Morgunblaðið - 30.09.1958, Page 22
22
MORCVNfíLAÐlh
Þriðjudagur 30. sept. 1958
KR sigraði glœsilega
á haustmóti KRR
Á SUNNUDAGINN fóru fram
lokaleikir haustmótsins svo-
nefnda í knattspyrnu. Fyrst léku
Valur og Fram og fóru Fram-
menn með sigur af hólmi, skor-
uðu 2 mörk gegn einu.
í síðari leiknum mættust KR
og Þróttur, og sigraði KR með
nokkrum yfirburðum, 4 mörkum
gegn 1.
Úrslit mótsins urðu þau að KR
hlaut 6 stig, Fram 2, Þróttur og
Valur eitt stig hvort. Er því sig-
ur KR giæsuegur í þessu síðasta
mcti ársins og má sannarlega
segja að liðið setji glæsilegan
endahnút í sigursælan feril í
sumar, en það hefur ekki tapað
nokkrum leik í sumar sem það
hefur háð gegn innlendu liði.
//
Litla" Luton efst
AF ÞEIM sem hafa fylgst með
ensku deildarkeppninni undan-
farin ár eru sjálfsagt sárafáir,
sem muna að Luton Town er ekki
eitt af stórliðum Englands, held-
ur lítið lið, sem berst í bökkum
ef svo má að orði komast. Fyrir
heimsstyrjöldina síðari var þetta
lið í 3. deild en hefur síðan verið
á uppleið. Liðið er nú efst í
keppninni og var engin tilviljun
að Luton sigraði Preston með
fjórum mörkum gegn einu, en
áhorfendur voru aðeins 20 þús.
Gordon Turner átti gott tækifæri
til að bæta því fimmta við en
hann skaut utan hjá úr víta-
spyrnu. Þetta var sannkallaður
vítaspyrnudagur, því Astall
(Birmingham), Crowe (Leeds),
Charlton (Man. Utd.), Bottom
(Newcastle), Wilson (Brighton)
og Clamp (Wolves) skoruðu allir
úr vítaspyrnum. Gregg markvörð
ur Man. Utd. varði vítaspyrnu hjá
Barnes (Man. City) ennfremur
varði Machedo (Fulham) eina.
Ein af þessum vítaspyrnum var
þó öllu sögulegri en hinar, nefni-
lega sú er Clamp skoraði úr.
Upphafið var, að dæmd var víta-
spyrna á Tottenham í fyrri hálf-
leik er Bill Slater íramkvæmdi
og skoraði, en dómarinn lét taka
hana aftur þar sem einn leik-
maður „Úlfanna“ hreyfðisigáður,
og enn framkvæmir Slater
spyrnuná en skaut nú hárfínt
yfir. En viti menn, enn skipar
dómarinn að láta endurtaka
spyrnuna, nú hafði einn af leik-
mönnum Tottenham verið ókyrr.
En er Slater skyldi taka spyrn-
una í þriðja sinn baðst hann ein-
dregið undan og var Eddie Clamp
fenginn til að framkvæma hana,
sem skoraði fallega upp í hornið.
Þó Clamp tækist að jafna með
þessari sögulegu vítaspyrnu, skor
aði Bobby Smith sigurmarkið
fyrir Tottenham í síðari hálfleik.
„Úlfarnir" áttu reyndar að
tryggja sér sigurinn í fyrri hálf-
leik en misnotuðu tvö til þrjú
mjög góð marktækifæri.
að auglýsing i stærsta
og útbreiddasta þlaðinu
— eykur söluna mest —
— Sími 2 - 24-80 —
Óvæntustu úrslitin eru sigrar
Aston Villa og Everton. Dave
Hickson skoraði sigurmark Ever-
ton er tvær mín. voru til leiks-
loka. Neðstu sex liðin fengu stig
á laugardag. Hinn átján ára
Jimmy Greaves skoraði þrisvar
fyrir Chelsea. Arsenal, sem lék
með tíu mönnum allan síðari
hálfleik urðu að láta í minni
pokann eftir að hafa leitt í þeim
fyrri 1:0. Bolton tapaði sínum
fyrsta leik á heimavelli. Luton
og Fulham eru einu ósigruðu lið-
in í keppninni.
