Morgunblaðið - 31.12.1957, Síða 3
ÞrJSJudagur 31. des. 1957
MORCrUlVBLAÐlÐ
3
„Stóðhestar“ heitir þessi mynd eftir Jón Stefánsson. Er hún meðal þeirra listaverka, sem Ragaiar
Jónsson forstjóri bókaútgáfunnar Helgafells hefur látið litprenta. Er talið að þessar litprent-
anir hafi tekizt mjög vel. — Listkynning Mbl. hefur sýnt myndina hér að ofan undanfarið,
ásamt litprentiunum af málverkum eftir Kjarval, Ásgrím, Scheving, Þorvald Skúlason og Þórar-
in B. Þorláksson.
gert ráð fyrir að helmingurinn
verði keyptur af skólunum en
hinn helmingurinn verði seldur
almenningi.
Litprenfanir máiverka
eru merkileg nýjung í
íslenzku listaísfi
Stutt samtal við Ragnar Jónsson
forstjóra Helgafells
ÞAÐ, SEM FÓLKIÐ hefur í kringum sig skapar hinn andlega kraft
þess á sama hátt og fæðan, er það neytir daglega er undirstaða
líkamlegs þróttar þess.
Þannig komst Ragnar Jónsson forstjóri Helgafells m.a. að orði
er Mbl. átti stutt'samtal við hann í gær um litprentanir hans á
íslenzkum málverkum.
Það sem fyrir mér vakir með litprentummum er fyrst og fremst
þrennt, sagði Ragnar:
Kynning íslenzkrar myndlistar
í fyrsta lagi er það kynning ís-
lenzkrar myndlistar úti um heim.
I öðru lagi að koma myndunum
i alla skóla landsins, þannig að
þær geti orðið grundvöllur að
listkynningu meðal æskunnar.
í þriðja lagi er hinum litprent-
uðu málverkum ætlað það hlut-
verk að vera beinn skóli í mynd-
list fyrir unglinga, með því að
láta þau hanga í húsakynnum
þeirra. Er þegar komið í ljós að
fólk úti um land hefur mikinn
áhuga á að fá myndirnar til
þess að prýða með heimili sín,
enda á það þess lítinn kost að
eignast sjálfar frummyndir lista-
verkanna.
30 málverk litprentuð
Hve mörg málverk verða lit-
prentuð fyrst í stað?
Ég geri ráð fyrir að þau verði
f fyrstu deild um 30. Verða lit-
prentuð 500 eintök af hverju mál-
verki. En auk þess verða
30 eintök af hverju málverki
Ragnar Jónssor.
unnin sérstaklega á striga.
Verða þau eingöngu ætluð til
sýninga.
Af þessum 500 litprentunum er
U tankjörsfaðakosning
FRÁ OG MEÐ 6. janúar geta þeir, sem verða fjarverandi á
kjördegi, kosið hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og hrepp-
stjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt
að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðismönnum, sem
tala íslenzku.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Vonarstræti 4,
veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utankjör-
staðaatkvæðagreiðslu. Skrifstofan verður opin í dag frá
kl. 9—12 og frá kl. 2—4. Símar 17100 og 24753.
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru beðnir að hafa
samband við skrifstofuna og gefa upplýsingar um þá, sem
verða fjarverandi á kjördegi.
Eftir 15 málara
Þegar hefur verið ákveðið að
litprenta myndir eftir‘15 málara
eldri og yngri. Litprentanir af
verkum sex þeirra eru nú til sýn-
is á vegum listkynningar Morg
unblaðsins. Eru það verk eftir
Kjarval, Jón Stefánsson, Ásgrím
Jónsson, Þórarin B. Þorláksson
Þorvald Skúlason og Gunnlaug
Scheving.
í prentun eru svo myndir eftir
Nínu Tryggvadóttur, Jón Engil- áramótin.
berts, Svavar Guðnason og Krist-
ján Davíðsson.
Hvað kostar myndin?
Óinnrömmuð kostar hver lit-
prentun kr. 400—480. En inn-
römmuð kostar myndin kr. 535—
640.
Hefur mikið selzt af þeim?
Já, hátt á þriðja hundrað skól-
ar hafa t.d. keypt hin litprentuðu
listaverk nú þegar. Hafa þó að
eins sex málverk verið litprentuð
ennþá.
Undirbúnar sýningar í 10 löndum
Svo er ætlunin að efna til sýn-
inga erlendis á myndunum?
