Morgunblaðið - 18.04.1957, Side 1
24 siður og Lesbók
44. árgangur
9ft. tbl. — Fimmtudagur 18. april 1957
Prentsmiðja MorgunblaSsiaa
Listkynning Mbl.
Örlygur Sigurðsson
f DAG hefst sýning á verkum
Örlygs Sigurðssonar, listmálara,
á vegum listkynningar Morgun-
blaðsins. Örlygur er fæddur hér
í Reykjavik en uppalinn á Akur-
eyri, sonur frú Halldóru Ólafs-
dóttur og Sigurðar skólameistara
Guðmundssonar.
Hann lauk stúdentsprófi árið
1940 og sigldi árið 1941 til list-
náms í Bandaríkjunum. Þar
stundaði hann nám í University
of Minnesota, Minneapolis School
of art, Chouinard art Institute í
Los Angeles og Art student Lea-
gue í New York.
Árin 1948—1949 fór hann náms
ferð til Parísar og Ítalíu. Sum-
arið 1949 dvaldi hann einnig um
slrcið i Grænlandi og málaði þar.
Örlygur Sigurðsson tók fyrst
þátt í sýningu er málarar í Kali-
forníu héldu í Los Angeles árið
1944. Þá hefur hann tekið þátt í
tveimur norrænum listsýningum,
í Helsingfors og Ósló.
Hér í Reykjavík hélt hann
fyrstu sjálfstæðu málverkasýn-
ingu sína árið 1945. En síðan hef-
ur hann haldið hér 5 sjálfstæðar
sýningar.
Á Akureyri hélt hann sýningu
árið 1946 og í Vestmannaeyjum
árið 1953.
Sýningar Örlygs Sigurðssonar
hafa jafnan vakið mikla athygli.
Af opinberum aðilum hafa
Listasafn ríkisins og Alþingi
keypt af honum málverk.
Örlygur sýnir nú 10 málverk,
allt olíumyndir, í sýningarglugga
Morgunblaðsins. Bera þær eftir-
farandl heiti:
Frá Akureyrl, Á Faxaflóa,
Sjúkraheimsókn í „þurrkví“,
Snjór og sjór, Esja, Bátsskel og
„portræt" af Erlendi Ó. Péturs-
syni, frú Margrétl Brandsdóttur
og Stefánl Ólafssyni.
Öll málverkin nema „portræt-
ln“ eru til sölu hjá Morgunblað-
inu eða listamanninum sjálfum.
Bardagar
í Búlgaríu
PARÍS, 17. apríl. — Frönsku
fréttastofunni Agence France
Presse bárust í gær fréttir um
alvarlega árekstra og uppþot
í Búlgaríu í síðustu viku. Sagt
var aS búlgarskir bændur
hefðu lent í bardögum við her
sveitir stjómarinnar í Kolarov
grad-héraðinu.
IVIakaríos kom
tii Aþenu í gær
Aþenu, 17. apríl — Frá Reuter..
MAKARÍOS erkibiskup og leiðtogi frelsishreyfingar Kýpurbúa
kom flugleiðis til Aþenu í dag frá Nairóbi. Á móti honum
tók mikill mannfjöldi og fagnaði honum ákaflega. í fylgd með
erkibiskupinum voru 3 prestar, sem voru með honum 1 útlegð-
inni á Seychell-eyjum frá því í marz í fyrra.
ÖFLUGUR LÖGREGLU-
VÖRÐUR
Veður var skýjað og svalt, en
eigi að siður hafði fólk tekið að
safnast saman snemma í morgun
meðfram hinni 16 kílómetra
löngu leið frá fltugvellinum til
gistihússins, þar sem Makaríos
liefur aðsetur. Fánar blöktu við
hún hvarvetna, og víða sáust
kröfuspjöld. Öflugur lögreglu-
vörður hafi verið settur við
brezka og bandaríska sendiráðið.
VEGLEG GJÖF
Makaríosi var færður að
gjöf biskupsstafur úr fílabeini
og gulli með fangamerki erki-
biskupsins, og var á hann
greipt: „Gjöf frá grisku þjóð-
inni“.
Búðum var lokað um alla borg
ina, og yfir henni var óvenjuleg-
ur hátíðablær.