í 3. deild er röðin Plymouth 16
stig, Reading 15, Swindon og
Tranmere 14 stig hvort. f 4. deild
eru York City og Northampton
efst með 15 stig hvort.
Enska landsliðið sem leikur
gegn írlandi á laugardag var val-
ið í gærdag. Liðið er talið frá
markmanni: McDonald (Burnley)
Howe (West Brom.), Banks
(Bolton), Clayton (Blackburn),
Wright (Wolverhampton) fyrir-
liði, McGuinness (Man. JJtd.),
Brabrook (Chelsea), Broadbent
(Wolverhampton), Charlton
(Man. Utd), Haynes (Fulham) og
Finney (Preston).
Úrslit á laugardag:
1. deild
Birmingham C. 4 —• Leicester C. 2
Blackburn Rovers 2 — Aston Villa 3
Blackpool 2 — West Ham Utd. 0
Bolton Wandrs 1 — Burnley 2
Chelsea 4 — Nottingham For. 1
J.ecíis Utd. 2 — Arsenal 1
Luton Town 4 — Preston 1
Manchester C. 1 — Manchester Utd. 1
Newcastle Utd. 2 — Portsmouth 0
Tottenham 2 — Wolverhampton 1
West Bromwich 2 — Everton 3
2. deild
Brighton 1 — Barnsley 1
Bristol Rovers 2 — Sunderland 1
Derby County 1 — Lincoln C. 0
Grimsby Town 2 — Huddersfield 1
Ipswich Town 0 — Stoke City 2
Leyton Orient 0 — Fulham 2
Liverpool 1 — Cardiff City 2
Middlesbrough 0 — Bristol City 0
Scunthorpe 1 — Sheffieid Wedn. 4
Sheffield Utd. 2 — Rotherham Utd. 0
Swansea Town 2 — Charlton Athl. 2
1. deild
Luton 10 4 6 0 20:9 14
Presion 10 5 3 2 21:14 13
Bolton 10 5 3 2 21:16 13
Chelsea 10 6 1 3 30:27 13
Arsenal 10 6 0 4 31:14 12
Man. Utd 10 4 4 2 26:14 12
Blackpool 10 4 4 2 13:9 12
West. Brom. .. 10 3 5 2 25:15 11
Wolves 10 5 1 4 21:17 11
Newcastle 10 5 1 4 19:19 11
West Ham. 10 5 1 4 21:22 11
Burnley 10 4 2 4 18:19 10
Biackburn 10 3 3 4 22:16 9
Birmingham .. 10 3 3 4 13:19 9
Leeds 10 2 5 3 11:17 9
Nottm. For. .. 10 3 2 5 24:22 8
Tottenham 10 3 2 5 16:22 3
Porcsmouth .. 10 3 2 5 17:25 8
Leicester 10 2 4 4 15:24 8
Man. City 10 1 4 5 15:28 6
Aston Villa .. 10 2 2 6 16:30 6
Ever ton 10 3 0 7 14:27 6
2 deild
Fulham 10 9 1 0 33:13 19
bneu. Wean. 10 8 1 1 30:11 17
Bristol City .. 10 6 1 3 23:16 13
Bristol H 10 6 1 3 21:15 13
StoKe City 10 6 1 3 20:18 13
Sheíf. Utd. .. 10 4 3 3 14:8 11
Grimsby 10 4 3 3 21:21 11
Charlton 10 4 3 3 21:22 11
Middlesuro 10 4 2 4 2u:iu 10
Liverpooi 10 4 2 4 21:15 10
Leyton Or. .. 1U 4 2 4 16:15 10
Swansea 10 3 3 4 18:16 9
Cardiff 10 4 1 5 lo:i8 9
Derby Co 10 3 3 4 16:20 9
Huddersfield 10 3 2 5 14:12 8
Ipswich 10 3* 2 5 14:16 8
10 4 0 0 14:26 8
Barnsley 10 3 1 6 17:27 7
Scunthorpe .. 10 2 3 5 14:22 7
Brighton 10 1 5 4 12:27 7
Líncoln 10 2 1 7 19:26 5
Sunderland .. 10 2 1 7 13:31 5
Valbjörn stekkur
Spaak hœttir við Banda
ríkjaför vegna Kýpur-
málsins
PARÍS, 29. sept. — Paul Henri
Spaak, framkvæmdastjóri Atlants
hafsbandalagsins, hætti skyndi-
lega við för sína vestur til Banda-
ríkjanna, en samkv. áætlun átti
hann að ræða við Eisenhower
forseta í Hvíta húsinu í dag —
og dveljast síðan um þriggja
vikna skeið vestra.
