Morgunblaðið - 31.12.1957, Page 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðju'dagur 31. des. 1957
4 hópar ÍR-ínga fiara utan 1958
fiimm erl. filokkar sækja fiél. heiic
Félagið hefur komizt í gott samband
við félög í ýmsum londum
Kscattspyrnuleikír i
Keykiavák skipta
hundruðum árlega
Frá aðalfundi Knaftspyrnuráðsins
ÞAÐ ER óhætt að segja, að
stjórn ÍR sér meðlimum hinna
ýmsu deilda félagsins fyrír
nægum verkefnum. Sam-
kvæmt fréttatilkyningu frá
stjórn félagsins, munu fjórir
flokkar íþróttamanna ÍR fara
í keppnisferðir til útlandn
næsta ár og félagið tekur á
móti fimm flokkum.
Skíðamenn og sundmenn
Sund- og skíðadeildir ÍR hafa
komizt í samband við félög í
Noregi, þ. e. við sundfélagið
„Speed“ og íþróttafél. „Ready“
en bæði þessi félög eru í Osló.
Sundfélagið „Speed“ er eitt af
beztu sundfélögum Noregs, en
skriðsundsmaðurinn Nylenna og
baksundsmaðurinn Petersen eru
þekktustu kappar þess. Meining-
in er að 3—4 meðlimir „Speed“
komi á sundmót ÍR í marz og
að ÍR-ingar, líklega 8 talsins fari
til Noregs á 40 ára afmælismót
Speeds í ágúst.
íþróttafélagið „Ready“ hefur
margar íþróttir á stefnuskrá sinni
m. a. frjálsíþróttir og handknatt-
leik, en í skíðaíþróttum standa
„Ready“-menn framarlega, m. a.
eru 2 af þátttakendum Noregs í
heimsmeistaramótinu úr „Ready“
— Jan Thorstensen og
Marit Haraldsen. Sérstök nefnd
innan skíðadeildar iR sér um
þessi íþróttamannaskipti og vinn-
ur hún að því, að 4—5 Norðmenn
mæti á skíðamót ÍR í marz og
að jafnmargir ÍR-ingar fari út
í sama mánuði.
Körfuknattleiksmenn
Körfuknattleiksmenn ÍR kom-
ust í samband við hið þekkta
austur-þýzka félag, DHfK í
Leipzig, en í því eru m. a. marg-
ir af beztu frjálsíþróttamönnum
A-Þýzkalands, t. d. Frost og
Preussger, sem kepptu á afmælis-
móti ÍR í sumar. í körfuknattleik
er DHfK í 2. sæti í austur-þýzku
meistarakeppninni. Körfuknatt-
leiksmenn ÍR stefna að því að
ar. Nú hefur borizt endanleg
svar frá Varkaus og stand;:
ÍR allar dyr opnar þar. Ac
lokum kom svo boð frá DHfK uir
að senda nokkra frjálsíþrótt'i
menn á alþjóðlegt frjólsíþrótta
mót í Leipzig. Stjórn ÍR verðu
að sjálfsögðu að hafa samráð við
stjórn FRÍ um þessi boð öll tii
að forðast árekstra.
Kvenaflokkur Í.R., sem í sumar sem leið tók þátt í alþjóðlegri
fimleikahátíð í Lundúnum. Sýningar flokksins á mótinu vöktu
mikla athygli. Stjórnandi flokksins er Sigríður Valgeirsdóttir.
DHfK komi hingað í marz, en
ÍR-ingar fari svo til Leipzig í
maí.
Frjálsíþróttamenn til Sví-
þjóðar, Finnlands og
A-Þýzkalands
Frjálsíþróttamenn ÍR munu
einnig standa í stórræðum í sum-
ar. ÍR á boð inni hjá Bromma og
fer flokkurinn frá ÍR utan í
ágúst og mun dveljast í Svíþjóð
um svipað leyti og Evrópumeist-
aramótið verður. Þegar Vilhjálm-
ur Einarsson keppti í Varkaus í
Finnlandi í sumar hóf hann máis
á því, hvort íþróttafélag Varkaus
hefði áhuga á því að fá flokk ÍR
til sín í félagakeppni næsta sum-
Handknattleiksmenn frá
Júgóslavíu
- Þegar handknattleiksmenn ÍR
voru í Vestur-Þýzkalandi á dög-
unum var rætt um íþróttamanna-
skipti við júgóslavneska félagið
Zagrep og má búast við að úr
verði. Þá mun að öllu forfalla-
lausu koma handknattleiksflokk-
ur frá Júgóslavíu til Reykjavík-
ur í nóvember 1958 og ÍR-ingar
síðan fara til Júgóslavíu 1959.
