Morgunblaðið - 30.09.1958, Page 8
e
MORCIMJLAÐIB
t»riðjudagur 30. sept. 1958
Minningarhátíð
í Fljótshlíð um
Þorstein Erlingsson
Afhjúpað brjóstlikan af skáldinu
SÍÐASTL. laugardag var afhjúp-
að minnismerki um Þorstein Er-
lingsson skáld. Var það brjóst-
mynd af honum á fótstalli. —
Minnismerki þessu hefir verið
valinn staður hjá fossinum Dríf-
anda skammt innan við Hlíðar-
endakot í Fljótshlíð. Þar hefir
verið girt af ca. tveggja ha. stórt
landsvæði og því gefið nafnið
Þorsteinslundur og er fyrirhugað
að rækta þar skóg og prýða svo
sem kostur er í kringum hið veg-
lega minnismerki. Rangæingafé-
lagið í Reykjavík hefir staðið
fyrir þessum framkvæmdum í
tilefni þess að nú eru 100 ár lið-
in frá fæðingu þjóðskáldsins.
Brjóstmyndina af Þorsteini Er-
lingssyni hefir Nína Sæmunds-
son myndhöggvari gert, en hún
er ættuð frá Nikulásarhúsum í
Fljótshlíð. Fótstallinn gerði Ár-
sæll Magnússon steinsmiður.
Fjársöfnun.
Nokkur ár eru nú liðin síðan
Rangæingafélagið hófst handa
um þetta verk. Hefir verið safn-
að fé til framkvæmdanna m. a
með því að gefa út lítið fallegt
merki sem ber mynd af sól-
skríkju. Hefir merki þetta selzt
vel. Stjórn Þorsteinssjóðs skipa
þeir Hákon Guðmundsson hæsta-
réttardómari og Jón Árnason frá
Vatnsdal. Hafa þeir staðið fyrir
fjársöfnuninni. Félagið hefir not-
ið greiðasemi og fyrirgreiðslu
ýmissra áhrifamanna og fyrir-
tækja við að hrinda málinu í
framkvæmd og tjáði formaður
félagsins öllum þeim þakkir í
ræðu er hann flutti við afhjúp-
un minnismerkisins.
Á fögrum stað.
Það var drungi í lofti og all-
mikið regn þegar athöfn þessi
fór fram og hófst hún kl. 3 síðd.
Sigurður Nordal prófessor
flytur ræðu sína um Þorstein
Erlingsson.
á laugardaginn var. Eigi að síð-
ur gekk maður ekki dulinn þeirr-
• ar miklu fegurðar er ríkir á
þessum stað. Þorsteinslundur er
á flötinni fram undan fossinum
Drífanda er sitrar fram af berg-
brúninni hátt fyrir ofan. Bergið
er þarna með gróðri vöxnum
stöllum og skartar í mörgum lit-
um og myndar ásamt fossinum
fagurt baksvið við minnismerkið.
Vart mun fínnast smekklegar
valin blettur í Fljótshlíðinni til
stofnunar Þorsteinslundar en ein-
mitt hér við kotið þar sem
„krakkar léku saman“ á æsku-
dögum skáldsins. Eftir er svo að
prýða staðinn enn meir með
gróðursetningu trjáa og mun
verða hafizt handa um það þeg-
ar á næsta vori.
Hátíðahöldin á laugardaginn
hófust með því að Hákon Guð-
mundsson bauð forseta íslands,
er sat þessa hátíð, svo og aðra
gesti, velkomna. Þá söng söng-
flokkur Rangæingafélagsins í
Reykjavík héraðssöng Rangæ-
inga undir stjórn Kristjóns
Kristjónssonar. Þvínæst flutti
Björn Þorsteinsson, formaður
félagsins, ræðu og rakti aðdrag-
anda þeirrar hátíðar er nú væri
stofnað til.
Þvínæst afhjúpaði frú Svan-
hildur Þorsteinsdóttir (dóttir
skáldsins) minnismerkið og var
um leið lagður að því blómsveig-
ur en Þorsteinn Ö. Stephensen
leikari las kvæðið „Þú ert móðir
vor kær.“
Þá flutti prófessor Sigurður
Nordal ræðu um skáldið. Séra
Sigurður Einarsson í Holti flutti
frumort kvæði, Þorsteinsminni.
Sigurður Björnsson söng ein-
söng með undirleik Ragnars
Björnssonar. Voru það eingöngu
lög með textum eftir Þorstein
Erlingsson. Þá flutti Sigurður
Tómasson oddviti á Barkarstöð-
um ávarp. Síðastur ræðumanna
var Erlingur Þorsteinsson lækn-
ir (sonur skáldsins) en hann
þakkaði fyrir hönd ættmenna
skáldsins fyrir þann heiður og
velvild er fælist í því verki, sem
hér hefði verið unnið. Þorsteinn
Ö. Stephensen las úr kvæðum
skáldsins og að síðustu söng kór
Rangæingafélagsins.
Hákon Guðmundsson þakkaði
gestum komuna og hvatti menn
til þess á komandi árum að vinna
að því að lundurinn við Drífanda-
foss mætti verða fagurt minn-
ingartákn um þjóðskáldið Þor-
stein Erlingsson.
Um kvöldið efndi sýslunefnd
Rangárvallasýslu og kaupfélög
sýslunnar til veglegrar veizlu að
Hellu.
Hér sjást börn Þorsteins Erlingssonar við styttu >káldsins þar sem henni hefir verið komið fyrir
í Þorsteinslundi hjá Hlíðarendakoti í Fljótshlíð. Til vinstri Erlingur læknir en t. h. frú Svanhild-
ur, en hún afhjúpaði minnismerkið. í baksýn fellur fossinn Drífandi fram af mosagrænum
stöllum bergsins. (Ljósm. vig.)
