Morgunblaðið - 18.04.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.04.1957, Blaðsíða 16
MORCTJNPr 4 f>if) Flmmtudagur 18. aprí] 1957 n Fuglalifið við Reykjavikurtjörn ^LLUR þorri baejarbúa mun hefir nokkurn áhuga á fuglalífinu á Reykjavíkur- tjörn. Það ber t. d. ekki sjald- an við, að í blöð bæjarins sé skrifað hitt og þetta um fugla- lífið. Þetta er ekki nema' eftlilegt, enda kunna fáir að meta fegurð og fjölbreytni náttúrunnar betur en þeir, sem í borgum búa. Þessi al- menni og vaxandi áhugi mun meðal annars hafa átt mikinn þátt í því, að Gunnar Thor- oddsen, borgarstjóri, hefur beitt sér fyrir því, að þessi þáttur í fegrun bæjarins verði tekinn fastari tökum en verið hefur. Hefur hann í því skyni falið Hafliða Jónssyni, garð- yrkjuráðunaut bæjarins, að hafa urnsjón með fuglalífinu á Tjörninni og hafa með hönd um allar framkvæmdir, er lúta að eflingu þess. Þessar línur eru þó ekki sam- tal við hann, heldur við þann mann; sem nú á síðustu árum hef- ur verið kallaður til sem ráðu- nautur um leiðir til þess að auka fuglalífið á Tjörninni og gera það íjölbreyttara — það er dr. Finn Guðmundsson. Um daginn lagði ég leið mína suður í vinnustofur hans í í>jóð- minjasafnsbyggingunni, en þar hefur Náttúrugripasafnið fengið bækistöðvar til bráðabirgða. Við ræddum ekki um Náttúrugripa- safnið, því að um það fannst mér óþarfi áð tala, eins og nú er að því búið, en þeir sem vilja kynna sér það geta skroppíð þangað síð- degis einhvern sunnudag og skoð- að sýningarsal þess, sem enn er í safnahúsinu við Hverfisgötu. 1 ÞORFINNSTJÖRN Við Finnur ræddum um fugla- lífið á Tjörninni. — Þú manst eft- ir því, sagði Finnur, að seinni- hluta sumars í fyrra var 120 ung- um fjögurra andartegunda sleppt á Þorfinnstjörn í Hljómskálagarð inum. Þessar tegundir voru rauð- höfðaönd, grafönd, litla gráönd og urtönd. Eggjum þessara teg- unda hafði Kristján Geirmunds- son á Akureyri safnað í Mývatns- sveit og í Aðaldal, klakið þeim út í útungunarvél og síðan alið ungana unz þeir voru fluttir suð- ur. Þessar aðkomuendur voru vængstífðar, en nú í sumar, þeg- ar þær hafa fellt fjaðrir, verða þær fullfleygar. — Og síðan hélt hann frásögn sinni áfram. — Nú er spurningin sú, hvort þær fást Samtal við dr. Firm Guðmundsson, sem telur skilyrði mjög góð bar til oð koma upp fjölbreyttu fuglalifi til að verpa hér í vor og hvort þær verða með því vísir að anda- stofni, sem yrði „heimilisfastur" á Tjörninni. Það er staðreynd, að hvergi eru lifsskilyrði fyrir end- urnar betri en einmitt þar. Til þess að fá þær til að verpa þarf að gera ýmsar ráð- staíanir, en mest veltur þó á hinum mörgu vinum hinna norðlenzku anda, sem vitja þeirra til að gefa þeim. Girð- sjóinn með þetta. En þetta er til- raun, sem ég tel sjálfsagt að gera. Ef vel tekst, vex hér upp ný kynslóð, sem eflaust mun halda tryggð við Tjörnina í framtíðinni. Varptími andanna er í maí-júní, en þegar kemur fram í ágúst er hugmyndin að sleppa þeim út í aðaltjörnina, hvort sem þær verða þá með unga eða ekki. En nú er auk þess í ráði, að fá Kristján Geirmundsson til að upp norður á Akureyri, eins og í fyrra, en síðan verður þeim sleppt á Þorfinnstjörn, væntan- lega um mánaðamótin ágúst- september í haust. Dr. Finnur kvað skilyrði til þess að koma upp fjölbreyttu fuglalífi á Reykjavíkurtjörn mjög góð. Já, ég tala nú ekki um ef úr því verður, að gerð- ar verði nýjar tjarnir í Vatns- mýrinni, svo sem komið hefur til tals að gera, enda er mýr- in sunnan Hringbrautar og alit suður að Tívóli ekki til ann- ars betur fallin. Aðalerfiðleik- arnir, sem mér virðast nú vera á því, að hægt sé að koma hér upp skemmtilegu og fjöl- breyttu fuglalífi, eru að halda opnum nægilega stórum vök- um á Tjörninni á veturna. í vetur tókst að halda opinni vök á Þorfinnstjörn með því að halda vatningu í stöðugri hreyfingu, en þelta auðasvæði reyndist fulllítið vegna þess, ltve gífurlega mikil stokk- andamergð sótti á það. VAKIR OG SKAUTAÍS Það er að vísu ekki neinum teknískum erfiðleikum bundið að halda stærri svæðum á Tjörninni auðum á veturna, en það strand- ar enn sem komið er á því, að inni vök í krikanum við Bún- aðarfélagshúsið og jafnvel allt út að Tjarnarhólmanum. Auk þess yrði svo haldið opinni vök á Þor- finnstjörn, eins og í vetur sem leið, fyrir ungfuglana, sem koma að norðan í haust. Með þessu myndi tvennt vinnast. Fuglalíf- ið myndi flytjast meira inn í mið- bæinn, þar sem fólk á greiðari