Morgunblaðið - 18.04.1957, Page 6

Morgunblaðið - 18.04.1957, Page 6
8 MORGVlVnr 4fíl» Fimmíudagur 18. aprfl 195T / fáum orðum sagt: j rTTTTTTTTt nr▼▼ WWT TTTT 1 Miðnætursamtal — — TTIÐTAL. Það er ómögulegt. T Nei, nei. Það á ekki að tela við mig. Það borgar sig ekki. Það hefur enga þýðingu! Ég er ■kki neitt, ég er ekki einusinni naeðlimur í stjórnmálaflokki. — Og þar að auki hefi ég alltaf ver- iö talinn hættulegur maður. — Veiztu hvað, ég hef forfært marg- ar einfaldar sálir á lífsleiðinni? Hef ég ekki eyðilagt rímið? Hef ég ekki demoraliserað ungdóm- inn í landinu? Og svo kemur þú, blaðsunaður við borgaralegasta og íhaldsamasta málgan þjóðar- innar, og vilt hafa viðtal við mig. Ertu orðinn vitlaus! Það væri miklu nær að ég hefði viðtal við þig. Mig hefur alltaf langað til þess að vera blaðamaður. Það er að minnsta kosti nógu heimsku- legt og óheiðarlegt starf fyrir hvern sem er. Já, ég gæti vel hugsað mér að vera blaðamaður hvar sem væri, nema helzt ekki hjá Vísi. Steinn Steinarr lyfti glasi sínu til merkis um, að viðtalinu væri lokið. Ég lét það ekkert á mig fá, sat sem fastast og varákveðinn í þvi að reyna. Það kemur óboð- inn gestur inn í dyragættina og ég geng þegar á lagið: — Heyrðu, Steinn, þú átt mörg húsdýr. Segðu mér, þykir þér ekki vænt um dýrin þín? — Jú, mér er vel við dýrin. Það er gott fyrir mann eins og mig, að umgangast hund og kött. Tíkin íú arna er kannske ekki mjög gáfuð, en hún leynir á sér, sem maður segir. Hún er frekar litill- ar ættar og full alþýðleg fyrir minn smekk. Kötturinn er ágæt- ur. Við vorum einu sinni miklir vinir, en hann hefur fjarlægzt mig nokkuð með aldrinum. Það gengur svo. Hundamir í næstu húsum koma oft í heimsókn. Þeir setjast inn í eldhús, dilla sér öll- um, velta vöngum og depla aug- unum, það er alveg eins og þeir séu að segja manni einhverjar skrítnar fréttir, sem þéir vilja helzt ekki að fari lengra. — Og svo eru það hænsnin. Það var mikið skrifað um hænsni í Þjóð- viljanum sl. haust. Það er merki- legt, hvað þeir Þjóðviljamenn komast oft úr jafnvægi, þegar þeir minnast á þetta tiltölulega meinlausa fuglakyn. Ekki veit ég hvað því veldur, en það mætti segja mér, að Freud gamli hefði ekki orðið hissa á því. — Og satt er það, að ekki er það andlega þroskandi að umgangast hænsni. Þau eru ákaflega heimsk, fljót- færin og uppstökk úr hófi fram, ea það er nú strax úr þeim aftur, sem betur fer. Meðan þessu fór fram, klóraði Steinn tíkinni bak við eyrað og hún lagðist við fætur honum og lét sér líða vel. Síðan stóð hún upp og labbaði fram á gang, en skáldið lokaði hurðinni á eftir henni. Hann saup varlega á glas- inu og svaraði næstu spurningu ninni: — Pólitík — æ-nei. Ég hef aldrei verið mjög pólitískur maður. Sumir halda því fram, að mér sé illa við Rússa, það er hverju orði sannara, ég hata þá og fyrir- lit, þeir hafa svikið mig og alla menn, þeir hafa gert vonir okk- ar og drauma um betra og feg- urra mannlíf að þáttöku í óaf- náanlegum glæp. Hver sá kom- .núnisti, sem ekki þorir að við- urkenna þessa staðreynd fyrir sjálfum sér og öðrum, hlýtur að vera keyptur þræll, það er allt og sumt — og nú skulum við tala um eitthvað annað. — Já, til dæmis um eitthvað, sem hefur borið fyrir þig á lífs- leiðinni. — Komið