Morgunblaðið - 14.06.1956, Qupperneq 17
Fimmtudagur 14. júní 195S
MORGUNBLAÐ1Ð
VT
Oddný Thorarensen — minning
FRÚ ODDNY lézt í sjúkrahúsi I
hér í bæ að kvöldi hins 28.
maí s.l. Fædd var hún á Eski-
firði 22. apríl 1909 og var hún
því aðeins á miðjum aldri eða
tæplega það. Foreld'rar Oddnýj-
ar voru Jón Kjartansson bóndi
í Eskifjarðarseli og fyrri kona
hans Anna Jónsdóttir bónda á
Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði, Sig-
urðssonar, og konu hans Oddnýj-
ar Marteinsdóttur. Jón Kjartans-
son í Eskifjarðarseli mun hafa
verið, — þótt ekki kunni ég að
rekja það hér, — náinn afkom-
andi Eyjólfs snikkara Ásmunds-
sonar, sem kallaði sig ísfeld.
Var hann mjög kunnur maður
eystra og reyndar víðar á fyrri-
hluta síðustu aldar og er víða
getið í sögnum frá þeim tíma.
Ég, sem þetta skrifa, þekkti
frá Oddnýju Thorarensen ekkert
fyrr en eftir 1938 og veit þess
vegna fátt um bernzku hennar
og uppvaxtarár. Þó er mér það
kunnugt, að ung að aldri átti
hún námsdvöl í Danmörku um
skeið, og eins hitt, að á árun-
um kring um 1930 mun hún
hafa unnið meira og minna hjá
bróður sínum, Óla ísfeld veit-
ingamanni. Fáum árum síðar
giftist hún svo Stefáni Thorar-
ensen lögregluþjóni. Eignuðust
þau einn son, er Sigfús heitir,
og er hann þessa dagana að ljúka
stúdentsprófi sínu.
Varla mun sá dagur, að á síð-
um Reykjavíkurblaða sjáist ekki
grein skrifuð í minningu horfins
samferðarmanns, — svo margir
eru þeir, sem kveðja, — og fleiri
þó. Svo algengt er þetta og sjálf-
sagt, að fáir umfram nánustu
skyldmenni og vini þess, sem dáið
hefur, veita því athygli sína.
öðru máli gegnir þó þeim við-
víkjandi, sem ferðast hafa með
talsverðum hávaða og gný og
gert sig þekkjanlega frammi fyr-
ir alþjóð með opinberum fyrir-
gangi. Þeim hópi manna tilheyrði
Oddný Thorarenssen ekki og
sennilega hefði hún aldrei kunn-
að við sig þar. Þetta er ekki
sagt henni til lofs fyrst og fremst,
þess er fremur getið til að sýna,
hver hún var. Hún var í hópi
þeirra meðal þjóðarinnar, sem
enn fá unnað lífi hins kyrrláta
friðar á heimili og vilja þar helzt
vera.
Gáfur þessarar konu og hæfi-
leikar hennar aðrir lágu þeim
í augum uppi, sem kynntust
henni. Þeir þekktu þetta allt:
Einstakt léttlyndi hennar, spaugs
yrði hennar og hnittin tilsvör,
frábært þrek hennar, þegar svo
skyndilega syrti að og síðast en
ekki sízt þekkja þeir heimili
hennar, sem hún gaf svo mikið
af snyrtimennsku sinni og alúð.
Frú Oddný Thorarensen var ein
hinna hljóðlátu í landinu. Hróff-
ur hennar, mannkostir hennar og
hæfileikar urðu því lítið kunnir
út fyrir vinahópinn, sem að visu
var stór, Svo er fyrir að þakka,
að margir eru þeir á landi hér,
er svipað mætti segja um. Þeir
eru og hafa verið kjarni íslenzkr-
ar þjóðar, fagnaðarboðskapurinn
um það, að íslenzkt þjóðlíf mun
lifa, hvað sem á dynur.