aðgang að fuglunum til að gefa þeim, og létta myndi mjög á sókn fullfleygra anda á vökina í Þorfinnstjörn, sem eiginlega er fyrst og fremst ætluð hinum ungu aðkomuöndum meðan þær erú að laga sig að nýju umhverfi. EKKI AÐEINS INNLENDAR — Hér á landi, sagði dr. Finn- ur, eru 16 tegundir anda, og mun ekki miklum erfiðleikum bundið að fá flestar þeirra til að setjast að á Reykjavíkurtjörn. En auk þess er ekkert því til fyrirstöðu, að hægt verði í framtíðinni að fá erlendar andartegundir til að lífga upp á andahjörðina á Tjörn- inni. Slíkar tegundir myndum við meðal annars geta fengið úr hin- um mikla andagarði Peter Scotts, sem tvívegis hefur komið hingað til þess að merkja heiðagæsir í Þjórsárverum við Hofsjökul. — Hann hefur nú í andagarði sín- um 140 tegundir andafugla hvað- anæva að úr heiminum. Ef þú margir telja Reykjavíkurtjörn * 1 verður einhvern tíma á ferð í Eng landi þá ættirðu að bregða þér til Scotts og skoða anaagarðinn við ósa Svernárinnar. Félagsskap ur hefur nú verið stofnaður um rekstur andagarðsins, sem er hin merkilegasta stofnun, sagði dr. Finnur. með öllu óslítandi úr tengslum við vetraríþróttaiðkanir og þar af leiðandi megi ekki halda stórum svæðum á Tjörninni opnum fyrir fuglana. Hér er ég á annarri skoð un en unnendur skaútaíþróttar- innar, þó ekki beri að skilja það svo, að ég sé á móti þeirri göf- ugu íþrótt. Eg tel, að vegna um- Eg hefði gjarna viljað, sagði hleypingasamrar veðráttu hér á J Finnur, að þú minntist í þessu Mývatnsendur á Þorfinnstjörn. 1 miðið rauðhöfðaendur( steggur ' miðið og önd til hægri). Til vinstri litlu gráendur. (Ljósm. Björn Björnsson). ingin umhverfis Þorfinns- tjörn verður nú lagfærð og styrkt, og veltur á miklu, að fólk fari ekki inn fyrir girð- inguna. Um varptímann þarf að ríkja fullkominn friður í Þorfinnshólma og sefinu og runnunum innan girðingar- innar. Gömlu álftahjónin hafa nú verið sett út fyrir girðing- una og er í ráði að farga þeim til útlanda, enda eru þau orð- in mjög erfið í sambúð. I vetur var, eins og þér mun kunnugt um, haldið opinni vök á Þor- finnstjörn, og fór þar vel um endurnar, ekki aðeins hina nýju innflytjendur heldur líka stokkendurnar, sem til skamms tíma hafa ráðið ríkj- um á Tjörninni allri ásamt kríunni. NÝ KYNSLÓÐ Vonandi er, að þessi tilraun til þess að fá hinar fallegu Mý- vatnsendur til þess að verpa hér hjá okkur takist vel, en satt að segja rennum við alveg blint í klekja út eggjum 4—5 andarteg- unda til viðbótar. Verða það lík- lega duggönd, skúfönd og húsönd, og svo sjálfur æðarfuglinn, en ekkert virðist vera því til fyrir- stöðu, að hægt verði að koma upp dálitlu æðarvarpi við Tjörnina. Ungana ætlar Kristján svo að ala Suðvesturlandi og hlýnandi lofts- lags síðustu áratugina, geti Reykjavíkurtjörn aldrei orðið sá vettvangur vetraríþrótta, sem margir vilja vera láta. Það er i t. d. miklum mun verri aðstaða til að iðka skautaíþróttir á Tjörn- inni nú en fyrir einum 30—40 ár- um. Eg held því, að fyrir skauta- fólk sé enginn framtíð í því, að hugsa sér ísinn á Tjörninni sem aðalskautasvell bæjarbúa. Eg held, að allir hljóti að sjá þetta, ef þeir hugsa svolítið um stað- reyndirnar. Og minna má á, að í vetur er leið var gert skauta- svell á sjálfum íþróttavellinum, sem mjög var sótt, og nóg var rýmið. Eg myndi leggja til, að næsta vetur yrði reynt að halda op- samtaU okkar þeirra manna, sem sérstaklega hafa tekið sig fram urri að vekja áhuga manna á fuglunum á Tjörninni. Dettur mér þá fyrst í hug Kjartan Ólafs- son brunavörður, sem alltaf hef- ur haft mikinn, áhuga á því, að búa vel í haginn fyrir Tjarnar- endurnar og látið befur mjög til sín taka einmitt í Mbl. með grein- um um þessi efni. Eg verð að segja það eins og er, að mér er það mikið gleði- efni, að nú skuli fuglalífinu á Tjörninni loks hafa verið búin örugg framtíð, því mér er kunn- ugt um, að Hafliði Jónsson, garð- yrkjuráðunautur hefur mikinn hug á að gera sitt til þess, að Tjörnin geti orðið að sannri para- dís fuglanna. Sv. Þ. Ungling irantar til blaðburðar við Laugarnesvegi J^ormtnKaíií* — Bezt að auglýsa i Morgunblaðinu — Við þessa tjörn vonast maður til að Mývatnsendurnar verpi nú í vor, og friða þarf því svæðið. Hér eru þeir að ræða saman dr. Finnur Guðmundsson, hái maðurinn, og Hafliði Jónsson, garðyrkjuráðu- I nautur, sem falið hefur verið umsjá með fuglalífinu á Reykjavíkurtjörn (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.