Morgunblaðið - 18.04.1957, Qupperneq 2
M n jf n rnv n r a t> ? p
Fímmtudagur W. aprfl lSrrt
STAKSIEINAR
„Þarf meira til
en að blekkjast“
Timinn í fyrradagr kemst þann-
iff að orði:
itÞjóðvUjinn hefur minnzt
grreinar Rauðu stjörnunnar um
tsland á furðulegan hátt. I for-
ustugrein á sunnudaginn kemst
blaðið svo að orði, að „þeir, sem
séu aðilar að árásarfyrirætlun-
um“, geti ekki hneykslazt á því,
þótt bent sé á, að árás verði svar-
að í sömu mynt. — — —
Að sjálfsögðu blekkjast menn
oft af erlendum áróðri. En það
þarf meira tii en að blekkjast,
þegar íslenzkir menn fara að
setja árásarstimpil á þjóð sína,
eins og Þjóðviljinn gerir hér“.
Þessi ummæli verða ekki skil-
in á annan veg en þann, að Þjóð-
viljinn sé sakaður um það að
mæla af ásettu ráði bót árás á
Island. En ekki linar sú ásökun
Tímans á samstarfsviljanum við
kommúnista, heldur sýnist aðeins
skerpa kærleikann.
f svefnrofunum
Alþýðublaðið lýsir í fyrradag
ástandinu í eigin flokki á þessa
leið:
„Fólk vaknar upp við þá stað-
reynd, að ef til vill aldrei frá
fyrstu árum flokksins hefur ríkt
jafn mikil eindrægni, bjartsýni
og baráttugleði x röðum jafnað-
armanna á íslandi og nú“.
Flokksfólk Alþýðuflokksins er
samkvæmt þessari frásögn nú í
svefnrofunum og fær það í gær
þessa lýsingu á flokknum, sem
það hefur verið leitt til samstarfs
við, væntanlega á meðan það
svaf:
„Til er saga um mann, sem var
svo meinfýsinn, að hann sætti sig
mætavel við þá tilhugsun að láta
annað auga sitt ef nágranni hans
missti bæði sín. En Þjóðviljinn
gengur enn Iengra í meinfýsn-
inni, ef marka má forustugrein
hans á sunnudag. Hann virðist
telja rússneska árás á ísland við-
unanlega, þó að allir íslenzkir
kommúnistar færu forgörðum í
þeim ósköpum, ef fylgjendur
Atlantshafsbandalagsins væru
sendir sömu Ieiðina“.
„Meinfýsin undirlægja
Rússa“
Að vonum þykir Alþýðublað-
inu samstarfsmennirnir þurfa
umbóta við og gefur þeim þessi
hollráð:
„Hjáleigur rússneska höfuð-
bólsins á Vesturlöndum ættu
ekki að temja sér þá meinfýsi
að vilja farast sjálfir til að fylgja
lýðræðissinnum í tortíminguna.
----------Jafnframt væri ekki
úr vegi, að þær minntu á hversu
friðsamlegar fjórar kjarnorku-
sprengjutilraunir á tiu dögum
séu í augum þeirra, sem þrá að
lifa og starfa í sátt og friði. Þjóð-
viljinn gæti kannske orðið að
Uði, ef hann þjónaði þeim mál-
stað í stað þess að vera meinfýs-
in undirlægja Rússa“.
Dauði oo tortíminn^
Þjóðviljinn lætur sér hvergi
bregða og segir í gær:
„Eða áttu Bjarni Benedikts-
sen og Guðmundur í. Guðmunds-
son von á því að rússnesk blöð
iýstu yfir því að bandarískar her-
stöðvar á íslandi skyldu friðhelg-
ar þótt þaðan rigndi dauða og
tortímingu yfir meginland Evr-
ópu?“.
En ríkisstjórnarflokkarnir halda
áfram að stjórna „í ein-
ingu andans og bandi friðar-
ins“ um ieið og þeir ásaka hver
annan um að vilja láta dauða og
tortímingu rigna yfir landslýð-
inn.
SKYLDI ÞETTA vera forsmekk-
urinn af páskaveðrinu?, sagði
maður nokkur í Austurstræti í
gærmorgun, er dimmt él gekk
yfir, en nokkru síðar létti til og
var komið glampandi sólskin.
