Morgunblaðið - 09.03.1958, Page 4
4
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 9. marz 1958
O EDDA 59683117 — 1
I.O.O.F. 3 ss 1393108—8%
II
f dag er 68. dagur ársins.
Sunnudagur 9. murz.
Miðgóa.
Árdegisflæði kl. 7,46.
Síðdegisflæði kl. 20,12.
Slysavar&stofa Reykjavíkur 1
HeilsuverndarstöSinni er opin all-
an sólarhiingmn. Lseknavörður L
R (fyrir vitjanirl er á sama stað,
frí kl. 18—8. Sími 15030.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki sími 24047. Ingólfsapótek,
Iðunnarapótek og Reykjavíkur-
apótek fylgja öll lokunartíma
sölubúða. Garðsapótek, Holtsapó-
tek, Apótek Austurbæjar og Vest
urbæjar-apótek eru öll opin
virka daga til kl. 8, nema á laugar
dögum til kl. 4. Þessi apótek eru
öll opin á sunnudögum milli kl.
1 og 4.
K.óptu ogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
frá kl. 9—16 og helga daga frá
kl 13—16/ Sími 23100.
Hafnarfjarðar-apótek er opið
alla virka daga kl. 9 -21. Laugar
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og 19—21.
Næturlæknir er Kristján Jó-
hannesson.
Kcflavíkur-apótek er opið alla
Vii-ka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 13—16. Helgidaga kl. 13—16.
Vegna smávægilegra mistaka
verður læknavakt í Keflavík ekki
birt framvegis.
rítni
□ Mímir 59583107 — 2.
í hjónaband af séra Jóni Thorar-
ensen, Þuríður Árnadóttir, Báru-
götu 35 og Einar Magnússon bygg
ingamaður, Hverfisgötu 59. Heim
ili þeirra er á Bárugötu 35.
SHÍHjónaefhi
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú María Leósdóttir,
símstöðinni Selfossi og Eiríkur
Hallgrímsson, Dalbæ, Gaulverja-
bæjarhreppi.
KBl Skipin
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun austur um land í hring-
ferð. — Esja er á leið frá Aust-
fjörðum til Rvíkur. — Herðu-
breið er á Austfjörðum. — Skjald
breið fór frá Reykjavik í gær
vestur um land til Akureyrar.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er á leið til Ítalíu. —
Askja átti að fara í gær frá Cara-
vellas áleiðis til Reykjavíkur.
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell fór 7. þ.m. frá
Reykjavík áleiðis til Stettin. -
Arnarfell fór frá New York 3.
þ.m. áleiðis til Reykjavíkur. -
Jökulfell er í Reykjavík. — Dís-
arfell fór 7. þ.m. frá Rostock á-
leiðis til íslands. — Litlafell er í
Rendsburg. — Helgafell er á Dal-
vík. — Hamrafell fór 1. þ.m. frá
Reykjavík áleiðis til BatumL
^Flugvélar
Flugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug: — Hrímfaxi er
153 Brúókaup
Nýiega hafa verið gefin saman
Óskar Gíslason sýnir kvikmynd 'sína „Síðasti bærinn í daln-
um“ í Tjarnarbíói í dag kl. 3 e. h. Myndin hér að ofan er úr
kvikmyndinni og sýnir hún tröllið og bóndann.
væntanlegur til Rvíkur kl. 16:10
í dag frá Hamborg, Kaupm.höfn
og Osló. Flugvélin fer til Lund-
úna kl. 08:30 í fyrramálið. —
Innanlandsflug í dag: til Akur-
eyrar og Vestmannaeyja. Á morg
un til Akureyrar, Fagurhólsmýr-
ar, Hornafjarðar, ísafjarðar,
Siglufjarðar og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.:
Saga kom til Rvíkur kl. 07:00
í morgun frá New York. Fór til
Osló, Gautab. og Kaupmh. kl.
08:30. — Hekla er væntanleg kl.
18:30 í dag frá Hamborg, Kaup-
mannah. og Osló. Fer til New
York kl. 20:00.
ISPermavinir
Mr. T. van Vliet, Prinsengracht
464 boven, Amsterdam. Holland.
— Sem er framkvæmdastjóri
pennavinaklúbbs, hefur beðið
blaðið að birta nafn sitt og heim-
ilisfang. Hann útvegar pennavini
þeim sem það vilja víða um lönd.
Þeir sem vilja komast í bréfavið-
skipti í gegn um pennavinaklúbb
hans, geta því skrifað beint til
hans.
HjFélagsstörf
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
bæjar. — Allsherjaratkvæða-
greiðsla til stjórnarkjörs fer fram
í félaginu í dag.
Áfengisvarnarnefnd kvenna held
ur aðalfund í Aðalstræti 12,
þriðjudaginn 11. marz kl. 20,30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kvik-
niynd.
Slysavarnadeildin Hraunprýði
heldur kvöldvöku í kvöld kl. 8,30
í Bæjarbíói.
Mæðrafélagið hefur félagsvist í
kvöld að Kirkjubæ, kl. 8,30.
UggAheit&samskot
Hallgrímskirkja í Saurbæ, afh.
Mbl.: N N kr. 100,00.
