Morgunblaðið - 30.09.1958, Page 2
2
MORGVNfíT4ÐIÐ
Þrlðjudagur 30. sept. 1958
Fullfrúakjor á Alþýðusambandsþing:
Lýðrœðissinnar sigruðu
í Sjómannafélagi
H afnarfjarðar
UM sl. helgi fór fram allsherjar-
atkvæðagreiðsla um kjör full-
trúa til Alþýðusambandsþings í
Sjómannafélagi Hafnarfjarðar.
Hlaut listi lýðræðissinna 72 atkv.
en listi kommúniSi,a 39 atkv. —
Aðalfulltrúar voru kjörnir:- Ein-
ar Jónsson og Kristjan Kolbeins-
son. Varafulltrúar: Guðjón Frí-
mannsson og Sigurður Pétursson.
Fulltrúar á Alþýðusambands-
þingi 1956 frá Sjómannafélagi
Hafnarfjarðar voru báðir komm-
únistar.
1 Verkamannafélaginu Hlíf í
Hafnarfirði varð listi stjórnar og
trúnaðarmannar áðs s jálf kj ör inn.
Listinn var þannig skipaður:
Aðalfulltrúar: Hermann Guð-
mundsson, Bjarni Rögnvaldsson,
Ragnar Sigurðsson, Sigurður
Guðmundsson, Pétur Kristbergs-
son og Gunnar Guðmundsson. —
Varafulltrúar: Sigmundur Björns
son, Björn Bjarnason, Hallgrím-
ur Pétursson, Helgi Kr. Guð-
mundsson, Sigvaldi Andrésson
og Jón Einarsson.
Kosið var á fundi sl. sunnu-
dag um fulltrúa á Alþýðusam-
bandsþing í Verkalýðsfélaginu
Vörn á Bíldudal. Aðalfulltrúi
var kjörinn fulltrúi lýðræðis-
sinna Magnús Einarsson. Vara-
fulltrúi: Skarphéðinn Gíslason.
Verkalýðsfélag S-Þingeyjar-
sýslu. — Þar var kosið sl. sunnu-
dag. Aðalfulltrúi: Sigfús Jónsson.
Varafulltrúi: Kristján Asvalds-
son. —
Um sl. helgi var einnig kosið
í Verkalýðsfélaginu Víkingi,
Vík í Mýrdal. Aðalfulltrúi var
kjörinn Sigurður Gunnarsson. —
Varafulltrúi: Arni Sigurjónsson.
★
FRAMBOÐSFRESTUR í Lands-
sambandi sjálfeignarvörubíl-
stjóra rann úr sl. fimmtudag. —
Þessir urðu sjálfkjörnir: Einar
Ögmundsson, Rvk, Pétur Guð-
finnsson, Rvk; Ásgrímur Gísla-
son Rvk; Sigurður Ingvason,
Eyrarbaka; Sigurður Bjarnason,
Hafnarfirði; Ársæll Valdirr.ars-
son, Akranesi; Magnús Helgason,
Keflavík; Haraldur Bogason,
Akureyri; Stefán Pétursson, Eg-
ilsstöðum; Jón Jóhannsson, Sauð
árkróki og Halldór Ólafsson, ísa-
firði.
Varafulltrúar: Sveinbjörn Guð
laugsson, Rvk; Stefan Hannes-
son, Rvk; Guðmundur Jósepsson,
Rvk; Hermann Sveinsson, Rang-
árvallasýslu; Ingvar Gíslason,
Grindavík; Óskar Sumarliðason,
Búðardal; Þorsteinn Kristjáns-
son, Höfnum; Guðm. Snorrason,
Akureyri; Einar Jónsson, S.-Þing
eyjarsýslu; Stefán P. Sigurjóns-
son, Húsavík og Arnbergur Stef-
ánsson, Borgarnesi.
Sjálfkjörið varð einnig í Verka
lýðs- og Sjómannafélagi Kefla-
víkur: Aðalfulltrúar: Ragnar Guð
leifsson, Ólafur Björnsson, Geir
Þórarinsson, Eiríkur Friðriksson,
Guðmundur Gísiason. — V'ara-
fulltrúar: Friðrik Sigfússon, Guð
laugur Þórðarson, Guðnj Þor-
valdsson, Kjartao Ólafsson og
Helgi Helgason.
