Morgunblaðið - 18.04.1957, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.04.1957, Blaðsíða 10
 10 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtiidagur 18. apríl 1957 Heræíin<gar „alþýðuherganna ii Um þessar mundir fara fram víðtækar heræfingar hinna dyggu og velþjálfuðu „öryggissveita verka- Iýðsins" í Austur-Þýzkalandi. Myndin sýnir „hina hraustu syni alþýðunnar" búa sig undir að fást við uppreisnaröflin, sem þá og þegar kunna að láta til sín taka í Austur-Þýzkalandi engu síður en í Ungverjalandi. Að sjálfsögðu vita mennirnir á myndinni, að hér er aðeins um æfingu eða „leik“ að ræða. Að öðrum kosti mundu þeir líklega vera tregari til að hætta höfði sínu fyrir kommúnistafor- ingjana. Myndin er tekin með mjög sterkri aðdráttarlinsu frá Yestur-Berlín, en æfingarnar fóru fram á svæði Rússa í borginni. Hans Schuster liðforingi og Lisa Haubrock aðstoðarforingi fylgj- ast hreykin með heræfingum „al- þýð<uhersveitanna“. Þau eru að fylgjast með skotæfingu unglinga bæði pilta og stúlkna. Ekki er þess getið, að friðardúfur hafi ver ið á sveimi þar. Húseigendafélag slofnað á Akureyri AKUREYRI, 17. apríl: — 1 gær- * kveldi var haldinn fundur hér til stofnunar húseigandafélags, er starfa skal á sama grundvelli og Fasteignafélag Reykjavíkur. —- Flutti Páll S. Pálsson hrm. fram- kvæmdastjóri F.R. framsöguer- indi á fundinum þar sem hann m.a. skýrði frá starfsemi slíkra félaga á Norðurlöndum og í Reykjavík. Kvað hann nú víða í kaupstöðum landsins áhuga á stofnun slíkra félaga. Að ræðu hans lokinni voru lögð fyrir fundinn drög að félagslög- um er samþykkt voru á fundinum með lítilsháttar breytingum. 50 fundarmenn innrituðu sig í félag- ið. 1 stjórn þess voru kjörnir Jónas G. Rafnar hdl. formaður, Stefán Reykjalín, byggingarmeist- ari, Guðmundur Skaftason hdl. Eyþór Tómasson framkvstj. og Björn Guðmundsson varðstjóri. — JOB. Margþœtt starfsemi Ísl.-ameríska félagsins AÐALFUNDUR fslenzk-ameríska félagsins var nýlega haldinn í Reykjavílk. Starfsemi félagsins var fjölþætt á s. 1. ári, en aðal- verkefni þess hefur verið, eins og undanfarin ár, að hafa milli- göngu um útvegun námsstyrkja í Bandaríkjunum fyrir íslenzka námsmenn. Veittir voru 7 styrkir til háskólanáms, þar af 4 til framhaldsnáms. Þá útvegaði félag ið 6 íslendingum verknámsstyrki í Bandaríkjunum í samvinnu við American Scandinavian Founda- tion í New York. Auk þeirra styrkja, er að fram- an getur, þá hefur íslenzk- ameríska félagið haft hönd í bagga með námsstyrki þá, sem Bandaríkjamaðurinn T. E. Britt- ingham veitti nýlega 5 ungum íslendingum. Ennfremur mun félagið hafa milligöngu um út- vegun styrkja til handa 5 gagn- fræða- og menntaskólanemend- um á skólaárinu 1957—58. Eru námsstyrkir þessir veittir fyrir tilstilli félagsskapar í Banda- ríkjunum, er nefnist American Field Service. Þrír skemmtifundir voru haldn ir á árinu, og voru þeir allir prýðisvel sóttir. Þá hefur félagið efnt til kvikmyndasýninga einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuð- ina. Hafa þar verið sýndar fræðslu- og skemmtimyndir, og hefur aðsókn verið mjög góð, enda njóta þessar kvikmynda- sýningar félagsins mikilla vin- sælda meðal almennings. Á s. L vori gekkst íslenzk- ameríska félagið, í samvinnu við Tónlistarfélagið, fyrir hljómleik- um í Reykjavík, þar sem fram kom hinn víðfrægi bandaríski Robert Shaw kór. Skömmu fyrir jól sá félagið um kynningu is- lenzkra listamanna í sjónvarps- Á sjötta hundrað marins hafa séð sýningu Baldurs og 14 mynd- ir selzt. — Sýningin er opin dag- lega kl. 2—10 e.h. BALDVR EOW’VSS: „Finnskur celioIeikari“. dagskrá varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Listamennirnir, sem komu fram í sjónvarpinu voru Þuríður Pálsdóttir, Guðm. Jónsson og Fritz Weisshappel. fslenzk-ameríska féldgið hefur ýms verkefni á prjónunum, m. a. er ráðgert að hingað komi í vor þekktur bandarískur kjarnorku- vísindamaður, dr. John Dunning, prófessor við Columbia-háskól- ann. Mun hann flytja fyrirlestra á vegum félagsins um hagnýt- ingu kjarnorkunnar. Er í ráði, að fleiri þekktil* fyrirlesarar komi hingað til lands á vegum félagsins síðar á árinu. Stjórn Íslenzk-ameríska félags- ins skipa nú: Dr. Sigurður Sig- urðsson, formaður, Gunnlaugur Pétursson, varaform., Gunnar