Morgunblaðið - 09.11.1958, Page 15

Morgunblaðið - 09.11.1958, Page 15
Sunnudagur 9. nóv. 1958 MORCUNBL AÐIÐ 15 - *>t KARLMANNAFOT H AUSTTÍZKAN 1958 Kaupið fötin, meðan úrvalið er nóg TIL LEIGU Glæsileg 5 herbergja íbúðatrhæð í tveggja hæða húsi í Kleppsholti til leigu nú þeg- ar. — Mjög fagurt útsýni yfir Sundin. Tilb. merkt ,4127“ sendist Mbl. fyrir n. k. þriðjudagskvöld. 4-6 herbergja íbúð óskast til leigu fyrir þýzka fjölskyldu sem fyrst. Fyrirframgreiðsla getur komið til greina. Tilboð merkt: „Iðnaður — 4129“ sendist afgr. Mbl. Sendisveinn óskast hálfan daginn nú þegar Uppl. á mánudag í verzluninni. JyUUpUZUdi, Freyjugötu 1 4 LESBÓK BARNANNA .... ' i - ■ — , Strúturinn R A SMIJ S Nú lét Kasmus Saimna og Simma búa sig út eins og Zebradýr. Ilann gekk inn á Sviðið og sagði: Herrar mínir og frúr! Hver sem þorir að stiga á bak þessum Zebrahest- um fær 1000 krónur í verðlaun, ef hann dettur ekki af baki. Allir, sem viija reyna verða að borga negrakónginum 50 krónur. Allir vildu reyna, því að hestarnir sýndust svo vel tamdir. Þá fór negrakóngurinn mcð Simma og Samma inn í tjaldið ‘og teymdi villtan Zebrahest þaðan út i staðinn. Enginn tók eftir því og allir, sem reyndu, duttu af baki. Negrakóngurinn græddi 100 þúsund krónur. Húrra, húrra, sagði Ras- mus, nú erum við ríkir. röppu tjangur Hérna getur þú lært nýjan, auðveldan leik. Allt og sumt sem þú þarft, er tröppur, einhverjir hlutir til að halda á í lófanum og svo auðvitað leikfélagi. Seztu í miðjan stigann, en sá sem þú leikur þér við stendur fyrir neðan. Fyrst setur þú hendurnar aftur fyrir bak og flytur hlutina í annan lófann, réttir þær síðan fram og lætur félaga þinn geta, í hvorri hendinni hluturinn sé. Geti hann rangt, færir þú þig upp um eina tröppu, geti hann rétt færist þú niður um eina tröppiu. Síðan lætur hann þig geta á sama hátt. Ef þú getur rétt færist þú upp um eina tröppu, — rangt, eina niður. Komist þú alla leið upp stigann, — eða hafir ekki farið alla leið niður eftir 25 umferðir, hefur þú unnið. Farir þú alla leið niður, hefur þú tapað. Á eftir skiptið þið um hlutverk. Skrítlur Eiríkur: — Hundurinn minn er mjög góður í reikningi. Pétur: — Hvernig veiztu það? Eiríkur: — Sjáðu til, ég spurði hann hvað 2-:-2 væri og hann sagði ekkert. ----•----- Óli var duglegur nem- andi, en hafði óstöðvandi löngun til að tala í tíma og ótíma. Kennarinn skrifaði þess vegna eftir farandi athugasemd í einkunnabókina hans: „Óli er duglegur en allt of málgefinn“. Daginn eftir skilaði Óli einkunnabókinni í skólann. Pabbi hans hafði skrifað undir í hana og bætt við þessu andvarpi: „Þér ættuð að hlusta á j móður hans.“ — L í N A sér um það/ Persónur: Frú Soffía, herra Jóhann, Pétur, sonur þeirra, 10 ára, kjölturakk- inn Tryggur, Lína, vinnukona, Brand- ur, dýralæknir. Leikurinn gerist í dagstofu þeirra Jóhanns og Soffíu. í stað kjölturakkans má nota tusku hund. Allir, nema Pétur, klæða sig í föt af fullorðnutn. Fyrsti þáttur Frú Soffia: (kemur inn frá hægri, lyftir upp hönd unum í algerri uppgjöf): Hamingjan hjálpi mér! Þvílíkt og annað eins! Herra Jóhann: (lítur upp úr bókinni): — Hvað er nú á seyði? Frúin: — Það er hún Lína. Hún er alveg að gera út af við mig. Jóhann: Hvað hefur hún nú gert af sér? Frúin (grípur um höf- uðið): Æ, æ, æ, höfuðið á mér. — Heldurðu ekki, að hún hafi sett ræsti- duftið í sósuna og sitji svo og fægi silfrið upp úr hveiti — æ, æ, þetta gerir mig brjálaða----- Jóhann: — Já, en kæra Soffía, reyndu að stilla þig. (Béndir á bókina). Hlustaðu heldur á það sem hér stendur: „Sýndu alltaf stillingu í orðum og gjörðum". Frúin (lyftir brúnum); Huh —, hvaða bók er nú þetta? Jóhann: Kennslubók í mannasiðum, heima og heiman. Páll læknir lán- aði mér hana. (Lokar bók inni) Ég var einmitt að enda við að lesa hana. Ég lofaði líka, að skila henni í dag. Ætli að Lína geti ekki skroppið með hana? Frúin: Hvort hún get- ur. Hérna gerir hún hvort sem er ekki annað en ein- tóm axarsköft. (Krýpur á hné við stólinn hjá Trygg, klappar honum): Aum- ingja Tryggur minn, þú ert svo mikið veikur (við Jóhann): Þá getur Lína farið með Trygg í sömu ferðinni til Brands dýra- læknis. Hann er með há- an hita. Taktu bara á nef- inu á honum. í>að er brennandi heitt. Hann hefur þó vonandi ekki hundaæði? Jóhann: Hvaða vit- leysa! Hann hefur bara gleypt fiskbein, eða hon- um hefur orðið illt af kálfslunganu, sem slátrar inn gaf honum í gær. Ef Brandur dýralæknir tek- ur hann til athugunar í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.