Morgunblaðið - 31.12.1957, Síða 23
Þrlðjucfagur 31. dfes. 1957
MORCUNBLAÐIÐ
23
Kapphlaupið að Suöurpólnum
Hillary á 240 km eftir en óvíst um Fuch
Sir Edmund Hillary
Nú verður hljótf um
bandaríska tunglið
WASHINGTON 30. des. — Til-
kynnt var í dag, að leynd yrði
höfð á um það, þegar fyrsta
bandaríska gervitunglinu yrði
skotið á loft. Það mun gerast ein-
hvern tíma í janúar mánuði.
Verður það aðeins lítið tilrauna-
tungl. Síðan búast Bandaríkja-
menn til að skjóta á loft upp
stærra tungli í marz. —NTB
Dómar í iórdaníu
AMMAN, Jórdaníu, 30. des. (Reu
ter). — Herréttur í bænum Na-
blus í Jórdaníu, dæmdi kommún-
istaforingjana Mahmud Hildjasi
í dag í 15 ára fangelsi. Hann var
sakaður um undirróðursstarfsemi.
1 dag var annar maður dæmd-
ur í Jerúsalem í 2 ára fangelsi
fyrir að vera meðlimur í ólögleg-
um leynisamtökum.
Síðustu daga hafa herréttir í
Jórdaníu dæmt 14 manns í fang-
elsi fyrir ýmiss konar þátttöku í
samsæri gegn ríkisstjórninni.
WELLINGTON 30. des. —
Fregnir frá Suðurskautsland-
inu benda nú til þess að hinn
nýsjálenzki leiðangur Sir
Edmunds Hillarys muni verða
á undan hinum brezka leið-
angri Dr. Vivians Fuchs til
Suðurpólsins.
f dag skýröi Hillary frá
því i radíósamtali, að hann
væri nú aðeins um 240 km frá
heimskautinu. Hefur leiðang-
urinn því farið um 130 km á
tveimur dögum.
Á Hins vegar hefur ekki
náðst radíósamband við leið-
angur Fuchs siðan um miðja
síðustu viku, en þá var hann
700 km frá Suðurheimskaut-
inu.
•fc Þessir tveir leiðangrar
stefna að heimskautinu sinn
úr hvorri átt og mun nú vera
mikil keppni milli þeirra, hvor
á undan verði. í radiósamtal-
inu í dag skýrði Hillary frá
því að kuldinn væri geigvæn-
legur. Það væri mesta vanda-
mál leiðangursmanna, rð
halda vélum beltisbila sinna
gangandi.
Er Græntand að verða
gultkista Dana?
Þau komui
viffc sogu
Svör við getrauninni
ábls 7 í blaði II.
1. Janet Jagan, forsætisráðherra
frú Brezku Guyana.
2. Uyc Elircnburg, rússncskur
rilliöfundur.
3. Abba Eban fulltrúi fsraels
hjú S.Þ. —
4. Helen Keller.
5. Kishi forsælisráðherra Japan,
6. Nukrumah forsætisráðherra
Ghana.
7. Maxwell Taylor herráðsfor-
ingi Bandarikjanna.
8. Salvador Dali, listmálari.
9. Garcia forseti Filippseyja.
10. Anna Magnani kvik.nynda-
leikkona.
11. Georgc F. Kennan, bandu
rískur stjórnmálamaður.
12. Gronchi forseti ftaliu.
13. Malinovsky yfirmaður
Rauða hersins.
14. Lauris Norstad yfirmaður
NATO-herjanna.
15. Andrei Gromyko utanríkis-
ráðherra Rússa.
16. Thorneycroft fjármálaráð
herra Breta.
17. Piotr Kapitza kjarnorkusé.'-
fræðingur Rússa.
18. Von Ficandt forsætisráð-
lierra Finna.
19. Mohamcð V, Marokkosoldán
20. Bourgés-Maunoury, fyrrv.
forsætisráðherra Frakka
21. Danny Kay kvikmynda-
leikari. ——
22. Killian visindaráðunaulur
Eiscnliowers.
