Morgunblaðið - 30.09.1958, Page 1
24 síður
ÓROFA ÞJÓÐAREININC UM RÉTT VORN
Vér neitum því að
létta ránsmönnunum afbrotin
Úr ræðu Ólafs Thors, fyrrv. forsætis-
ráðherra á geysifjölmennum fundi
Stúdentafélags Reykjavikur
VIÐ NEITUM ÞVÍ eindregið að létta ránsmönnunum afbrotin með
]»ví að leyfa verndurum þeirra, herskipunum, að annast flutninga
milli landhelgisbrjótanna og lands. Kvíði ræninginn því að sigla
til íslenzkrar hafnar til þess að leita sjúkum hjálpar þá er það
aðeins maklegt. Að óreyndu verður því ekki trúað að skipstjóri
hætti á að fórna lífi skipverja sinna af hlífð við pyngju útgerðar-
mannsins. En séu brezkir landhelgisbrjótar slíkir óþokkar þá er
það þeirra mál en ekki okkar.
Á þessa leið komst Ólafur Thors fyrrv. forsætisráðherra m. a.
að orði á geysifjölmennum fundi, sem Stúdentafélag Reykjavíkur
hélt sl. sunnudag. Var ræðu Ólafs Thors ágætlega tekið. Hann
komst ennfremur m.a. þannig að orði að við mættum athuga,
hvenær að við teldum að Bretar hefðu fyllt svo bikar þolinmæði
okkar að við teldum rétt og jafnvel óhjákvæmilegt að kæra þá á
réttum vettvangi. Hann afneitaði þeirri hugmynd gersamlega að ís-
land segði sig úr Atlantshafsbandalaginu. Loks kvaðst hann ekki
á þessu stigi málsins vilja fullyrða um það, hvort æskilegt væri að
Haagdómur gengi um deiluna um fiskveiðitakmörkin. Ólafur Thors
hvatti tslendinga til órofa samheldni um rétt sinn í þessu stóra
máli.
Sverrir Hermannsson formaður Stúdentafélags Reykjavíkur setti
fundinn og stjórnaði honum. Ræða Ólafs Thors í heild er birt
á bls. 13—15.
Ólafur Thors í ræðustól á fundi Stúdentafélagsins um
landhelgismál sl. sunnudag.
Biðjo um
meiri vernd
GRIMSBY, 27. *ept. — Brezkir
togaramenn samþykktu á fundi
hér í dag að fara þess á leit við
flotamálaráðuneytið, flugmála-
ráðuneytið svo *g landbúnaðar-
og sjávarútvegsmálaráðuneytið,
að brezkum togurum á íslands-
miðum yrði látin í té öflugri her-
vernd.
Eldilougur
til Noregs
OSLÓ, 29. sept. — Yfirforingl
norska flughersins upplýsti í
dag, að Norðmenn mundu
skjótlega fá eldflaugar til
landvarna. Er hér um að ræða
Nike eldflaugar — og sérstak-
ar eldflaugar fyrir orrustu-
þotur.
Stórkostlegur sigur de Gaulle markar
tímamót í sögu Frakklands
Kommúnistar guldu mikið afhroð
setur traust sitt á de Gaulle
PARIS, 29. september. — Einkaskeyti frá Reuter.
DE GAULLE hefur unnið stærsta stjórnmálasigur í sögu
Frakklands. Fjórða lýðveldið er liðið undir lok, það hefur
staðið 12 ár — og fáir Frakkar syrgja það. Franska þjóðin
hefur sett traust sitt á de Gaulle, sem í 12 ár lét lítið á sér
bæra, en á hættustund — þegar borgarastyrjöld vofði yfir
Frakklandi — hélt til Parísar til þess að bjóða frönsku
þjóðinni þjónustu sína. Hann hét henni að hjarga Frakklandi
frá sundrungu og niðurlægingu, endurreisa voldugt
Frakkland. —
Ályktun fundarins.
PUNDURINN samþykkti svo-
hljóðandi tillögu frá stjórn
Stúdentafélagsins með samhljóða
atkvæðum:
„Almennur fundur í Stúdenta-
félagi Reykjavíkur, haldinn 28.
september 1958, fagnar útfærslu
fiskveiðitakmarkanna í tólf sjó-
mílur og skorar á alla islendinga
að standa einhuga saman um
rétt þjóðarinnar. Jafnframt
þakkar fundurinn öllum þeim,
sem frá öndverðu hafa undirbúið
þau mikilsverðu skref, sem stig-
in hafa verið til verndar íslenzk-
um fiskimiðum.
Fundurinn telur þó að 12
mílna fiskveiðitakmörk séu ekk
ert lokatakmark í þessum mál-
um. Beri að vinna að því áfram
af festu og ábyrgðartilfinningu
að fá frekari viðurkenningar fyr-
ir einkarétti Islendinga til fisk-
veiða á landgrunninu umhverfis
landið.
