið
fyrir óviðráðanlegum áföllum,
sem gera kjaraskerðingu óhjá-
kvæmilega jafnvel þótt skynsam-
lega sé stjómað.
En því var ekki til að dreifa á
þessu tímabili að ytri aðstæður
breyttust í óhag. Verzlunarkjör
fóru mjög batnandi frá og með
árinu 1934, og voru öll árin 1934
—39 miklu hagstæðari en á rík-
isstjórnarárum Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, en þeirri ríkisstjórn hafði
þó tekizt að halda í horfinu bæði
hvað snerti þróun verðlags og
innflutning nauðsynja.
Orsakanna til hinnar síversn-
andi afkomu almennings á þess-
um tíma var því að leita á inn-
lendum vettvangi. Hið vaxandi
ófremdarástand stafaði fyrst og
1. maí 1. ágúst 1. nóv.
268 226 . 569
345 316 ' 804
fremst af stefnu þeirri í efna-
hagsmálum, sem þá var rekin.
Alræði hinna pólitísku nefnda,
sem skipaðar voru að jafnaði
mönnum, sem litla þekkingu
höfðu á atvinnu og viðskiptamál-
um, hafði slík lamandi áhrif á
allt atvinnulíf að framleiðsluaf-
köstin minnkuðu stórum, og
þjóðartekjurnar rýrnuðu þar af
leiðandi. Hér við bættist skatta-
brjálæði ríkisstjómarinnar, sem
reið öllum heilbrigðum atvinnu-
rekstri á slig.
BATNANDI MANNI ER
BEZT AÐ I.IFA
Það er e. t. v. fagnaðarefni, að
þegar Tíminn nú stendur á biðils-
buxum frammi fyrir kjósendum,
reynir hann að afneita sem ræki-
legast þeirri stefnu, sem ávallt
hefir verið rekin þegar Hræðslu-
bandalagsflokkarnir hafa ráðið
stefnunni. Nú er ekki talað leng-
ui um „innilokun kaupgetunnar"
eða „skipulagðan innflutning“
sem lausn allra efnahagsvanda-
mála, eins og Tíminn og Alþýðu-
blaðið gerðu hér fyrr á árum,
þegar þessi málgögn voru að
reyna að verja stefnu þeirrar rík-
isstjómar, er þau höfðu stutt.
Nú er þvert á móti farið hinum
hörðustu orðum um „haftafarg-
ánið“, sem hinn versta vágest í
efnahagslífi þjóðarinnar.
Og svo kemur rúsínan í pylsu-
endanum, þegar Tíminn í áður-
nefndri grein klykkir út með
eftirfarandi klausu:
„Eina leiðin til að hægt verði
að draga úr höftunum er að
tryggja sigur bandalags umbóta-
flokkanna, er berst fyrir því að
breytt verði um stefnu í efna-
hagsmálum og stuðlað að eflingu
framleiðslunnar og auknu jafn-
vægi, er geri m. a. mögulegt að
draga úr höftunum".
Heyr á endemi! Það á m. ö. o.
að vera öruggasta ráðið fyrir
kjósendur til þess að forðast
haftaöngþveitið og þá vissulega
stórfelldu kjaraskerðingu og
vandræði sem það ávallt hefur
haft í för með sér, að efia til
valda þá flokka, sem ævinlega
hefir á skömmum tíma tekizt að
slcapa slíkt öngþveiti, þegar þeir
hafa ráðið!
Það fer sannarlega ekki mikið
fyrir dómgreind hins almenna
kjósanda að dómi Tímans! .
Aðalstræti 8 — Laugavegi 20 — Laugavegi 38
Snorrabraut 38 — Garðastræti 6
i
i
N
i
i
s
\
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
)
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
)
SUMARSKÓn
Daglega nýjar sendingar
Aðalstræti 8 — Laugavegl 20 — Laugavegi 38
Snorrabraut 38 — Garðastræti 6