Morgunblaðið - 30.09.1958, Qupperneq 23
Þriðjudagur 30. sept. 1958
MOR.GVNBL 4 Ð1Ð
23
— de Gaulle
Framh. af bls. J
millj. með de Gaulle, en 4,6 á
móti. í Alsír var kjörsóknin meiri
og yfir 95% kjósenda studdu
tillögur de Gaulle. Úrslitin í
Alsír eru mikið áfall fyrir þjóð-
ernissinna, því að kjörsókn mú-
hameðstrúarmanna var geysi-
mikil.
★
Franska stjórnin hefur nú til-
kynnt stjórninni í Frönsku-Gui-
ana, að nýlendan, sem 2,5 milljón
ir manna byggja, sé nú skilin að
skiptum við Frakkland. Allri
fjárhagsaðstoð svo og aðstoð við
stjórn nýlendunnar af hálfu
Frakka verður þegar hætt — og
franskir embættismenn munu
verða kallaðir heim þegar í stað.
Gert er ráð fyrir, að ekki líði
meira en tveir mánuðir þar til
síðasti franski embættismaðurinn
hverfur þaðan.
• Nýjar kosningar munu
fara fram í Frakklandi í nóvem-
bermánuði. Þangað til verður de
Gaulle nær einvaldur í landinu.
Að þingkosningunum loknum
verður forseti landsins kjörinn til
sjö ára af sérstökum kjörmönn-
um — og fastlega er búizt við, að
enginn annar komi þá til greina
en hinn 67 ára gamli de Gaulle.
Forsetinn mun síðan skipa for-
sætisráðherra, og sennilegt er
talið að Guy Mollet verði fyrir
valinu, því að hann hefur stutt
de Gaulle einhuga síðan hann
tók við völdum — og verið ein
helzta stoð hans.
• Nýja stjórnarskráin miðar
að því að efla völd forsetans svip
að því sem er í Bandaríkjunum.
Einnig eru völd ríkisstjórnarinn-
ar styrkt, en völd þingsins eru
takmörkuð með hliösjón af því,
að hinir mörgu flokkar og flokks
brot, sem átt hafa fulltrúa á
franska þinginu síðustu árin,
hafa valdið algeru öngþveiti í
stjórn landsins oft á tíðum. For-
setinn fær nú völd til þess að
rjúfa þing hafi það setið í eitt ár.
Jafnframt getur hann tekið
sér mjög aukin völd við
sérstakar aðstæður eftir að hafa
ráðfært sig við sérstakt ráð, sem
hann skipar í þeim tilgangi.
O—*—0
Á morgun mun de Gaulle ræða
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar á ráðuneytisfundi, en á mið-
vikudaginn heldur hann til Alsír
-— og þar bíður hans eitt aðal-
verkefni hans —- að binda endx
á styrjöldina þar. De Gaulle hef
ur ekkert viijað láta uppi um
þær ráðstafanir, sem hann hefur
í byggju, en eitt er víst, að hann
hefur nú fengið þann stuðning
þjóðarinnar, sem nægir honum
til þess að grípa til enn róttækari
ráðstafana en áður. Þetta verður
erfitt verk og mikið mun velta
á því hvort de Gaulle tekst ætl-
unarverk sitt eða ekki.. Úrslit
atkvæðagreiðslunnar eru mikill
hnekkir fyrir uppreisnarmenn, og
óefað mun sú staðreynd draga
mikið úr hjálpfýsi múhameðs-
trúarmanna við þá.
O—*—O
Mikill fjöldi stjórnmálafor-
ingja í Frakklandi fagnaði í dag
úrslitum þ j óðar atk væðagreiðsl -
unnar — og þeir, sem ekki sam-
Lögfræðingar
ræða vinnumála
LÖGFRÆÐINGAFÉLAG íslands
heldur fund í kvöld í I. kennslu-
stofu Háskólans, þar sem tekin
verður til umræðu vinnumála-
löggjöfin. Frummælendur verða
tveir, þeir Hákon Guðmundsson,
hæstaréttarritari, forseti Félags-
dóms og Vilhjálmur Jónsson hrl.