Að lokum má geta þess, að
fimleikaflokkur kvenna úr ÍR
fór til Lundúna í sumar á al-
þjóðlegt fimleikamót kveníþrótta
kennara, sem haldið er fjórða
hvert ár. Flokkurinn stóð sig
mjög vel, en alls sýndu flokkar
frá 60 löndum.
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
ráðs Reykjavíkur var haldinn
dagana 2‘8. nóv. og 12. des. sl. í
Félagsheimili KR við Kapla-
skjólsveg. Formaður ráðsins, Páll
! Guðnason flutti skýrslu síðasta
árs. Kemur fram í henni hve
1 knattspyrnuíþróttin er umfangs
Imikil í höfuðstaðnum. Á sumr-
inu voru haldnir 43 leikir í meist
| araflokksmótum, auk 5 lands-
1 leika, 9 leika gegn erlendum fé-
lögum og 5 úrvalsliðsleika inn-
lendra liða, alls 62 leikir meistara
flokks, sem aðgangur var seldur
að. Verða það að meðaltali 12
leikir á mánuði.
í I. flokki fóru fram 18 mót-
leikir, í 2. flokki 41, í 3. flokki
A 35 leikir, 4. flokki A 33, 2. fl.
B 14 leikir, 3. flokki B 9 og 4.
flokki B 9, alls 202 leikir í mót-
um, 19 landsleikir og úrvalsleik-
ir og 38 leikir, sem félögin hafa
leikið gegn innlendum félögum
á ferðalögum og hér í Reykjavík
og 13 leikir erlendis. Leikafjöldi
Reykjavíkurfélaganna og ann-
arra aðila í héraðinu var á síðasta
sumri 272 og er það meiri leika-
fjöldi en nokkru sinni áður.
Á aðalfundinum var Sérráðs-
dómur K.R.R. endurskipaður og
eiga nú sæti í honum Hjörtur
Hjartarson, Sveinn Helgason og
Ari Jónsson.
Þá voru gerðar tvær sam-
þykktir í vallarmálum. Vegna
vaxandi fjöldi leika í yngri
flokknum verður að staðsetja
m kinn hluta þeirra leika á æf-
ingavöllum félaganna og vegna
breyttra aldurstakmarkana í þess
um flokkum fól þingið stjórn
ráðsins að hefjast handa um að
fá aukna aðstöðu fyrir þau mót.
Á sl. sumri var hinn nýi leikvang
ur í Laugardal tekinn í notkun
og samþykkti fundurinn að færa
þeim aðilum, sem unnu að þeim
shriFar ur ,
daglega lifinu J
Eitt á enda ár vors lífs er
runnið .. “ og af því tilefni
setjumst við niður og gerum upp
rekstrarreikning lífsins á nýliðna
árinu. Það ættum við að minnsta
kosti að gera. Með því að setja
okkur fyrir hugarsjónir afglöp
okkar og dáðir (ef einhverjar
eru) ættum við að verða færari
um að haga breytni okkar skyn-
samlega á því ári, sem nú er að
hefjast. Hver veit nema okkur
takist að lifa það allt, og okkur
líður áreiðanlega mun betur um
næstu áramót, ef við höfum verið
batnandi menn á árinu 1958.
Ef önnur áramót skyldu hins veg
ar ekki eiga fyrir okkur að liggja,
mun líka jafngott að fara að með
gát. Uppgjörið verður þá í ann-
arra höndum og ekki undan því
komizt. Það er með öðrum orðum
rétt, sem segir í versinu hans
Brynjúlfs frá Minna-Núpi:
„Þetta ár er frá oss farið,
fæst ei aftur liðin tið.
Hvernig höfum vér því varið?
Vægi’ oss Drottins náðin blíð.
Ævin líður árum með,
ei vér getum fyrir séð,
hvort vér önnur árslok sjáum.
Að oss því i tímá gáum.“
★
Annars eyða menn gamlaárs-
kvöldi víst sjaldnast í þungum
þönkum um lífið, tilveruna og
stöðu sjálfs sin í veröldinni. Sum
ir eru heima, sjálfsagt flestir.
