Morgunblaðið - 09.03.1958, Síða 21
Sunnudagur 9. marz 1958
MORGVHBLAÐIÐ
21
*
Reykvikiíigar
Æskulýðssamkoma
í Fríkirkjunni í kvöld kl. 8.30 á vegum K.F.U.M.
Frí kir k j unnar,
Dagskrá:
1. Hjálmar Kjartansson syngur.
2. Fríkirkjukórinn syngur.
3. Lesið upp úr ævisögu William Wilberforce.
4. Séra Þorsteinn Björnsson og Kolbeinn Þorleifs-
son tala.
Fólk er beðið um að hafa sálmabækur með sér. —
í lok samkomunnar verður gjöfum til félagsins
veitt móttaka. — Allir velkomnir.
Stjórn K.F.U.M.F.
æskijlVðsvika !
verður í Laugarneskirkju 9.—16. marz og hefst hún
í kvöld kl. 8.30. Verða samkomur hvert kvöld alla
.vikuna. Margir ræðumenn og mikill almennur söng-
ur og hljóðfærasláttur. Einnig kórsöngur, einsöng-
ur og tvísöngur. í kvöld tala Gunnar Sigurjóns-
son, cand. theol., og Guðmundur Guðjónsson, banka
ritari — ÞÚ EBX VELKOMINN.
KFUM og KFUIÍ, Laugarnesi.
Fyrirhugað etr að stofna byggingasamvinnufélag vegna byggingar á 12
hæða húsi í Laugarásnum.
íbúðirnar eru ætlaðar fyrir einstaklinga, eða fámennar fjölsk'yldur og verða samkv. með-
fylgjandi uppdrætti. — Áætlað er að hefja framkvæmdir í apríl og gera húsið fokhelt á
þessu ári. — Ætlunin er, að félagsmenn leggi fram aukavinnu, eins og þeirra ástæður leyfa.
Nánari upplýsingar í síma
34472, frá hádegi og í síma
19164, eftir hádegi á sunnu
dag.
I
SÍ-SLETT POPLIN ÍIVIIPVIFI STRAUNING
(N0-IR0N) n IN JrtV a CJ.**H****** ÓÞÖRF
*
LESBÓK BARNANNA
Strúturinn R A S IM 1) S
Negrakóngurinn varð
að fá kórónuna sína aft-
ur. Hann fór í land með
Simma, Samma og Ras-
musi. Þeir fengu sér lán-
aðan bíl, hjá manni sem
þeir hittu, en létu hann
tá flóðhest til að sitja á.
Svo óku þeir allir á bíin
um inn á milli þessara
há« húsa, sem kölluð eru
skýjakljúfar. Negrakóng-
inum varð litið’ upp í loft-
ið og hvað haldið þið að
hann liafi séð? Efst uppi
á toppinum á einum skýja
kijúfinum stóð maður,
sem gægðist niður til
þeirra. Ilann hafði gull-
kórónu á höfðinu og
glampaði á hana í sólskin
inu. „Þarna er þjófur-
inn“, hrópaði negrakóng-
urinn.
K»ra Lesbók!
Ég sendi þér eina
myndagátu og tvær gát-
ur, sem ég vona að þú
birtir í næsta blaði.
Xóta.
— ★ —
Gátur:
1. Aldrei er ég einburi,
oftast er ég tvíburi,
þó er ég stundum
þríburi,
en þá er ég oftar
fjórburi.
2. Áðan sá ég úti þann,
sem á var fattur kviður.
Með nefinu karlinn
kroppa kann,
en kingir engu niður..
Skrítlusamkeppnin:
80. Siggi var að reyna
að komast í skó, sem voru
of litlir. Þegar hann hafði
reynt það lengi, sagði
hann: „Ég er hræddur
um, að ég komist ekki í
þessa skó, fyr en ég er
búinn að vera í þeim
í nokkra daga“.
S.E. E., 8 ára.
81. Anna: Er það satt,
að þú hafir farið til
Ítalíu?
Bára: Já, víst er það
satt.
Anna: Getur þú sagt
mér, hvort það er satt,
sem sagt er um það land?
Bára: Hvað þá?
Anna: Nú, að landið sé
eins og stígvél í lögun!
Sólveig, ísafirði.
82. Dóri: — Mamma,
hvort er verra, að ég rífi
buxurnar mínar, eða það
Isé ekið yfir mig?
Móðirin: — Auðvitað er
verra, að það sé ekið yfir
þig, góði minn.
Dóri: — Þá var ég hepp
inn í dag, því að ég hefi
aðeins rifið buxurnar
mínar.
Sigurjón, ísafirði.
ISi
Skrítlur
Ánamaðkur, sem var að
skríða upp úr jörðinni, sá
höfuð á öðrum gjægjast
upp úr skammt frá sár.
— Þú ert fallegur mig
langar til að giftast þér,
sagði hann.
— Láttu ekki eins og
fífl, svaraði hinn önugur,
ég er hinn endinn á þér.
Frúin: Verðið þér aldrei
þreyttur á að ganga um
og betla?
Betlarinn: Jú, ég óska
þess oft, að ég hefði bíl.
Jp
8
2- árg• ^ Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson ^ 9. mars 1958
Land og saga:
ÁSA-
í HEIÐNI trúðu norrænir
menn á guði þá, er Æsir
nefndust. Óðinn var æðst
ur og elztur allra ásanna.
En Ása-Þór eða öku-Þór
var sterkastur allra goða
og manna. Hann átti
hafra tvo er Tanngnjóstur
og Tanngrisnir hétu óg
reið (vagn) eina mikla.
Hánn ók um himinhvolf-
ið, en hafrarnir drógu
reiðina. Því var hann
Öku-Þór kallaður.
f Snorra Eddu segir, að
Þór eigi sér þrjá lcost-
gripi. Einn þeirra er ham-
arinn Mjölnir. Hann ótt-
ast hrímþursar og þerg-
risar, er þeir sjá hann
á lofti, enda hefur hann
margan haus lamið á
feðrum þeirra og frænd-
um.
Annar gripur hans er
megingjarðir, en þegar
hann spennir þeim um
sig, vex honum ásmegin,
svo að hann verður hálfu
sterkari en áður.
Þriðja hlutinn á hann,
sem kjörgripur er, en það
eru járnglófar. Þeirra má
ÞÓR
hann ekki missa við ham-
arsskaftið.
Enginn er svo fróður
að telja kunni öll stór-
virki Þórs, þá er hann
barði á jötnum og þurs-
um, en það illþýði voru
mestu óvinir goðanna.
Þegar Þór ók um him-
inhvolfið og brá hamrin-
um á loft heyrðust Þór-
dunur (þrumur) og eld-
ingar klufu loftið.
Þór átti í stöðugum
bardögum við jötna og
hafði jafnan sigur. Stund-
úm gátu þó jötnar villt
um fyrir honum með
brögðum, eins og til dæm-
is, þegar hann fór að
heimsækja Útgarða-Loka.
Ferð Þórs til
Útgaröa-Loka
Eitt sinn sem oftar, er
Þór var á ferð í Jötun-
heimum, var hann stadd-
ur í höll Útgarða-Loka.
Þór ók ua hiininhvolfið . . .