Morgunblaðið - 09.03.1958, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.03.1958, Blaðsíða 14
14 MORCVNBLAÐtÐ Sunnudagur 9. marz 1958 KOPAVOGUR Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi efna til skemmtunar í Tjarnarcafé niðri, nk. sunnudag kl. 8,30 e. h. Aðgöngumiðar fást í skrifstofu flokksins að Mel- gerði 1, í dag kl. 7—9 e. h. og á morgun, sunnudag kl. 1—4 e. h. ATH. Strætisvagn fer frá Tjarnarcafé í Kópavog að skemmtuninni lokinni. Sk emm tinef n din. BœjargialdkerastarfiB hjá bæjarsjóði Hafnarfjarðar er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 18. marz n.k. Hafnarfirði, 7. marz 1958. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Stefán Gunnlaugsson. Fyririsggjandi ETRONIT-pIastplötur frá Danmctrku. Áferð: mahogni, eik og grátt frost. — Stærð: 250x125 cm. — Plöturnar þola vínanda, logandi sígarettur og hversbonar slit mjög vel. — V GIPSONIT-þilplötur. EINANGRUNARKORK PÁLL ÞORGEBRSSON Laugavegi 22 — Ármúla 13 STRRUB með olfu Þetta permanent endisf allt að hálft ár, eftir ástandi hársins. Rannsóknarstofur þýzkra há- skóla hafa staðfest, að þetta permanent ér al- gerlega skaðlaust. Reynsla hundruð þúsunda ánægðra kvenna hefur sarmað ágæti þess. — ★ Með STRAUB-heimapermanenti fylgir túba af STRAUPOON-SHAMPOO Silkigljái og áferÖarfegurð með STRAUB heimapermanenti Söluumboð í Reykjavík: Bankastræti 7, sími: 2-21-35 STRAUB fæst einnig í helztu verzlunum út um land. — Reykjavlkurbréf Framh. af bls. 13 Tímans segir um samvinnu Fram- sóknar „við fylgismenn Alþýðu- bandalagsins“: „Mbl. túlkar þetta að sjálf- sögðu á þann veg að Framsókn- armenn séu að styðja kommún- ista til valda og jafnvel hefur Mbl. gengið svo langt, að kalla þetta stuðning við heimskomm- únismann!" Hér hefur Tíminn augljóslega farið blaðavillt, því að það var einmitt Alþýðublaðið, sem í næsta blaði á undan því, að þessi Timagrein birtist, sagði á forsíðu: „Framsóknarmenn í nánu sam- starfi við alþjóðlega kommúnista í verkalýðsmálum. Menn ráku upp stór augu, er þeir lásu Tímann sl. föstudag og sáu þar greinarkorn á fremstu síðu um að A-listinn í Iðju, væri „Listi vinstri manna“, en í sæti formanns á listanum er Björn Bjarnason, maðurinn, sem hér á landi er aðalumboðsmaður hins alþjóðlega kommúnisma". AlþýÖHblaðið boðar tímamót Jafnvel Alþýðublaðinu ofbaað þessi skollaleikur Tímans. Hinn 5. marz segir þar í forustugrein: „Tíminn reynir að túlka þessa nýju afstöðu Framsóknarmanna í verkalýðsmálum sem baráttu við íhaldið og segir jafnframt að fylgismenn Aiþýðubandalagsins hafi nú um skeið fylgt miklu ábyrgari stefnu en áður. Alþýðu- flokksmenn í verkalýðsfélögun- um eru einnig aðilar að þessu máli en Tíminn víkur ekki einu orði að þeirri staðreynd. Slíkt mun eiga að heita kurteisi, sem er góð dygð og þakkarverð. Hins vegar mun bezt fara á því að taka þetta mál til umræðu nú þegar, þar eð hér getur verið um að ræða merkileg tímamót í sögu stjórnmálanna og verkalýðshreyf ingarinnar á íslandi“. Enn segir Alþýðublaðið: „Foringi kommúnista í Iðju var Björn Bjarnason. Hann er að því leyti kommúnisti á heims- mælikvarða, að enginn maður hefur reynt honum meira að tengja íslenzka verkalýðshrej f- ingu „alþýðusamtökunum" aust- an járntjaldsins. Björn kunni lika dável þær baráttuaðferðir, sem eru ær og kýr kommúnista. And- stæðingar hans í Iðju voru svipt- ir félagsrétti. Mætti lengi rekja þá sögu, en slíks gerist naumast þörf. Hún er í meginatriðum öil- um kunn — einnig