Fjórir menn ræddu um það í
spurningadálki Morgunblaðsins á
sunnudaginn, hvernig þeir teldu
síðasta kvöldi ársins bezt varið.
Virtust allir vera þeirrar skoð-
unar, að þá skyldi heima setið.
Sumir minntust á góðan mat,
jafnvel rauðvín, aðrir minntu
menn á að gæta hófs þá sem
endranær. Einn tók beinlíms
fram, að hann væri á móti ára-
mótadansleikum. Það er ég líka,
en sumir eru á annarri skoðun
og í flestum veitingahúsum eru
miklar gleðihátíðir í kvöld. Ef
að líkum lætur taka einhverjir
pappaöskjur upp úr vösum sínum
og draga gullbauga á fingur ást-
kvenna sinna. En við, sem heima
sitjum, hlustum á útvarpið og
konur okkar og spilum við krakk
ana. Um miðnætti er svo skropp-
ið út fyrir, ef flugeldar eru fyrir
hendi, og þeir sendir upp i ríki
Spútniks. Annars er nefi klesst
að rúðu og horft á rakettur ann-
arra springa og dreifa marglitum
ljósleiftrum um himininn. En
ætli ærslin sem yfirleitt þykja
svo vel við eiga á gamlaárskvöld,
eigi sér ekki undirtón af alvar-
legum toga. Verður mönnum
ekki, hvað sem á gengur, hugsað
til þess, að nú eru tímamót, ævi-
stundirnar eyðast og lífið er í
rauninni stóralvarlegt fyrirtæki?
í gamla daga urðu stundum
átök milli mennskra manna og
huldufólks á nýjársnótt. Óhreinu
Evubörnin gengu þá úr kletta-
borgum sínum og ruddust í hús
systkina sinna í mannheimum
eða þau seiddu til sin menn og
lokuðu inni í björgum. Þeir, sem
þessu trúðu, hafa eins og við
verið þeirrar skoðunar, að ára-
mótin væru allt annað en hvers-
dagsleg stund. Þau væru þvert á
móti sá tími, er menn skyr.ja það,
sem þeim er ella hulið.
★
Annars ætlaði ég ekki að hafa
þeitta neitt langar lífernisleið-
beiningar. Ég vona bara, að okk-
ur komi dável saman á nýja
árinu eins og því, sem brátt er
á enda. Ég er að hugsa um að
halda áfram baráttunni fyrir hug
sjónamálum mínum, bæði stofn-
un næturmatstofu í Reykjavík
og afnámi bolsaáróðurs i list-
sýningarsölum! Er þess mjög að
vænta, að um næstu áramót geti
ég hrósað frægum sigrum á þeim
vettvöngum báðum. Svo verða
dálkarnir að sjálfsögðu opnir fyr
ir skynsamlega smápistla frá les-
endum og vona ég að samvinna
okkar verði góð og árangur af
bréfskriftum ykkar mikill.
Gleðilegt nýjár!
framkvæmdum þakkir knatt-
spyrnumanna.
„Ársþing K.R.R. haldið í des.
1957 telur, að þörf sé mikilla úr-
bóta í vallarmálum í bænum. —
Hefir m.a. orðið að láta veruleg-
an hluta leikanna í yngri flokk-
unum fara fram á æfingavöllum
félaganna til óhagræðis fyrir þau.
Þar sem horfur eru á, að leikum
fjölgi á næsta ári, þá vill þingið
mega vænta skjótra aðgerða í
máli þessu. Felur þingið stjórn
K.R.R. að fylgja eftir aðgerðum
í þessu skyni við vallarstjórn og
aðra þá aðila, sem hlut eiga að
máli“.
„Aðalfundur K.R.R. haldinn 12.
des. 1957 þakkar Laugardals-
nefnd, borgarstjóra og bæjar-
stjórn Reykjavíkur fyrir hinar
þróttmiklu og hröðu aðgerðir,
sem stuðluðu að því, að hægt var
að taka íþróttasvæðið í Laugar-
dal í notkun á sl. sumri. Sérstak-
lega vill fundurinn bakka fram-
kvstj. svæðisins, Gísla Halldórs-
syni, fyrir hans stórbrotna þátt
í framgangi málsins."
