Morgunblaðið - 21.09.1957, Qupperneq 2
2
MORGZJNBL 4Ð1Ð
Laugardagur 21. sept. 1957
ixynning skákmanna:
BjömJóhanness.
MEÐAL þátttakenda í Stórmóti
Taflfélags Reykjavíkur er Björn
Jóhannesson. Hann er fæddur ár-
ið 1930. Vann sig upp í meist-
araflokk 1949. Varð meistari
Sængurkonurnar voru lálnar hafa fófa-
visi 12 klukkusiundum eftir barnshurðinn
Islenzk sfúlka lauk nýlega prófi í meóferó
sængurkvenna og barna
Taflfélags Reykjavíkur 1950 og
síðar 1956 og heldur því þeim
titli nú. Björn hefur teflt á nokkr
um öðrum innlendum skákmót-
um, en aldrei erlendis og hefur
sennilega teflt minnst af öllum
þátttakendum í þessu Stórmóti
T. R. Björn er meistari í enskum
fræðum frá Edinborgarháskóla.
NÝLEGA er komin heim frá Nor-
egi, ung stúlka, Anna Lísa Gunn-
arsdóttir, til heimilis að Kópa-
vogsbraut 50. Hún er ein þeirra
fáu hérlendra kvenna, sem lokið
hafa prófi í „Spedbarns- og
barselpleie", sem er nánast með-
ferð sængur kvenna og nýfæddra
barna. Hún er fyrsta íslenzka
stúlkan, sem stundað hefur þetta
nám í Noregi. Anna Lísa var við
eins árs nám í þessu fagi við
Dröbak Födehjemmet í Óslófirði,
sem er í 30 km fjarlægð frá Gsló-
borg.
Barnasjúkdómar
Fréttamaður Morgunblaðsins
hitti Önnu Lísu fyrir skömmu og
ræddi við hana um skóla þennan.
Hún kvað kennsluna fólgna í
bæði bóklegu og verklegu námi.
— Við lærum um barnasjúk-
dóma og hvernig hægt sé að fyrir
byggja þá, sagði Anna Lísa, sem
er mjög aðlaðandi stúlka 23ja ára
gömul. T.d. var mikil áherzla lögð
á húðsjúkdóma, bólur sem ung-
börn eru gjörn á að fá skömmu
eftir fæðinguna og yfirleitt allt
Sagf frá síldarleit íslend-
inga á alþjóða-fiskiþingi
í OKTÓBER n.k. verður á vegum FAO efnt til fisveiðiþings í Ham-
borg, sem mun mestmegnis fjalla um veiðarfæri og tæki til að
leita uppi fisk í sjónum. í fréttatilkynningu frá FAO er skýrt frá
því að Jakob Jakobsson fiskifræðingur leggi fram á þinginu skýrslu
um síldarleit. En 100 skýrslur hafa þegar borizt frá ýmsum hlutum
heims.
1 skýrslu Jakobs er greint frá
því, hvernig flugvélar hafa verið
notaðar við síldarleit, og einnig
frá síldarleit Ægis með asdic-
tækjum og með bergmálsdýptar-
mæli.
Sagt er frá því í skýrslunni að
þegar árið 1928 hafi íslenzkir fiski
menn notað sjóflugvél til að leita
sílar. Nú eru notaðar í sílarleit-
ina tvær tveggja-hreyfia flug-
vélar, sem eru í notkun alla síld-
arvertíðina. Árið 1956 flugu þær
á 50 dögum í 286 klukkustundir
rúmlega 60 þúsund km. Urðu flug
vélarnar 60 sinnum varar við
síld.
Frá árinu 1953 hefur síldar-
leitin verið endurbætt með sam-
starfi flugvélanna við rannsókna-
skipið Ægi. Sumarið 1956 sendi
skipið síldarflotanum 45 sinnum
tilkynningar um síldartorfur.
Jakob lýkur skýrslu sinni með
því að leggja áherzlu á að sam-
starf milli flugvéla og rannsókna
skips sé mikilvægt.
Fréttabréf úr Borgar''irði eystra
Ótíðarkafll hefur verið á Auslfjörðum
BORGARFIRÐI eystra, 15. sept-j
ember. — Heyskapur hefur geng-
ið vel enda veríð fádæma góð
tíð lengst af í sumar. í síðustu
viku ágústs og það sem af er
september hefur þó verið lítið um
þurrk og nú síðustu daga hefur
rignt talsvert. Snjóað hefur 1 fjöll
og mikið kólnað í veðri. Sums
staðar er talsvert úti af heyjum
sem þegar eru farin að hrekjast.
Menn hafa að mestu látið hey í
vothey sem slegið er síðan rosinn
byrjaði.
