Morgunblaðið - 13.04.1957, Page 16
MORCVHBLAÐIÐ
Ldugardagur 13. aprí 1957
1«
Jjí,
róliir í ó
u
um i
100
cir
1' ÞRÖTTIR hafa verið iðkaðar á
íslandi á ölluj.n ölduin frá
upphafi landsnámsaldar.
Fyrsti skóli íslands er stofnað-
ur af ísleifi biskupi Gissurarsyni
í Skálholti 1056. .Að Hólum er
skóli stofnaður af Jóni biskupi
Ögmundssyni 1107. í>á koma
einkaskólar presta og klaustra.
Þekktastur slíkra skóla eru skól-
arnir í Odda og Haukadal. 1552
er stofnaður latínuskóli að Hól-
um og ári síðar í Skálholti.
Árið 1784 er Skálholtsskóli
lagður niður en 1787 er aö nýju
hafin starfræksla hans og þá í
Reykjavík. 1801 legst skólahald
niður að Hólum. 1304 er Reykja-
vikurskólinn fluttur til Bessa-
staða og þar er skólinn starf-
ræktur til 1846 að hann er flutt-
ur aftur til Reykjavíkur og þá í
það hús, sem nú kallast Mennta-
skólinn.
Barnaskóli er fyrst stofnaður
í Vestmannaeyjum 1745 og starf-
ræktur í 15 ár og því næst er
barnaskóli stofnaður að Hausa-
stöðum á Álftanesi og rekrnn þar
í 18 ár og þá hefst barnaskóla-
hald í Reykjavík 1830.
í nokkrum biskui>asögum, ald-
arfarslýsingum og æfiminningum
gefur að lesa frásagnir um í-
þróttaiðkanir skólasveina í bisk-
upssetraskólunuin. Glíma og
sund hafa verið hinar raunveru-
legu íþróttir, sem iðkaðar voru
og þá ýmsir leikir sem tiðkuð-
ust meðal alþýðumanna á hverj-
um tíma og svo leikir, sem
bundnir voru sérstaklega vissum
staðháttum eða húsakosti á skóla-
setrunum, eins og t. d. biíaleik-
ur námssveina að Hólum, sern
var fólgin í því að einn skóli
var búinn bitum í rjáfri og veittu
þessir bitar piltum sérstætt leik-
rými til eltingarleiks og leik-
rauna. Víða er þess getið að prest
ar séu íþrótturn búnir, sund-
menn eða glímumenn
Þessar íþróttavenjur lifna á ný
meðal námssveina Bessastaða-
skólans og þær lífga út frá í-
þróttalíf landsmanna á 19. öld.
Fg hygg að hinar marg fram-
bornu bænir stjórnenda lærða-
skólans í Reykjavík é. árunum
1846—’56 til danskra stjórnar-
valda um byggingu húss fyrir
„leikfimi og glímu“ séu sprottn-
ar af íþróttaáhuga þeirra, sem
lifðu góðu og affærasælu lífi í
Bessastaðaskóla en alls ekki
vegna danskra fyrirmæla frá
1809 um íþróttaker.nslu í liinum
lærðu-skólum Danaveldis. í
skýrslu um hinn lærða-skóla í
Reykjavík skólaárið 1856—’57
segir svo þar sem rætt er um
stjórn skólans:
„í áætluninni fyrir reiknings-
árið 1857—’'58 eru ætlaðir 1800
rdd. til húsasmíða, en áður Voru
til þess ætlaðir að eins 600 rdd.,
og er ætlast til þess, að reist
verði hús, þar sem lærisveinar
geti tamið sér leikfimi. 30. d.
júnímánaðar 1857 er Sergeant og
leikfimiskennari Carl Peter Steen
borg skipaður kennari í leikfimi
við þennan skóla. Þannig verð-
ur þá þetta skólaárið bundinn
endi á loforðið um kennslu í
leikfimi, og vopnfimni endurnýj-
uð, sern í svo margar aldir hef-
ur í dái legið enda þótt vopn-
fimniskennslan verði nokkru yfir
gripsminni en hjá íorfeðrum vor-
um. Hús þetta er og mjög hent-
ugt fyrir pilta, að temja sér glim-
ur, sem nú mega heita því nær
hin eina þjóðlega leikfimi."