Veðurstofan hafði þó ekki talið
sér mögulega að segja fyrir um
veðrið yfir bænadagana. Eru
horfur á svipuðu veðri a.mk. í
dag, bjart á milli dimmra éla um
suður- og vesturhluta landsins.
Eitthvað mun þó draga úr veður-
hæðinrii. Um vestanvert Norður
land eru horfur á éljaveðri ei
bjart um það austanvert. í gær
var bezta veður á Austurlandi
bjartviðri, og var t.d. 8 stiga hiti
á Dalatanga, en þá var eins stigs
frost á Galtarvita. Þessi mynd
var tekin árdegis í gær í Mið-
bænum. Tíu mín. síðar var kom-
ið glampandi sólskin. (Ljósm.
Mbl.)
Fyrsta hljómleikahátíð
1 FYRSTA skipti hér á landi
verður um næstu mánaðamót
haldin hljómleikahátíð til að
kynna íslenzk tónverk.
Hátíðin er nokkurskonar fram-
hald af Norrænu tónlistarhátíð-
inni í Reykjavík 1954, sem hald-
in var á vegum Tónskáldaráðs
Norðurlanda, en þar var sam-
kvæmt ósk Tónskáldafélags ís-
lands öllum íslenzkum verkum
Sumarfagnaður
Háskólastúdenta
HINN ÁRLEGI sumarfagnaður
Háskólastúdenta verður haldinn
að Hótel Borg þriðjudaginn 23.
apríl n.k. (næst síðasta vetrar-
dag). Verður að vanda fjölbreytt
dagskrá, Karl Guðmundsson fer
með gamanþátt, spumingaþáttur
verður þar með nýju sniði, auk
annarra skemmtiatriða. Miðar
verða seldir á Gamla Garði kl.
5—6 e.h. Það er Stúdentaráð sem
sumarfagnaðinn heldur.
Páskavaka
Langholtssóknar
PÁSKAVAKA, sem kirkjukór
Langholtssóknar gengst fyrir,
verður haldin í Laugarneskirkju
á skírdagskvöld kl. 9. Þetta er
í þriðja sinn, sem kórinn heldur
slíka kirkjusamkomu. Hafa þær
jafnan verið mjög vel sóttar.
Kórinn syngur að þessu sinni
tíu lög eftir innlenda og erlenda
höfunda. Eins og áður vill kór-
inn kynna ný eða lítt þekkt lög,
m. a. eftir Björgvin Filippusson,
Jónas Tómasson og sr. Sigtrygg
Guðlaugsson. Þá flytur hann
nokkur alkunn verk svo sem
Kvöldbæn, eftir Björgvin Guð-
mundsson. Á föstudaginn langa,
eftir dr Pál ísólfsson, Ave verum
Corpus, eftir Mozart og kór úr
óratóríinu Júdas Makkabeus eft-
ir Hándel. Undirleik í sumum
þessara laga annast Kristinn
Ingvarsson, en söngstjóri er Helgi
Þorláksson.
Þá flytur Þórir Kr. Þórðarsoi,
dósent, stutt erindi, er hann nefn
ir Musterið í fortíð og nútíð.
Unga fólkið í söfnuðinum sinn
hluta í þessari Páskavöku, en 2
ungir piltar lesa upp ljóð eftir
Davíð Stefánsson og Einar M.
Jónsson.
sleppt, svo að hægt yrði að sýna
hinum norrænu gestum hér sem
beztan sóma og fyllstu ræktar-
semi.
Tónskáldafélag íslands heldur
hátíðina einnig í tilefni af 10 ára
afmæli sínu, sem var 1955, en
sökum fjárhagsörðugleika var
henni lengi frestað. Ríki og bær
hafa nýlega samþykkt að styrkja
hátíðina, og verður eins vel til
hennar vandað og tök eru á. Ein-
leikarar, einsöngvarar, söngflokk
ar og Sinfóníuhljómsveitin æfa
nú af miklum krafti íslenzku
tónverkin til flutnings á hátíð-
inni, og verður bráðlega nánar
skýrt frá allri tilhögun hennar.
Skemindarverk
FYRIR ÞREMUR dögum voru
framin skemmdarverk í Húsurr.
Nýja Bíós, en það er reyndar
ekkert einsdæmi, eftir því sem for
stjóri þess hefir skýrt Mbl. frá.
