Morgunblaðið - 09.03.1958, Blaðsíða 10
10
MORGXJTSBLAÐIÐ
Sunnudagur 9. marz 1958
Brezka blaðið Daily Mail
skýrði frá því fyrir skömmu, að
íslendingar hefðu verið ákveðnir
í að taka vel á móti dægurlaga-
söngkonunni Ölmu Cogan, er
hún kom til íslands til að halda
hljómleika. M. a. hafi þeir verið
ákveðnir í að láta hana bragða
ýmsa þjóðarrétti.
í matarveizlu nokkurri lögðu
gestgjafarnir hart að Ölmu að
borða ríflega af einum réttinum.
Alma gerið það og skildi ekk-
ert eftiK á diskinum.
„Þótti yður . þetta gott?“,
spurðu gestgjafarnir ákafir.
„Gómsætt", sagði Alma og
sleikti út um.
„Ágætt“, sögðu þeir. „Þetta
var hákarl. Hann hefur legið í
jörð í tvö ár og er orðinn vel
kæstur. Við grófum hann yður
til heiðurs . . .“.
Aldraði enski heimspekin. ur-
inn Bertrand Russel lítur ekki
björtum aug-
um á framtíð
heimsins. Og
hann dregur
enga dul á, að
það séu stjórn-
málamennirn-
ir, sem valda
bölsýni hans.
— Eins og
ástandið er nú,
sagði hann ný-
lega, og ef svo heldur fram sem
horfir í stjórnmálunum, eiu í
mesta lagi 50% möguleikar r, að
nokkur mannvera verði lif_ndi
á jörðinni eftir 50 ár.
„MINNEAPOLIS TRIBUNE“
skýrði nýlega svo frá, að Vestur-
íslendingurinn Valdimar Björns-
son hefði orðið hlutskarpastur
í víðtækri skoðanakönnun í
Minnesota um það, hver mundi
efnilegastur til framboðs af hálfu
republikana til fylkissjórakjörs,
sem fram fer á næsta ári. Var
skoðanakönnun þessi tvískipt.
Annars vegar var leitað álits yf-
irlýstra republikana, en háns
vegar óháðra kjósenda — og
varð Valdimar hlutskarpastur
meðal beggja. Næstur Valdimari
varð Ancher Nelsen, en hann var
frambjóðandi republikana við
siðasta fylkisstjórakjör. Þriðji
hlutskarpasti var Stafford King,
ríkisendurskoðandi.
Úrslit skoðanakönnunarinnar
voru annars sem hér segir:
republ. óháðir
Valdimar .. 38% 35%
Nelsen .. .. 25 34
King 15 10
aðrir 15 11
óákveðnir .... 7 10
Hinn kunni enski leikritahöf-
undur John Osborne er eins og
kunnugt er einn af „reiðu. ungu
mönnunum", sem miskunnar-
laust deila á
samtíð sina. Nú
hefir hann
reyndar aflað:
sér svo mikilla
vinsælda — og
þess vegna
auðgazt nokk-
uð — að hon-
wm -ætti að
vera óhætt að
draga ofurlítið
úr ádeilu sinni og reiði. En langt
er frá því, að hann sé sáttur við
áhorfendurna, sem eyða pening-
um sínum í að horfa á leikrit
hans:
— Að fara í leikhús er það, sem
menn gera, eftir að hafa ký;t
vömbina með góðum mat. Það
jafngildir þvi að taka vænan
skammt af meltingarpillum,
sagði Osborne nýlega.
Bráðlega verður leikið og sung
ið í Mílanó tónverk, sem tvö
undrabörn hafa unnið að. Allir
kannast við litlu frönsku skáld-
konuna Minou Drouet og ítalska
tónlistarundrabarnið, Massimo
Barbieri, sem er 11 ára að aldii.
Hann samdi tónverkið, en Mipou
Drouet, sem er 10 ára, samdi text
ann. Massimo og Minou hittust
árið 1957 í Mílanó og urðu ásátt
um að vinna saman að tónverki
og texta við það. Tónverkið heitir
Mílanóvalsinn.
Undanfarið hafa birzt á for-
síðum blaða um heim allan n.ynd
ir af dr. Vivian Fuehs, sem nú
hefir unnið það afrek að fara
þvert yfir 'Suðurskautslandið um
suðurpólinn. Dr. Fuchs er á oil-
um þessum myndum með mynd-
arlegt skegg.
Það er líka kunnugt, að al-
skegg er að komast æ meira í
tízku meðal æskumanna. Sú tízka
breiðist alltaf meira út, þegar
mikið birtist af myndum af heim
skautaförum og fjallgöngumönn-
um i blöðum.
Þessi tizka er ekki mjög hag-
kvæm fyrir þá, sem selja raf-
magnsrakvélar og önnur rak-
áhöld. Smásali nokkur í Lundún-
um starði angurvær á fyrstu
myndina, sem birtist af heim-
skautaförunum tveim Fuchs og
Hillary. Báðir voru með alskegg.
Jæja, þar varð -maður enn
einu sinni af nokkur hundruð
pundum! varð smásalanum að
orði.
í fréttunum
Bandariski varaforsetinn Ric-
hard Nixon reyndi í ræðu, er
hann hélt fyrir nokkru, að draga
upp mynd af afstöðu margra til
þess ■ ástands,
sem nú ríkir í
heiminum.
