Morgunblaðið - 09.03.1958, Blaðsíða 20
20
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 9. marz 1958
nu uí reihcin di
Eftir
EDGÁR MITTEL HOLZER
Þýðii.gs
Sverrir Haraldsson
56
ö jz u CL I
Gregory kinkaði kolli.
„Ég hef mjög mikinn áhuga
á öllu sem á skylt við sálsýki".
Hann hikaði, ók sér til og bætti
svo við. — „Ég hef dálítið sam-
vizkubit af því, að tala við þig á
þennan hátt. Gæti virzt miskunn
arlaust — en það ætla ég mér
ekki að vera. Þú ert einn af þeim
náungum, sem vekja meðaumkun
hjá manni. Heyrðu annars, er
Ollie alltaf eitthvað að skaprauna
þér?“
„Hún getur .stundum verið dá-
lítið þreytandi '.
„Ég veit það. Þú mátt ekki láta
hana þreyta þig. Hún gerir þetta
allt í sérstökum tilgangi".
„Hvaða tilgangi?"
„Hún er, sko að þjálfa og
þroska hið skapandi ímyndunar-
afl sitt. Olivia er mjög efnileg
stúlka. Hún hefur óvenjulega auð
ugt ímyndunarafl“.
Gregory hafði ekkert við það
að athuga.
„Ég þykist vita, að þér þyki
lifnaðarhættir okkar hér undar-
legir?“
„Já, ekki get ég neitað því“,
tautaði Gregory.
Fleki, hlaðinn timbri, skreið nið
ur fljótið.
„Jafnundarlegir og okkur finn-
ast þínir hættii-. Þú“, sagði Gar-
vey — „ert gott dæmi um eymd
og tómleika þessarar gervi-menn-
ingar ykar. Líttu á sjálfan þig.
Stjórnlaus, óhamingjusamur, trú-
laus. Og sjáðu svo aftur á móti
okkur. Við erum full af lífi og
eldi. Við erum jákvæð í afstöðu
okkar til lífsins, jafnvel þótt heim
speki okkar hafi margt neikvætt
í sér fólgið. Við ei-um hamingju-
söm — og þegar ég segi hamingju
söri, á ég við það, að við erum
ekki þjökuð af neinni tilfinningu
um heims-sök, eins og þið og við
vitum hvað við viljum fá út úr
lífinu. Við gerum ekki of mikið
úr þýðingu homo sapiens á jörð-
inni, svo að við höfum betri yfir-
sýn yfir sjálf okkur, með tilliti
til framkvæmda okkar. Við vilj-
um ekki vera valdamikil og
stjórna neinum öðrum, eða eiga
stór landssvæði. Við viljum ein-
ungis lifa og vera sæmilega ánægð
með það, sem lífið veitir okkur-“.
Hann sleit upp annað strá. „Þið
sem heima eigið handan við skóg-
inn hérna, takið lífið svo alvar-
lega og metið mannlegt eðli svo
hátt, að þið hafið engan tíma til
þess að njóta lífsins. Mestur tími
ykkar fer í það, að hefja ykkur
sjálfa til skýjanna og bið eruð
alltaf að reyna að sannfæra sjálfa
ykkur um það, hversu miklu æðri
þið séuð öllum baboons og chim-
pönsum. Við þjáumst ekki af
slíkri sjálfselsku. Við lítum ekki
of alvarlegum augum á lífið,
vegna þess að við vitum, að það
hefur engan tilgang fram yfir
líðandi stund. Þess vegna getum
við kastað okkur út í það með
slíkri einlægni og fjöri og notið
allrar auðlegrar þess. En þið,
handan við skóginn hérna, þið er-
uð svo gersamlega á valdi ykkar
eigin ímyndana, að þið hugsið ykk
ur skapaða í mynd Guðs, sem þið
hafið sjálfir búið til. Og þið látið
ekki þar við sitja, heldur verðið
þið lika að yfirgefa líkama ykk-
ar, eftir dauðann og halda áfram
að vera til á „æðra“ tilverusviði.