Hús það, sem hér um ræðir,
er byrjun á því íþróítahúsi
Menntaskólans í Reykjavík, sem
enn er í notkun. Af þessari frá-
sögn má sjá, að 30. júní 1857 er
í fyrsta sinni skipaður sérstak-
ur kennari við íslenzkan skóla til
þess að annast kennslu í fimleik-
um.
f skýrslu um hinn lærða-skóla
í Reykjavík, skólaárið 1857—’58,
segir svo:
„Hús það, þar sem piltum er
ætlað að temja sér leikfimi, var
eigi fullgjört fyrr en í byrjun
nóvembermánaðar 1857; þar er
14 álna langt, 10 álna breitt, og
16 álna hátt undir bita. Að hús
þetta var eigi gjört stærra, korn
einkum af viðareklu. Hlutaðeig-
andi kennari hefur þegar kvartað
yfír, að það væri of lítið, eink-
um þegar piltar ættu að stökkva
eða hlaupa. En með fé því, sem
veitt var þetta árið til húsa-
smíðis, varð að verja í þetta
skipti til að gjörðar á sjálfu
skólahúsinu, varð leikfimishúsið
eigi stækkað þetta árið, en að
ári er vonandi að það verði. Með
þvi enn fremur dagur var orð-
inn svo stuttur, er húsið var al-
gjört, þótti það réttast, að fresta
kennslunni í leikfimi í það skipt-
ið, til þess daginn færi að lengja,
og var hún þannig fyrst byrjuð
3. dag marzmánaðar. Enn frem-
ur hefur ráðherra kirkjumálanna
og skólamálanna látið skólann
fá áhöld þau til leikfimiskennsl-
unnar, sem nú skal greina:
20 trébyssur, 6 rýtinga, 4
brynstakka, 6 grímur, 3 laus rýt-
ingsblöð, 1 stökkhest með sessu,
1 hnútakaðal, 1 kaðal hnútalaus-
an, 1 snærastiga, 1 sandpoka með
togi, 2 aðra sandpoka með taug-
um, 12 slökkvisnæri, 2 jafnvægis-
borð, 2 taugar hnútalausar, 1
dýnu, 1 skástöng, 2 stökkvélar.“
Hér gefur að lesa margs konar
fróðleik um þetta fyrsta og nú
nær 100 ára íþróttahús. Þau atr-
iði. sem varða sögu skólaíþrótta
eru að húsið er nothæft í nóv.
1857 en kennsla hefst ekki í því
fyrr en 3. marz 1858. Þá ganga
íslenzk ungmenni fyrsta sinni
inn á fimleikagólf til þess að
njóta kennslu í íþróttum.
(Kafli úr sögu skólaíþrótta
eftir Þorstein Einarsson).
Fjölbreyttor íþróttasýningar að
Hólogolondi og í Þjóðleikhósinn
TIL að minnast þessara merku
tímamóta íþróttasögunnar og
skólasögunnar, hefur íþrótta-
kennarafélag íslands undirbú-
ið margþætt hátíðahöld. Skip-
uð var landsnefnd til að sjá
um undirbúninginn og er
Hannes Ingibergsson formaður
hennar. Sérstök nefnd starfar
að undirbúningi í Reykjavík
og er Karl Guðmundsson for-
maður hennar. Hér í bænum
munu koma fram 38 flokkar
og í hverjum flokki eru 16—50
manns. Það er því veglega
minnzt þessa aldarafmælis
íþrótta í skólum.