Fundurinn hefst kl. 8,30.
glöddust de Gaulle hugguðu sig
við að kommúnistar hefðu beðið
mikið afhroð. Foringjar franskra
kommúnista létu lítt á sér bæra,
en úr allum kommúnistaríkjun-
um fengu þeir siðferðislegan
stuðning og huggUnarorð jafn-
framt því sem Moskvuútvarpið
sagði, að úrslitin væru hnefa-
högg í andlit frönsku þjóðarinn-
ar og iýðræðisins.
Á Vesturlöndum er úrslit-
unum hvarvetna fagnað. Tals-
menn vestrænnar samvinnu
eru sammála um það, að nú
muni nýtt tímabil í sögu
Frakklands renna upp — og
Síðastliðinn hálfan mánuð
hefur vart komið sá dag-
ur, að ein eða fleiri flug-
vélar hafi ekki verið kyrrsettar
á Lundúnaflugvelli vegna aðvar-
ana, sem borizt hafa frá ókunn-
um mönnum, um að tímasprengju
hafi verið komið fyrir í viðkom-
andi flugvélum. Hefur brottför
þá oft seinkað um margar stund-
ir vegna leitar, sem gerð hefur
verið í flugvélunum — og í far-
angri farþega. Þessar tafir valda
ekki einungis farþegum frá
London erfiðleikum, heldur og
farþegum í þeim borgum, sem
flugvélarnar fljúga til. Hafa þess-
ar sífelldu tafir veikt mjög traust
manna á félaginu og valdið því
miklu tjóni vegna þess, að margt
fólk hefur frekar kosið að ferð-
ast með öðrum félögum fyrir
bragðið.
Auk þess sem BOAC mun halda
brottfarartímum flugvéla leynd-
um verður strangur vörður við
allar flugvélar félagsins á
Lundúnaflugvelli — nótt sem nýt
an dag. Tímasprengjum verður
samstöðu lýðræðisríkjanna
verði betur borgið. Norstad,
yfirmaður herafla Atlants-
hafsbandalagsins, lét svo um
mælt, að bandalaginu væri
styrkur að þeirri þróun, sem
í vændum væri í Frakklandi.
SÍÐUSTU FREGNIR:
Talningu atkvæffa er enn ekki
lokið, en siðustu töiur sýna, að
81,7% kjósenda hafa greitt stjórn
arskrártillögu di Gaulle atkvæði
sitt og 84,1% atkvæðisbærra
manna og kven« í Frakklandi
og ríkjum þess hafa neytt at-
kvæðisréttar sins.
því ekki hægt aS lauma um borð
nema í farangri farþega.
BOAC er svo sem ekki eina
félagið, sem orðið hefur fyrir
þessari áreitni. Pan American,
Trans World Airways og Trans
Canada Airways hafa sömu sögu
að segja nema hvað þessi félög
hafa ekki orðið jafn hart úti.
Siðast í dag var Viscount-flug-
vél frá BOAC rannsökuð hátt sem
lágt vegna aðvörunar um tíma-
sprengju. Átti flugvélin að fljúga
til Parísar með 54 farþega. Ekk-
ert fannst, en henni seinkaði um
hálfa klst. Þá fengu umboðsmenn
ítalska flugfélagsins Alitalia í
Paris aðvörun í dag um að tíma-
sprengju hefði verið komið fyrir
í DC-6 flugvél, sem þá var á
leiðinni frá London til Róm með
viðkomu í París —og var hún
þá rétt ókomin til Parísar. Var
flugvélin kyrrsett í Paris, leitað
vel og vandlega í allri vélinni svo
og í farangri og flutningi. Ekkert
fannst, en fiugvélinni seinkaði
mikið.
Hreinlætistæki - blöndunartæki
•kranar
NÍKOMIÖ:
4RABIA: W. C.