Og svo verðið þið auðvitað að
finna upp ýmsa annarlega hluti,
svo sem siðfræði og guðrækni til
þess að búa ykkur undir þetta
annað líf. Skoðanir ykkar allar
og samningar yfirleitt eru litaðir
af siðfræði ykkar og guðrækni og
því verðið þið að neita ykkur um
flest það, sem veitir gaman og
ánægju. Við hérna búum til goð-
sagnir okkar og kennisetningar á
hverjum degi og höfnum þeim
jafnauðveldlega og við sköpum
þær. En þið —- þið verðið að gera
ykkur ánægða með hina gömlu,
margnotuðu guði, sem forfeður
ykkar þröngvuðu niður um kokið
á ykkui'. Við — hver fjandinn!
Fyrirgefðu. Ég held að það sé fló
í buxunum mínum. Þetta hefst af
því, að koma of nálægt þessari
Ellen. Hengirúmið hennar er bók
staflega fullt af flóm. Poop. —
Hérna er helvítis bitvargurinn.
Ég náði henni“. Hann kramdi
flóna í sundur, milli fingranna.
„Sjáðu bara. Risastór kven-fló. —
Jæja, um hvað vorum við að tala,
þegar kvikindið truflaði samtal-
ið? .... Heyrðu annars, þreyti ég
þig voðalega?"
„Nei. Nei, alls ekki“, ^sagði
Gregory.
„Ég hef innilega samúð með
þér. Ég skil , /llilega tilfinningar
þínar. Heldurðu að þú verðir fær
um að þola svona líf mikið leng-
ur?“
Gregory brosti: — „Það er nú
vandaniál, sem ég er ennþá að
hugleiða".
Garvey leit rannsakandi á
hann: „Þegar ég sá þig fyrst úti
í bátnum, var ég bæði hræddur
og undrandi".
„Hvers vegna?“
„Ja — þú varst fyrsti raunveru
legi villimaðurinn sem ég átti að
fá að sjá. Og ég vissi ekk! við
hverju ég átti að búast. Ég var
bæði feiminn og órór“.
Gregory brosti.
Garvey fór að hlæja, en varð
svo skyndilega alvarlegur aftur.
„Þú ert allur af þér genginn. Ég
veit það. Og þér á eftir að versna
mikið, ef þú tekur þér ekki eitt-
hvað fyrir hendui' -— eitthvert
skapandi starf. Skrifaðu nokkra
einþáttunga og við skulum leika
þá. Eða málaðu fáeinar myndir.
Eða bjóðstu til að halda fyrir-
lestra um listir £ Art Squad, eða
eitthvað þessu líkt. Gerðu eitthvað
annars ertu glataðui'. Og hvern-
ig er það með kynferðismálin?
Hefurðu ekki þörf fyrir kven-
mann?“
Gregory varð órólegur.
„Aha. Börnin ykkar? Þarna
sérðu sjálfur hvernig menningar-
leysi ykkar afhjúpar sig stöðugt.
Hvað er það svo sem í kynferðis-
málunum, sem veldur ykkur óró-
leika? Ef þú værir í raun or veru
siðmenntaður, myndirðu ekki líta
á þau sem saurug og hneykslan-
leg málefni. Það eru aðeins villi-
menn, sem ge>'a náttúrlega hluti
að einhvei-jum tabúum. Þannig er
það með líkama þinn. Hvers
vegna blygðastu þín fyrir það,
ajtltvarpiö
Sunnudagur 9. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í Neskirkju (Px-estur
Séra Jón Thorai'ensen. Organleik
ai'i: Jón ísleifsson). 13,05 Erinda-
flokkur útvai-psins um vísindi nú-
tímans; VI: Fornminjafx'æðin
(Þorkell Grímsson licensiat). —
14,00 Miðdegistónleikar (plötur),
15,00 Framhaldssaga í leikfoi'mi:
„Amok“ eftir Stefán Zweig, í þýð
ingu Þórarins Guðnasonar (Flosi
Ólafsson flytur einn fyrsta kafl-
ann). 15,30 Kaffitími: a) Magnús
Pétursson og félagar hans leika.
b) Létt lög af plötum. 16,30 Fser-
eysk guðsþjónusta: Séi-a Johan
Nielsen pi'édikar (Hljóðr. I Þóra-
höfn). 17,00 Gyðingalög: Kór og
hljómsveit Benedicts Silbex'man
syngja og leika (plötur). — 7,80
Barnatími (Baldur Pálmason). —
18.30 Hljómplötuklúbburinn —-
(Gunnar Guðmundsson). 20,90
Hljómsveit Ríkisútvarpsins loik-
ur. Stjói'nandi: Hans-Joaehim
Wunderlich. 20,50 Upplestur: —
Gerður Hjörleifsdóttir leikkona
les kvæði eftir Jónas Guðlaugs-
son. 21,00 Um helgina. — Umsjón
armenn: Egill Jónsson og Gestur
Þoi-gi'ímsson. 22,05 Danslög (pl.).
