Morgunblaðið - 20.12.1958, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.12.1958, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. des. 1958 MORCTINRLAÐIÐ 15 BOK AÐ GJÖF LANDIfl HELU ^fbltarm Jriem GJAFABOK AB desember 1958 Þeir félagsmenn í Almenna bókafélaginu, sem tekið hafa á því ári, sem nú er að líða, minnst sex mánaðarbækur eða aðrar bækur í þeirra stað, fá eina bók ókeypis frá félaginu, bókina LANDH) HELGA, eftir Jóhann Briem. eftir JÓHANN BKIEM listmálara Þetta eru ferðaþættir frá 1951, en þá ferðaðist höfundur til Palestínu og dvaldist þar um tíma. Þættirnir eru fróðlegir og vel ritaðir, og er sérlega skemmtilegt að fylgjast með höfundi milli sögustaða biblíunnar, en einmitt þá gerði hann sér far um að heimsækja og lýsir þeim vel í máli og myndum. Landið helga er prýdd mörgum und- urfögrum teikningum eftir höfundinn og auk þess fjórum litprentunum af málverkum, og hefur Lithoprent hf., ljósprentað þau. Landið helga verður ekki seld. Verðlaunabók Almenna hókafélagsins 1958 SÆKUR TIL GJAFA GAKGRIMLAHLJÓÐID eftir LOFT GUÐMUNDSSON Þessi skáldsaga er bæði merkileg að efni og frumleg. Hún fjallar um það, hvernig mannssálin bregzt við hinum vélrænu störfum, sem nútíminn leggur oss á herðar. Sagan er hnitmiðuð að formi, einkennilega byggð upp og yfir henni leyndardómsfullir töfrar, sem hrífa les- andann eigi síður en það efni, sem hún fjallar um. Gangrimlahjólið á vissulega eftir að vekja mikla athygli og, ef að líkum lætur, flokkast undir bókmennta- afrek. Sagan er 160 bls. spAmadbrimm eftir KAHLIL GIBRAN ____ Þýðandi Gunnar Dal. Kahlil Gibran var líbanonskt skáld og heimspekingur (1883—1931). Hann var kunnur víða um heim, en frægasta verk hans er Spámaðurinn, sem kom fyrst út 1923 og hefur orðið ein vinsælasta ljóða- bók aldarinnar. Spámaðurinn hefur verið þýddur á meira en 20 tungumál og gefinn út í risastórum útgáfum. Ljóðin hafa verið nefnd „lífspeki mikils manns" og veitir það nokkra innsýn í efni þeirra. Bókin er prýdd nokkrum myndum eftir höfundinn. Stærð hennar er 104 bls. auk myndasíðna. MARÍUMYNDIM eftir GUÐMUND STEINSSON Þetta er ástarsaga eftir ungan rithöf- und. Hún gerðist suður á Spáni og bregð- ur upp ógleymanlegum myndum af elsk- endunum og hinu suðræna umhverfi þeirra. Stíll sögunnar er mjög ljóðrænn og blæfagur, sýnir mikla ritleikni þessa unga höfundar. Þetta er fagurt skáld- verk, sem allir bókmenntaunnendur þurfa að lesa og eignast. Stærð 134 bls. Félagsmenn geta fengið þessar bækur með félagsmannakjöruin hjá afgreiðslu félagsins að Tjarnargötu 16, og verður hún opin eins og verzlanir nú fyrir jólin. Almenna hókafélagið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.