Vinir og kunningjar frú Odd-
nýjar Thorarensen og þó einkum
ástvinir hennar eru nú lostnir
þungum harmi við fráfall hennar
á miðjum aldri. Um það þýðir
engin orð að hafa, enda eru þau
þeim mun þýðingarminni, sem
þau eru fleiri. Atburðurinn
getur aldrei gleymst þeim,
sem um sárast eiga að binda
hans vegna. Hitt er annað
mál, að þegar frá líður, verð-
ur minningin um konuna
sjálfa harminum yfirsterkari.
Þeir, sem þekktu þessa mikil-
hæfu og ágætu konu munu ætíð
minnast hennar í djúpri bökk
og hljóðlátri virðingu
Stefáu Jo>.—
A ÆVINNI kynnist maður ein-
staka fólki, sem svo er farið, að
ákjósanlegast væri að hafa það
alltaf í návist sinni. Þegar það
fellur frá í blóma lífsins og fyrir
aldur fram er stærra skarð fyrir
skildi en unnt er að gera sér grein
fyrir í skjótri svipan.
Ein slíkra kvenna var frú Odd-
ný Thorarensen, Auðarstræti 17
hér í bæ, kona Stefáns Thoraren-
sens, en hún lézt þann 28 f.m.
Ég kynntist frú Oddnýju fyrir
tæpum aldarfjórðungi og hefi
verið svo lánssamur að halda
traustri vináttu við hana og mann
hennar óslitið síðan.
Heimili frú Oddnýjar var einn
af þeim fáu stöðum, sem alltaf
dró að sér fjölmennan vinahóp,
sem fór vaxandi eftir því sem
árin liðu. Allir glöddust yfir að
eiga að koma þangað hvort held-
ur var til gleðskapar eða alvar-
legri hluta. Húsmóðirin tók hverj-
um, sem að garði bar, með sömu
alúðinni og glaðværðinni og þar
á aldrei neinn mannamunur. í
hennar húsum urðu allir öruggir
og glaðir. Með framkomu sinni
og sérstæða þokka, gáfum og
hjartahlýju, vann hún sér á svip-
stundu vináttu allra sem henni
kynntust.
Hún var ein þeirra kvenna, sem
gera lífið léttara og tilveruna
bjartari. — Vinir hennar og
vandamenn fylgdu henni til
hinstu hvíldar í gær, hryggir í
huga en þakklátir forsjóninni
fyrir að slík kona hafði verið til.
Ólafur Sveinbjörnsson.
Ekki
missir sá er fyrstur fær. Nú er tækifæri að fá keyptan
sumarbústað, aðeins 18 km frá bænum. Bústaðurinn
stendur við veiðivatn. Tilboð merkt: „Einstakt tækifæri“
— 2631, sendist afgr. Morgunbl. fyrir 19. þ. m.
Stúlka
vön blaðaafgreiðslu, getur fengið atvinnu
nú þegar.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 17. þ. m. merkt: Rösk.
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1875.
Verzlunarhúsnæði til leigu
í nýlegu íbúðarhverfi. Búðarstærð ca. 45 ferm., ásamt
geymslu ca. 60 ferm. — Tilboð er greini fyrirframgreiðslu
sendist Mbl. fyrir hádegi á laugardag merkt: „Nýlendu-
vöruverzlun 2628“.
FRIDEIM
Heimsviðurkennd merki tryggjn gæðin
Friden-fullátómatiskir kalkulatorar
Addo-X rafmagns-samlagningavélar. Multo-margföldtinarvc.ar
Addo-hand samlagningavélar
Huginn-búðarkassar
Addo-bókhaldsvélar
Höfum fyrirTiggjandi eða getum útvegað með stuttum fyrirvara:
Addo-X samlagningarvélar, ntargar tegundir: handvélar, rafmagnsvélar, með kreditbalans, með grandtotal,
breiðum vals o. fl.
Multo-margföldunarvélar, af 5 gerðum. — Addo-bókhaldsvélar af 4 gerðum og stærðum. — Huginn.búðarpen-
ingakassar, traustir, fyrirferðalitlir og fallegir, 6 gerðir og stærðir.
Það margborgar sig að kaupa aðeins vönduðustu gerðir af reiknivélum og búðarkössum
Skoðið vinsamlega sýningu okkar í Skemmuglugganum.
Magnús Kjaran
umboðs- og heildverzlun