Morgunblaðið - 30.09.1958, Side 24
M inningarhátíð
um Þorstein Erlingsson
Sjá bls. 8
Tvítugur gæzlufangi slapp úr Stein
inum en náöist seint í gœrkvöldi
Það er erfitt oð kyngja þessu!
Hatði stolið þrem bílum — Flugvél
var send til leitar í gœr
AÐFARANÓTT sunnudagsins
tókst gæzlufanga, sem hafður var
í haldi í „Steininum", að brjótast
út úr klefa sínum. Um miðaftan
í gær lék fangi þessi, sem heitir
Marteinn Ólsen og er um tvítugt,
enn lausum hala. Var þá vita^ að
hann var búinn að stela þremur
bílum á flóttanum. og um það
leyti var farið að leyta hans úr
flugvél.
Það var um klukkan fjögur
aðfaranótt sunnudagsins að
fangavörður í „Steininum" varð
þess var að Marteinn Ólsen var
á brott úr fangaklefa sínum. Kom
í ljós að fanginn hafði sagað
rimla þá, sem fyrir glugganum
eru í sundur. Tvöfaldar rimla-
grindur eru fyrir gluggum fanga-
klefanna. Hafði Marteinn með
einhverjum hætti komizt yfir
járnsagarblað, og með þessu eina
blaði sagað fjóra rimla alls í
sundur.
Næst gerist það, að rannsókn-
arlögreglunni er tilkynnt miJli kl.
4 og 5 á sunnudaginn, að jeppan-
um R-6711 hafi verið stolið. Ailur
dagurinn leið og fram yfir mið-
nætti var komið, er maður, sem
heyrt hafði tilkynningu um hvarf
jeppans, skýrði lögreglunni frá
því að hann hefði mætt stolna
jeppanum austur í Grafningi á
austurleið. Þá hafði rannsóknar-
lögreglan einnig fréttir af því að
Marteinn hefði komið við á bæ
einum í Mosfellssveit á sunnu-
daginn. Heimilisfólkið þar vissi
ekki að hann væri strokufangi,
en þar hafði hann orð á því að
hann þyrfti að skreppa austur að
Hurðarbaki í Flóa.
í gærmorgun var tilkynnt frá
bænum Búrfelli í Grímsnesi, að,
þaðan hefði verið stolið Rússa-
jeppa X-875. Það kom jafnframt
í ljós, að þar hjá bænum var
vörubíll, sem stolið hafði verið
aðfaranótt mánudagsins á Minni-
Borg. Rétt á eftir kom svo jepp-
inn frá Reykjavík í leitirnar, því
að hann stóð benzínlaus skammt
frá Minni-Borg. — í gærmorgun
lét sýslumaðurinn á Selfossi
senda menn að Hurðarbaki í Flóa.
Þegar þeir komu þangað, hafði
Marteinn komið þar við um kl.
9 um morguninn. Hafði haft
skamma viðdvöl og ekið austur.
Næst gerist það, að kl. rúmlega
12 á hádegi í gær er sýslumann-
inum á Selfossi skýrt frá því. að
stolna jeppanum frá Búrfelli I
Grímsnesi hafi verið ekið um
þorpið og vestur yfir Ölfusárbrú.
Síðan berast sýslumannsskrifstof
unni samhljóða fréttir af því að
bíllinn hafi sézt á leiðinni til
Reykjavíkur á Hellisheiði og nið-
ur í - Svínahrauni, þar sem bíl-
stjóri nokkur taldi sig hafa séð
þílinn á leið til bæjarins. En hér
kom nýtt til sögunnar, nefmlega
það, að um kl. hálf eitt i gær
voru rannsóknarlögieglumenn á
bíl í Svínahrauni, en þeir urðu
ekki varir við Martein Ólsen á
stolna jeppanum.
Síðdegis voru gerðar ráðstaí-
anir til þess að fá litia flugvél
til að skyggnast um eftir jepp-
anum.
Strokufanginn
fundinn
SEINT í gærkvöldi fékk Mbl. þær
fréttir að Marteinn Olsen, horfni
strokufanginn, hefði fundizt uppi
á Revkjum um 10 leytið og að
búið væn að flytja hann í bæinn.
Aður nafði hann sést fótgangandi
um kl. 6 á þjóðveginum skammt
írá kaupfélagsverzluninni, rétt of
an og vestan við Brúarland.
Leitin úr flugvélinni bar hins
vegar engan árangur.