Framsóknar- mönnum. Björn Bjarnason reyndi um síð ustu helgi að endurheimta fyrri völd sín og áhrif í Iðju og lögðu kommúnistar ofurkapp á þá von- lausu baráttu. Jafnframt gerðust þau tíðindi að Framsóknarmenn gengu til liðs við þennan fulltrua alheimskommúnismans í ís- lenzkri verkalýðshreyfingu. Gæt- ir sannarlega mikils misskilnings, ef Tíminn álítur sig hafa upp- götvað einhverja „ábyrga stefnu Alþýðubandalagsins" í fari Björns Bjarnasonar. Stjórn hans í Iðju, meðferð félagssjóðanna og framferði mannsins yfirleitt, hermir allt aðra sögu — — —. Framsóknarflokkurinn er kom- inn út á hættulega braut, þegar hann hafnar samstarfi við Al- þýðuflokkinn til að styðja verka- lýðsleiðtoga á borð við Björn Bjarnason-------. Víst fer vel á því að Tíminn ræði þessi mál að gefnu tilefni flokks síns. En ef Björn Bjarnason er fulltrúi fyrir „ábyrga stefnu Alþýðu- bandalagsins" í verkalýðsmálum, hverjir eru þá hin tegundin? Því svari þeir, sem þykjast vita“. Pólitískir áróðursseggir Sjálfsagt er að geta þess, að kunnugir telja, að menntamála- ráðherrann hafi verið svo upp- tekinn af samkvæmisskyldum sín um þann dag, sem þessi forustu- grein var skrifuð, að honum hafi ekki gefizt tóm til að láta rn- stjóranum í té hinar venjulegu leiðbeiningar. Strax daginn eftir, hinn 6. marz, kveður við annan tón, þann, sem Tímanum líkar, því að hann hefur prentað upp mest af því, sem Alþýðublaðið sagði þá í forystugrein sinni Enda var hún skrifuð af hinni sömu gegnsæju hræsni, sem stöðugt skin út úr skrifum Tím- ans. Það er að vísu rétt, sem þarna segir: „Það er áreiðanlega ekki seinna vænna að forystumenn í verka- lýðshreyfingunni taki að ugga að sér í þessum efnum og spyrna við fótum. Félögin mega ekki vera leiksoppur pólitískra spekú- lanta og flokkshyggjumanna, sem á hverjum tíma reyna að nota þau til að skara eld að sinni pólitísku köku. Samtökin verða að varpa af sér hinum illu áhrif- um, sem flokksvélar og pólitískir loddarar hafa verið að þröngva upp á þau á undanförnum árum Það er þjóðinni nauðsynlegt að eiga jafnan heilbrigða, sjálf- stæða og þróttmikla verkalýðs- hreyfingu, sem gerir hvort tveggja í senn að halda vöku sinni og vera jafnan til sóknar og varnar, sjálfri sér og alþjóð til heilla og hagsbóta. Það verður ekki, ef hún er stöðugt klofin í andstæðar fylkingar af pólitisk- um áróðursseggjum". Þetta lítur nógu vel út. En hví er sleppt að segja frá þvi, hverj- ir eru upphafsmenn óhæfunnar? Það eru einmitt núverandi stjórn- arflokkar, allir í hóp, Alþýðu- flokkur, kommúnistar og Frar.i- sókn, sem hér eiga sökina. Nú láta þeir svo sem, að verkalýðs- félögin eigi að vera undirstaða stjórnarsamstarfsins. Með því er verið að draga félögin inn í stjórn máladeilurnar hatrammlegar en nokkru sinni fyrr. í verkalýðsfé- lögunum eru menn af öllum stjórnmálaskoðunum. Auga gefur leið um, að ef ráðamenn þeirra ætla að nota þau til að undir- byggja sín eigin pólitísku völd, þá hljóta andstæðingar þeirra innan félaganna að hefja barátt- una gegn þvílíku framferði. Með þessu er verið að gera verkalýös- félögin að einum aðalvetvang stjórnmálabaráttunnar í landinu. Það er engum hættulegra en sam- tökunum sjálfum og er hróplegt, að mennirnir, sem í öðru orðinu hæla sér af að hafa fengið þessu áorkað, skuli nú býsnast yfir ó- hjákvæmilegri afleiðingu eigin verka. 