Morgunblaðið - 11.05.1958, Blaðsíða 6
6
MORCVISBL AÐIÐ
Sunnudagur 11. mal 1958
Fyrir hundrað árum
ÞJÓÐÓLFUR segir 8. maí 1858
m. a.: Berlinga tíðindi, er komu
með hinum seinni skipum, hafa í
í marzblöðunum yfirlit yfir alla
Kaupmannahafnarverzlunina,
eins og hún var hið næstliðna
ár 1857 og yfir allar útfluttar og
innfluttar vörur á því ári. I
yfirliti þessu er ýmislegt áheyr-
andi verzlun íslands.að því leyti
hún hefur snortið útflutninga eða
aðflutninga höfuðborgarinnar og
skal nú hér skýra fiá hinu helzta.
Til íslands gengu árið sem leið
frá Kaupmannahöfn 100 kaupför,
4330 lestarrúm að stærð og færðu
þau hingað 4130 lestir. Þetta var
8 skipum fleira en árið 1856 og
390 vörulestum frekara en það
ár var. Aftur gengu frá ísland
til Hafnar 1857 samtals 84 skip
með 3588 lestarrúm og færðu
héðan 2843 lestir vöru, það var
225 lestum minna heldur en héð-
an fluttist til Hafnar 1856. En
aðgætandi er, að ekki eru talin
nein þau skip, er hingað komu
beinlínis frá Noregi með timb-
ur eða frá Englandi með stein-
kol og salt, né heldur þau skip,
er héðan fara beinlínis til Eng-
lands með ull, til Spánar moð
fisk eða til annara staða, til dæm
is til Hamborgar.
Það er eins með þetta yfirlit
Berlinga tíðinda eins og var í
fyrra, að eigi var með vissu þar
af séð, hve mikil kornvara hef-
ur flutzt til íslands árið 1857,
því þess er nú t. d. aðeins getið,
að meginhlutinn af hinum 6000
tunnum af baunum, sem fluttust
til Hafnar 1857 hafi gengið það-
an til íslands og Noregs og 22
þúsund tunnur af rúgi hafi far-
ið til íslands, Færeyja og Græn-
lands. Það verður því ekki auð
ið að æt.la á það, hve mikið hafi
hingað flutzt af baunum næst-
liðið ár. En sé farið eftir lestar-
rúmi því, sem var í förum frá
Höfn til ísiands, Grænlands og
Færeyja samtals 5749 lestir og
þar við miðaður rúgútflutningur-
inn til allja þessa laadi, sam-
Tals 22 þúsund tunnur, að því
leyti að 4130 vörulestir gengu
til Jslands, eins og fyrr er sagt,
þá hefði eftir því átt bingað að
flytja af rúgi sem næst 17370
tunnur. Af mjeli fluttust til ís-
lands 822 þúsund pund, það er,
þegar fjórðungar eru taldir í
hverja mjelhunnu, sama sem
5137% tunna, af baunum virojst
óhætt að gera sömu tölu og f.á.
nefnilega 2000 tunnur. Af banka
byggi og alls konar grjónum
segir að hingað hafi flutzt 6,085,-
000 punda og ætti þetta þegar
22 fjórðungar eru taldir í grjona
tunnuna að vera 27659 tunnur.
en það býður engum svörum, aS
svo mikið hafi flutzt híngað af
grjónum, 10300 tunnum .neira
en af rúgi, þar sem hitt mun
láta m.-klu nær að aldrei fiytjist
hingað meira af alls konar grjón
um heldtjr en sem svarar rúg-
aðflutnmgnum. (Ritstjórn Berl-
inga tíðinda hefur sjálf hneyk-.l-
azt á þessum mikla grjónaútflutn
ingi til íslands, sem hún hefur
tilfært . . . . og því leuað um
það ítarlegri skýrslna hjá toll-
heimturáðinu í Höfn og staðfestu
á því að þetta væri rétt ....