fyrir mig? Já, ein- mitt það! Ónei, það hefur í raun- inni aldrei neitt komið fyrir mig. Ég man meira að segja ekki eftir Steinn Steinarr segir blaðamanni fíhaldssamasta málgagns þjóðarinnar" hug sinn allan mér, fyrr en ég var kominn um tvítugt eða rúmlega það —. Samt sem áður getur það vel verið, að ég hafi komið að Húsafelli í Borg arfirði einn síðsumardag, þegar ég var ungur maður. Kannske hef ég setið að drykkju í París eina kvöldstund fyrir mörgum árum, kannske hef ég gengið um göturnar í London einn sunnu- dag um messutíman og beðið þess, að bararnir væru opnaðir. Einhverntíma held ég, að ég hafi verið á ferðalagi um Miðjarðar- hafið að nóttu til í miklu óveðri. Ég er ekki viss um þetta, en það er stundum eitthvað að þvælast fyrir mér. Aftur á móti hef ég hugsað mikið um dauðann. Dauð- inn er hin eina staðreynd lífsins, segir Hemingway. En það þýðir ekki mikið að hugsa, maður kemst aldrei að neinni niður- stöðu. Það væri t. d. ákaflega skemmtilegt, að geta trúað á annað líf, eins og þeir kalla það en það er dálítið erfitt, ég hef aldrei fengið neinar sannanir fyr- ir sliku. Nei, það hefur aldrei neitt komið fyrir mig, ég hef ekki einu sinni séð draug. Og nú berst talið að skáldskap, því að hvernig er hægt að ræða við Stein Steinarr eina miðnæt- ursstund, án þess að talið berist að honum. Skáldið segir: — Ég er alls ekki mikið gefinn fyrir skáldskap. Þegar ég var ungur maður, reyndi ég stundum að „sjarmera" dömur með ljóða- lestri. Það voru ekki ljóð eftir mig, svo vitlaus var ég þó ekki, þsð var t. d. þessi fallega vísa eftir Sigurð heitrnn frá Arnar- holti: Sefur sól hjá Ægi o.s.frv. — En það tókst ekki, — því miður! — Á tímabili las ég allmikið af bókum, skáldsögur, ljóð, leik- rit, heimspeki, pólitík, guðsorð og fræðibækur um alla skapaða hluti. Frá þessum bóklestrarár- um er mér það einna minnistæð- ast, hvað mér þótti Bernard Shaw leiðinlegur. Ég skal gjama viðurkenna, að Hamsun, Hem- ingway, og James Joyce hafa haft meiri og varanlegri áhrif á mitt svokallaða sálarlíf en nokkrir aðrir menn. Þegar ég var dreng- ur, las ég Ibsen gamla mér til óbóta. Það er líklega þessvegna, sem ég er svona skrítinn. Einu sinni var ég óskaplega hrifinn af T. S. Eliot. Það var kallað tilgerð og hégómaskapur hjá mér, en þótti gott samt. Ezra Pound er mesta ljóskáld þessarar aldar og þó eru sum kvæði hans svo leið- inleg, að þau gætu líklega drep- ið naut. Einar Benediktsson, ojá . . . annars veit ég ekki hvað er skáldskapur og hvað ekki. Eitt fátæklegt vísukorn tuldra ég oft fyrir munni mér, það er eftir full orðinn hálfvita norður í landL Hann heitir Hjörtur. Vísan er svona: Steinn Steinarr: „Ég hefði sennilega getað orðið góður drykkjumað- ur, þó ég segi sjálfur frá... Margir láta lágt við Hjört en þó eru flestir þeir, sem bera lsvítan skjört og þeir eru verstir. Steinn hellir aftur í glasið. Nóttin úti er heit og björt en inni ríkir djúp þögn, einkum þegar skáldið talar: — Áfengi, segir hann. Jájá. Ég hefði sennilega getað orðið góður drykkjumaður, þó að ég segi sjálfur frá! Ég hef drukkið mik- ið og vel og lengi, í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, London, París, Hveragerði, Rúss- landi og víðar. Það var mjög skemmtilegt, skal