Enginn vafi leikur á því, að
ákvörðun framkvæmdastjórans
um að slá förinni á frest, er í
sambandi við Kýpurmálið — og
í dag sat Spaak fund fastaráðs
Atlantshafsbandalagsins um mál-
ið. Áður hafði það verið stað-
fest, að Spaak hefði borið fram
málamiðlunartillögu í Kýpur-
málinu eftir för sína til Aþenu
Valbjörn stökk 4,30 m
Svavar hljóp á 1.53,7
TVEIR ísl. frjálsíþróttamenn
kepptu sem gestir á hinu árlega
stórmóti í Dresden, sem haldið
er til minningar um þýzka hlaup-
arann heimsfræga Rudolf Har-
big. Voru það þeir Svavar Mark-
ússon oc Valbjörn Þorláksson.
Valbjörn varð annar í stangar-
stökkskeppni mótsins, stökk 4,30
metra.
Svavar keppti í aðalgrein móts-
ins 800 m hlaupi og varð þar sjö-
undi í úrslitum á 1:53,7. í fyrra
vann Svavar þessa keppnisgrein
mótsins og varðveitti um eins árs
skeið hinn mikla og glæsilega
bikar, sem veit'ur er sigurvegar-
anum í þessu hlaupi, sem var
„sérgrein" hlauparans sem mót-
ið er helgað.
Nánari fregnir um mótið sem
fram fór sl. sunnudag hafa ekki
borizl.
og vðiræður við gríska stjórn-
málamenn. Fastaráðið kom tvisv-
ar saman til þess að ræða málið
í síðustu viku, en opinberlega
hefur ekki verið greint frá því í
hverju málamiðlunartillaga
Spaaks er fólgin.
Hins vegar er það haft eftir
grískum heimildum, að hann hafi
m. a. lagt til, að Bretar frestuðu
enn gildistöku áætlunar sinnar
um stjórn Kýpur næstu sjö árin,
en þessi áætlun gengur í gildi í
vikunni. Vildi Spaak, að meiri
tími yrði gefinn til viðræðna við-
komandi aðila.
Brezka áætlunin gerir ráð fyr-
ir sameiginlegri stjórn Breta,
Grikkja og Tyrkja á eyjunni.
Grikkir hafa hafnað þessu alger-
lega, en Tyrkir hins vegar fallizt
að nokkru leyti á áætlunina.
Fastaráðið mun koma saman
aftur á morgun til að ræða Kýp-
ur-málið.
Enn sem komið er hafa Bretar
ekki gefið til kynna, að þeir verði
við óskum Spaaks um að fresta
gildistöku nýja stjórnarformsins
á Kýpur, en hins vegar segjast
þeir jafnan fúsir til viðræðna.
Málið var rætt á fundi brezku
stjórnarinnar í dag. Einnig ræddi
tyrkneska stjórnin það — og til-
kynnti síðar, að tyrkneski sendi-
herrann á Kýpur hefði verið út-
nefndur fulltrúi Tyrkja í stjórn
Kýpqir. Gríska stjórnin ræðir
Kýpurmálið á morgun.
