Morgunblaðið - 31.12.1957, Side 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. des. 1957
Gnðjón Svnvnr Vnldimarsson
M i nningarorb
VISSULEGA skal hlíða kalli, því
Drottinn segir gakk á fund minn.
Mér duttu í hug þessi orð þegar
og frétti lát kunningja míns Gotta
eins og hann var í daglegu tali
kallaður, og flestir þekktu hann
betur undir því nafni heldur en
fullu nafni. Hann dó snögglega
hér á Keflavíkurspítala þann 30.
október síðastliðinn. Okkur sem
búum í sjávar- og framleiðslu-
bæjum finnst höggið skarð, þegar
duglegir menn á bezta aldurs-
skeiði burtkallast með fullri
starfsorku eins og.nú heíur verið
hér í Keflavík og í því sambandi
vil ég minnast Guðna Jónssonar,
sem hér var búinn að starfa sem
útgerðar- og formaður um mörg
ár og sjómaður til enda. Báðir
þessir menn helguðu sjónum og
framleiðslustörfum alla sína
starfskrafta og þess vegna getur
ekki annað en komið í hug okkar
sem eigum alla okkar afkomu
undir þessum sjómönnum, að við
höfum misst mikið, þó harðast sé
höggvið í knérunn ekkna, barna
og annarra aðstandenda þeirra.
Gotti var háseti hjá Guðna Jóns-
syni mörg úthöld, og má vel vera
að þeir sigli enn saman yfir hafið
og lendi þar sem báran gjálfrar
við lífsins strönd. Gotti var fædd-
ur 15 ágúst 1919 í Holti í Garði.
Óskum öllum viðskiptavinum okkar
l
og þökkurh viðskiptin á liðna árinu.
Matstofan HVOLL
Hafnarstræti 5.
Einar Eiríksson.
Kirkjubær við Háteigsveg
félagsheimili Óháða fríkirkjusafnaðarins í Reykja-
vík er til leigu fyrir menningarfélög og einstaklinga.
Fundarherbergi og samkomusalur. — Upplýsingar
í síma 17628.
Gjaldkeri Óháða fríkirkjusafnaðarins.
Sjálfstæðiskvennafélagið EDDA
Kópavogi heidur
Jólatrésskemmtun
mánudaginn 6. janúar í Samkomuhúsinu, Kársnesbraut
21, Kópavogi. Kl. 3—7 fyrir börn innan 12 ára. Kl. 8 fyr-
ir unglinga og börn 12 ára og eldri. Jólasveinninn kemur.
Þeir, sem þess óska geta pantað miða í sima 19689 eða
16092.
Skemmtinefndin.
Jólatrésskemmtun
Glímufélagsins Ármann verður haldin í Sjálfstæðis-
húsinu þriðjudaginn 7. jan. kl. 3.45 síðdegis.
Skemmtiatriði — Margir Jólasveinar, kvikmyndir
og fl. — Aðgöngmiðar seldir í skrifstofu félagsins
íþróttahúsinu sími 1-33-56 frá kl. 5—7 laugardag-
inn 4. jan. Ennfremur í Sportvöruverzluninni Hellas
og Bókabúð Lárusar Blöndal. Verð kr. 30.00 fyrir
börn.
Glímufélagið Ármann.
Silfurtunglið
Hinir vinsælu almennu
jólatrésfagnabir
verða haldnir í Silfui tungnnu dagana 3., 4. og 5.
janúar.
Gilj:|gaur og Góla koma í heimsókn.
Riba og hljómsveit skemmta.
Miðar seldir og teknir frá kl. 10—4.
Silfurtunglið — Sími 19611.
Þá er komið hingað til Reykjavíkur saltfisktökuskipið Her-
mann Langereder, sem fyrst hlekktist á norður á Akureyrl,
en síðan í höfninni á Skagaströnd. Myndin er tekin af yfir-
byggingu skipsins, og sést hvernig mastrið sem heldur uppi
loftneti radartækisins keng-bognaði er það rakst á sildarlönd-
unarkranann í Skagastrandarhöfn. (Ljósmynd Mbl.).