Minnkandi engjaheyskapur
Síðutu þrjár vikur má segja að
heyskapui hafi lítið gegnið. Gras
sölnar nú óðum og er útlit fyrir
að september heyskapur verði
sama og enginn. Er þetta mest
engjasláttur sem víða hefur þó
farið mmnkandi vegna stöðugrar
ræktunar.
Fé er nú óðum að koma af af-
rétt heim að túngirðingum. Virð-
ist bæði fullorðið fé og lömb vera
f meðallagi að vænleika.
Lítið hefur verið tekið upp úr
görðum og mun uppskera vera
víðast rýr. Berjaspretta ar allgóð
einkum krækiber.
Nokkuð er unnið að vegagerð
hér í sumar í hreppnum. Aðal-
lega var unnið við veginn til
Húsavíkur. í ágúst var lokið við
að merkja, sá í , valta og girða
hinn fyrirhugaða flugvöll á Jök-
ulsármóum. Ekki hafa flugvélar
þó sezt á hann ennþá. Talið er að
völlurinn verði vel fær litlum
vélum þegar hann er gróinn.
Jarðvinnsla hefur ekki hafist
hér enn í haust vegna vöntunar
á varahlutum til jarðýtu Búnað-
arfélagsins, en skurðgrafa hefur
unnið úrtaka lítið í allt sumar og
ræst fram mikið land i kring um
Bakkagerðisþorp í landi Bakka
og Bakkagerðis. Verið er að
byggja í hreppnum fjögur íbúðar
hús að Hólalandi og Geitavík og
tvö í Bakkagerðisþorpi.
Fisklaust var hér framan af
sumri. f ágúst og fyrstu daga sept
ember var að jafnaði reytings-
afli á línu er glæddist heldur er
á leið. Síðustu dagana fyrir ros-
ann, sem nú hefur tekið fyrir
róðra nokkuð á aðra viku, var
mikill og góour afli hja öllum
bátum sem réru með línu. Um 10
trillubátar hófu róðra að stað-
aldri eða þeir sem höfðu út-
búnað til línuveiða. Mestur afli
er nú 70 skippund. Handfærabát-
arnir hafa yfirleitt fiskað mjög
lítið í sumar.
í dag er kalt og næðingsamt
Ekki er fyrirsjáanleg v^ðurbreyt-
ing til hins betra, því hryðju-
veður er og festir snjó niður
í miðjar hlíðar. Vegurinn til Hér-
aðs er enn vel fær þótt snjóað
hafi á harrn á kafla. — I. L
sem ungbörnum viðkemur. Þá
lærðum við meðferð þeirra, allt
til átta mánaða.
— En hvað um sængurkonur?
— Þegar sængurkona kom á
fæðingarheimilið, var það okkar
verk, nemanna, að taka á móti
henni, gera allar nauðsynlegar
athuganir, svo sem á blóði, blóð-
þrýstingi, þvagi og fleira. Sýn-
ishornin vorum við svo
látnar rannsaka sjálfar og með-
höndla konuna eftir útkomu
þeirra. Þessar athuganir voru
gerðar þrisvar sinnum á hverri
konu, einu sinni fyrir fæðingu og
tvisvar eftir fæðinguna, en þær
voru átta daga á fæðingarheimil-
inu, ef allt gekk eðiilega.
— Aðstoðuðu nemarnir við
sjálfa fæðinguna?
— Já, þegar að fæðingu kom
vorum við látnar gefa konunni
sprautu, sótthreinsa og undnbúa
undir fæðinguna, en það er tals-
vert verk.
Sinntu konum og börnum
— Voruð þið látnar annast
börnin strax eftir fæðinguna?
— Já, við tókum þau nýfædd
og sinntum bæði þeim og lconun-
um. Við böðuðum börnin, og það
er ef til vill gaman að geta þess,
að þau voru strax böðuð í steypi-
baði. Það þykir mjög hentugt.
Við böðuðum börnin einu sinni
á dag, og skiptum svo á þeim
eftir því sem þurfti. Við fylgd-
umst með konunum í samband
við börnin til dæmis að leggja
þau á brjóst og að brjóst væru
í lagi. Konurnar voru látnar fara
á fætur eftir 12 klukkustundir
frá því að barnið fæddist og var
það gert til að fyrirbyggja æða-
hnúta og blóðtappa.
— En hvernig er það, jafngild-
ir þessi menntun ljósmóðurfræði?
íslendingar eiga 36 skip
í smíðum um 10 þús. rúml.
NÚ eiga íslendingar í smíðum bæði heima og erlendis 36 skip sem
eru samtals 10,657 rúmlestir. Af þessu eru 10,372 rúmlestir í smíð-
um erlendis en 285 rúmlestir í skipasmíðastöðvum. hér á landi. Tvö
stór flutningaskip eru í smíðum í Álaborg fyrir Eimskipafélag ís-
lands, hvort um sig 2500 rúmlestir. Hitt mun allt vera fiskiskip.
