Morgunblaðið - 09.03.1958, Page 2
2
MORCVNBT/4ÐIÐ
Sunnudagur 9. marz 1958
Nýja orkuverið hefur ómetanlegt
gildi fyrir framtíð Bolungarvíkur
Rætt v/ð nokkra Bolvikinga um raf-
magnið og Fossárvirkjunina
BOLUNGARVÍK, 8. marz. — Fyrsti dagur hixxnar nýjn Fossár-
viikjunar í Bolungarvík var bjartur og fagur. Sól skein í heiði,
logn á jörð og al’ir í hátíðaskapi yfir hinni nýju virkjun. Boivík-
ingar hafa háð harða baráttu til að ná þessum áfanga í rafmagns-
málum sínum. M. a. byggðu þeir stíflu árið 1929 uppi á Reiðhjalia
af eigin rammleik með geysilegum erfiðleikum og urðu svo að
gefast upp við frekari framkvæmdir, sökum fjárskorts og skilnings-
leysis stjórnvalda á verkinu.
Barnaheimilið Glaunxbær eftir stækkunina
Ávarp til Hafnfir&inga
Allar hreppsnefndir og allir
oddvitar hér hafa unnið ótrauð-
lega að þessu marki. öllum
Bolvíkingum er þó Ijóst að sá
sem einna drýgstan þátt átti í
þessu verki er þingmaður þeirra,
Sigurður Bjarnason frá Vigur,
sem oft þurfti að berjast gegn
þeirri skoðun að Fossárvirkj-
un væri óráð. Fyrir baráttu sína
á Sigurður Bjarnason nú þakk-
læti okkar allra Bolvikinga.
Menn óskuðu hver öðrum
gleðilegrar hátíðar
Það var gaman að vera í Bol-
ungarvík á þessum „rafmagns-
degi“. Fánar blöktu við hún og
hvar sem menn mættust buðu
þeir hver öðrum gleðilega hátíð.
Sól var úti og sól var inni. Só7
var íNsinni allra Bolvíkinga. Há-
tíðahöldum vegna virkjunarinn-
ar verður þó frestað til vors þeg-
ar samgöngur batna.
Fréttaritari blaðsins hitti
nokkra menn og konur að máli
og hér fer á eftir nokkuð af því
sem á góma bar.
Oddviti Hólshrepps, Jónatan
Einarsson, var glaður yfir virkj-
vminni. Hann sagði, að þakka
bæri þeim framsýnu mönnuin,
sem rutt hefðu veginn og stóðu
fyrir því, að framkvæmdir voru
hafnar fyrir nær 30 árum á Reið-
hjalla. Fyrst kæmi í huga sér
nafn Jóns F. Fannbergs, forstjóra
í Reykjavík, þáverandi oddvita
Hólshrepps, sem var frumkvöðull
að verkinu, en allir aðrir odd-
vitar og hreppsnefndir eftir hans
dag hefðu og unið ötult starf
þessu máli til framdráttar.
f>á kvað hann verða að þakka
fyrrverandi ríkisstjórn Ólafs
Thors fyrir að hafa viðurkennt
nauðsyn og rétt Bolvíkinga til
þessara framkvæmda og einnig
núverandi ríkisstjórn fyrir að
efna fyrirheitið og halda virkj-
unarframkvæmdum áfram. Síð-
ast en ekki sízt kvaðzt oddvit-
inn vilja flytja þingmanninum
Sigurði Bjarnasyni þakkir fyrir
ötula baráttu hans fyrir raf-
magnsmálum Bolvíkinga. Kvað
hann alla Bolvíkinga vita um þátt
hans í þessum málum og kunna
að meta starf hans.
Hefur ómetanlegt gildi
Oddvitinn kvað þýðingu þessara
framkvæmda fyrir framtið Bol-
ungarvíkur ómetanlega, fyrst og
fremst fyrir heimilin sem nú
njóta stöðugrar orku og mun
ódýrari en áður og þá ekki siður
fyrir allan iðnað í sambandi við
atvinnuvegina ,en miklir mögu-
leikar myndu nú skapast til auk-
ins starfa á þessu sviði. Einnig
myndi virkjunin verða til þess,
að fólkið liti bjartari augum á
framtíðina og festi hér betur ræt-
ur, enda óhætt að fullyrða, að
byggðarlag eins og Bolungarvik
sem aflar tugmilljóna verðmæta
í gjaldeyri árlega eigi fullkom-
inn rétt á því, að íbúarnir búi
við sambærileg kjör í þessum eín-
um og aðrir landsmenn.