í Bílstjórafélagi Akureyrar
urðu sjálfkjörnir þeir Hóskuld-
ur Helgason og Jón Rögnvalds-
son. Varafulltrúar eru Garðar
Svanlaugsson og Baldur Svan-
laugsson.
Þessi félög hafa einnig kosið
nýiega:
Sveinafélag Húsgagnabólstr-
ara: Aðalfulltrúi Þorsteinn Þórð-
arson. Varafulltrúi Leifur Jóns-
son.
Verkalýðsfélagið Brynja,
Þingeyri: Aðalfulltrúi Ingi S.
Jónsson. Varafuiltrúi: Friðgeir
Magnússon.
Drukkinn maður
veltir bíl
á Vesturgötunni
Á SUNNUDAGSMORGUNINN
um kl. 6 lauk á Vesturgötunni
ökuför, sem hófst suður í Kefla-
vík. Við húsið Vesturgötu 19 var
bílnum, J-61, ekið á ann-
an bíl, síðan á ljósastaur, sem
brotnaði, og að síðustu rakst bíll-
inn á húshorn Vesturgötu 19 og
valt þar á hliðina.
í þessum bíl voru 5 menn, allir
meira og minna undir áhriíum
áfengis. Ökumaðurinn, sem dæmd
ur hefir verið til ökuréttinda-
missis, var sá eini af mönnunum,
er slapp með öllu ómeiddur. Sá,
sem meiddist mest, skarst á höfði
og var slæmur í öxl og fæti. Hintr
mennirnir þrír höltruðu allir af
slysstaðnum.
Það kom þegar í ljós, að öku-
maðurinn hafði stolið bílnum
suður í Keflavík, þar sem hann
hafði verið á dansleik ásamt ein-
um mannanna, sem í bílnum var
með honum, en hina þrjá höfðu
þeir tekið upp í bílinn á ökuferð
sinni um bæinn.
Bíll sá, er hér um ræðir, er
gamall herbíll og varð hann ekki
Síríus hefur framleitt 1
millj. kg. af súkkulaði
Verksmiðjan fagnar 25 ára afmœli
SUKKULAÐIVERKSMIÐJAN
Síríus h.f. á þessa dagana 25 ára af
mæli. í því tilefni bauð verk-
smiðjustjórnin fréttamönnum og
öðrum gestum að skoða verk-
smiðjuna. Valgeir Björnsson,
hafnarstjóri, formaður stjórnar-
innar, bauð gesti velkomna og
skýrði frá tildrögum þess að
súkkulaðiverksmiðjan var sett á
stofn.
Fyrir 25 árum sáu hluthafar
verksmiðjanna Nóa og Hreins að
nauðsynlegt var að stækka við
sig húsnæði. Fengin var lóð við
Laugaveginn, þar sem Egilskjör
er nú, en þegar bærinn þurfti
á þeirri lóð að halda skömmu
seinna, fengu verksmiðjurnar í
skiptum aðra á gatnamótum
Skúlagötu og Barónsstígs. Á þeim
stað var gert ráð fyrir stórhýsi,
of stóru fyrir þessar tvær verk-
smiðjur og var þá keypt súkku-
laðiverksmiðjan Síríus, sem stofn
sett hafði verið í Danmörku fyrir
aldamótin, og framleiddi mest
súkkulaði til útflutnings til ís-
lands og Færeyja. Sú verksmiðja
var svo flutt hingað seint á árinu
1933 og hófst framleiðslan í marz
fyrir eins miklum skemmdum og j 1934. Stofnendur hinnar nýju
búast hefði mátt við. verksmiðju voru Hallgrímur
Dimmalœtting harð-
ort í garð íslendinga
Landhelgisviðrœðurnar halda áfram
Kaupmannahöfn, 29. sept.
Einkaskeyti til Mbl.
SENDINEFND dönsku stjórnar-
innar heldur til Lundúna á mið-
vikudaginn til viðræðna við
brezku stjórnina um landhelgis-
mál Færeyinga. Fastlega er bú-
izt við því, að brezka stjórnin
slaki eitthvað til miðað við fyrri
tillögu hennar.