Heræiingum
mótmælt
Berlín, 17. apríL
Vesturveldin þrjú, Banda-
ríkin, Bretland og Frakkland,
sendu í dag Sovétstjórninni
harðorð mótmæli vegna her-
heræfingar væru algert brot
æfinga verkamannaherja í
Austur-Berlín þar eð þessar
á hernámsreglugerð Berlínar.
Myndir af þessum heræfing-
um eru birtar á bls. 10 í dag.
Myrdal lœtur af störfum
— Tuomioja tekur við
New York, 17. apríl — Frá Reuter.
HAMMARSKJÖLD tilkynnti í dag, að sænski hagfræðinguriiw
Gunnar Myrdal hefði beðizt lausnar frá embætti sínu í þjóa-
ustu Sameinuðu þjóðanna, en hann hefur verið framkvæmda-
stjóri Efnahagsnefndar Evrópu undanfarin 10 ár. Hefur hann tekiíat
á hendur að stjórna þriggja ára rannsóknum á efnahagslífi Suð-
austur-Asíu fyrir bandaríska mannúðar- og menningarstofnun.
Mun hann láta af núverandi embætti sínu á miðju næsta sumsi.
Sakari Tuomioja.
Gunnar MyrdaL
MAL MAKARIOSAR
Makaríos talaði til fólksfjöldans
frá gistihúsglugganum og sagði
m.a.: „Vér munum berjast fyrir
sjálfsákvörðunarrétti vorum. Vér
vonum að brezka stjórnin sýni
skilning á þessu og reyni að finna
lausn, sem sé í samræmi við
Stofnskrá S.Þ. og réttlátar kröf-
,ur Kýpurbúa".
ÓGRYNNI MANNS
Mannmergðin hrópaði án afláts
„ENOSIS“ (sameining) og veif-
aði kröfuspjöldunum, sem höfðu
að geyma áletranir eins og:
„Makaríos verður að fara heim
til Kýpur", „Kýpur verður að fá
sjálfsákvörðunarrétt“ o.s.frv.
Kadar öruggari um völdin
i
Vínarborg, 17. apríl.
FYRRINÓTT var aflétt í Ungverjalandi útgöngubanninu, sem
verið hafði síðan i uppreisninni í Ungverjalandi. Samkvæmt
því mátti fólk ekki vera á ferli eftir miðnætti. Útvarpið í Búda-
pest skýrði frá því í gær, að mikill fögnuður hefði orðið, þegar
banninu var aflétt, og sátu menn á veitingastöðum fram eftir
nóttu.
Afnám útgöngubannsins er
eitt af merkjum þess, að Kad-
ar sé orðinn fastari í sessi og
öruggari um völd sín og lög-
reglunnar. önnur visbending í
sömu átt var boðið til Hamm-
arskjölds, en honum var
heimilað að koma hvenær sem
Forseti Islands ræðir um NAIO
Rómaborg, 17. apríl.
A' SGEIR ÁSGEIRSSON forseti íslands er kominn til Ítalíu í
einkaerindum. Hann átti tal við fréttamann frá „Giorale
d’Italia" í Róm og sagði m. a. við hann:
„ísland ákvað að gerast aðili'®’
að Atlantshafsbandaluginu árið
1949, þegar við gerðum okkur
ljósar ógnir kommúnismans. Síð-
an hefur það verið í bandalaginu
og verður í því áfram; það stend
ur við skuldbindingar sínar við
öll hin meðlimaríkin og þiggur í
staðinn tryggingu um varnir ef
til árásar kemur“.
ENGINN ÞTÖÐ GETITR
STAÐIÐ EIN
Forsetinn sagði ennfremur:
„Kommúnistar héldu því fram
að við gætum varið eyland
okkar sjálfir og kröfðust þess
að herir Atlantshafsbandalags
ins yrðu sendir burt. Þessar
deilur tilheyra nú fortiðinni,
og ísland heldur áfram að vera
í varnarkerfi Atlantshafs-
bandalagsins, þar eð íslend-
ingar eru þess fullvissir, að
engin þjóð — og sízt af öllu
lítil þjóð — getur staðizt árás-
ir ein síns liðs. Og þar við má
bæta, að við höfum enga trú
á hlutleysis-kenningunum“.