Rætt við rafveitustjórann
Frá oddvitanum lagði frétta-
ritarinn leið sína á fund raf-
veitustjórans Jóhanns Líndal.
Hann sagði að stöðin reyndist
afarvel og framleiddi auðveld-
lega 450 kw og hafi vélarnar
unnið jafnt og vel. Hann kvað
stöðina verða sjálfvirka í fram-
tíðinni, þannig, að henni yrði
fjarstýrt frá Bolungarvík. Búið
væi-i að tengja að mestu í Bol-
ungarvík en endanlega yrði
gengið frá innanbæjarkerfinu að
sumri. Spennistöðvar kvað
rafveitustjóri vera þrjár og hafi
byggt þær Jón Friðgeir Einars-
son, byggingarmeistari í Bolung-
arvík. Ein er á Grundum, önnur
á Holtum og sú þriðja á Drimlu
og er sú stærst, þar sem aðal
orkusvæðið, meðal annars frysti-
hús og fiskimjölsverksmiðja eru
á hennar svæði. Rafveitustjór-
inn sagði að rafmagnsverð myndi
lækka um þriðjung og yrði
gjaldið 65 aurar fyrir kw-stund-
ina, auk herbergjagjalda og
mælaleigu.
MikiII munur
Húsmæðurnar í Bolungarvík
eru ef til vill þær sem mestan
muninn finna. —
Fréttaritarinn talaði við Bene-
diktu Guðmundsdóttur, konu
Jóns Elíassonar formanns, sem
lengi hefur búið hér. Hún hef-
ur bæði kynnzt algjöru raf-
magnsleysi, lélegu rafmagni og
nú hinu nýja. Hún sagði, að mik-
ill munur væri á þessu, meiri en
húsmæður e. t. v. gerðu sér grein
fyrir í fyrstu. Áður hefði t. d.
ekki verið hægt að minnka raf-
straum á hellum, án þess að
hætti að sjóða í pottunum, en
í gærmorgun hefði þetta verið á
allt annan veg. Þá kraumaði
lystilega í pottinum á hálfum
straum. Fagnaði nún rafmagn-
inu og kveðst hlakka til þess,
að þurfa nú ekki lengur að búa
við lélegt skammtað rafmagn.
Steingrímur Hermanns-
son tekur sæti í gufu-
boranasfjórn
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn var lagt fram
bréf atvinnumálaráðuneytisins.
I því er spurzt fyrir um hvort
bærinn geti fallizt á að Stein-
grímur Hermannsson verkfræð-
ingur, taki sæti í stjórn gufu-
borana ríkisins og Reykjavíkur-
bæjar, í stað Þorbjörns Sigur-
geirssonar er óskað hefux að
verða leystur frá því starfi. Bæj-
arráð féllst á þetta.
Vopnahlésnefndin
í Kóreu kemur
saman
SEOUL, 8. marz. — Kommúnista
stjórnin í Norður-Kóreu hefur
beðið um fund vopnahlésnefndar
Sameinuðu Þjóðanna í Kóreu á
mánudaginn. samkvæmt tilkynn
ingu yfirherstjórnar S.Þ. í Kóreu.
Stjórnin kveðst vilja ræða um
brot á vopnahléssamningunum.
Hins vegar er talið fullvíst, að
rætt verði um bandarísku orr-
ustuþotuna sem skotin var niður
nálægt hlutlausa svæðinu milli
Norður- og Suður-Kóreu á
fimmtudaginn. Flugmaðurinn
lenti í fallhlif sinni norðan
við svæðið. Stjórnin í Suður-
Kóreu og Bandaríkjastjórn hafa
krafizt þess, að hann verði látinn
laus þegar í stað.
Önnur húsmóðir, Ósk Ólafs-
dóttir, formaður kvenfélagsins
Brautar, kona Halldórs Halldórs-
sonar, fyrrum íshússtjóra, sagðist
hafa flutzt tii Bolungarvíkur ett-
ir að rafmagn komst hér á, en
það hafi verið mjög af skorn-
um skammti. Nýja rafmagnið
væri allt annað. Það væri ein-
hvern veginn bjartara og hlýrra.