Information segir í dag, að úr-
slit í málinu fáist áreiðanlega
fyrir Lögþingskosningarnar í Fær
eyjum í haust, eftir kosningarnar
yrði hins vegar hægt að komast
að hagstæðum samningum, því
að væntanlega verði fiskveiði-
'ur
ser
við
Faubus
WASHINGTON, 29. sept.—Hæsti-
réttur Bandaríkjanna gaf í dag
út þá tilkynningu, að ekkert ríki
og engin yfirvöld í ríkjum
Bandaríkjanna hefðu heimild til
þess að halda sérstaka skóla fyr-
ir einhvem ákveðinn kynflokk.
Það var hinn 12. september, að
hæstiréttur kvað upp þann úr-
skurð, að blökkumönnum mætti
ekki bægja frá framhaldsskólun-
um í Little Rock.
En Faubus fyikisstjóri í
Arkansas dó ekki raðalaus. Hann
lét fara fram atkvæðagreiðslu í
fylkinu um það, hvort ekki væri
rétt að leigja framhaldsskólana
einkafyrirtækjum svo að hægt
yrði að fara í kringum úrskurð
hæstaréttar. Mikill meirihluti
þeirra, sem atkvæði greiddu,
studdu Faubus.
takmarkamálið útkljáð á alþjóð-
legum vettvangi.
Ennfremur segir blaðið, að vax
andi beiskju gæti nú í Færeyjum
í garð íslendinga. Tilfærð eru
í því sambandi ummælj Dimma-
lætting þar sem sagt er, að
tilraunir dönsku stjórnarinnar til
þess að ná samkomulagi í
landhelgismálinu sé alls ekki
„hnífstunga" í bak íslend-
inga — og vísar blaðið al-
gerlega á bug ummælum danskra
og íslenzkra kommúnista þar að
lútandi. Hins vegar, segir Dimma
lætting, veittu íslendingar fær-
eysku atvinnulífi „hnífstungu",
þegar fiskveiðitakmörkin voru
færð út í 4 mílur við ísland,
Þessi ráðstöfun olli minni afia
færeyskra skipa, en 12 mílna
fiskveiðilögsagan bindur hins veg
ar endi á útgerð Færeyinga á
íslandsmið, segir blaðið.
WASHINGTON, 29. september —
Talsmaður varnarmálaráðuneyt-
isins bandaríska applýsti í dag,
að margt .benti til þess að næsta
gervitungli Rússa yrði skotið upp
af kínverskri grund hinn 1. okt.
næstkomandi, en þá er afmæli
kínverska „aiþýðuiýðveldisins“.
Mús veldur
stórslysi
FOGGIA, ítalxu, 29. september. —
Fjórir menn stórslösuðust, er
vörubifreið ók út af þjóðveginum
hér. Ástæðan til siyssins var sú,
að í bílnum leyndist mús og hljóp
hún yfir hné bílstjórans. Varð
bílstjóranum svo mikið um að
hann missti stjórnina á bílnum.
Benediktsson, Hallgr. Tuliníus,
Þorkell Björnsson, Þorkell Sig-
urðsson, Valgeir Björnsson og
Eiríkur Beck, sem var fram-
kvæmdastjóri.
Á þessum 25 árum er verk-
smiðjan búin að framleiða um 1
millj. kg. af súkkulaði. Ársfram-
leiðslan hefur verið mjög mis-
jöfn, eða 8—70 tonn á ári, en oft
hefur reynzt erfitt að fá leyfi
fyrir nauðsynlegum hráefnum.
Þegar gestirnir skoðuðu verk-
smiðjuna, skýrði Hallgrímur
Björnsson, efnaverkfræðingur,
sem tók við framkvæmdastjórn
hennar af Eiríki Beck árið 1955,
frá því hvernig súkkulaðifram-
leiðslan færi fram.
I framleiðsluna eru notaðar
kakóbaunir, kakósmjör, þurr-
mjólk, sykur og bragðbætandi
efni. Er þessu blandað saman og
það malað og slípað við ákveðið
hitastig. Vélar hafa allar verið
endurnýjaðar á síðari árum og
var því lokið 1957.