Já, við höfum þegar undirbúið
sýningar á þeim í 10 löndum, þar
á meðal í 40 borgum í Þýzka-
landi. Það er mín sko'ðun að þess-
ar sýningar geti haft stórkost-
lega þýðingu fyrir íslenzka mynd
list og kynningu hennar. Lit-
prentanir listaverka fara nú mjög
í vöxt meðal allra menningar-
þjóða og njóta mikilla vinsælda.
Skapa þær ’möguleika til þess að
hafa margar sýningar samtímis.
Er mér mikil ánægja að því, seg-
ir Ragnar Jónsson að lokum, að
ágæt samvinna hefur tekizt við
íslenzka málara um þessa ný-
breytni í listalífi þjóðarinnar.
Skákmót Tafl»
félags Akraness
HAUSTMÓTI Taflfélags Akra-
ness er nýlega lokið. Tveir flokk-
ar kepptu. Þau urðu úrslit í 1.
flokki að Þórður Egilsson varð
efstur með 5*4 vinning og þar með
skákmeistari Taflfélagsins 1957
Næstir honum voru Stefán Teits-
son 4*/2, Skúli Ketilsson 4, Hjálm
ar Þorsteinsson 4 og Leifur Gunn
arsson með 4 vinninga. — Alls
kepptu 8 í fyrsta flokki.
i öðrum flokki sigraði Víg'lund-
ur Elísson með 9*/2 vinning. ■
Guðmundur Torfason hafði 9 vinn
inga, Jón Z. Sigríksson 9, Tómas
Runólfsson 7*4 vinning og Guðjón
Guðmundsson 6*4. Þrír efstu flytj
ast upp í 1. flokk. 12 kepptu í 2.
flokki. —
Skákþing Akraness hefst eftir
STAKSTIIWAR
Nanðsynlegt að verbanenn afli sér
iélogsréttinda í Dagsbrnn og tryggi
sér rétt til atvinnnleysistrygginga
SAMKVÆMT lögum um atvinnuleysistryggingar er verkamönnum
og öðrum launþegum tryggður réttur til bóta úr atvinnuleysistrygg-
ingasjóði ef um atvinnuleysi er að ræða. Bótarétturinn er þó sam-
kvæmt lögunum bundinn því ófrávíkjanlega skilyrði, að viðkom-
andi launþegi sé fullgildur félagi í viðkomandi stéttarfélagi.
Það er því nauðsynlegt fyrir alla, sem stunda verkamannavinnu
í Reykjavík að tryggja sér réttindi til bótanna með því að gerast
fullgildir meðlimir í Dagsbrún. Á þetta er bent vegna þess að vitað
er að mörg hundruð verkamenn i Reykjavík eru ekki fullgildir
félagar í Dagsbrún, enda hefur stjórn Dagsbrúnar lagt á það
áherzlu, að sem flestir andstæðingar hennar nytu ekki félagsrétt-
inda og þá um leið bóta úr atvinnuleysistryggingasjóði.
Þeir verkamenn, sem enn eru aukameðlimir í félaginu ættu því,
sem allra fyrst að gerast fullgildir meðlimir og tryggja sér með
því félagsleg réttindi sín.
Fjölmenn Sjáltslæðis
félaga samkoma
SAUÐÁRKRÓKI: — Sjálfstæðis-
félögin á Sauðárkróki efndu til
fagnaðar laugardaginn 28. des.
Árni Þorbjörnsson kennari, form.
Bjálfstæðisfélags Sauðárkróks
setti samkomuna. Björn Daníels-
son skólastjóri flutti ræðu, Val-
garð Blöndal söng gamanvísur. Þá
var spiluð féliagsvist. Að lokum
var dansað.
Þetta mun vera ein fjölmenn-
asta samkoma sem haldin hefur
verið á Sauðárkróki og fór í alla
staði vel fram. — jón.
Bjart hér syðra
Snjókoma nyðra
UM ÞE'SSI ÁRAMÓT eru horfur
á að ríkjandi verði, hér á landi,
norð-austan átt með frosti. — Um
norðan- og austanvert .andið mun
verða lítils háttar snjókoma með
köflum, en sennilega bjartviðri
um sunnan- og vestanvert landið.