Hafa einhverjir skemmdarverk-
armenn verið á ferli í hreinlætis-
herbergjum hússins og sviðið þar
eina hurðina, svo mikil mild má
teljast, að ekki kviknaði í hús-
inu. Dyravörður kvikmyndahúss-
ins kom þarna að skömmu seinna
og var þá mikill reykjarmökkur
í herberginu.
Þá hafa og verið framin skemmd
arverk á handriðum í kvikmynda-
salnum, þau rispuð og rifin svo
gera hefir orðið þar gagngerðar
umbætur.
Eru það vinsamleg tilmæli til
kvikmyndahússgesta að þeir geri
stjórn hússins aðvart ef þeir
verða varir við þegar slík skemmd
arverk eru unnin.
Aðaffundur Félags
fsl. slórkaupmanna
ADALFUNDUR Félags íslenzkra
stórkaupmanna var haldinn s.l.
þriðjudag 16. þ.m. í stjórn voru
kosnir: Páll Þorgeirsson, formað-
ur og meðstjórnendur þeir:
Bjarni Björnsson, Guðmundur
Árnason, Sveinn Helgason og
Tómas Pétursson. 1 varastjórn
voru kosnir þeir Bergþór Þor-
valdsson og Björn Hallgrímsson.
öll stjórnin var endurkosin
nema Björgvin Schram, sem
baðst eindregið undan endurkosn
ingu.
Fulltrúar í stjórn Verzlunar-
skóla íslands voru kosnir auk
formanns, sem er sjálfkjörinn,
þeir Gunnar Guðjónsson, Egill
Guttormsson og Björn Hallgríms-
son. —
/erkföll í FrakkLandi
PARÍS, 17. apríl.
— Frá Reuter.
JÁRNBRAUTASAMGÖNGUR
nuðust algerlega um gervallt
rakkland í dag, þegar flutn-
gaverkamenn Parísar lögðu nið
ir vinnu í samúðarskyni við
árnbrautastarfsmenn, sem fóru
48 stunda verkfall til að knýja
am 11% launahækkim. Verk-
illið og lömunin, sem af því
dddi, hófst á miðnætti. Neðan-
• rðarlestirnir í París óku bara á
inni af 12 leiðum, og aðeins 130
f 2000 strætisvögnum borgarinn-
r voru í notkun.
Um 3000 flutningaprammar á
'ljótum og síkjum Norður-Frakk-
lands voru líka teknir úr notkun
til stuðnings við verkfall flutn-
ingaverkamanna í París. Verk-
fallið leiddi af sér vinnustöðvun
hjá 1730 verkamönnum í skipa-
smíðastöðvum og flugvélaverk-
smiðjum í St. Uazaire á Atlants-
hafsströndinni og hjá 20.000
mönnum í Strassborg.
I Avignon í Suður-Frakk-
landi stöðvuðu verkfallsmenn
tvær flutningalestir, sem vora
yfirfullar af gyðinga-flótta-
mönnum frá Póllandi, I tvo
tíma, en leyfðu þeim svo að
fara áfram til skipsins, sem
beið þeirra í Marsellés og
skyldi flytja þá til ísraels.
Fréttir í stuttu máli
17. apríl — Frá Reuter.
k Adenauer kanslari Vestur-Þýzkalands lét svo ummælt í dag i
ambandi við orðsendingu frá Búlganin, að vinsamleg samskipti
pýzkalands og Sovétríkjanna yltu að verulegu leyti á því hvort
Tússar skiluðu aftur þýzkum föngum úr síðari heimsstyrjöld.
falið er, að um 100.000 þýzkir fangar séu enn í Sovétríkjunum.
Á Macmillan forsætisráðherra Breta tilk'ynnti neðri málstofunni
í dag, að haldin yrði ráðstefna allra forsætisráðherra brezka
jamveldisins 26. júní n. k. í London.
•fc í dag hófust í Bonn viðræður milli Adenauers kanslara
og fimm helztu kjarnorkuvísindamanna Vestur-Þýzkalands
um möguleika þess að búa þýzka herinn kjarnorkuvopnum.
Vísindamennirnir eru úr hópi þeirra 18 kjarnorkufræðinga,
sem mótmæltu slíkri fyrirætlun og neituðu að eiga nokk-
urn -hlut að málinu.