Sýningar í Reykjavík verða
alls 5. Fjórar þeirra verða að Há-
logalandi. Verða tvær á laugar-
dag kl. 2 og kl. 5. Á sunnudag
eru aðrar tvær á sömu tímum.
Á sýningunni á laugardaginn
kl. 2 mun Gunnar Thorodrlsen,
borgarstjóri, flytja setningaræðu.
Þar leikur og barna- og unglinga-
lúðrasveit Vesturbæjar úndir
stjórn Paul Pampichlers. Að
öðru leyti verða sýningarnar með
svipuðu sniði. Ýmsir flokkar
koma fram og sýna ýmist þær
æfingar sem venjulega eru gerð-
ar í íþróttatímum í skólum eða
sérstakar sýningaræfingar. Sjást
þarna æfingar með knetti og
áhöld, þjóðdansar, stökk, stað-
æfingar, handknattleikur og
körfuknattleikur, áhaldaæfingar,
blak og fleira.
Á mánudagskvöldið verður há-
tíðasýning í Þjóðleikhúsinu. Þor-
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi,
setur hátíðina, en ræður flytja
Gylfi Þ. Gíslason, ráðherra, og
Björn Jakobsson, fyrrv. skólastj.
Síðan verður sögusýning á kvæð-
inu „Bændaglíman" eftir Grím
Thomsen, undir stjórn Lárusar
Pálssonar. Síðan koma fram
flokkar úr Melaskólanum,
Menntaskólanum í Reykjavík,
Kennaraskóla Islands, Laugarnes
skólanum, íþróttakennaraskóla
Islands og Menntaskólanum að
Laugarvatni og sýna þeir ýmsa
leiki og æfingar. — Lúðrasveit
barna- og unglingaskóla Austur-
bæjar leikur við upphaf og lok
hátíðarinnar undir stjórn Karls
O. Runólfssonar.
Ýmsum sýningum í sambandi
við hátíðina er lokið. Sundsýning
fjölbreytt var 11. apríl i Sund-
höllinni. Út um land er sýningum
víða lokið t. d. í Hafnarfirði og
víðar.
Korn hoppar af Imu og slær, um bogasendingu frá Stakki.
(Þýzk mynd).
Handknattleikur :
Þýzka líðið vann Reyk|a>
vikurúrval með 2 mörkum
IFYRRAKVÖLD mættust að Hálogalandi úrvalslið Reykjavíkur
og þýzka handknatteliksliðið. — Leikurinn var tvísýnn og
skemmtilegur, og í heild heldur daufari en fyrsti leikur þýzka liðs-
ins (við ÍR), en enn unnu Þjóðverjarnir með tveggja marka mun,
nú 16:14.
GANGUR LEIKSINS
Þýzka liðið tók forystuna er
Scheurer fyrirliði skoraði. En
innan skamms jafnar Þórir fyrir
Rvík og Karl bsetir við marki,
svo leikar standa 2:1 fyrir Rvík.
Þá tekst Stahler að jafna og síðan
eiga þeir samvinnu Stahler og
Korn — Stahler sendir bogabolta
yíir vörn en Korn slær inn. Og
enn bsetir Stahler marki við. —
Eftir þetta höfðú Þjóðverjarnir
alltaf forystuna í leiknum, þetta
1—3 mörk, en hálfleik lauk með
7:5 þeim í vil.
Er út var komið eftir hlé bætir
Korn tveimur mörkum við, svo
staðan er 9:5. Þessu svarar Jón
Erlendsson með 2 mörkum. Á
næstu mínútum skorar Stahler
tvívegis, en Þóri tekst að skora
tvisvar og Þorleifi og Karli tekst
að skora sitt hvort markið, svo
staðan er jöfn, 11:11. En þá skor-
ar Stahler enn tvö mörk og það
bil tókst ekki að jafna. Baráttan
hélt áfram, en Þjóðverjar unnu
með tveggja marka mun.