Foreldrar Jónína Valgerður Magn
úsdóttir frá Bergi í Garði og
Valdimar Guðjónsson íiskimats-
maður ættaður úr Rangár/alla-
sýslu. Bæði voru foreldrar hans
komin af dugmiklu sjómanna-
fólki, enda faðir hans sjómaður
í mörg ár og talinn liðsmaður
góður. Fyrstu árin, sem foreldrar
Gotta bjuggu leigðu þau húsnæði
hjá Guðmundi Jónssyni útgerð-
armanni og konu hans í Holti, og
rómar Valdimar góð samskipti
þeirra hjóna. Þriggja ára gamall
flutti Gotti með foreldrum sínum
til Keflavíkur og ólst upp með
þeim, snemma byrjaði hann að
vinna þó ekki sé farið lengra aft-
ur í tímann en til ársins 1928, þá
var hver starfandi hönd í þjón-
ustu atvinnulífsins, þó smá væri.
Þetta man ég fyrst eftir Gotta
stokkaði hann þá upp línu við
bát sem ég vann við, þá var hann
9 ára gamall, unnið var i köldum
skúrhjalli, ekki mundi slíkt þykja
boðlegt barni nú, en herkjan og
kappið var mikið, þó launin væru
smá. Hefur slíkt eflaust örvað til
sjálfsbjargar eins og síðar kom
fram þegar hann stofnaði sitt
eigið netaverkstæði. Ég held að
Gotti hafi verið með yngstu mönn
um sem byrjuðu að róa hér á
vetrarvertíð strax upp úr ferm-
ingu var hann háseti með afla-
sælum og ágætis formönnum hér
í Keflavík eins og Albert Ólafs-
syni og Axel Pálssyni og fleirum.
Þann vitnisburð fær hann hjá
báðum, sem sjómaður, að hjá hon
um hafi farið saman dugnaður og
handlagni, eða sem sagt að starf-
ið hafi leikið í hans höndum.
Ásamt þessu var dagleg nmgengni
prúð, enda var honum alltaf
metnaður að minnast þessara for-
manna sinna, þarna hefði hann
starfað og vel gengið. Enda ætla
ég að minnast atviks, sem skeði
í samverutíma Axels og Gotta.
Þeir eru að koma úr fiskiróðri
á vetrarvertíð í hvassviðri og stór
sjó. Á leiðinni til lands kemur
Axel að bát, sem er sýnilega
á reki og hjálparvana og liefur
þá vissulega vaknað sjómanns-
fórnarlundin að bjarga því sem
hægt væri. Axel stýrir bát sínum
að þeim hjálparvana og Gotti
stekkur á milli bátana, þar með
var björgun hafin, taug komið
á milli bátanna og síðan bátur-
inn dreginn til lands. Þó ég minn
ist aðeins á þetta er þessi saga
ekki nema sjálfsögð, hvað menn-
irnir hafa þurft að hafa mikið
fyrir þessu í sliku veðri sem var,
en þarna hefur þurft samstillt
traust og snarræði beggja aðila
bæði formanns og háseta, en
mörg viðbrögð sjómanna er
Gísli Einarsson
héruðsdónisiöguiaJur.
Málflutniugsskrifstofa.
furðu hljótt um, enda þeir ekki
að trana því fram sér til álits.
Gotti giftist 13. september 1943,
Ástu Þórðardóttur frá Hrauns-
múla í Kolbeinsstaðahreppi, dugn
aðar og myndarkonu, enda hefur
hún haldið sitt heimili með hrein-
læti og snyrtimennsku svo sómi
er að. Tvær dætur eignuðust þau
hjón, sem báðar eru með móður
sinni. Sigurveigu, sem komin er
fram yfir fermingu 15 ára og
Jónu Valgerði, sem er ári yngri
og báðar eru þær efnisstúlkur.