Virðuleg útíör
Magnúsar Sveins-’
sonar oddvita
REYKJUM, 28. sept. — Útför
Magnúsar oddvita Sveinssonar
var gerð í gær frá Lágafells-
kirkju, en jarðsett var í grafreitn
um gamla að Mosfelli. Þar hvílir
hann með feðrum sínum. Geysi-
legt fjölmenni var víðstatt, enda
var Magnús heitinn óvenjulega
vinsæll af öllum sem kynntust
honum. Mikill mannskaði er að
honum á bezta aldri, því að auk
oddvitastarfsins gegndi hann
fjölda trúnaðarstarfa.
Samstarfsmenn úr félagasam-
tökum og aðrir vinir báru kistu
hins látna, en bræður hans og
synir síðasta spölinn að gröfinni.
Ungmennafélagið Afturelding
heiðraði minningu Magnúsar
heitins með því, að form. fél-
agsins stóð heiðursvörð í kirkj-
unni, en hópur félaga kvöddu
hann með íslenzka fánanum er
iíkvagninn fór hjá Hlégarði.
Sóknarpresturinn séra Bjarni
Sigurðsson jarðsöng og í kirkju
söng Guðm. Jónsson, óperusöngv
ari en organisti var Hjalti Þórð-
arson. Kirkjan var fagurlega
skreytt blómum og var öll at-
höfnin hin virðulegasta. — J.
Krl=H*xrx Jótisson
umsjonarmaður í 22 ár
U msjónarmannsskipti
í sundlaugunum
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn var samþykkt
að ráða Axel Jónsson sem um-
sjónarmann Sundlauganna, en
Kristinn Jónsson, sem gegnt hef-
Axet jóne""”
hinn nýi uiuijuuoiuiaður
ur því starfi í 22 ár, lætur nú af
því fyrir aldurs sakir.
Kristinn varð umsjónarmaður
Sundlauganna þá er þær voru
gerðar upp og byggðir búnings-
klefar þeir, sem þar eru nú. Hef-
ur hann rækt starf sitt með stakri
prýði og orðið vinsæll maður.
— Starfsdagur Kristins er nú
orðinn æði langur, því er hann
gerðist umsjónarmaður Sund-
lauganna, hafði hann verið sjó-
maður í 44 ár.
Kristinn mun láta af störfum
um næstu áramót en hann er nu
79 ára að aldri og ber aldurinn
mjög vel.
Axel Jónsson hefur verið
starfsmaður í Sundlaugunum
undanfarin 5 ár. Hann sagði í
gær, að n’auðsyn bæri til að
hraða framkvæmdum við hina
nýju sundlaug, sem verður
skammt frá þeim gömlu, innan
marka íþróttasvæðisins. Byggðin
kringum laugarnar væri í stöðug-
um og miklum vexti og aðsóknin
að laugunum mjög mikil dag-
lega, en þar væri aðstaða til þess
að búa í haginn og gera endur-
bætur mjög erfið í alla staði.
Níðingsverk fram-
ið á kvígukálfi
FORMAÐUR dýraverndunarfé-
lagsins í Garðahreppi leit inn á
ritstjórn blaðsins í gær og ský’ði
frá því, að í siðustu viku hefði
verið framið niðingsverk á kvígu
kálfi á bænum Arnarnesi í Garða
hreppi. Hafði járnfleinn verið
rekinn inn í endaþarm kálfsins
með þeim afleiðingum, að þegar
að var komið var skepnunni að
blæða út. Var hún þegar sketin.
Kálfarnir þarna hafa gengið
úti í sumar og mun ódæðisverkið
hafa verið framið i skjóii nætur.
Ekki er hægt að benda á einn
eða neinn, sem þarna hefur verið
að verki, en talið er fullvíst að
þarna hafi verið á ferðinni geð-
veikur maður eða „sadisti". Er
treyst á almenning, að vera vel
á verði gagnvart slíkum óþokk-
um og gera lögreglun»i aðvart
þegar í stað, ef til þeirra sést.
%