Á fundinum voru nokkrir for-
ustumenn félaganna sæmdir
merki K.R.R.: Bjarni Bjarnason,
Þrótti, var sæmdur stjórnarmerki
ráðsins, Grímur Jónsson, Val,
Gunnar Már Pétursson, Víking,
Haraldur Snorrason, Þrótti,
Haukur Óskarsson, Víking, Jó-
hannes Bergsteinsson, Val, Jón
Guðjónsson, Fram, Ólafur Þ. Guð
mundsson, KR, Páll Guðnason,
Val, Sigurbergur Elísson, Fram
og Sigurgeir Guðmannsson, KR,
voru sæmdir merkjum K.R.R.
með lárviðarsveig.
Formaður stjórnarinnar fyrir
næsta ár var kosinn Ólafur Jóns-
son, Víking, en með honum verða
í stjórn: Haraldur Gíslason KR,
Haraldur Snorrason, Þrótti, Jón
Guðjónsson, Fram og Páll Guðna
son, Val.
Wesxemdi Irjáisáþrótta-
áhuffi á Ækureyri
11. Meistaramót Akureyrar í
frjálsum íþróttum var haldið á
Akureyri 13.—21. sept. Frásögn
af afrekum á mótinu hefur orðið
útundan og skal nú lítillega úr
bætt. Árangur og þátttaka í mót-
inu var mun meiri en undanfar-
in ár og er greinilega að lifna
yfir frjálsíþróttalífi á Akureyri.
KA hefur sigrað frá því mótið
fyrst var haldið og hlaut nú 15
Akureyrarmeistara, en Þór 7.
Akureyrarmeistarar 1957 urðu:
100 m hlaup: Björn Sveinsson
KA 11,4. Leifur Tómasson hljóp
á sama tíma.
200 m hlaup: Leifur Tómasson
KA 23,0 sek.
400 m hlaup: Bragi Hjartarson
Þór 55,3 sek.
Reykjavíkurmót
í róðri í fyrradag
í FYRRADAG fór fram Re.ykja-
vikurmeistarmótið í róðri 1957.
Mótið átti að fara fram í haust,
en var þá frestað.
Aðeins eitt félag sendi sveitir
til mótsins, Róðrarfélag Reykja-
víkur, sem sendi tvær sveltir.
Vegalengdin, sem róin var, var
2000 m. í hvorri sveit eru fjórir
ræðarar og stýrimaður.
Reykjavíkurmeistarar í róðri
urðu: Gunnar Ólafsson, Jökull
Sigurðsson, Hrafnkell Kárason,
Garðar Steinarsson og Þráinn
Kárason, sem var stýrimaður.
Tími sveitarinnar var 9:10,8 mín.
Hinn báturinn var nokkrum
lengdum á eftir. Veður var gott
þó kalt væri.
800 m hlaup: Skjöldur Jónsson
KA 2:25,6 mín.
1500 m hlaup: Steinn Karlsson
KA 4:38,4 mín.
110 m grhl.: Leifur Tómasson
KA 16,6 sek.
400 m grhl.: Bragi Hjartarson
Þór 64,7 sek.
4x100 m hlaup: Sveit KA 48,3
sek.
4x400 m: Sveit KA 3:49,5 mín.
Hástökk: Leifur Tómasson KA
1,60 m. 4 aðrir stukku sömu hæð
en Leifur stökk 1,62 í umstökki.
Langstökk: Leifur Tómasson
KA 5,91.
Þrístökk: Páll Stefánsson Þór
12,71 m.
Stangarstökk: Páll Stefáns-
son Þór 3,10 (Eiríkur Sveinsson
KA stökk sömu hæð).
Kúluvarp: Eiríkur Sveinsson
KA 11,76 m.
Kringlukast: Kristinn Steins-
son Þór 34,57 m.
Spjótkast: Eiríkur Sveinsson
KA 44,23.
Fimmtarþraut: Ingimar Jóns-
son KA 2,038 stig.
Tugþraut: Ingimar Jónsson
KA 3987 stig.
Meistarar kvenna urðu:
80 m hlaup: Helga Haraldsd.,
KA 11,8.
Kúluvarp: Helga Haraldsdótt-
ir KA 7,15.
Hástökk: Þórey Jónsdóttir Þór
1,20 m.
Langstökk: Þórey Jónsdóttir,
Þór 3,85 m.
Heildarstigatala mótsins var:
KA 162 stig, Þór 76 stig. Stig-
hæsti einstaklingur varð Eiríkur
Sveinsson KA 29% stig. Mótstj.
var Haraldur Sigurðsson, gjald-
keri, Akureyri.