Þau hjón byrjuðu búskap í Kefla-
vík hjá Valdimar föður Gotta, en
árið 1944 keypti hann húseignina
Kirkjuveg 32, var að endurbyggja
hana og stækka, en entist ekki
aldur til að það væri íullgert.
Árið 1946 hverfur Gotti frá
sjóstörfum, sem aðalatvinnu og
setur upp eigið netaverkstæði og
við það vann hann meðan líf
entist. Verkefni hafði hann alltaf
nóg, útgerðarmenn sóttust eftir
vinnu hans. Hann var afar
fljótvirkur við þessa iðju sína
og afkastamikill, enda hlífði
hann sér ekki við löngum vinnu-
dögum, þegar þess þurfti með.
Eins og ég hef áður minnzt á
minntis Gotti formanna sinna
með hlýju og velvild og þeirra
manna sem hann vann fyrir. Þó
var það Lotur Loftsson, sem hann
mat mest fyrir góð samskipti og
vináttu, enda vann hann öll þau
ár frá því hann byrjaði að vinna
á verkstæði sínu að öllum neta-
útbúnaði fyrir Loft eða hans
fyrirtæki (Geir Goði hf.) og virt-
ust þeir bera gagnkvæmt traust
hvor til annars. Gotti var nábýlis
maður minn frá því hann flutti
á Kirkjuveginn og við kunnir frá
hans barnsárum, enda sýndi hann
mér alltaf velvild, vann fyrir mig
fljótt og vel, var með mér á bát
mínum og var ég mjög hrifinn af
vinnuafköstum hans lipurð og
handlagni, enda má ég líka virða
við hann þegar hann vann að
aðgerð veiðarfæra minna í ágjöf
og slyddu svo allt væri klárt fyrir
næsta dag, þetta var gert með
glöðu geði, án þess að fá borgun
fyrir sérstaklega. Gotti var starfs
maður mikill og afkastaði mik-
illi vinnu, enda held ég að hans
heimili hafi ekki vantað, meðan
hans naut við, metnður hans var
í því fólginn að þar væri allt
sambærilegt við aðra. Hann var
snyrtimenni við sjálfan og í um
gengni allri, var alltaf hlýr og
léttur í lund, gamansamur og gat
oft komið manni í gott skap og
vinfastur og tryggur sínum kunn-
ingjum
í þessum fátæklegu minning-
arorðum mínum hef ég reynt að
lýsa helztu starfsatriðum úr lífi
kunningja míns Gotta úr hans
stuttu ævi, þar má segja að hann
liggi ekki óbættur við garð. Ég
vil votta konu hans, dætrum og
föður og öllu nánu venzlafólki
innilegustu samúð mína, ég vil
hugsa vel til ykkar allra. Jafn-
framt benda til þess, að leitað sé
við ljós jólastjörnunnar í endur-
minningum liðins tíma er alltaf
gullkorn að finna. sem hægt er
að ylja sér við. Ég þakka þér
Gotti það sem við áttum saman.
Blessuð veri þín minning.
H, G. Eyjólfsson.
l.augavegi 20B. — Sími 19631.
Bifreiðar
teknar til geymslu
Sigurður Sigtryggsson, sími 24102
Fokheld
íbúð, 100—130 fermetrar, óskast til kaups milliliða-
laust. Staðgreiðsla ef um semst. Tilboð leggist inn
til Mbl. merkt: Reykjavík — 3612.
Knattspymufélagið Þrottur
■ jólatrésskemmtun
fyrir börn félagsmanna og gesti í Silfurtunglinu laugar-
daginn 4. janúar kl. 3. — Aðgöngumiðar í Fiskbúðinni,
Fálkagötu 19, sími 13443.