Mörkin í leiknum skoruðu fyrir
Reykjavík: Þórir 4, Jón Erlends-
s*n 3, Þorleifur 3, Karl 2, Gunn-
laugur 1 og Heinz 1.
Fyrir Þjóðverja: Stahler 9,
Korn 4, Scheurer (ekki fyrirliði)
2 og Schurer fyrirliði 1.
LIÐIN
Þjóðverjarnir léku nú sem fyrr
af meiri hörku en íslenzku pilt-
arnir. Þeir fara lengra en leyfi-
legt er, oft er á þá flautað, en ef
markið er í hættu, þá kjósa þeir
heldur að brjóta af sér, jafr.vel
mjög gróft og fá aukakast, heldur
en að leika lögum samkvæmt og
fá þá mark. Og oft hagnast þeir á
þessu. Leiðinlegast er, að þeir
mótmæla jafnvel augljósustu
brotum, og þar eru þeir sem eru
utan vallar ekki eftirbátar að.
Fararstjórinn veður inn á völiinn
með handapati og háreysti. Þetta
er leiðindaframkoma, og af henni
hlýzt ekkert nema að í augum
áhorfenda fá liðsmenn stimpil
sem íþróttamenn er ekki kunna
að taka mótlæti eða tapi.
Hins vegar er margt gott um
liðið að segja. Knattmeðferð þess,
öryggi f gripum, leikhraði, skipt-
ingar á stöðum og fleira er sér-
staklega öruggt og gaman á aS
horfa. í þessu öllu standa þeir
framar okkar mönnum, en þessir
kostir njóta sín ekki á okkar
litla gólfi að Hálogalandi. Þrír
menn skera sig úr liðinu. Það er
fyrst og fremst Stahler, sem ekkl
virðist hægt að gæta, Korn með
sín föstu og snöggu vinstri hand-
ar skot, og Freitag í markinu.
í Reykjavíkurliðir.u var enginn
sem sérstaklega skar úr. Þorleifur
var einna öruggastur, gerði enga
vitleysu en mjög margt faliegt
og gott. Þórir átti mörg falleg
skot, en var nokkuð staðbundinn
í vörn móti hinum kviku Þjóð-
verjum. Hörður og Jón voru mátt
arstólpar varnarinnar og Herði
tókst vel að loka. Úkúr leik Karlii
kom eltki eins mikið og vænta
mátti. Matthías og Gunnlaugur
komu dálitlum hraða í Jeik
Reykjavíkurliðsins og með þeim
inn á komu oft skemmtilegir leik-
kaflar. Heinz fann sig ekki nú
eins og í KR-liðinu. Gunnar
Gunnarsson varði með miklum
ágætum og án hans hefði ver far-
ið. — Ljótur blettur er það að 4
vítaköst skyldu fara til ónýtis hjá
þessu Reykjavíkurúrváli og ótai-
mörg voru stangarskotin sem liðs
menn áttu.
★ KVENNALEIKURINN
Á undan leiknum fór fram leik-
ur í kvennaflokki milli úrvalsliða
er Valborg Koldste hafði valiö og
lék hún með því, og liðs er íþrótta
fréttamenn höfðu valið. Lið Val-
borgar má kalla einskónar lands-
lið, og þar sem „breiddin" í
kvennaflokkunum er ekki mikil
hjá okkur, þá var talsverður styrk
leikamunur á liðurium. „Pressan“
byrjaði þó .neð því að skora %
mörk. Síðan ekki söguna meir,
fyrr en ásíðustu mín. að þær bættu
því þriðja við. En þá hafði úrvala
liðið náð öllum tökum á leiknum,
leikð á köflum mjög vel bæð í sókn
og vörn og skorað 12 mörk. Þann-
ig lyktaði þessum leik, þar sem
flestar stúlkurnar sýndu tilþrif
en áberandi beztar voru auk Kold
ste þær Olly í Fram, Helga í Þrótti
að ógleymdri Ruf í markinu.