Morgunblaðið - 10.08.1958, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 10. ágúst 1958
Morgun nokkurn í byrjun
ágúst var brezkur hermaður á
gangi eftir fjölfarinni götu í
Nikósía ásamt syni sínum, 2','z
árs að aldri. í þessu hverfi borg-
arinnar eru margir brezkir þegn
ar búsettir og hefir jafnan verið
talið, að þeir gætu verið þar ör-
uggir um líf sitt. Er þeir feðgar
höfðu gengið spölkorn eftir göt-
unni, var hermaðurinn, Hamm-
ond liðþjálfi, skotinn til bana
aftan frá. Stefán litli kastaði sér
óttasleginn niður í götuna og kall
aði í sífelldu á föður sinn. Ensk
kona kom hlaupandi á vettvang
og tók drenginn í sína umsjá.
Myndin sýnir ekkju Hammonds,
sem er tvítug, ásamt Stefáni
litla.
Bandaríski utanríkisráðherr-
ann Dulles er lögfræðingur að
menntun. Hann vill þó ekki láta
lögfræðileg vandamál í sam-
bandi við geimferðir í framtíð-
inni til sín taka. Komst hann svo
að orði í við-
tali fyrir
skömmu, að
hann hefði
lært fræði sín
löngu áður en
geimferðir
komu til sög-
unnar og gæti
því ekki gefið
neinar yfirlýs-
ingar á lögfræðilegum grundvelli
um það, hvort Bandaríkin myndu
krefjast sérstakra réttinda á
tunglinu, ef Bandaríkjamenn
yrðu fyrstir til þess að skjóta
eldflaug til tunglsins. Ráðlagði
utanríkisráðherrann blaðamönn-
um að leita álits lögfræðings,
sem væri yngri í faginu en hann
sjálfur.
Japanski krónprinsinn Akihito
varð 18 ára fyrir sex árum, og
síðan hefir staðið yfir sífelld
leit að konuefni handa honum.
En það er ekki svo 'auðvelt að
finna stúlku, sem fullnægir öllum
skilyrðum, sem sett eru. Vitan-
lega verður blátt blóð að renna
í æðum hennar, og aðstandendur
hennar verða helzt að vera efn-
aðir. Hirðmenn hafa samið lang
an lista um úlit og hæfni þeirra
stúlkna, sem koma til greina. Og
rannsakað er nákvæmlega, hvort
brjálsemi eða ósiðsamleg fram-
koma hafa gert vart við sig í ætt
þeirra.
Krónprinsinn hefir einnig gert
sínar athuganir. Þó að hann fái
sennilega aðeins að velja milli
þriggja eða fjögurra úrvals-
stúlkna, hefir hann ótvírætt lát-
ið ljós, hvers konar konuefni
hann vilji:
— Ég þoli ekki feitar stúlkur,
og ég get alls ekki þolað stúlkur
með digra fótleggi. Ég vil eign-
ast lipurlega vaxna, tágranna
stúlku, sem er hlýleg í viðmóti,
gamansöm og hefir áhuga á
íþróttum eins og ég. Hún verður
að hafa gaman af tónlist og
dansi, kunna að taka á móti gest
um og framar öllu má hún ekki
vera hávaxnari en ég (hann er
165 sm).
Skömmu eftir að bók Henry
Millers, Sexus, h'afði verið gefin
út á ítölsku, skipuðu yfirvöldin
svo fyrir, að
eintök af bók-
inni .mætti
ekki lána frá
bókasöfnum,
fyrr en dóm-
stóll hefði skor
ið úr um, hvort
bókin væri
klámrit. Nú
hefir ítalskur
dómari lýst yfir því, að bókin
sé „listaverk“, og fráleitt sé að
flokka hana undir klámrit.
Brezki kvikmyndaleikarinn
Sir Laurence Olivier hefir rakað
af sér skeggið, sem hann safnaði
fyrir nokkru. Ástæðan fyrir
því, að hann rakaði skeggið af
sér er reyndar dapurleg. Skegg-
inu safnaði hann, af því að hann
ætlaði að láta kvikmynda leikrit
Shakespears, Macbeth. Sjálfur
lugðist hann
t'ara með aðal-
alutverkið. En
pegar á reyndi,
;reysti ekkert
svikmyndafé-
lag sér til að
standa undir
kostnaðinum
við gerð kvik-
myndarinnar.
Talið er, að kvikmyndin hefði
kostað sem nemur 30 milljónum
ísl. króna. Það kann að hljóma all
undarlega, þegar höfð er hlið-
sjón af frægð Oliviers á leiksvið-
inu og á léreftinu, að síðustu
kvikmyndirnar, sem hann hefir
leikið aðalhlutverkin í, hafa
tekizt illa fjárhagslega. Sunday
Express skýrði nýlega frá því, að
jafnvel tekjurnar af kvikmynd-
inni Prinsinn og sýningarstúlk-
an, þar sem Olivier lék á móti
sjálfri Marilyn Monroe, myndu
ekki vega upp á móti kostnaðin-
um við gerð myndarinnar.
Brezki forsætisráðherrann Har
old Macmillan er 64 ára, og þrátt
fyrir alla þá erfiðleika og vand-
ræði, sem hann hefir glímt við
undanfarið, virðist hann vera
fullur af lífsþrótti og starfsþreki.
Og hans nánustu ofbauð, er for-
sætisráðherranum varð að orði,
þegar sumarleyfi þingmanna hóf
ust:
Jæja, þá erum við komnir í
sumarleyfi. Nú er loksins hægt
að fara að gera eitthvað að
gagni
Sú var tíðin, að Soraya var
keisaraynja í íran og Feisal H
konungur í írak. Mynd þessi var
tekin, er Feisal kom í opinbera
heimsókn til Teheran í október
s.l. ár. Soraya og konungurinn
ganga til móts við íranskeisara í
hásætissalnum í keisarahöllinni.
Gengi lífsins er fallvalt. Nú er
Feisal fallinn, og Soraya skilin
við keisarann.
í. s. I.
LANDSLEIKURINN
K. S. /.
ÍSLAND — IRLAMD
fer fram á morgun (mánudag) á íþróttaleikvanginum
í Laugardal og hefst kl. 8.
Dómari: Leif Gulliksen.
Aðgötignmiðar seldir í dag í Aðgöngumiðasölu Melavallarins kl. 1—6
og á morgun á eftirtöldum stöðum:
Bókaverzlun L. Blöndal, Vesturveri ki. 9—6,
Bókaverzlun Helgafells, Laugav. 100 k. 9—6,
og úr bifreiðum hjá Laugardalsleikvanginum frá kl. 6 á morgun.
Kaupið miða í fctrsölunum og forðist biðraðir rétt
fyrir leikbyrjun.
Ferðir verða inn í Laugardal frá B.S.l. eftir kl. 6,30. NEFNDIN.