Itfyndasaga fyrir börn
HEIÐ4
49. Næsta morgun vaknar Heiða og get-
ur fyrst í stað alls ekki áttað sig á, hvar
hún er stödd. En svo man hún allt í einu
eftir því, að hún er í Frankfurt. Hún
flýtir sér að klæða sig, gengur út að glugg-
anum og dregur þykku, rósóttu siiki-
gluggatjöldin til hliðar, svo að hún geti
horft út. En hún sá ekkert annað en vegg-
ina og gluggana í húsunum hinum megin
in við götuna. Engin fjöll voru í augsý.n
og hvergi sáust blóm. „Ó, hvað það væri
gaman að heyra þytinn í krónum greni-
trjánna og sjá blómin opnast í sólskin-
inu!“
50. Ungfrú Rottenmeier hefir sagt
kennaranum, sem á að kenna telpunum,
frá vankunnáttu Heiðu. „Það liggur í
augum uppi, að það er ómögulegt að
kenna telpunum saman“, segir hún. „Ég
verð því að skrifa herra Sesemann og íá
hann til að senda barnið heim aftur“.
En kennarinn er aðgætinn og rasar aldrei
um ráð fram. „Við byrjum á stafrófinn,“
segir hann. „Og svo sjáum við, hvernig
gengur“. Ungfrúin yfirgefur skólastofuna
ákveðin í að losna við Ileiðu. Kennarinn
opnar bókina og byrjar að kenna Heiðu
að stafa. En Heiða hefir hugann ekki við
stafrófið.
51. I miðri kennslustundinni stendur
Heiða á fætur og þýtur út um dyrnar.
Það kveður við mikill dynkur, og ung-
frúin kemur hlaupandi inn í stofuna. —
Bækurnar, ritföngin og borðdúkurinn
liggja á gólfinu, og blekið flýtur yfir allt.
„Það er auðvitað þessi slysarokkur, sem
hefir gert þetta“, hrópar hún. Klara segir,
að Heiða hafi dregið borðdúkinn með sér,
þegar hún flýtti sér út til að horfa á eftir
vögnunum á götunni. Ungfrú Rottenmeier
verður hrædd og hrópar um leið og hún
hleypur niður stigann: „Hún ætlar von-
andi ekki að strjúka!"
FERDIIVIAIMD
Ósioair fiaiindeieftirlitsmargrísisis
Sólhehnadrengurinn, afh. Mbl.:
S Þ kr. 25,00; Panda 50,00.
Ti^ Hallgrímskirkju í Saurbæ
hefi ég móttekið 20 krónur, áheit
frá G. B. — Matthías Þórðarson.
Bágsladda konan, afh. Mbl.: —
Þórhallur kr. 100,00.
Spuming dagsins?
TELJIÖ þér, að eiginmaðurinn
ætti að hjálpa til við uppþvott-
inn?
Viidís Kristmannsdóttir, hús-
frú: Nei, mér finnst að eiginmenn
ættu ekki að
hjálpa til við
uppþvottinn
nema þegar
sérstaklega
stendur á. Ekki
neita ég því,
að ósköp gott
er að fá aðstoð.
en samt sem
áður tel ég. að
eiginkonan ætti
að annast húsverkin sjálf.
Jón Júlíusson, menntaskólalcenn-
ari: Tiginn Rómverji var eitt
sinn spurður, hví hann kvæntist
ekki, og gaf það svar, að hann
vildi ekki með neinu móti verða
kona konunnar sinnar. Hann hef-
ur eflaust haft fyrir hugskots-
sjónum einhvern uppvaskandi
kvæntan vin sinn og fundizt lítið
leggjast fyrir kappann, er be'tur
ætti heima í fólkorrustu norður
í Gallíu. Spurning dagsins virðist
sanna að málið
er raunhæft í
dag: Að þvo
eða ekki þvo
upp. — Ég varð
hálf foj við
spurninguna,
en fór að finna
vin minn í
næsta húsi um
áttaleytið í gær
kveldi til þess
að bera saman bækur mínar við
hans. Hann kom á móti mér í
anddyrinu sönglandi og sveifl-
andi viskustykki, baðst afsökun-
ar á útganginum, svo væri mál
með vexti — „hm, hm, að hann
hefði verið að gera við lítilshátt-
ar“. Frekar þurfti ekki vitnanna
við. Ég álít ekki úrhendis að við
eiginmenn látum nokkra aðstoð
í té við uppþvottinn, ef þannig
stendur í bólið, en aðalatriðið er
að þræta fyrir það fram í rauðan
dauðann, því enginn eiginmaður
vill viðurkenna hin ævafornu
sannindi, að þegar á allt er litið
erum við konur eiginkvenna okk
ar.
Lillý Samúelsdóttir, húsfrú:
Vissulega hafa eiginmenn gott af
því að standa við uppþvottinn
með konunni,
ef þeir eru ekki
bundnir við
vinnu sína á
þeim tímum.
En samt finnst
mér að eigin-
konan ætti að
hlífa þeim við
uppþvotti
nema þegar sér
staklega stend-
ur á. Ef þau vinna bæði úti —
eða barnahrúgan er alveg að æra
húsmóðurina — finnst mér gild
ástæða til þess að kalla út vara-
liðið — og sýna enga miskunn.
Guðjón B. Ólafsson, verzlunar-
ma'ður: Ekkert veit ég jafnþraut-
leiðinlegt og að standa við upp-
þvott óhreinna
mataríláta.
Samt — og
kannske ein-
mitt vegna þess
— finnst mér
að eiginmenn
ættu að taka
þátt í uppþvott
inum stök«
sinnum. þegar
þeir hafa tíma
til, en fyrir alla muni akki ,aá
venja konurnar á stöðuga hjálp.