23.30 Dagskrárlok.
Múnudagur 10. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Búnaðarþáttur: Úr minni
sveit (Jóhannes Davíðsson bóndi
í Neðri-Hjarðardal í Dýrafirði).
18.30 Foxnsögulestur fyrir börn
(Helgi Hjörvar). 18,50 Fiskimál:
Landhelgisgæzlan; — söguleg
drög (Pétur Sigurðsson forstjóri).
19,10 Þingfréttir. — Tónleikar.
20.30 Um daginn og veginn
(Andrés Ki'istjánsson blaðamað-
ur). 20,50 Einsöngur: Nanna Eg-
ilsdóttir syngur; Fritz Weisshap-
pel leikur undir á píanó. — 21,10
Erindi: Spánska veikin 1918 (Páll
Kolka héraðslæknir). 21,40 Skáld
ið og ljóðið: Jón Óskar (Knútur
Bruun stud. jui\ og Njörður
Njarðvík stud. mag. sjá um þátt-
inn). 22,10 Passíusálmur (31). —-
22,20 Úr heimi myndlistaiinnar
(Bjöin Th. Björnsson listfræðing
ur). 22,40 Kammeitónleikar eft-
ir tvö nútímatónskáld (plötur).
23,25 Dagski'árlok.
Þriðjudagur 11. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
18.30 Útvarpssaga barnanna: —
„Hanna Dóra“ eftir Stefán Jóns-
son; XI. — sögulok (Höfundur
les). 18,55 Framburðai'kennsla í
dönsku. 19,10 Þingfréttir. Tónleik
ar. 20,30 Daglegt mál (Arni
Böðvarsson kand. mag.). 20,35
Erindi: Æsir, Vanir og austræn
goð, fyrra erindi (Hendiik Ottós-
son fréttamaður). 21,00 Tónleik-
ar (plötur). 21,30 Útvarpssagan:
„Sólon lslandus“ eftir Davíð Stef
ánsson frá Fagraskógi; XIII. —
(Þorsteinn Ö. Stephensen). 22,10
Passíusálmur (32). 22,20 „Þriðju
dagsþátturinn". — Jónas Jónas-
son og Haukur Morthens stjórna
þættinum. 23,20 Dagskrárlok.
Fallegt úrval af heilsársfrökkum —
Finnig kápur með skinni —
MARKADURINN
Laugaveg 89
'lí
— orbiýCý merKL
Fermingarúrin
hafa margir talið hyggilegt að kaupa í
fyrra lagi nú í ár. — Við höfum því nú
þegar flutt inn birgðir okkar til vorsins
og bjóðum yður að velja meðan úrvalið
er sem bezt. —
ðön Sipundsson
Skúrt9rípoverzlun
Laugavegi 33
Kvenundirfatnaður í mjög góðu úrvali.
Amerískir nælonundirkjólar,
tvöfaldir framan kr. 123.50
AHir tvöfaldir kr. 174.00
Svartir dacron og nælon for. 169.50
Millipils frá kr. 54.60
Perlonbuxur með skálmum og
skálmalausar.
Bókbandshnifur til sölu
Hentugur fyrir heimabókband. - Tækifærisverð. - Sími 24502.
I'M PRETTY
WOOZY MYSEL.P
...MAYBE I'M
GETTING SORT
OF SNOW
CRAZY...IVE
KNOWN THAT
TO HAPPEN/
__ Sennilega kemst ég ekki i mig. — Það er bersýnilegt, að, Ég er sjálfur heldur ekki til
mikið lengra. Ég verð að hvíla ' Króka-Refur er með hitasótt. —1 stórræðanna. __—_—