Morgunblaðið - 26.10.1956, Qupperneq 9
Fostudagur 26. okt. 1956
M ORCJJlKPr 4 fíttt
9
Ungmennafélag
Keflavikur:
PENELÖPE
UNDANFARIÐ hefur verið
dauft yfir leiklistinni í Kefla-
vík, en svo birti skyndilega í
skammdeginu, með frumsýningu
á Penelope. Leikritíð er' léttur
gamanleikjy, sem ristir hvergi
djúpt, en veltir fyrir sér gömlu
og nýju sálfræðilegu vandamáli
á mjög skemmtilegan hátt, enda
er höfundurinn enginn viðvan-
ingur á sviði ritlistar. Sums stað-
ar er gamansemin að vísu nokk-
uð brezk, en ágæt þýðing frú
Efemíu Waage og góð meðferð
bætti úr því, svo kímnin hitti
beint í mark.
Helgi Skúlason er leikstjóri.
Hann er Keflvíkingur og hóf
leikferil sinn á þessu sama leik-
sviði, sem hann stjórnar nú á.
Fimm af leikendum voru úr leik-
skóla Helga, sem hann hefur haft
í Keflavík undanfarið. Mun það
vandaverk að ná góðum heildar-
svip á gamanleik með svo mörgu
lítt sviðvönu fólki, en þetta tókst
mætavel, enda efniviðurinn góð-
ur.
Hraði leiksins var ágætur,
staðsetningar óþvingaðar og hef-
ur leikstjóri sýnilega lagt alúð
við starf sitt. Það var nýr blær
yfir þessari sýningu og lofar það
góðu um framtíðina. Það er sér-
staklega ánægjulegt þegar ungt
og vaxandi fólk tekur forustuna,
og vinnur saman af áhuga pg
þrótti.
Frú Helga Backmann leikur
Penelope sem gestur og gerir það
með reisn og ágætum. Að sjálf-
sögðu ber hún af í sínu vanda-
sama hlutverki, en gerir þó enga
tilraun til upphefðar á kostnað
sinna ungu meðleikara. Helga
leikur hlutverk sitt af festu og
skilningi, svo sem hún á vanda
til, og hefur ekki fært þessu
litla leiksviði neitt annað en það,
sem boðlegt væri hvar annars
staðar.
Helgi Skúlason leikur O’Far-
rell lækni, og gerir það vel, svo
sem vonir stóðu til. Gamanleik-
urinn er hoxium eðlilegur,
skemmtilegur léttleiki yfir leik
hans og framkomu allri. Brezki
lækninnn lét oft í minni pokann
fyrir gamansemi aðstæðnanna,
enda mun sú ætlan höfundar.
Helgi er öruggur í öllum leik
sínum, ekkert hik eða óþarfa
vafstur — setningarnar fljúga á
nákvæmlega réttum tíma og hitta
alltaf í mark.
Keflvíkingum hafa bætzt tveir
vanir leikarar annars staðar frá,
þar sem eru Þórunn Sveinsdótt-
ir og Björn Dúason. Þórunn
Sveinsdóttir hefur leikið hér áð-
ur og fer nú með hlutverk Frú
Golithly, það er ekki veigamikið
hlutverk og því hætt við að það
„félli út úr“, ef ekki væri vel
með farið, en Þórunn notaði
hvert tækifæri til hins ýtrasta
og olli mörgum hlátursköstum
meðal áhorfenda.
Björn Dúason kann vel við sig
á leiksviðinu og hefur sýnilega
komið þar áður. Sem prófessor
Golithly sýndi hann þessa góð-
látlegu manntegund, sem breytir
gangi lífs og leiks, hvar sem hún
kemur. f leik hans var hvorki of
Hárgreiðslustofa
I dag tekur til starfa
Hárgreiðslustofan „Raffó“
Laugateig 60, sími 5053
Ný komin heim frá Ameríku með ýmsar nýjungar,
svo sem:
Helene Curtis permanent með nýjustu gerð aí spólum.
Sérstakur „Kremkúr“ fyrir þurrt og litað hár.
Sérstakan vökva fyrir feitt hár.
Minna Breiðfjörð.