En hvað sem tollheimturáðið
segir hér um, þá hlýtur þessi
skýrsla að vera mjög skökk, það
býður nefnilega ekki svörum, að
hér á landi séu keyptar 6 eða 7
skeffur grjóna handa hverjum
manni, auk annara kornkaupa.
Ábm).
Þess hefur verið sérstaklega
getið, hve mikið nafi flutzt hing
að af hveitimjöli eða brauði. en
eigi að síður þó það skakki um
grjónaaðflutninginn, eins og nú
var sagt, þá er auðráðið af þess-
um skýrslum, að töluvert frek-
ari kornaðflutningar hafa verið
hingað til lands 1857 heldur en
voru árið fyrir, 1856. Þess er
hvergi getið, hve mikið kaffi og
sykur hafi hingað flutzt, enda
mun meírihluti kaffibaunanna
vera hingað fluttur frá Hamborg
og Valtona og kemur þaðan einn-
íg talsverður sykur hingað. Þess
ei aðeins getið, að 430 þúsund
pund hafi verið hingað færð af
nlbúnum sykri (stejnsykur og
hvítasykur), þetta mun þó vart
vera tveir þriðjungat þess syk-
urs, er hingað fluttist næst hðið
ár og má þó eftir því sem svk-
ur var almennast seldur hér á
landi hvert pund á 26—28 skild-
mga telja þessi 430,000 pund 116
Þorleifur Repp
þúsund ríkisdali. Er sjálfsagt ó-
hætt að fullyrða að 5 pund af
kaffi seljist hér á móti hverjum
3 pundum af sykri og að kaffi og
sykurkaup vor hafi hm næs’líð-
in 2 ár dregizt hátt að 36i,000
ríkisdölum hvert árið um sig.
Af brennivíni var útflutt frá
Höfn 1,700,000 pottar, gengu af
því eingöngu til íslands 550 þús-
und pottar. Það er óhætt að ráð-
Kaup fyrir ræstingu
AÐ er alltaf verið að berjast
„ fyrir því, að konur fái sama
kaup fyrir sömu vinnu og karl-
menn, en konur fá í mörgum til-
fellum ekki sama kaup fyrir
sömu vinnu. Ég er búin að ganga
út í ræstingu í mörg ár og það
gera fleiri giftar konur en marg-
an grunar, — en við fáum mjög
misjafnt borgað fyrir okkar
vinnu. Sumar vinna fyrir upp-
mælingu, og þá er ekkert tillit
tekið til þess. hvort konan þa:'f
að sópa gólfin á undan ræstingu
eða alls ekki. Sums staðar er
mjög mikið rusl á gólfunum,
eins og t.d. í bíóum og sam-
komuhúsum, *g tekur þá sm .-
um eins langan tíma að fjar- i
lægja það eins og skúra golfin.'
Súmar vinna fyrir tímakaupi.
sumar mánaðarkaupi, sem nvorki
t-r reiknað eftir uppmælingar-
texta eða tímakaupi, og verður;
útkoman oft misjöfn. Konur
verða að vera i þvottakvennafé-
lagi til þess að hafa fullan re-« j
á þessari vinnu, en njóta ekki
alls staðar sömu hlunninda fyrir
því, t.d. þar, sem ekki er borg-
að eftir neinum töxtum.
Ég hef heyrt frá kunningia-
konu minni, að bíóin borgi eftir
sinni vild, og þau borga verst,
og er þó ekki sama borgað í
öllum bíóunum. Auk þess verða
konurnar, sem þar vinna. að
ræsta jafnt á sunnudögum sem
aðra duga og fá ekkert borg.ð
ekstra Jyrir þá, eins og t.d. stúlk
ur, sem vinna í mjólkurbúðum.