Interpol rann-
sakar líka smygl-
málið mikla
SMYGLMÁLINU mikla, sem hef
ur verið til rannsóknar undan-
farnar vikur, er ekki lokið. Að
visu er yfirheyrzlum hér lokið að
mestu, sem kunnugt er af fregn-
um. Nú er annar þáttur málsins
í rannsókn, en sú rannsókn fer
fram erlendis.
Þegar hin alþjóðlega lögregla
INTERPOL hafði fregnir af
smyglmáli þessu og rannsókn
þess hér, skrifaði Þýzkalands-
deild þess sakadómaraembættinu,
og bað um upplýsingar, sem nú
hafa verið sendar. Þá hefur
INTERPOL tekið að sér að gefa
sakadómaraembættinu ákveðnar
upplýsingar í sambandi við rann
sókn málsins og er nú beðið eftir
þessum upplýsingum.
Sem kunnugt er, hafa fregnir
borizt af því að norskir sjómenn
hafi látizt eftir að hafa neytt
spírituss, sem seldur hafði verið
smyglurum í hollenzku hafnar-
borginni Rotterdam, en það er
einmitt þar sem spíritusinn var
keyptur, sem smyglað var hér á
land.
Arinbjörn fer til
Mimehen
ARINBJÖRN Guðmundsson fer
nú utan til Munchen og tekur
sæti varamanns í skáksveit ís-
lands á Olympíumótinu þar í
borg. Arinbjörn er kunnur skák-
maður, tefldi hann sem sjötti
maður í skáksveit íslands á síð-
asta Olympíumóti í Moskvu ár-
ið 1956 og fékk þar 3 l/z vinning
í fimm skákum.
KEFLAVÍK, 29. sept. — Aðfara-
nótt sl. sunnudags var framinn
hér í bæ mjög bíræfinn þjófnað-
ur. Var stolið kr. 8000,00 frá
bifreiðastjóra Kaupfélagsins,
Skúla Vigfússyni.
Skúli, er býr að Sunnubraut
13, sagðist hafa verið að vinnu
heimavið til klukkan að verða 12
á laugardagskvöldið. Áður en
hann fór að hátta gekk hann út
úr húsinu bakdyramegin og lok-
aði þar fyrir olíuleiðslu, sem er
bak við húsið. Bakdyrunum læsti
hann síðan á eftir sér og lét lyk-
ilinn standa í skránni, eins og
ávallt hefur verið vani þeirra
hjóna.
Á þriðja tímanum um nóttina
vaknaði barn þeirra, er var í
næsta herbergi við þau. Konan
fór þá að sinna barninu. Er hún
kom út úr sVefnherberginu, sá
hún að allar dyr stóðu opnar.
Vakti hún þá mann sinn, en hon-
EF ungbarnið gleypir fimmeyr-
ing eða nælu er uppi fótur og fit
á heimilinu, móðirin fórnar hönd
um og faðirinn hleypur eftir
lækni. Það má því segja, að í frá-
sögu sé færandi, að Svíi nokkur
gleypti langt á þriðja kg. af alls
kyns járnarusli — án þess að
blikna. Hann kallaði ekki einu
sinni í lækni. En þó fór svo að
í GÆR varð fyrsti árekstur-
inn, sem orsakast af hinni
ósvífnu framkomu brezku
skipanna í hinni nýju fisk-
veiðilandhelgi hér við land.
Var það Commodore Ander-
son sjálfur, sem sigldi tund-
urspillinum Hogue á brezka
togarann Northern Foam út
af Glettinganesi í gær. —
Horfðu varðskipsmenn á
Maríu Júlíu á atburð þennan
um brá mjög í brún eins og gefur
að skilja. Ekki urðu þau þess vör
um nóttina að neinu hefði verið
stolið. Það var ekki fyrr en um
morguninn, er Skúli ætlaði að
grípa til peningatösku sinnar, að
hann sá að hún var horfin. Tösk-
una hafði hann geymt undir
hjónarúminu, og hefur því þjóf-
urinn beinlínis orðið að leggjast
á fjórar fætur við hjónarúmið og
skríða inn undir það í leit að
ránsfeng sínum.