Það er niikið háþrýstisvæði yfir
Grænlandi, sem hægt þokast aust-
ur á bóginn, sem veðri þessu veld
ur. Hér fyrir sunnan landið eru
lægðir. Taldi veðurstofan í gær-
kveldi horfur á að veðrið myndi
haldast eins og lýst hefur verið
hér að ofan, næstu 2—3 daga.
1 gærkveldi var víðast hvar
3ja stiga frost með ströndum
fram, en 7—15 stiga frost í inn-
sveitum.
Stendur ekki degi
lengur“
ÞjóSviljinn er aerið áhyggju-
fullur yfir samstarfi lýðræðis-
manna innan verklýðsfélaganna.
Hinn 28. des. segir hann:
„Þar á að------grafa grund-
völlinn undan núverandi stjórnar
samstarfi. Allir vita að það stend
ur ekki degi lengur en ríkisstjórn
in nýtur atfylgis verkalýðssam-
takanna.
Samfylking hægri manna Al-
þýðuflokksins og íhaldsins í
verkalýðsfélögunum er því bein-
línis til þess stofnuð að fella
ríkisstjórn Framsóknarflol^ksins,
Alþýðuflokksins og Alþýðubanda
Iagsins og koma íhaldinu til
valda.“
Hér kemur enn fram, að for-
senda fyrir þjónustusemi komm-
únista í „hernámsmálunum“ og
öðrum slíkum er, að þeir fái að
halda völdum í verkalýðsfélög-
unum. Hannibal og kommúnista-
broddarnir vilja nota verkalýðs-
félögin sem sína einka-eign,
verzla með helgustu hagsmuna-
mál þeirra til að tryggja sjálfum
sér völd og upphefð. Þess vegna
er komið að hjartanu í þeim, ef
þeir telja að yfirráðum sínum
þar sé teflt í tvísýnu. En óskamm
feilnin lýsir sér í því, að þeir
skuli stöðugt telja sjálfa sig og
sína litlu valdaklíku hið sama og
„verkalýðssamtökin“.
Með vmsum ráðum“
Reynslan er nú óðum að kenna
verkalýðnum hver regin-munur
er hér á. Góðan þátt í þeirri
fræðslu á „aðvörunin“ fræga,
sem Framsóknarmenn sendu ný-
lega verkamönnum í Reykjavík
um, að þeim væri hollast að
styðja kommúnista. Hvorki verka
menn né aðrir Reykvíkingar eiga
hollráða von frá Framsóknar-
mönnum, enda leynir sér ekki,
að „aðvörunin“ er einungis gerð
vegna ótta Framsóknar við reiði
kommúnista, ef lýðræðissinnar
fara nú sínu fram. En kúgunin
er sótt af miklu kappi. Þjóðvilj-
inn vitnar til þess liinn 28. des.,
að Alþýðublaðið hafi haldið því
fram, „að Alþýðuflokkurinn
ákveði einn hvern hann velur sér
að bandamanni og að hann „láti
livorki kommúnista EÐA AÐRA
segja sér fyrir verkum".
„Þeim er svo tala er hollt að
muna að dramb er falli næst“,
bætir Þjóðviljinn við og heldur
áfram:
„Sannleikurinn er sá, að vik-
um saman hafa verkalýðsmála-
j fulltrúar samstarfsflokks Alþýðu
j flokksins í ríkissjórn vinstri afl-
anna reynt með ýmsum ráðum
að fá fulltrúa Alþýðuflokksins til
samstarfs innan verkalýðssam-
takanna---------
Eysteinn seffir fyrir
verkum“
Ekki er glöggt, hvort hér er
átt við viðleitni sjálfs fjármála-
ráðherrans, Eysteins Jónssonar,
til að segja verkamönnum i
Reykjavík „fyrir verkum“. Kunn
ugt er, að hann tók sér fri frá
undirbúningnum að afgreiðslu
hinna „tekjuhallalausu fjárlaga"
tií að „segja fyrir um“ að eining
lýðræðissinna skyldi rofin. Eðli-
legt er, að Þjóðviljanum þyki
það mikil býsn, ef Alþýðuflokk-
urinn hlýðnast ekki fyrirskipun-
um þvílíks manns.
En víst sætir það tíðindum, ef
Þjóðviljinn telur Eystein nú
berum orðum til „verkalýðsmála
fulltrúa samstarfsflokks Alþýðu-
flokksins í ríkisstjórn". Hvað
sem um það er, þá er hitt vist, að
auk fölsunar kjörskrár setja
kommúnistar nú mest traust sitt
á fyrirskipanir Eysteins.