Þær fá aukavinnu greidda fyrir
alla sunnudaga. Svo er erfiðast
að taka bíóin í gegn eftir marga
frídaga eins og 17. júní, sumar-
daginn fyrsta, annan í páskum,
hvítasunnu og jól og fleni
frídaga, þegar t.d. skrifstofur og
verzlanir og læknastofur eru lok-
aðar. Hinar konurnar fá því þar
gera að hver pottur hafi næst-
liðið ár verið hér seldur á 20
skildinga svona upp og ofan. og
hefur eftir því verið sopið
upp í eintómu brenn'vím
124,582 rdl. 64 sk., autc ann-
ara ölfanga, sem vel ma gera
þriðjung þessarar upphæðar eða
31,500 rdl. og hefur eftir því
til ölfanga einna gengið næstlið-
ið ár samtals 156,000 rdl. Það
er mein, að alls eigi skuli vera að
neinu skýrt frá tobaksaðflutn-
ingum hingað, þar sem þó allt
tóbakið, er vér brúkum rlyzt til
vor frá Höfn, en um það sést
engin bending í Berlinga Tíðird-
um. Um útflutta vöru héðan til
Hafnar 1857 segir svo: Harður
fiskur 900 skippund, lýsi 7090
tunnur, saltfiskur 8500 skippund,
saltkjöt 2300 tunnur. tólg 2900
skippund, ull 2900 skippund. Þá
er sagt að út hafi verið flutt 900
skippundum minna af saltf’ski
en árið áður en þá hafi gengið
mikill saltfiskur héðan beint tn
Spánar.
í sama blaði segir frá jarðar-
för Þorleifs Guðmundssonar
Repps. Segir svo:
Eins og getið var í þessa árs
Þjóðólfi bls. 55 — var það ein
hin síðasta ósk og bæn landa
vors, Þorleifs Repps til v.na
hans erlendis, að hann yrði ör-
endur fluttur hingað til fóstur-
jarðar sinnar til greftrunar. Lík
hans kom og með þessari síðustu
póstferð eins um búið og fyrr var
frá skýrt og var af skipsfjöl
boiáð í hús tryggðarvinar hins
framliðna herra Helga biskups
Thordersens. 1. þ.m. gjörði hann
aðvart ættingja og tengdamenn
Þorleifs sáluga hér í sókn, svo
og Prestaskólastúdenta hina
helztu söngmenn meðal skóla-
sveina til þess að hefja hinn
framliðna til kirkju. Eftir það
búið var að opna kistuna og blý-
hulstrið þar inni í, svo allir er
vildu mættu sjá hinn framliðna
og síðan gengið frá öllu aftur
með sömu ummerkjum var sorg-
af leiðandi miklu fleiri frídaga
en konumar í bióunum, — þæj.
fá sjaldnast frídag og lélegasta
kaupið.
Ég hefi talsvert kynnt mér,
hvað konur hafa fyrir þessa
vinnu, og það er voðalega mi-:-
jafnt. Ein kona fer alltaf nreð
sama bíl og ég í vinnuna á morgn
ana. Við förum báðar með 7 bíl
og förum báðar heim með 10 bil,
en hún hefur helmingi meira
fyrir sína vinnu en ég, og förum
við þó báðar í ræstingu. Geta
þessar konur, sem alltaf eru að
berjast fyrir rétti konunnar, ekki
kippt þessu óréttlæti í lag?
Ræstingakona“.
Rokkið á Sauðárkróki
ELVAKANDA hefur boriz. eft
irfarandi bréf frá Sauðárkróki:
„í gær (5. maí) var fluttur í
útvarpinu þátturinn um daginn
og veginn. Flytjandi þáttarins
réðst þar á nokkrar ungar stúlk-
ur „úti á landi“ eins og hann
komst að orði. og leyndi sér ekki
fyrirlitningin á fólkinu úti á
arathöfn þessi byrjuð með þvt
að syngja 7. versið af nr. 219
í messusöngbókinni. Gekk heim-
ilisfaðirinn hr. biskupinn þá
fram að kistunni og flutti stutt-
orða en gagnorða og fagra hús-
kveðju, er emkar vel hlýddi upp
á þannan svo óvenjulega og sorg
lega endurfund forns æsku-
vinar. Að því búnu voru sungin
1. og 2 versið af nr. 220 og ifkið
hafið út á meðan og borið til
kirkju. Þegar inn I hana kom
var sungið v«rs 222 að svo
breyttu upphafi: Glaður hmgað
vil ég venda, vært í móðurskaut
á ný. 4. þessa mánaðar fór fram
sjálf jarðarförin eftir tiihlutun
herra biskupsins, söfnuðust því
allir er vildu fylgja á gildaskál-
anum Scandinavia og gengu það-
an, þegar allir voru komnir. er
von þótti á, til kirkju. Að sungn-
um sálminum 228 (án orgel-slátt-
ar) gekk hr. Helgi biskup fram
að kirkjunni og flutti fagra ræðu,
er lýsti gáfnaatgjörvi, sálarþreki
og lundarlagi hins framliðna svo
satt og fagurlega, enda er engum
fært að útmála slíkt eins og æsku
vinum — að víst mun öllum
finnast mikið um, er þá ræðu
lesa, eins og oss öllum er nú
heyrðum. — Þar næst flutti dóm-
kirkjupresturinn prófastur hr.