Kyrrö á Kýpur
NIKÓSÍU, 17. apríl. — í fyrra-
dag fóru brezkir hermenn í fyrsta
sinn á heilu ári óvopnaðir um
Ledra-stræti, hina alræmdu
„morð-míIu“ í Nikósíu á Kýpur.
Hermönnunum var leyft að klæð-
ast borgarafötum og fara inn í
veitingahús, vínstofur og kaffi-
hús borgarinnar. Ennfremur er
hermönnum leyft að fara í smá-
ferðalög upp til fjalla og baða
sig á ströndum eyjarinnar.
kemur næst út
miðvikudaginn
24. apríl.
honum hentaði. f vetur, þegar
Hammarskjöld fór fram á að
fá að heimsækja Ungverjaland
og athuga ástandið þar, neit-
uðu valdhafarnir honum um
vegabréf.
Á hinum pólitíska vettvangi
markar heimkoma Gyeorgy Luk-
acs spor í áttina til tryggari valda
Kadars. Lukacs, sem er einn af
helztu fræðimönnum ungverska
kommúnismans, var fluttur til
Rúmeníu ásamt Imre Nagy í nóv-
ember, þegar stjórn hans var
fangelsuð.
Rúmenska útvarpið tilkynnti
í gær, að í dag kæmi til Búkarest
rússnesk sendinefnd til að ganga
frá samningum um „bráðabirgða-
dvöl“ rússneskra herja i Rúm-
eníu. Er talið, að þessir samn-
ingar eigi að greiða fyrir svipuð-
um samningum í Ungverjalandi.
Myrdal er einn þekktasti hag-
fræðingur nútimans og hefur átt
mikinn þátt í að örva viðskiptt
Evrópuþjóða og samræma hag-
kerfi þeirra. Nýtur hann mikillar
virðingar um heim allan, enda
hafa fáir einstaklingar haft önn-
ur eins áhrif á efnahagslíf og
hagfræðikenningar síðasta ára-
tugs.
Við starfi Myrdals tekur
finnski sendiherrann í London,
Sakari Suomioja, og mun hann
byrja í september n. k. Suomioja
var forsætisráðherra Finnlands
á árunum 1953—54. Hann hefur
verið aðalbankastjóri Finnlands-
banka, fjármálaráðherra, við-
skipta- og iðnaðarmálaráðherra
og utanríkisráðherra. Hann er
fæddur 29. ágúst 1911 í Tamper*
(Tammerfors).
Slapp út
um glugga
STOKKHÓLMI, 17. april. — Krik
Ákerblom, 19 ára gamall ungling-
ur, sem var dæmdur í sjö og hálfs
árs fangelsi fyrir vopnað rán,
lamdi niður lögregluvörðinn i
réttarsalnum, stökk út um glugg-
ann og komst undan. Hann hefur
ekki náðst ennþá.
Sagan er hugað líf
París, 17. apríl.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter:
HIN UNGA skáldkona Francois
Sagan, sem slasaðist lífshættulega
í bílslysi á sunnudaginn, er mjög
þungt haldin. Hún kom til með-
vilundar í gær. Hún hafði lilotið
ýmsa áverka: liöfuðsár, brotin rif-
bein, laskað Ituiga og ömiur innri
meiðsli.
Fjórir sérfræðingar stunda hana
nú, og sagði einn þeirra, að hún
væri á batavegi, en það væri alltof
snemmt að segja um það, livort
hún væri úr allri liættu. í dag mat-
aðist hún í fyrsta sinn með reglu-
legum hætti, og svaf vel í nótt sem
leið.
Lwkuarnir sögðu, að innan
þriggja daga væri hægt að segja,
hvaða horfur væru á bata skáld-
konunnar, en ekki yrði hægt að
gera á henni neinn uppskurð næstu
daga.
Francois Sagan, sem heitir
réttu nafni Ouoirez, @r 21 á*s
gömul og hefur þegar rétað
tvær bækur, sem vakið hafa
athygli víða um heim: „Bon-
jour Tristesse" og „Un Certain
Sourire". 1 gær heimsótti bróð-
ir hennar, Jacques Quoirez,
hana og talaði við hana í
stundarfj órður.g. Taldi hann
horfur á bata, enda þótt hún
hefði fengið síðuztu smurning
til þess að eiga ekkert á hættu.