Kuwatly forseti Sýrlands hélt ræðu við hersýningu í Damaskus
í dag í tilefni þess, að 11 ár eru liðin síðan Frakkar fóru með heri
sina úr landinu. Sagði forsetinn, að höfuðverkefni allra Araba
væri baráttan um Palestinu. Hann sagði, að Vesturveldin væru
að reyna að lama Súez-skurðinn með því að nota Akaba-flóanxx
og ísrael sem samgönguæð milli Asíu og Evrópu. Hann bar til
baka orðróm um að Sýrland væri leppríki kommúnista.
Á Eisenhower Bandaríkjaforseti skýrði frá því á blaðamanna-
fundi í dag, að sér hefði borizt skýrsla frá Stassen þess efnis, að
umræðurnar, sem nú fara fram í London í afvopnunarnefnd S. Þ.,
gæfu bjartari vonir en nokkrar aðrar hliðstæðar umræður á síð-
ustu 10 árum.
Selwyn Lloyd utanríkisráðherra Breta tilkynnti neðri
málstofunni í dag, að stjórnin hefði ákveðið að gefa frak 5
nýtízku orustuflugvélar með öllu tilheyrandi, en stjórnin 1
írak hafði farið fram á hjálp frá Bretum til að búa flug-
herinn vopnum.
Hussein þakkar ffyrir sig
Amman, 17. apríl — Frá Reuter.
IDAG hélt Hussein konungur í Jórdaníu 15 mínútna útvarps-
ræðu til þjóðarinnar, þar sem hann þakkaði henni fyrir
stuðninginn, sem hún hefði veitt honum á erfiðum tímamótum.
Einnig færði hann hernum þakkir sínar fyrir hollustu hans og
skilning á þörfum þjóðarinnar. Hann þakkaði guði fyrir, að erfið-
leikarnir væru nú afstaðnir og að valizt hefðu til íorustuhlut-
verka meðal þjóðarinnar hinir hæfustu menn.
Hann sór við skegg spámanns-
ins, að stefna Jórdaníu væri ó-
breytt. Hún mundi eftir sem áð-
ur vinna með öðrum Arabaríkj-
um og gera þeirra stefnu að sinni
stefnu. Hann hét því að vinna af
öllum mætti gegn heimsvalda-
stefnu, arðráni og fátækt. Hussein
hóf mál sitt með því að tilkynna,
að nú mundi hann flytja þjóð-
inni hina hreinskilnu og afdrátt-
arlausu tölu sem hann hefði lofað
henni undanfarna daga.
VEGLEG HYLLING
Hussein konungur var hylltur
ákaflega, þegar hann birtist á
tröppum hallar sinnar. Hermenn-
imir hleyptu af skotum, mann-
fjöldinn söng gleðisöngva, fjöldi
ættarhöfðingja kom fram og
kyssti fætur hans og loks var
hann hafinn hátt á loft af nokkr-
um herforingjum og borinn um
mannþröngina. Síðan hélt kon-
ungurinn út í eyðimörkina til að
heimsækja ýmsa ættbálka, sem
sýnt höfðu honum hollustu.
KHALIDI BOÐAR
SÖMU STEFNU
Khalidi, hinn nýi forsætisráð-
herra, sagði í dag, að Jórdaníu-
menn mundu halda áfram að
vinna að ríkjasambandi milli
Egyptalands, Sýrlands og Jórd-
aníu. Hann kvaðst vonast til að
sjá Bandaríki Araba verða að
veruleika, því það væri eina leið-
in til að gera Arabaríkin sterk
og samhuga; og þá fyrst væri
hægt að vinna á hinum sameigin-
lega óvini, ísrael.
Skóverzlun til sölu
Skóverzlun á Akureyri, eign dánarbús Péturs H. Lár-
ussonar, er til sölu. Tilboð óskast í verzlunina og þurfa
þau að vera komin til mín eigi síðar en 26. þ. m., kl. 11
f. h. og verða þá opnuð í viðurvist viðkomenda.
Upplýsingar um verzlunina eru gefnar í skrifstofu
minni.
Réttur til að hafna hvaða tilboði sem er, er áskilinn.
Skiptaráðandinn á Akureyri, 15. apríl 1957.