Hundrað ára afmœli
Brautarholtskirkju á
Kjalarnesi
Frá héraðsfundi Kjalarnesprófastdæmis
HÉRAÐSFUNDUR Kjalarnes-
prófastsdæmis var haldinn í
Brautarholti á Kjalarnesi 18.
september s.l. Fyrir fundarsetn-
ingu var helgistund í Brautar-
holtskirkju. Sóknarpresturinn,
sr. Bjarni Sigurðsson, flutti hug-
vekju, en Gísli Jónsson, organ-
isti, lék á hljóðfæn kirkjunnar.
Því næst setti sr. Garðar Þor-
steinsson, prófastur, fundinn. '
Þá tók til máls Ólafur Bjarna-
son, hreppstjóri og safnaðarfull-
trúi í Brautarholti, en á héraðs-
fundi á síðasta ári naíði hann
boöið það fram, iyrir sína hönd
og kor.y sinnar, að héraðsfundar-
inn yiði að þessu sinni haldinn í
Brautarholti í tUeíni hundrað
ára afmælis Brautarholtskirkju.
Rakti hann nú í fáum dráttum
sögu hmnar gömlu og virðulegu
kirkju og skýrði frá endurbótum
þeim og viðgerðum, sem fram
höfðu farið á kirkjunni fyrir
þessi tímamót í sögu hennar.
Voru endurbætur þessar bæði
miklar og margþættar, enda er
Brautarholtskirkja nú hið vand-
aðasta guðshús, fagurlega og
smekklega búin í hvívetna, prýdd
fjölda fagurra gripa, en marga
þeirra hefur hún nú hlotið í af-
mælisgjöf. Ólafur áætlaði, að
þessar endurbætur á kirkjunni
myndu hafa kostað um 90 þúsund
krónur, en svo höfðu sóknarmenn
verið rausnarlegir í gjöfum og
frjálsum framlögum til kirkju
sinnar, að ekki þurfti að skerða
sjóð hennar til þessara fram-
kvæmda.
Þá flutti prófastur yfirlits-
skýrslu yfir störf og viðburði í
prófastsdæminu. Á árinu voru
gerðar endurbætur og viðgerðir
á kirkjum fyrir 394.000 kr. Lága-
fellskirkja eignaðist vandað
pípuorgel og eru þá komin pípu-
orgel í fimm kirkjur í prófasts-
dæminu, en rafmagnsorgel eru í
tveimur kirkjum að auki. Messu-
gjörðir í prófastsdæminu urðu
alls 469 á árinu og altarisgestir
1905.
Miklar umræður urðu á fund-
inum að lokinni yfirlitsskýrslu
prófasts. Voru þessar tillögur
bornar fram og samþykktar ein-
róma:
1. Fundurinn beinir þeim til-
mælum til hins nýkjörna kirkju-
þings, að það hlutist til um, að
þjóðkirkja íslands komi sér sem
fyrst upp kirkjugripaverzlun, og
ennfremur, að þjóðkirkjan annist
um, að fáanlegar verði hagnýtar
upplýsingar í sambandi við kaup
á hljóðfærum og öðru, sem varð-
ar kostnaðarsamar framkvæmdir
safnaðanna".
2. „Fundurinn beinir einlægum
tilmælum til allra presta og
þeirra, sem unna málefni krist-
innar kirkju, að vinna markvisst
að auknum skilningi á eðli og
gildi altarissakramentisins og
leggja sig fram um að efla þátt-
töku í því“.
3. „Fundurinn beinir þeim
tilmælum til hins nýkjörna
kirkjuþings, að það vinni ötul-
lega að því, að kirkjur þær, sem
þegar hafa fengið rafmagn til
ljósa, eða fá það í framtíðinni,
fái einnig rafmagn til upphitun-
ar“.
Að héraðsfundinum loknum
gengu fundarmenn til heimilis
Ólafs Bjarnasonar í Brautarholti
og konu hans og þágu þar rausn-
arlegai veitingar. Undir borðum
ávarpaði prófasturinn þau hjónin
og þakkaði þeim í nafni fundar-
manna fórnfúst starf þeirra fyrr
og síðar í þágu kirkju- og safn-
aðarmála og höfðinglegar mót-
tökur þennan ógleymanlega dag.
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamri við Tempiarasund
— Frú Geirbrúður
Framh. af bls. 6.
sinni hélt hún til dauðadags og
með síðustu orðunum, sem heyrð-
ust af vörum hennar, bar hún
enn vitni því ljúfa skapferli og
lífsgleði, sem alltaf hafði ein-
kennt hana.
Hún naut líka hamingju sem
móðir átta mannvænlegra barna,
og eru nú sjö þeirra á lífi: Jóse-
fína, á Laugarbakka í Miðfirði,
Guðrún, Geir og Kristján í
Reykjavík, Ásta, í Danmörku,
Hildur og Helgi í Ameríku. Auk
þess ólu þau upp eina fósturdótt-
ur, Helgu, frændkonu manns
hennar og gengu þau henni í
foreldrastað.
Eftir að Geirþrúður missti
mann sinn bjó hún með Guðrúnu,
dóttur sinni, og voru þær einkar
samrýmdar. Sýndi Guðrún móð-
ur sinni einstaka umhyggjusemi
og ástúð til hinztu stundar.
Með þessum fáu línum sendi
ég tengdaömmu minni hjartans
kveðju og þakka henni fyrir
órofatryggð. Minningarnar um
hana munu ylja mér og fjöl-
skyldu minni þar til yfir lýkur.
Hróbjartur Bjarnason.
SENDISVEINAR
óskast nú þegatr.
*
Hf. Eimskipafélag Islands