Ef til vill væri það sólin, en
sennilega aðeins rafmagnið frá
Fossá. Að hugsa sér hvað litla
Fossá getur. Ég var að strjúka
þvott í dag, sagði Ósk og gekk
það mun betur en áður. Ég er
alveg himinlifandi. Mér finnst
framtíð Bolunarvíkur breiða sig
út fyrir hugskotssjónum mínum
bjartari og fegurri en nokkru
sinni fyrr. Engin skömmtun,
aldrei slökkt á vélunum um næt-
ur. Næg orka. Hvílík dásemd
Fréttaritarinn talaði við marg-
ar ungar húsmæður og allar
höfðu þær sömu sögu að segja,
sauð við minnsta straum, alli
miklu bjartara, strokjárnið for
helmingi færri umferðir yfir
þvottinn og allt þar fram eftir
götunum.
í stuttu máli: Sólskin bæði úti
og inni, og allir ákaflega glaðir
yfir þvi, að þessi gamli draumur
Bolvíkinga um rafvirkun á Reið-
hjalla hefið ræzt.
— Fréttaritari.
DAMASKUS, 8. xnarz. — f dag
undirritaði hið forna konungs-
dæmi Jemen sáttmála við lxið
unga sambandslýðveldi Sýrlands
og Egyptalands, þar sem Jemen
gerist aðili að því.
Nasser forseti Arabalýðveldis-
ins og Mohameð el Badr krón-
prins í Jemen undirrituðu sátt-
málann. Hin opinbera tilkynning
um að Jemen ætlaði að ganga í
Sameinaða Arabalýðveldið var
gefin á sunnudaginn var.
Samkvæmt sáttmálanum, sem
var undirritaður í dag, verður
sett upp „æðsta sambandsráð",
en undir því verða sérstök ráð
Njarðvíkingar ræða
verzlunarmál sín
ÞANN 26. febr. héldu nokkrir
áhrifamenn í Ytri-Njarðvík fund
og ræddu þar um verzlunarmál
þorpsbúa, en eins og Njarðvík-
ingum er kunnugt þurfa að verða
miklar breytingar á þeim málum,
ef viðunanlegt á að teljast. Niður
staða þeirrar umræðu varð sú,
að boða skyldi til almenns fund-
ar og stofna félag, sem stæði
að byggingu á verzlunarhúsi í
Ytri-Njarðvík. Stofnfundur fé-
lags þessa verður haldinn mánu-
daginn 10. marz kl. 8,30 siðdegis
í samkomuhúsi Njarðvíkur.
Skólagarðarnir fá
framfíðarsvæði
Þá hefur skólagörðum Reykja-
vikur verið ætlað framtíðar-
svæði en þeir hafa sem kunnugt
er verið starfræktir í ofanverðu
Klambratúni. Samvinnunefnd
skipulagsmála hefur fyrir
skömmu mælt með þeirri till.
garðyrkjustjóra að Skólagörðum
Reykjavíkur verði ætlað svæði
til frambúðar í Aldamótagörðun
um, neðan Hringbrautar og svo
fái þeir annað svæði sunnan
Langholtsskóla meðfram Holta-
vegi. Á þessar tillögur báðar hef-
ur bæjarráð fallizt.
EINS OG ÖLLUM Hafnfirðing-
um er kunnugt, mynduðu líknar-
og barnaverndarfélögin í bænum
með sér samtök á sl. ári í þeim
tilgangi að kaupa hús og starf-
rækja sumardvalarheimili fyrir
hafnfirzk börn, á aldrinum 6—8
ára. Með góðum og öflugum stuðn
ingi bæjarbúa og bæjaryfirvalda,
var myndaður barnaheimilissjóð
ur, og tilnefndu fyrrnefnd félög
og barnaverndarnefnd fulltrúa í
stjórn sjóðsins. Fjársöfnun gekk
þá svo vel, að keypt var húseign-
in Glaumbær í landi Óttarsstaða,
húsið stækkað verulega og marg-
vísleg tæki keypt innan húss og
utan. Barnaheimili var sett á
sem fara með landvarnamál, efna
hagsmál og menntamál.
Egypzka blaðið „A1 Shaab”,
sem er á snærum stjórnarinnar,
sagði að í „æðsta sambandsráð-
inu“ yrðu Nasser forseti og Ah-
mad imam (konungur) í Jemen.