Upplýsingar þessar eru gefnar í nýútkominni tilkynningu frá Skipa-
skoðun ríkisins.
Tveir togarar
Tveir togarar eru í smíðum er-
lendis. Annar þeirra í Beverley
í Englandi, fyrir Fylki hf. í Rvík
og verður hann 700 rúmlestir.
Hinn er smíðaður í Bremerhaven
í Þýzkalandi fyrir bæjarútgerð
Reykjavíkur og verður 800 rúm-
lestir að stærð.
Tólf 250 rúmlesta skip
Þá er sem kunnugt er búið að
semja um smíði á tólf 250 rúm-
lesta fiskiskipum í Stralsund í A-
Þýzkalandi. — Helming þeirra
skipa hefur verið úthlutað til
þessara aðila: Sigurðar Magnús-
sonar, Eskifirði; Einars Guð-
finnssonar, Bolungarvík; Leós
Sigurðssonar, Akureyri; Sigfúss
Þorleifssonar, Daivík, og sinn
hvor fer til útgerðarfélags á Rauf
arhöfn og Vopnafirði. Öðrum sex
skipum úr þessum flokki hefur
ekki verið úthlutað.
Fimm 75 rúmlesta skip „
í Fúrstenberg í Austur-Þýzka-
landi eru nú í smíðum fyrir Is-
lendinga fimm 75 rúmlesta fiski-
skip. Eigendur þeirra eru þessir:
Kaupfélag Skagstrendinga, Kaup
félag Stöðfirðinga, Ingólfur Flyg-
enring, Hafnarfirði, Albert Guð-
mundsson, Tálknafirði, og Guð-
Anna Lísa Gunnarsdóttir
— Nei, það gerir hún ekki. En
þetta er mjög góður undirbúning-
ur undir Ijósmóðurfræði. Þessir
skólar eru mjög fjölsóttir á Norð-
urlöndum og stúlkur útskrifaðar
af þeim, vinna sem fullgildar
hjúkrunarkonur á fæðingardeild
um.
— Hvað hugsarðu þér með at-
vinnu hér heima?
— Það er nefnilega mesta
vandamál. Hér er aðeins enz fæð-
ingarheimili sem tekur nema í
ljósmóðurfræði, og það virðist
ekkert hafa með mína menntun
að gera. Ég vildi samt langhelzt
vinna við fæðingarstofnun, þar
sem ég er búin að miða mitt nám
við það. Ég er því helzt að hugsa
um, að læra ljósmóðurfræði, en
það er nú heldur ekki hlaupið að
því, Ég kemst ekki að nærri
strax, því aðsóknin er mikill að
ljósmóðurfræði hér.
Það er ætíð sorglegt þegar
fólk getur ekki fengið þá atvlnnu
sem það hefur miðað nám sitt
við og varið tíma og peningum í.
En vonandi rætist úr fyrir Önnu
Lísu þannig að hún fái starf við
sitt hæfi, áður en langt um líður.
— M. Th.
Friðrik og Ingvar
fefla fjöllefli
FRIÐRIK Ólafsson og Ingvar Ás-
mundsson tefla í dag fjöltefli í
Iðnó, og hefst það kl. 2. — Þeir
munu hvor um sig tefla við um
30 menn og eru þátttakendur
beðnir að hafa með sér töfl. Fjöl-
teflið er á vegum Félags ungra
Jafnaðarmanna en öllum er frjáls
þátttaka. Þetta er fyrsta fjöltefli
Ingvars Ásmundssonar hér á
landi en áður hefur hann telft
fjöltefli í Svíþjóð með góðum
árangri. Um tvö ár eru nú liðin
síðan Friðrik tefldi fjöltefli síð-
ast.
Augafullur -
óslasaður
MIKILL mannsöfnuður safnaðist
saman við Lækjartorg síðdegis í
gær, er maður nokkur lá þar á
götunni. Einn hinna hvítu rauða-
krossbíla kom að vörmu spori á
fleygiferð á vettvang. Menn
héldu að slys hefði orðið að mað-
urinn hefði lent fyrir bíl. Safnað-
ist á svipstundu að allmikili mann
fjöldi. — Sjúkraliðsmenn fluttu
manninn á slysavarðstofuna, en
hann er Færeyingur. í ljós kom
þá að hann hafði ekki orðið fyrir
neinu slysi, heldur var hann
svona augafullur, manngarmur-
Tvelr íslendingar í
efsta sæti
BIÐSKÁKIR úr 5. og 6. umferð
Stórmóts Taflfélags Reykjavíkur
voru tefldar í gærkveldi og varð
6 skákum lokið um kl. 11.30, en
tvær enn í gangi.