Sigurðsson, ritari, Ólafur Hall- grímsson, gjaldkeri, Daníel Gísla son, spjaldskrárritari og með- stjórnendur: Björn Thors, E. Borup, Daníel Jónsson og Njáll Símonarson. í varastjórn eru: Halldór H. Jónsson, C. Linde og Sigurður Ólafsson. Fimmtugur á morgun: Kjartun J. Jóhtmnsson alþingismaður KJARTAN J. JÓHANNSSON, læknir og alþingismaður ísafjarð arkaupstaðar, á fimmtugs afmæli á morgun, föstudaginn 19. apríl. Mun það koma mörgum er til hans þekkja næsta á óvart. Svo unglegur er hann að ýmsir mundu telja hann áratug yngrL Um svo unga menn tekur naum ast að skrifa langar afmælisgrein- ar og rekja æviferil þeirra, enda þótt ágætir séu af verkum sínum og mannkostum. Verður það held ur ekki gert hér, aðeins stiklað á nokkrum aðalatriðum. Kjartan er Reykvíkingur að ætt, sonur Jóhanns Ármanns Jón- assonar kaupmanns og Ólafar Jónsdóttur konu hans. Lauk hann stúdentsprófi 18 ára gamall og embættisprófi í læknisfræði árið 1931. Var þá um hríð settur hér- aðslæknir á nokkrum stöðum úti á landi, en sigldi síðan til Þýzka- lands og dvaldi þar um skeið við framhaldsnám. Haustið 1932 kom hann til Isafjarðar og hefur vevið þar læknir síðan, ýmist sjúkra- hússlæknir eða „praktiserandi“ læknir. Hann hefur því dvalið réttan helming ævi sinnar á Isa- firði. Þar hefur hann getið sér frábært orð sem læknir og borg- ari. Mun vart geta vinsælli mann í byggðarlagi sínu en Kjartan lækni á ísafirði. Liggja rætur vin sælda hans fyrst og fremst í hæfni hans sem læknis, hjálpsemi hans og ljúflegrar umgengni. Hann er hið mesta prúðmenni og glæsi- menni í allri framkomu. Kjartan J. Jóhannsson stundaði sjómennsku að staðaldri á skóia- árum sínum. Var mörg ár á tog- urum og kynntist lífi og starfi ís- lenzkra sjómanna af eigin sjón og raun. Hefur það síðan orðið hon- um til mikils gagns í margþæt.tum afskiptum hans af atvinnumálum og opinberu lífi. • Hann hefur tekið mikinn þátt í félagslífi og atvinnumálum á ísa- firði. Alþingismaður ísafjarðar- kaupstaðar var hann kosinn sum- arið 1953 og endurkosinn með öfl- ugu fylgi á sl. sumri. Kjartan J. Jóhannsson er hug- kvæmur og farsæll maður, að hvaða starfi sem hann gengur. Framkoma hans mótast ávallt af persónulegri góðvild og einlæg- um vilja til þess að styðja hvert mál, er til heilla horfir, hvort heldur er fyrir bæjarfélag hana eða þjóðfélag. Hann er kvæntur Jónu Ingvars dóttur úr Hafnarfirði, ágætri og dugandi konu. Eiga þau hjón fimm myndarleg börn, 3 syni og 2 dætur. Hafa tveir sona þeirra þegar hafið háskólanám. fsfirðingar munu á morgun hylla sinn vinsæla þingmann og lækni fimmtugan. Vinir hans og samstarfsmenn biðja hann lifa vel og lengi. S. Bj. Sýning Baldurs Edwins Baldur Edwins hefur ekki sýnt myndir sínar áður hérlendis, en hefur nú efnt til sýningar á verk um sínum í Bogasal Þjóðminja- safnsins, og er það fyrsta sjálf- stæða sýningin, er málarinn hef- ur haldið. Yfir 50 myndir eru á þessari sýningu: málverk, vatnslitamynd ir og teikningar, allt unnið á sein ustu árum. Fyrirmyndir sínar sækir Baldur mestmegnis til suðurlanda, enda hefur hann dval ið þar langdvölum og nú seinustu árin á Spáni. Hinir heitu litir Spánar hafa auðsjáanlega haft mikil áhrif á málarann, og hon- um er ljúf verkefni þar að sunn- an. Einnig hefur hann notað fyr- irmyndir frá París og Suður- Frakldandi. Nokkrar myndir eru frá íslandi, en þær eru þó í miki- um minnihluta. Ekki verður það sagt, að Bald- ur sé átakamaður í myndlis't. Hann brýtur ekki nýjar leiðir, og umbrot og galsa er hvergi að finna í verkum málarana. Hann virðist heldur hlédrægur, og það, er hann lætur frá sér fara, er yf. irlætislaust og ekki hávaðasamt. Nokkuð er sýningin misjöfn: sumt geðþekkt, annað lakara. Litameðferð er ekki óþægileg, en það vantar einhvern kraft og til. þrif til að raunverulegum til- gangi sé náð og verkin verði eft- irminnileg, en hver er sinnar gæfu smiður, og listamenn verða að velja og hafna samkvæmt sannfæringu og þeim skilningi, er þeir leggja í myndlist. Sýning Baldurs verður opin yf- ir bænadagana, en henni lýkur þann 25. þ.m. Áð lokum óska ég Baldri til hamingju með sýning- una. Það eru alltaf viss tímamót hjá málara, sem heldur sína fyrstu sjálfstæðu sýningu. Valtýr Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.