5 herbergja íbúð ea. 130 ferm., á neðri hæð er til leigu nú þegar. — Bílskúr, raflýstur, hentugur fyrir léttan iðnað, 44 ferm., getur fylgt með eða leigist sér, á sama stað. Tilboð með tilgreindri leiguupphæð, óskast fyrir 14. þ.m. Fyrirframgreiðsla eftir samkomulagi. Til- boð sendist í afgreiðslu blaðsins merkt: Teigarnir — 7951. Blaðastjórn Tímans Það fer ekki á milli mála, að Tíminn er og hefur lengst af ver- ið ósannsögulasta og rætnasta blað á íslandi, að Þjóðviljanum ekki undanteknum. Öllum hlut- lausum mönnum kemur saman um, að blaðamennska Tímans er blettur á íslenzkri menningu. Sá blettur er svo auosær, að fjar- stætt er að sakast við þá ógæfu- sömu menn, se*i leigt hafa sig til að kallast ritstjórar Tímans. Það er sjálf blaðstjórnin, sem ber ábyrgðina. Ef hún teldi ekki rétt að farið, mundi hún fyrir löngu vera búin að taka í taumana. — Þess vegna er fróðlegt og raunar nauðsynlegt fyrir almenning á ís- landi að átta sig á, hverjir eru í þessari blaðstjórn. Það eru þeir, sem eru hinir seku. Blaðstjórnin er nú nýkosin. Að sögn Tímans voru þessir kjörnir: Hermann Jónasson, forsætis- ráðherra, Eysteinn Jónsson, fjár- málaráðherra, Erlendur Einars- son, forstjóri, Vilhjálmur Þór, seðlabankastjóri, Guðbrandur Magnússon, forstjóri, Rannveig Þorsteinsdóttir, lögfræðingur, OI- afur Jóhannesson, prófessor, Hilmar Stefánsson, bankastjóri, og Sigurjón Guðmundsson, frarn- kvæmdastjóri. Þessara nafna ber að minnast, þegar lesinn er óhroð ur og ósannindi Tímans. Blaðstjórnar- maður eða aðalbankastjóri ? Tíminn segir hinn 6. marz af tilefni hádegisverðarræðu Vil- hjálms Þórs, aðalbankastjóra: „í áramótaræðu forsætisráð- herra kom það glöggt fram, að hann taldi óbreytta styrkjastefnu óheppilega, og voru niðurstöður hans mjög svipaðar og Vilhjálms Þórs. Sama kemur einnig fram í nýloknum ályktunum aðalfund- ar Framsóknarflokksins, og þetta kom einnig fram í ályktun flolrks stjórnarfundar Alþýðuflokksins. Það er því ljóst, að meirihluti rik isstjórnarinnar er svipaðrar skoð- unar og Vilhjálmur Þór varðandi þessi mál. Um afstöðu verkalýðsins er það að segja, að kosningar, sem fram hafa farið í verkalýðsfélögunum að undanförnu benda ekki til þess að styrkjastefnan eigi þar fylgi að fagna. Úrslit þeirra verða ekki talin hagstæð fyrir þá, sem ein- dregnast halda fram óbreyttri styrlcjastefnu". Hér er þá Tíminn farinn að færa Framsókn og meirihluta ríkisstjórnarinnar til inntekta sigra lýðræðissinna og hrakfaiir kommúnista og Framsóknar í verkalýðsfélögunum að undan- förnu! Óheilindin hjá þess- um herrum birtast í æ nýrri og nýrri mynd. Þá er Vil- hjálmi Þór í þessum orðum Tím- ans lýst sem hreinum talsmanni ríkisstjórnarinnar og Framsóknar flokksins. Það er nytsamt að hafa þá játningu, þó að hún sé óþörf vegna þess, að orð Vil- hjálms sjálfs lýstu því berlega, að þar talaði íremur blaðstjórn- armaður Tímans en aðalbanka- stjóri þjóðbankans. Af orðum Vilhjálms varð ekki annað skilið en gjaldeyrisástand- ið hefði verið enn alvarlegra 1955 en nú. Hversu fráleitt það er, sést ef borið væri saman pen- ingaleysi tveggja manna. Annar væri aðeins peningalaus í bili. En hann ætti óúttekið mikið af kaupi sínu og væri búinn að kaupa helztu nauðsynjar til heimilisins, og þar að auki að mestu skuld- laus. Hinn væri skuldum vafinn, búinn að eyða öllu kaupinu og án brýnustu nauðsynja heima fyrir. Peningaleysi hins síðartalda væri ólíkt alvarlegra en hins fyrr- nefnda. Sú fjármálaspeki, sem ekki gerir greinarmun á þessu tvennu, er sannarlega ekki euis hádegisverðarvirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.