Dæmisaga hans
hljóðaði svo:
— Níutíu og
níu strútar
höfðu stungið
höfðinu í sand-
inn. Einn strút
ur kom hlaup-
andi eftir eyði-
mörkinni til að slást í hóp þeirra.
Hann horfði ringlaður í kringum
sig og hrópaði síðan: — Já, en
hvað í skrambanum hefir orð:ð
af öllum hinum!
Bandarískur víxlari, sem ný-
lega lézt, lét m.a. eftir sig 73.341
ástarbréf, sem
hann hafði
skrifað ýmsum
kviþmynda-
leikkonum í
Hollywood á
undanförnum
20 árum. Flest
bréf hafði hann
skrifað Mar-
lcne Dietrich,
einhverri yndis
legustu ömmu í heiminum. Bréf-
in til hennar voru 1.857 að tölu.
Unga franska skáldkonan
Francoise Sagan hefir mörg járn
í eldinum og hefir nú nýlega bætt
einu við. Hún hefir komið á fót
kvikmyndafélagi og ætlar sálf
að verða framkvæmdastjóri þess.
í félagi með henni eru leikstjór-
inn Roger Vadim. sem setti á
svið Sagan-ballettinn „Stefnu-
mótið, sem fórst fyrir“, og leik-
arinn Christian Marquand. Féiag
inu hefir enn ekki verið geíið
nafn, ætlunin mun vera að fram-
leiða franskar kvikmyndir fyrir
bandarískan markað.
Dœgradvöl
E F Þ I Ð finnið rétta ráðningu
þessara 7 atriða, takið fyrsta staf-
inn af hverri um sig — og raðið
þeim upp í réttri röð, getið þið
lesið úr því nafn erlends manns,
sem oft hefur verið getið í
heimsfréttunum að undanförnu:
1. Flugvél landhelgisgæzlunnar.
2. Dóttir síðasta Rússakeisara,
sem sögð er hafa komizt und-
an, er keisarafjölskyldan var
myrt.
3. Annáluð menningarþjóð í
S-Ameríku.
4. Forfaðir okkar allra.
5. Mikilvæg eyja, sem Banda-
ríkjamenn gerðu mikla árás á
og hófu þar með lokaátökin
um yfirráð á Kyrrahafi í síð-
ari heimstyrjöldinni.
6. Fornafn eins frægasta núlif-
andi landkönnuðar og heim-
skautafara.
7. Rússneskur herforingi, sem
var landvarnarmálaráðherra í
Póllandi þar til hann var rek-
inn heim, er Gomulka brauzt
til valda.
Ráðningu er að finna á bls. 6.
Allir kettir eru sérlega
hrifnir af músum — og þess-
ir kettir eru þar engin und-
antekning. Þeir hafa hver
og einn krækt sér í eina mús
_ og eru að leika sér með'
þær. En nú eru þeir hræddir
um að þeir ruglist á músum
og taki e. t. v. mús hver
annars, því að allar eru þær
eins að lit — og engar hindr-
anir í vegi músanna. Þess
vegna eruð þið bcðin að
koma til hjálpar. Þetta er
einföld þraut: Með þrem
beinum línum getið þið skil-
ið kettina þannig að, að að-
eins einn sé í hverjum reit
— og hann hafi eina mús hjá
sér innan Iínunnar. Ráðning
í næsta blaði.
í næsta blaði verður sýnd
rétta Ieiðin um þetta völ-
undarhús. En þið ættuð að
vera búin að finna hana
áður.
Hliðarkaffi og
æskulýðsvika
KFUM OG KFUK hafa nú starf-
að hér í Reykjavik í allmarga
áratugi. Hófst það með því, að
sr. Friðrik Friðriksson, sem ný-
kominn var frá Danmörku, fór
að halda drengjafundi. Þótti það
kynlegt tiltæki, og fékk sr. Frið-
rik viðurnefnið „vitlausi stúd-
entinn“. Nú hafa menn lært að
meta starf þetta, og hafa ýmsar
starfsgreinar félaganna náð mikl-
um vinsældum, ekki sízt sumar-
búðastarfið í Vatnaskógi og Vind-
áshlíð, þar sem hundruð barna
víðs vegar að af landinu dveljast
á hverju ári. Er sífellt unnið að
því að bæta allan aðbúnað til
starfsins. „Hlíðarmeyjar“ selja í
dag kaffi og kökur til ágóða
fyrir sarfsemi sína *í Vindáshlíð,
og verður það' framreitt í húsi fé
laganna að Amtmannsstíg 2 B.
Gefst mönnum kostur á að leggja
góðu málefni lið um leið og þeir
drekka síðdegiskaffið. Kaffisal-
an hefst um nóbil. Hlé verður
um kvöldmatarleytið, en kvöld-
sopa verður hægt að fá upp úr
hálf tíu.
Annar vinsæll starfsliður fé-
laganna eru æskulýðsvikur, sem
haldnar hafa verið næstum ár-
lega nú um alllangt skeið. Deildir
félaganna í Laugarnesi hafa á-
kveðið að efna til slíkrar viku,
og hefst hún í kvöld, sunnudag,
kl. 8,30. Eru allir velkomnir á
samkomur þessar, Verður að
jafnaði mikill söngur og hljóð-
færasláttur á samkomunum, og
tveir ræðumenn tala flest kvöld-
in. í kvöld lala þeir Guðmundur
Guðjónsson, bankaritari, og Gunn
ar Sigurjónsson, cand. theol. Sam
komurnar verða haldnar i Laug-
arneskirkju.