Stjórn og starfsmenn Verzlunarráðs tslands. — Frá vinstri til hægri: Ólafur Ó. Johnson, Helgi
Bergsson, Haraldur Sveinsson, Baldur Jónsson, Hans R. Þórðarson, Sigurður B. Sigurðsson, ís-
leifur Jónsson, Ingólfur Jónsson, Magnús J. Brynjólfsson, Sigurður Ágústsson, Gunnar Guðjóns-
son, Þorvarður J. Júlíusson, Sveinn Finnsson, Egill Guttormsson, Hallgrímur Fr. Hallgrímsson,
Othar Ellingsen, Hjörtur Jónsson, Birgir Einarsson, Sigurður Helgason, Gunnar Friðriksson og
Páll Þorgeirsson. — Eftirtaldir aðalmenn í stjórn eru ekki á myndinni: Gunnar Asgeirsson, Sveinn
Guðrnundsson, Tómas Björnsson og Þorvaldur Guðmundsson. Varamenn þriggja þeirra eru á
myndinni. —
Þúsundasti fundur
Verzlunarráðsins
HIN nýkjörna stjórn Verzlunar-
ráðs íslands hélt fyrsta fund sínn
föstudaginn 26. þ. m. og var
hann jafnframt þúsundastj fund-
ur stjórnarinnar frá stofnun raðs-
ins 17. september 1917.
Á fundinum fór fram kosning
formanna og skipun framkvæmda
stjórnar ráðsins. Gunnar Guð-
jónsson var endurkosinn formað-
ur, Sigurður Ágústsson, Stykkis-
hólmi, varaformaður og Magnús
J. Brynjólfsson annar varafor-
maður. Auk þeirra voru tilr.eind-
ir í framkvæmdastjórnma þeir
Baldur Jónsson, Hjörtur Jónsson,
Ingólfur Jónsson og Páil Þor-
geirsson.
Áð íundinum loknum hafði
stjórnin boð inni fyrir féiaga
Verzlunarráðsins og gesti í húsa-
kynnum ráðsins, en þau hafa
nýlega verið endurbætt. Formað-
ur bauð menn velkomna og til-
kynnti, að stjórnin hefði á þús-
undasta fundinum samþykkt að
gera Garðar Gíslason, stórkaup-
mann, að heiðursféiaga Verzlun-
arráðs íslands.
Garðar GíslasoM var formaður
ráðsins frá stofnun þess 1917 tii
1934, að einu ári undanskildu
Hið stórmerka forustustarf hans
í þágu íslenzkrar verziunar og
atvinnulífs er svo kunnugt, að
óþarft er að rekja það hér.
Heiðursfélaginn þakkaði þaun
sóma, sem honum hafði verið
sýndur og ræddi nokkuð viðhorí
verzlunarstéttarinnar fyrr og síð-
ar.
í lok hófsins mælti Hannibal
Valdimarsson, félagsmámráð-
herra, nokkur þakkar- og úrn-
aðarorð.
Myndir og teppi til sýnis i Mokkakaffi
SYinunGU þeirri, sem Vigdís
Kristjánsdóttir hélt á verkura
sínum í Sýningarsalnum við
Hverfisgötu er nú lokið. Sex
verk seldust. Þar sem sýningin
stóð mjög stuttan tíma, hefur
Vigdís nú hengt upp blóma-
myndir sínar í Mokkakaffi á
Skólavörðustíg og auk þess
gobelínteppi og myndvefnaðar-
teppi, sem ekki voru á fyrri sýn-
ingunni.
AKRANESI, 29. sept. — Togarinn
Akurey kom hingað á sunnudags-
morgun af Nýju Fylkismiðum
með 228,5 lestir af karfa. Hér er
hollenskt skip, sem tekur um 100
lestir af karfamjöli. Slátrun
stendur nú sem hæst i sláturhús-
inu við Laxá og er áætlað að
slátra þar um 8,500 fjár. Þrír rek-
netjabátar fóru út héðan í dag.