Þá vítir fundurinn harðlega of-
beldisaðgerðir Breta gagnvart
íslenzku þjóðinni og telur þær
einstætt óhæfuverk gagnvart
vopnlausri smáþjóð. Þakkar
fundurinn íslenzkum varðskips-
mönnum drengilegt og dugmikið
starf við landhelgisgæzluna. —
Loks átelur fundurinn þá ráða-
breytni, að brezkum herskipum
skuli leyft að annast flutninga
milli landhelgisbrjótanna og ís-
lenzkra hafna og telur að það
hafi verið mjög misráðið, er ís-
lenzkum varðskipsmönnum var
fyrirskipað að sleppa brezkum
landhelgisbrjót, er þeir höfðu
tekið meðan brezkt herskip gat
ekki annazt aðstoð við lögbrjót-
ana“.
ULM, V-Þýzkalandi, 29. septem-
ber. — Þrír létust og 11 slösuðust
hér í dag, er 5 fólksbílar, 6 vöru-
bílar og mótorhjól lentu öll í
einum og sama árekstrinum á
þjóðveginum milli Stuttgart og
Munchen — í svartaþoku.
Franska þjóðin og þegnar
frönsku nýlendnanna sýndu við
kosningarnar um stjórnarskrár-
frumvarp de Gaulle á sunnudag-
inn, að mikill meirihluti þegna
hins franska ríkis treystir hon-
um til þess að endurreisa Frakk-
land. í Frakklandi greiddu
80% kjósenda honum atkvæði, í
Alsír yfir 95% og í öllum 18
nýlendum Frakka var stuðning-
urinn við de Gaulle allt að 98%
að einni nýlendu undanskilinni.
Það var Franska Guiana í V-
Afríku. Meirihluti kjósenda
hafnaði nýju stjórnarskránni og
þar með tengslum sínum við
Frakkland.
Þegar kosningaúrslitin voru
tunn lét de Gaulle í ljós
mikla ánægju með afstöðu
þjóðarinnar. Þetta sýnir,
;agði hann, að Frakkar eru
ákveðnir í því að ganga fram
með æskuhreysti, þreki og
hugrekki. Einn þeirra fyrstu,
iem sendu de Gaulle heilla-
óskir vegna einhuga stuðn-
ings þjóðarinnar við áform
hans, var Winston Churchill.
Engar birgðir voru settar á
land á Quemoy í dag vegna ill-
viðris. Yfirmaður hersins á eyj-
unni lét hafa eftir sér, að nú væri
orðið þröngt í búi hjá eyjar-
skeggjum og hermönnunum, rís-
inn væri allur genginn til þurrð-
- Franska þjóðin
Óhætt er að fullyrða, að jafn-
vel bjartsýnustu stuðningsmenn
de Gaulle hafa ekki búizt við
jafnglæsilegum sigri hans og
raun varð á. Það þykir einna at-
hyglisverðast við úrslit þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar, að áhrif
kommúnista virðast hafa þorrið
mjög og eru þetta mestu hrakfar-
ir þeirra í Frakklandi síðan styrj -
öldinni lauk. Þrátt fyrir harð-
an áróður kommúnista gegn de
Gaulle og ásakanir um, að hann
væri að undirbúa einveldi sitt,
hefur hátt að aðra milljón komm
ar, en haan er aðal.heða Kín-
verja.
Allir fiskibátar hafa verið
eyðilagðir í skothríð kommún-
ista og eyjarskeggjar eiga aðeins
matvælabirgðir til 25 daga, sagði
herforinginn.
Fyrrgreind ummæli Chang Kai
únista snúizt á sveif með honum
— að því að talið er.
Stjórnmálafréttaritarar segja,
að úrslit þessi marki upphafið að
falli veldis kommúnista í Frakk-
landi.
★
En það voru fleiri en komm-
únistar, sem urðu að lúta í lægra
haldi íyrir de Gaulle. í kjördæmi
Mendes France, sem barðist harð
vítuglega gegn stjórnarskrártil-
lögunni, greiddu yfir 80% kjós-
enda de Gaulle atkvæði — og í
kjördæmi Poujade, sem líka barð
ist við hlið Mendes France, urðu
úrslitin svipuð.
★
Kjörsókn í þessum kosningum
var meiri en dæmi eru til í Frakk
landi. Þar neyttu 85% kjörgengra
atkvæðisréttar síns og kusu 17,7
Framh. á bls. 23.
Shek voru höfð eftir honum á
blaðamannafundi, er hann átti í
dag. Sagði hann þar ennfremur,
að Quemoy og hinar smáeyjarn-
ar væru skjöldur Formósu — og
lögð yrði áherzía á að verja þær
til síðasta manns, ef nauðsyn
krefði.
Vegna ónægju, sem vart hefði
orðið í Bandaríkjunum með stuðn
ing Bandaríkjamanna við þjóð-
ernissinna og ótta úm nýja
heimsstyrjöld, sagði hann, að hér
væri ekki einungis verið að verja
smáeyjar heldur hefta útþenslu
kommúnismans til alls vestan-
verðs Kyrrahafs. Eyjarnar, þótt
smáar væru, væru mikilvægari
en orð fengju lýst.
Við gerum loftárásir á megin-
landið ef jbörf krefur
— segir Chang Kai Shek
TAIPEI, 29. sept. — Chang Kai Shek lét svo ummælt í dag, að
bandarískir hermenn mundu ekki verða beðnir um að berjast við
varuir smáeyjanna við meginland Kína. Sagði hann og, að þjóð-
ernissinnar mundu gera loftárásir á borgir kommúnista á megin-
land’nu, ef slíkt reyndist lífsnauðsyn fyrir Formósustjórnina.