\KAlíIA: Handlaugar
Blöndunartæki
í eldhús og bað
Blöndunarkranar
í handlaugar
Botnventlar og lásar
í handlaugar
Handlaugauranar o. fl.
Ludvig Storr & Co.
Lokað allan daginn
miðvikudaginn 1. október vegna jarðarfarar
Kristjáns R. Hanssonar forstjóra.
Gólfteppagerðin hf.
Skriistofur voror
verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar
frú Geirþrúðar Zöega.
H.f. Pappírspokagerðin
Vitastíg 3.
Tímasprengju-œðið
veldur erfiðleikum
BOAC grípur til sérstakra ráðstafana
LONDON, 29. september. — Brezka flugfélagið BOAC tilkynnti
í dag, að brottfarartímar flugvéla félagsins frá London yrðu um
óákveðinn tíma „hernaðarleyndarmál“. Var ákvörðun þessi tekin
vegr.a sífelidra símahringinga og dularfullra bréfa þar sem varað
er v.ð tímasprengjum i flugvélum félagsins. Hafa þessar aðvaranir
nú valdið félagmu svo miklu fjárhagslegu tjóni og erfiðleikum,
að lengur verður ekki unað við.
Mitt innilegasta hjartans þakklæti færi ég öllum þeim
ættingjum mínum og vinum, sem glöddu mig á 75 ára
afmæli mínu þ. 20. sept. s.l.
Kær kveðja.
Ölöf Eiríksdóttir, Hverfisgötu 23.
Hjartanlega þakka ég öllum vinum mínum nær og fjær,
i sem giöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum
j á 70 ára afmælisdaginn 16. sept. s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Hermanía Brynjólfsdóttir.
Innilega þakka ég vinum og vandamönnum, sem glöddu
mig á 50 ára afmæli mínu 16. september með heimsókn-
um, gjöfum, blómum og hlýjum kveðjum. Þakka einnig
þeim félagssamtökum, er á ýmsan hátt heiðruðu mig við
þetta tækifæri og gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Hallgrtmur Th. Björnsson.
Hjartans þakkir til allra þeirra er minntust mín á
80 ára afmælisdegi mínum 24. þ.m.
Þóra Eiríksdóttir
Skerseyrarveg 2, Hafnarfirði
Alúðar þakkir flyt ég öllum vinum og vandamönnum
fyrir gjafir og heillaskeyti á 75 ára afmæli mínu 20. sept.
1958.
Helga Jónsdóttir, Núpi Selfossi.
Útför
MAGNÚSAR BJARNASONAR
sem lézt 22. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju kl. 3 mið-
vikudaginn 1. október.
Aðstandendur.
Móðurbróðir minn
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
klæðskeri,
andaðist á Sólvangi Hafnarfirði 26. þ.m.
Anna Bjarnadóttir.
Faðir okkar og tengdafaðir
EINAR BJÖRNSSON
fyrrv. verzlunarstjóri, Hverfisgötu 43, andaðist í Landa-
kotsspitalanum laugard. 27. september.
Börn og tengdabörn.
Faðir minn
HJÖRTUR VILHJÁLMSSON
frá Tungufelli í Lundarreykjadal.
lézt að Landakotsspítala 23. september. Jarðarförin
ákveðin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 3. október kl.
1,30. Athöfninni verður útvarpað.
Hannes Hjartarson.
Útíör systur okkar
KRISTlNAR B. ÞORLAKSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 1. október
kl. iy2 e.h.
Systkinin.
Maðurinn minn og faðir okkar
ÓSKAR ÞÓRÐARSON
læknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 1.
október, kl. 2 e.h.
Þeim, sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast
bent á líknarstofnanir.
Kirkjuathöfninni verður útvarpað.
Guðrún Sveinsdóttir,
Auður Óskarsdóttir, Bent Óskarsson.
Þakka hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för bróður míns
skUla JÓNSSONAR
Stykkishólmi.
Bergsveinn Jónsson.