I töskunni voru peningar, er
Kaupfélag Suðurnesja átti, og
voru þar í reiðu fé rúmlega 7000
kr„ auk ávísana, kvittana og
nótna. Lætur nærri að verðmæti
innihalds töskunnar hafi verið
rúmar 8 þús. kr. Ekki er annað
hægt að segja en að þjófar gerist
nú djarfir, er þeir skríða undir
hjónarúm í leit að ránsfeng. —
— Ingvar.
lokum, að hann hafnaði í sjúkra-
húsi — vegna smá meltingatrufl-
ana. Þetta var í Nyköping í Sví-
þjóð — og sjúkrahússlæknirinn,
Dr. Rossman, sá að röntgenskoð-
un lokinni, að ekki mátti dragast
að skera sjúklinginn upp. Og úr
maga hans komu hvorki meira
né minna en 1,500 naglar og nál-
úr lítilli fjarlægð, en hún
hafði í dimmviðri verið að
leiðbeina þýzkum togara til
hafnar með veikan mann,
sem þurfti að komast í
sjúkrahús. Eftirfarandi frá-
sögn er höfð eftir skipherr-
anum á Maríu Júlíu:
Tundurspillirinn kom til
hjálpar.
María Júlía kom að tveimur
brezkum togurum, sem voru að
veiðum innan tólf mílna fisk-
veiðitakmarkanna, og var annar
þeirra Northern Foam frá Grims-
by. Dimmviðri var og slæmt
skyggni. Skipverjar á varðskip-
inu gerðu sig líklega til að fara
um borð í togarann Northern
Foam, sem samstundis kallaði á
hjálp brezks herskips vegna
yfirvofandi hættu. Til eftirlits
með brezku landhelgisbrjótunum
á þessu svæði er tundurspillirinn
Hogue, en stjórnandi hans er
Commodore Anderson. Er tund-
urspillirinn kom að skipunum á
Kópavogur
FUNDUR verður haldinn í
FuIItrúaráði Sjálfstæðisfélag-
anna í Kópavogi annað kvöld
kl. 21 í Valhöll.
Frummælandi verður Ólafur
Thors.
ar, 100 nælur, 330 tölur og hnapp-
ar, 167 smápeningar, 12 glugga-
tjaldahringir og 11 lyklar. Mað-
urinn hafði einnig etið 176 aðra
hluti, þar á meðal öngla, smá-
steina, sylgjur og hjólhestaventla.
Á meðfylgjandi mynd sjáið þið
allt draslið, sem maðurinn lagði
sér til munns. Síðan uppskurður-
inn var gerður hefur maðurinn
legið í sjúkrahúsi — til þess að
jafna sig eftir fæðubreytinguna!
mikilli ferð virtist hann ætla að
sigla á milli togarans og Maríu
Júlíu. Vék varðskipið sér þá und-
an og fór aftur fyrir togarann,
en svo mikil ferð var á tundur-
spillinum, að hann rakst aftan
til á togarann. Var höggið svo
mikið, að svo virtist sem hann
myndi leggjast á hliðina. —
Stórskemmdir urðu á bakborðs-
hlið togarans, þar sem m. a.
brotnaði bátaþilfar og björgunar-
bátur.
Af samtali milli herskipsins og
togarans, sem átti sér stað eftir
áreksturinn, var svo að skilja,
að Commodore Anderson ráð-
legði skipstjóra togarans að
hætta veiðum og fara heim til
Englands.
Ægir elti brezkan togara
Aðfaranótt mánudagsins elti
vai'ðskipið Ægir brezka togarann
Afridi, sem a. m. k. tvisvar sinn-
um hefur verið kærður fyrir
landhelgisbrot, í tæpar tvær
klukkustundir og gaf honum
stöðugt stöðvunarmerki, án þess
að því væri sinnt. Anzaði togar-
inn hvorki ljós- og hljóðmerkjum
né tveim lausum fallbyssuskot-
um.
Kom Ægir að togaranum langt
innan landhelgislínu norður
af Grímsey, en hann hélt sem
hraðast vestur og kallaði í ákafa
á hjálp berzkra herskipa. Meðan
á eltingaleiknum stóð, fékk skip-
stjóri togarans skeyti frá útgerð
sinni um að hún styddi tilraun
hans til þess að komast undan
hvað sem það kostaði. Lauk elt-
ingaleiknum kl. 3.30 um nóttina,
en þá var skollin á niðaþoka og
skipin komin 1 námunda við
tundurspillinn Decoy, sem send-
ur hafði verið togaranum til
hjálpar.
Tösku með 8000 kr.
stolið undan hjónarúmi
Bírœfinn þjófur á ferð í Keflavík
Anderson sigldi á Northern
Foam og laskaói hann stórlega