Ólafur Pálsson fagra ræðu með
ágrip af hinum helztu æfiatrið-
um hins framliðna, lýsingu á lær
dómi hans og fjölvísi og hans
margbreyttu lífsstöðu. Þar eftir
Vindáshlíð
KFUK í Reykjavík er nú sem
óðast að undirbúa sumarstarf
sitt. Er sumaráætlun félagsins ný-
lega komin út. Félagið mun starf-
rækja sumarbúðír í skála sínum
í Vindáshlíð í Kjós, þar sem
hundruð stúlkna hafa dvalizt í
sumarleyfi sinu á undanförnum
árum.
Gert er ráð fyrir, að í sumar
landi. Þessar ungu stúlkur höfðu
unnið sér það til miska að hafa
leyft sér það, ómenntaðar og ó-
uppdregnar stúlkur utan af landi,
að syngja göfuga tónlist sem
rock’n’roll á skemmtun, sem tek-
in var upp og flutt í þættinum
„Um helgina". Greinilegt var, að
hér var sneitt að nokkrum skóla-
stúlkum á Sauðárkróki, sem sung
ið höfðu á Sæluvikunni við góðar
undirtektir! En við flytjanda er-
indisins vil ég segja þetta: Er
ekki fólki úti á landi leyfilegt að
skemmta með því, sem mestra
vinsældar nýtur núna í augna-
blikinu? Eða eru það aðems
Reykvíkingar, sem kalla sig Barr
elhouse Blackie eða S. Ág. Presi-
ey, sem mega flytja þetta? Einn_
ig mætti hann minnast þess. að
svona ádeila eins og þessi getur
haft mikil áhrif á óharnaða ung-
linga, því þessar stúlkur voru
allar 15—16 ára og þær tóku þetta
mjög nærri sér.
Þessi sami maður fór síðan að
ræða um „rock“ yfirleitt. Hann
lýsti því sem villimannlegu æði
og tók til samanburðar Þjóðdansa
félag Reykjavíkur. Hjákátlegíi
samanburð var varla hægt að
taka. Og þarf ekki að fara nánar
í það. En ætli ekki hafi verið
deilt á tango, Charleston o. fl. í
hans ungdæmi? Ég held, að það
séu ekki hundrað í hættunni þótt
unga fólkið skemmti sér.
Og finnst nokkrum mikið, þótt
unglingarnir vilji lyfta sér upp
frá gráum hversdagsleikanum,
þrungnum af gtislavirku ryki og
hatri milli austurs og vesturs,
hversdagsleika, par sem yfir þeim
vofir á blómaskeiði lífsins hætt-
an af kjarnorkustyrjöld og ger-
eyðingu, hversdagsleika, þar sem
allar þessar ógnir eru runnar.frá
eiginhagsmunabaráttu fárra
manna með svipaða skapgerð og
flytjandi fyrrnefnds erindis".
var líkið hafið út úr kirkju und-
ir söng versins 224 borið lil
kirkjugarðs af prestaskólastúd-
entum og öðmim vísindamönnum
og moldausið af herra biskup-
inum og jarðsett undir söng
sálmsins „Allt eins og blómstrið
eina“ og versanna „Sofi hann nú
hér í friði". Gröfin er rétt austur
af leiði landlæknisins Jóns Thor-
steinsens, að sunnanverðu við stíg
inn frá sálarhliðinu til iíkhúss-
ins. Hinn mesti mannfjöldi fylgdi.