KAUPMANNAHOFN, 30. des. —
Danir undirbúa nú mikinn leið-
aangur til Skovfjord í Suður-
Grænlandi og mun hann halda
þangað, þegar sumar hefur geng-
ið í garð. Leiðangri þessum er
ætfað að athuga hversu mikið
úraníum-magn er í fjöllunum
þar norður frá. Eins og kunnugt
er, þá er úraníum notað til þess
að framleiða kjarnorku og eru
sumir vísindamenn þeirrar skoð-
unar, að við Skovfjord séu mjög
auðugar námur. Niðurstöður af
rannsóknunum ’eiga að liggja
fyrir, áður en næsta ár er liðið.
Auk danskra vísindamanna
verða með í förinni sænskir
námumenn og eiga þeir að hafa
það hlutverk að bora um 70
metra inn í Narassaq-fjall, þar
sem úraníum hefur fundizt á
geiger mæla“.í fyrrnefndu fjalli
fannst mikið af úraníum eða sem
svarar 1200 grömmum í hverju
tonni af málmi og má búast við
því, að þarna séu um 500 tonn af
úraníum í jörðu. Til samanburð-
ar má geta þess, að þegar bezt
lætur fá Svíar sem svarar 200—
300 grömm af úraníum úr tonni í
sínum auðugustu námum.
Meðal þeirra, sem rannsökuðu
úraníum í Grænlandi í fyrra
sumar var Niels Bohr prófessor.
Hefur hann sagt, að ástæða sé til
að ætla, að auðugar úraníum
námur séu „í þessu stærsta amti
Danmerkur", eins og komizt er
að orði í fréttum.
Eins og kunnugt er, þá eru
allauðugar blý- og sinknámur
Grænlandi. Hafa Danir selt þessa
málma til Vestur-Þýzkalands og
Belgíu fyrir 16—17 millj. d. kr.,
enda e_r hér um að ræða 23 þús.
tonn. Áætlað er, að í Grænlandi
megi vinna þessa málma fyrir um
130 millj. d. kr. Þá hafa einnig
fundizt kol og nikkel á eynni.
Spúlnik fer að
brenna upp
MOSKVA 30. des. — Tass-frétta
stofan skýrir frá því að fyrra
rússneska gervitunglið Spútnik I
muni koma inn í gufuhvolf jarð-
ar í byrjun janúar og brenna upp
af núningshita. Fyrir nokkru
kom hluti flugskeytisins, sem
borið hafði Spútnik I, inn í gufu-
hvolfið. Segja Rússar að sá hluti
hafi fallið til jarðar í Alasaka.
Gaillard
i
Framh. af bls
Fleiri þátttakendur?
Ef slík ráðstefna yrði haldin
kvaðst Gaillard persónulega
hlynntur því að í henni tækju
aðeins þátt leiðtogar Bretlands,
Bandaríkjanna, Frakklands og
Sovétríkjanna. Þó gæti hann vel
fallizt á það að forustumenn
fleiri ríkja ættu aðild að henni,
t.d. ef Rússar óskuðu þess, að
fleiri kommúnistaríki ættu þar
sína fulltrúa. Hann varaði þó við
því að fjölgun þátttakenda í slíkri
ráðstefnu yrði aðeins til að tefja
fyrir og jafnvel hindra sam-
komulag.
Tvennt óskylt
Hins vegar taldi Gaillard það
óvarlegt að fresta ákvörðunum
um uppsetningu flugskeytastöðva
í Evrópu. Þær væru algerlega
hernaðarlegt málefni og það væri
Vestur-Evrópuþjóðum nauðsyn-
legt að gera hið skjótasta ráð-
stafanir til að tryggja öryggi
sitt. Hér væri um sitt hvað að
ræða og menn ættu að forðast
að blanda saman flugskeytavanda
málinu og hins vegar þörfinni
á ráðstefnu milli austurs og vest-
urs.
Gaillard kvað frönsku ríkis-
stjórnina ekki hafa tekið endan-
lega ákvörðun um staðsetningu
flugskeytastöðva og kjarnorku-
vopna á franskri grund. Þó sagði
hann að Frakkar myndu segja já
við tilboði Eisenhowers, þó með
nokkrum skilyrðum.
Kaupum
ú
EIR og KOPAR
rm,wm
Sími 24406.
GOLFSLIPUNIN
Barmahlíð 33
Sími 13657
Þorvaldur Ari Arason, hdl.