ég segja þér, það var eins og sitja langt inni í einhverjum dularfullum skógi, þar sem ljósið kemur neðanfrá, og tala við ókunna guði. Ég svaf aldrei, en stundum þegar líða tók á nætur, var ég gripinn óviðráð- anlegri söngnáttúru, slíkt og því líkt kunni enginn að meta nema kannske ég sjálfur. Það er eftir- shrifar ur daglega lifinu ItTIKIÐ hefir verið rætt um lag- 1*1 ið Vagg og veltu og þá á- kvörðun, að banna leik þess í út- varpinu. Lokm á deilunni. DÁLKUNUM hafa borizt bréf frá merku fólki, þar sem þessi ákvörðun er rædd, og það þá tekið til umræðu sem sumit vilja halda fram, að hér sé farið inn á hættulega braut hjá útvarp- inu. Hætt sé við að frelsi þess sé um of skert, og hér beri á slæmri einræðiskennd, sem gjalda beri varhug við. Einn bréfritarinn segir: Er hér ekki um gerræði að ræða, þar sem margir fleiri danslagatextar hafa verið leiknir engu skárri og ekki bannaðir? Má þar taka sem dæmi Áramótasyrpuna, en þar er sálmi misþyrmt. Og hvað má segja um lagið „Við komum allir“? Sá texti er í sjálfu sér vel rímaður en er ekki í honum brot á einu boðorð- anna? Ljóðelsk kona, F. K., ritar: MIKIÐ var ég fegin þegar þvi var hreyft í dálkunum yðar hve ósmekklega og óviðeigandi það væri að afbaka gamlan og góðan skáldskap sem er manni næstum eins og helgidómur, sér- staklega það sem bundið er við hugljúfar æskuminningar. Eg man að ég lærði vísuna: Afi minn fór á honum rauð á knjám föður míns og var hún það fyrsta sem ég lærði í bundnu máli að undanskildum barna- versunum. Mikið hugsunarleysi. VÍST er það svívirðilegt hugs- unarleysi að afbaka verk góð skálda okkar, eða heyrist nú ekki lengur hið raunverulega undir- spil sársauka og þjáninga ’em felst í vísunni, Yfir kaldan eyði- sand, og Enginn grætur íslend- ing? Ég vildi koma þökkum mínum á framfæri við útvarpsráð fyrir að Veltan hefir nú verið tekin úr umferð. Nóg fær mað ur að heyra samt af ósmekk- legu dægurlagaþrasi. Þættirnir Brúðkaupsferðin og Um helgina hafa verið skemmti- legir og sá síðarnefndi hefir einn- ig verið harla fróðlegur oft á tíð • um. Hann er éitt af því bezta sem útvarpið hefir borið á borð fyrir hlustendur. Ég vil fá meira að heyra. Velvakanda finnst að vísu nóg komið af spjallinu um bannið á Veltunni ,sem kom til skömmu eftir að skorað hafði verið hér í dálkunum á útvarpsráð að gera svipaðar ráðstafanir. Það er eng- um heiður að slíkum yrkingum, og fáum skemmtun og því fór vel að þessi ákvörðua skyldi vera tekin. Málfarið. EN MEÐAN við erum að spjalia um tónlistina í útvarpinu, sem virðist vera eitt sígildasta umræðuefnið í smáletursdálkum dagblaðanna, þá vil ég geta þess að málfræðingur bað fyrir nokkr- ar línur hér í dálkunum. Er það út af málfari eins unga mannsins, sem annast dægunag- þátt í útvarpinu. Hann er glaður og skemmtilegur í kynningu sinni á plötunum og ferst það verk á- gætlega úr hendi, en málfarið er miklu iakara en skyldi. Nýlega talaði hann um „efnilega" plötu, sem er auðvitað fjarri lagi og bauð svo hlustendum „verulegra gleðilegra páska“. Ekki er að efa að ungi maðurinn gæti bætt úr þessum ágöllum, ef hann vildi og óskandi væri að hann gerði það. Neskirkja. MEÐ vígslu Neskirkju er brotið nýtt blað í sögu kirkjubygg- inga hér á landi. Á ég þar