Dómkirkjan hét ;.ð vera full allir
embættismenn og vísindamenn
hér í staðnum, að einum þrem
til fjórum fráteknum og ailir
skólasveinarnir, er til þess var
gefið leyfi. Grafskrift eftir pró-
fessor herra Ó. Pálsson lét hr.
biskupinn prenta og útbýta við
jarðarförina. Yfir höfuð að tala
má segja, að ráðstafanir og alit
fyrirkomulag við jarðarför þessa
var að öllu samboðið landshöfð-
ingjanum, er hana tók að sér, og
eigi af fordild eða fyrir endur-
gjald, heldur til þess af rækt
og tryggð að fullnægja á sinn
kostnað síðustu óskum æskuvin-
arins, er bláfátækt og langvmnt
mótkast gerði ófært að hann eða
hans gætu látið þessari ósk verða
framgengt að sjálfs rammleik.
Það má og með sanni segja að
hinn framliðni var maklegur þess,
bæði að moldum hans væri slíkur
sómi sýndur og minning hans
verði í heiðri höfð, bæði hér á
landi og erlendis.
il imn
verði níu dvalarflokkar í Vindás-
hlíð. Fer hinn fyrsti þeirra 5.
júní. Tveir fyrstu flokkarnir eru
vikuflokkar og eru þeir ætlaðir
telpum á aldrinum 9—12 ára.
Næstu tveir flokkar eru fyrir
sama aldursflokk, og verður ann-
ar hálfan mánuð, en hinn 10 daga.
Sérstakir flokkar fyrir unglings-
stúlkur, 13 ára og eldri, verða
seinnihluta júlímánaðar, eða 17,—
31. júlí. Síðan tekur aftur við
hálfsmánaðarflokkur fyrir yngri
telpumar. Þá var fyrir nokkrum
árum tekin upp sú nýbreytni að
gefa ungum stúlkum og konum
frá 17 ára aldri kost á að dveljast
í Vindáshlíð nokkra daga. I sum-
ar verða tvær síðustu vikurnar
í ágúst ætlaðar konum á þessum
aldri. Fyrri „konuflokkurinn’*
hefst 14. ágúst og hinn síðari 21.
ágúst.
Að sjálfsögðu er öllum stúlk-
um og konum á ofangreindum
aldri heimil þátttaka í dvalar-
flokkum þessum, án tillits til
þess, hvort þær eru meðlimir
KFUK eða ekki.
Þá er það einn liður í áætlun
sumarsins, að haldin verður guðs-
þjónusta í Vindáshlíð sunnudag-
inn 17. ágúst, líkt og verið hefur
undanfarin ár. Er staðurinn þá
opinn öllum, og hefur jafnan ver-
ið fjölmenni mikið í Vindáshlíð
við þessar guðsþjónustur. For-
eldrum stúlknanna, sem þarna
dveljast og öðrum velunnurum
starfsins gefst þá gott tækifæri
til þess að skoða staðinn.
1 fyrra var litla trékirkjan I
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd leyst
af hólmi af stórri og veglegri
kirkju, sem þjóðin reisti til minn-
ingar um mesta sálmaskáld sitt.
Gamla kirkjan var þá flutt í heilu
lagi í Vindáshlíð og stendur hún
skammt frá skálanum.
Aðsókn að Vindáshlíð hefur
vaxið mjög undanfarin ár, en tak
marka verður f jölda þátttakenda.
Nánar er getið um dvalarflokk-
ana og innritun í auglýsingu á
öðrum stað í blaðinu í dag.
KFUK er, eins og öllum er
kunnugt, leikmannastarf innan ís-
lenzku þjóðkirkjunnar, og starfar
félagið á grundvelli hennar.