LÖGMANNSSKRIFSTOFA
Skólavörðustig 38
«/© Páll Jóh-Jwrletfsson /»./. - Pósth 62!
Simar 15416 og 15412 - Simnefnt. A*t
RAGNAR JONSSON
bæstarétturlögniaður.
Laugaveg, 8. — Sími 17752.
Lögfræðistörf. — Eignaumsýsla.
Kristián Guðlaugssot
liæsti-réttarlögmaður.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
Austurstræti 1. — Sími 13400
Þungavinnuvélar
Sími 34-3-33
Hilmar Garðars
liCu*adstlóiiislögniaÖur.
Málflutmngsskrifstofa.
Gamla-Bíó. IngólfsstrætL
Maðurinn minn og faðir okkar
SIGURÐUR M. WIIUM
loftskeytamaður, sem andaðist 21. desember, verður jarð-
settur föstudaginn 3. janúar frá Fossvogskirkju kl. 1.30
e.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Sína Wiium og börn.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför mannsins míns og föður okkar
ELÍASAR JÓNSSONAR
frá Hallbjarnareyri.
Jensina Bjarnadóttir,
Guðlaug Elíasdóttir,
María Elíasdóttir.
Móðir min
HELGA GÍSLADOTTIR
lézt að heimili sínu, Njarðargötu 1, Keflavík 29. þ.m.
Fyrir mína hönd, syskina minna, tengdabarna og ann-
arra aðstandenda.
Helgi G. Eyjólfsson.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar
SÓLBORGAR MAT IHÍASDÖTTUR
frá Svalvogum í Dýrafirði, sem andaðist 25. des. að heim-
ili dóttur minnar og systur okkar, fer fram frá Þingeyrar-
kirkju 3. janúar. Þeim sem vildu minnast hinnéir látnu er
vinsamlegast bent á Slysavarnafélag íslands.
Þorvaldur Kristjánsson og börn.
Jarðarför systur okkar
INGIBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR
frá Útibleiksstöðum, sem andaðist 21. desember sl. fer
fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. janúar kl. 2 e.h.
Jarðarförinni verður útvarpað. Blóm afbeðin, en þeim,
sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlega bent á
Dvalarheimilissjóð kvennasambands V-Húnavatnssýslu.
Salóme Jóhannesdóttir, Margrét Jóhannesdóttir.
Jarðarför
GUÐRÚNAR BJARNADÓTTUR,
frá Vallá, fer fram að Brautarholti föstudaginn 3. janúar
klukkan 1.30. — Ferð verður frá Bifreiðastöð íslands
kl. 12.30. Blóm og kransar afþakkað.
Aðstanðendur.
Móðir okkar
RAGNHEIÐUR HELGA MAGNÚSDÓTTIR
frá Hrófbergi, prestsekkja frá Stað í Steingrímsfirði lézt
24. þ.m.
Magnús Hansson,
Guðrún Hansdóttir.
Móðursystir mín
ÁSTRlÐUR VIGFÚSDÓTTIR
ándaðist í sjúkrahúsinu Sólheimum sunnudag 29. þ. m.
Þórunn Guðmundsdóttir.
Útför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og
bróðir
MAGNÚSAR H. JÓNSSONAR
prentara, frá Lambhóli, fer fram frá Neskirkju 3. janúar
kl. 11 árdegis. — Athöfninni verður útvarpað.
Sigurlína Ebenezersdóttir,
dætur, tengdasynir og systkinl.
Jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður
GUÐJÓNS KR. JÓNSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. jan. kl. 3 e.h.
Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum.
Ágústa Jónsdóttir, börn og tengdabörn.
Kveðjuathöfn um eiginmann minn og föður okkar
EIRlK MAGNÚSSON
Stórholti 18, Reykjavík, sem andaðist 20. þ.m., fer fram
frá Dómkirkjunni föstudaginn 3. janúar kl. 10.30 f.h.
Jarðsett verður að Gaulverjabæ laugardaginn 4. janúar
kl. 1 e.h. — Blóm afbeðin.
Þorkelína Sigrún Þorkelsdóttir og böm.
Móðir okkar
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR
Tjarnargötu 47, andaðist 28. desember sl.
Dæturnar.