Helga Backmann og Helgi Skúlasson i hlutverkum sínum.
eða van — trúað gæti ég að hann
væi'i liðtækur til stærri átaka, ef
síðar þyrfti á að halda.
Jóna Margeirsdóttir lék frú
Ferguson, erfitt hlutverk, vegna
þess að það er ekki vel gert frá
höfundarins hendi. Jóna hefur
hugsað sitt hlutverk og tekið
leiðbeiningum vel og notaði hvert
smátilefni til að lyfta leik sínum
og tókst það oft mætavel. Þar er
ósvikið eíni á ferð, lagleg, ung
og áhugasöm stúlka, sem er svo
til rétt að byrja.
Eggert Ólafsson lék Barlow.
gamlan ætta- og aðals-snobb og
tókst honum furðanlega, svo ung-
ur sem hann er, að ná þeim
innantóma yfirborðshætti, sem
hlutverkinu er ætlað og hefur
þar leikstjórn sjálfsagt hjálpað
til, því ekki mun Eggert hafa séð
eða kynnzt þeirri manngerð, sem
sýna átti.
Jana Erla Ólafsdóttir hafði lít-
ið hlutverk, frú Watson, einn af
sjúklingum læknisins. Brá hún
upp mjög skemmtilegri mynd aú
læknasjúkum gömlum konum,
þó að unga andlitið gægðist
stundum gegnum gerfið. Hennar
stutta atriði var rofið hvað eftir
annað af lófataki og hlátri úhorf-
enda.
Ragnheiður Skúladóttir og
Kristján Hansson leika lítil hlut-
verk, þjónustustúlkuna og lög-
fræðinginn, sem gefa vart tilefni
til sérstakrar umsagnar, en þó
var þjónustustúlkan skemmtilega
gerð.
Þessi fimm síðasttöldu eru nem
endur úr leikskóla Helga Skúla-
sonar og fer ekki hjá því, að þar
eru góð efni á ferð, ef þeim end-
ist áhugi og verkefni til frekari
þroska og lærdóms. Allt eru þetta
frístundaverk og því fremm
þakkarverður sá góði árangur
sem náðst hefur.
Leiktjöld málaði Helgi Skúla-
son og voru þau góð, en sviðið
hefði mátt vera búið betri hú.
gögnum, sem hæfðu betur stun
þeirri og stað, sem leikurinn ger-
ist á — en þar hafa vanefni og
erfiðar kringumstæður tekið ráð
in af.
Að öllu samanlögðu er heild
arsvipur þessarar sýningar mji'
Verzlunarhúsnœði
óskast á góðum stað í bænum, þarf ekki að vera stórt.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 1. nóvember
merkt: „Verzl. — 3059“.
Ungur logfræðingtir
óskar eftir atvinnu, hefur starfað sem fulltrúi bæjar-
fógeta í rúm tvö ár. Tilboð merkt: — „1925“ — sendist
blaðinu fyrir 2. nóvember nk.
góður og er óhætt að hvetja alla
til að létta sér í skapi nú í
skammdeginu með ósvikinni
ánægjustund í leikhúsinu.
Leiksviðsstjóri er Höskuldur
Karlsson og ljósameistari Karl
Guðjónsson.
Ungmennafélag Keflavíkur á
þakkir skilið fyrir framlag sitt
til leikstarfseminnar, bæði fyrr
og nú. Það er vel að þessi þáttur
skemmtanalífsins er nú aftur
risinn, eftir of langa hvíld.
Góð aðsókn að þessum leik
gefur fyrirheit um annan —
Heígi S.
Allt í matinn
á einum sfað
Kjöt, fiskur, nýlenduvörur, mjólk og brauð
HAGAMEL 39. SÍMI 80224
HÖFUM NÝLEGA FENGIÐ SENDINGU AF
i
|hatcher
OLÍU BRENNU RU M
THATCHER olíubrennarinn er traustur og
sérstaklega sparneytinn. THATCHER olíu-
brennarinn hitar upp íbúðina á svipstundu,
og þér njótið áhyggjulaus þess hita, sem þér
kjósið dag og nótt.
GL.LTkLAGiÐ SKELJL'MGUR H.F.
Sími 1420