við út- lit kirkjunnar og gerð, en hún er að því leyti frábrugðin öðrum ís- lenzkum kirkjum. Víða erlendis hafa kirkjur verið byggðar í mjög nýtízkulegum stíl, en sú þró un hefir lítt látið á sér bera hér | á landi. Vafalaust mun sumum finnast, að gamla kirkjubyggingarlagið sé það smekklegasta og bezta, en Neskirkja sýnir hins vegar, að kirkja getur verið mjog tignar- legt og fagurt hús, þótt brotið sé upp á nýjum leiðum og nýjum stil í húsagerðinni. Og nu þegar hún I tektarvert, hvað sönglistin á erf- itt uppdráttar í þessum heimL Það er staðreynd, skal ég segja þér, að mér var einu sinni neit- að um afgreiðslu á stéttarkaffí í Madrid um miðja nótt, sökunt þess, að ég var að kveða Króka- refsrímur fyrir konuna mína. Svo er nú það, skal ég segja þér. Fyrirgefðu að ég bæti alltaf við hverja setningu þessum innihalds lausu orðum: skal ég segja þér, en það er gamall vani og þú skalt ekki taka neitt mark á því. Ann- ars þykir mér vænt um Spán, þetta fagra, stolta, einmanalega og sorgbitna land hefur aldrei horfið úr huga mínum frá því ég leit það í fyrsta sinn. — — Okkar þjóð, okkar þjóð. Ég er ekki viss um, að við séura nein þjóð. Við erum miklu frem- ur nokkurs konar útilegumenn, nokkurs konar útilegumenn. Fyrir þúsund árum vorum við dæmdir til útlegðar á þessu eyði- skeri, utan takmarka hins byggi- lega heims. Ég veit ekki hvað við höfðum til sakar unnið eða hvað vakað hefur fyrir þeim mikla og ókunna dómara, en það hefur sjálfsagt verið gott og blessað. — Og þegar ég var lítill dreng- ur, var mér beinlínis kennt, að við fslendingar hefðum einhverju dularfullu forystuhlutverki að gegna meðal þjóða heimsins, það voru víst áhrif frá kenningum Helga Péturs og skáldskap Ein- ars Benediktssonar. Það er gam- an að þessu, þó að það sé kannska draumur smælingjans eða Messí- asarkomplex sálsjúkra manna. — Og ég man ekki betur en að sjálfur Carlyle hafi einhverntíma sagt, að við íslendingar höfum bjargað, að minnsta kosti hálfri heimsmenningunni frá glötun. Þarna getur þú séð, þúsund ár í eyðimörkinni — og hálfri heims menningunni bjargað. Ég hef alltaf haft tilhneigingu til þess að skrifa orðið eyðimörk með stórum staf, hvernig stendur á því? Annars veit ég lítið ura heimsmenninguna, ég veit bara það eitt, að nóttin kemur, vest- ræn menning hefur gengið í hring, við erum komnir aftur tii hinna „síðustu daga Rómverja“, nóttin kemur, það eru engin ný sannindi. Óswald Spengler hafði rétt fyrir sér. Nú reyndi ég að fá Stein til að tala um sinn eigin skáldskap, en það gekk erfiðlega. Hann fór alltaf undan í flæmingi og talaði um eitthvað annað, stundum ura veðrið, stundum um tíkina, stund um um Sigurð Jónasson. Og nú ákvað ég að gera eina atlögu enn; — Nei, nei, ég hefi aldrei get- að skilið þau skáld, sem nenna að tala um sín eigin verk. Það hlýtur að vera mjög óþægilegt sálarlíf. Skáldskapur er eða er ekki, hvað sem höfundurinn segir. Sama máli gegnir auðvit- að um svokalláðan kveðskap . „ m . . . minn. Ég get að vísu sagt þér er fullgerð má segja að þar hafi: þag j trúnaði, að mér finnst hann vel tekizt enda er kirkjan iika sér frekar slæmur, en það kemur lega fögur >8 irman. • ekki öðrum við. í hreinskilni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.