Stáhlberg vann Guðmund S.,
Guðmundur Pálmason vann
Gunnar, Ingi R. vann Gunnar,
Friðrik vann Guðmund Ágústs-
son, Björn vann Arinbjörn, en
Benkö og Ingvar gerðu jafntefli.
Skákir StShlbergs og Ingvars,
Björns og Pilniks fóru aftur í bið.
Friðrik og Ingi eru nú í efsta
sæti með 414 vinning hvor.
mundur Jónsson, Rafnkelsstöð-
um.
Skipasmíði innanlands
Hér innanlands eru nú í smíð-
um sjö fiskiskip. Tvö á ísafirði,
bæði 58 rúml. Annað er fyrir
Helga Björnsson o. fl,, Hnífsdal,
en hitt fyrir íshúsfélag ísafjarð-
ar. Tvö eru í smíðum í Neskaup-
stað, annað 60 rúml., hitt 25 rúm-
lestir. Er eigandi þeirra beggja
skráður Dráttarbrautin hf., Nes-
kaupstað. Þá er eitt 60 rúmlesta
skip í smíðum í Hafnarfirði og er
eigandi þess skráður Skipasmíða-
stöðin Dröfn. Eitt 12 rúmlesta
skip er í smíðum á Akureyri fyr-
ir Kaupfélag Eyfirðinga og annað
af sömu stærð í Vestmannaeyj-
um fyrir Gunnar M. Jónsson.
Fiskiskip í smíðum erlendis
Önnur fiskiskip, sem nú eru í
smíðum erlendis, eru eftirtalin:
70 rúmlesta skip í Risör, Nor-
egi, fyrir Sigurð Lárusson o. fl.,
Hornafirði.
70 rúml. skip í Djupvik, Sví-
þjóð, fyrir Óskar Valdimarsson
o. fl., Hornafirði.
55 rúml. skip í Skagen, Dan-
mörku, fyrir Guðmund I. Ágústs-
son, Vogum.
60 rúml. skip í Strandby, Dan-
mörku, fyrir Pál Ingibergsson o.
fl., Vestmannaeyjum.
56 rúml. skip í Frederikssund,
Danmörku, fyrir Þorbjörn hf.,
Grindavík.
60 rúml. skip í Frederikssund,
Danmörku, fyrir Sigvalda Þor-
leifsson, Ólafsfirði.
56 rúml. skip í Gilleleje, Dan-
mörku, fyrir Fiskiðjuna Freyju
hf., Súgandafirði.
70 rúml. skip í Buckie, Skot-
landi, fyrir Kjartan Vilbergs-
son o. fl., SöðvarfirðL
20 unglingar fá
ákeypis skóla-
visl á Norðurl.
20 UNGLINGAR fá nú í vetur
ókeypis skólavist í lýðháskólum
á Norðurlöndum, fyrir atbeina
Norræna félagsins. Að þessu
sinni hljóta 13 unglingar skóla-
vist í Svíþjóð 5 í Noregi 1 í Finn-
landi og 1 í Danmörku.
Þeir sem þessar skólavistir
hljóta í vetur eru:
Svíþjóð.. Anna Brynjólfsdóttir
Reykjavík, Auður Árnadóttir
Akranesi, Ásdís Jakobsdóttir
Reykjavík, Dómhildur Sigurðar-
dóttir Draflastöðum Fnjóskadal,
Edda Júlíusdóttir Akranesi, Elín
H. Ásmundsdóttir Keflavík, Ið-
unn Jakobsdóttir Reykjavík, Kat-
rín Þorláksdóttir Hafnai firði,
Margrét Guðmundsdóttir Reykja
vík, Sigríður Magnúsdóttir Hafn-
arfirði, Sigurlaug Árnadottir
Akranesi, Snæbjörn Halldórsson
ísafirði og Svanhildur Hilmars-
dóttir Reykjavík.
í Noregi. Anna Gunnlaugsdótt-
ir Akranesi, Kristrún Ólafsdóttir
Reykjavík, Ragnheiður Júlíus-
dóttir Akranesi, Siðríður B. Sig-
urðardóttir Siglufirði og Sigríð-
ur Torfadóttir Akranesi.
í Finnlandi Jón Aðalsteinsson
Lyngbrekku Reykjadal og í Dan-
mörku Dóra Egilsson Reykjavík.
AKRANESI, 20. sept. — Reknetja
bátarnir hér komu ekki nærri
allir inn í dag, en þeir sem komu
voru með rúmlega 200 tunnur af
síld. Aflahæstur var Ver með 45
tunnur. — Oddur.
X