Þeir mundu hafa úrslitavald um
ákvarðanir hinna ráðanna.
Samþykktin er nefnd „Stofn-
skrá hinna sameinuðu Araba-
ríkja“. Samkvæmt henni verður
Jemen áfram sjálfstætt ríki á al-
þjóðavettvangi og heldur sömu
stjórn og áður, en herstyrkur
landsins verður sameinaður herj
um hinna sambandsríkjanna.
Baudooin trúloíar
sig á næstuimi
BRÚSSEL, 7. marz. — Baudouin
Belgíukonungur mun innan
skamms tilkynna trúlofun sína
Baudouin
og prinsessunnar af Bourbon-
Parma, sem er aðeins 19 ára
gömul. — Frá þessu skýrði beig-
ískt blað í dag. Trúlofunin verP-
ur gerð heyrinkunn á fyrsta kon-
unglega dansleiknum, sem hald-
inn verður í Belgíu eftir stríð. Á
þessum dansleik verða a. m. k.
20 prinsessur, segir blaðið.
stofn og það rekið með ágætum
árangri. Dvöldu í Glaumbæ sl
sumar 25 börn lengri eða
skemmri tíma. — Ekki tókst þó
vegna fjárskort að ljúka viðbygg-
ingu hússins, og ennfremur er
nauðsynlegt að setja miðstöð í
húsið, og ýmislegt fleira þarf að
gera, svo að starfsemin á sumri
komanda komizt í eðlilegt horf.
Allt þetta kostar mikla peninga.
Þess vegna hefur stjórn barna-
heimilissjóðs ákveðið að hafa’
fj áröflunardag þann 12. marz n.k.
Hefur hún valið til þessa fæð-
ingardag Theodórs heitins Mat-
hiesens, lækns. Verða þann dag
seld merki til ágóða fyrir barna-
heimilið í Glaumbæ, kaffisala í
Alþýðuhúsinu, frá kl. 3 til mið-
nættist, og ennfremur verður þá
um kvöldið fjölbreytt kvöldvaka
í Alþýðuhúsinu, sem kennarar
og nemendur úr Flensborgarskól-
anum sjá um. Loks verða svo
vandaðar barnaskemmtanir á
laugardaginn kemur, 15. marz í
báðum kvikmyndahúsum bæjar-
ins. Það er von stjórnar barna-
heimilissjóðsins, að bæjarbúar
minnist barnanna og starfsem-
innar í Glaumbæ á miðvikudag-
inn kemur, 12. marz, með því
að kaupa merki dagsins, drekka
síðdegiskaffið í Alþýðuhúsinu og
fjöimenna á kvöldvökuna og í
kvöidkaffið. Þá eru foreldrar
beðnir um að leyfa börnunum
að selja merki þennan dag og
að lofa þeim að sækja barna-
skemmtanirnar á laugardaginn
kemur, en til þeirra hefur verið
vandað sérstaklega. Húsmæður,
sem hafa hug á að gefa kökur og
kaffi, eru vinsamlegast beðnar
að senda það í Alþýðuhúsið dag-
inn áður eða þriðjudaginn 11.
marz kl. 3—7.
Það væri mikill sómi fyrir Hafn
firðinga að minnast hins barn-
góða, vinsæla læknis og ágæta
mannvinar, Theodórs heitins
Mathiesens, með því að styrkja
Framh. á bls. 22
Brefar svara kæru
Jemens
NEW YORK, . marz. — Bretar
hafa neitað ásökunum Jemens
um árás brezkra hermanna á
Jemen, e* kæra þess efnis var
lögð fyrL Sameinuðu þjóðirnar.
í svari sínu segja Bretar, að at-
burðurinn, sem tilfærður er í
kæru Jemens, hafði annað hvort
aldrei átt sér stað eða átt upptöii
sín í hinum tiðu árásum Jeniens
búa á brezka verndarsvæðið
Aaen.
í svari Breta eru ítrekaðar
fyrri tillögur um að merkja landa
mærin greinilega og reyna síðan
að friða þau. Þá er ennfremur á
það bent, að stjórnarvöldin í Jem
en hafi ekki aðeins verið hávær
um þá ætlun sína að leggja Aden
undir sig, heldur hafi þau lika
átt sök á öllum skærum eða
árekstrum, sem átt hafa sér stafl
á landamærunum.
g@m«gww í banda
lætfp Massers lorseSa