Morgunblaðið - 23.04.1959, Qupperneq 9
F5mmtudagur 25. apríl 1959
MOftCVNBLAÐIÐ
,Hvert einstakt mannslíf er tak
mark # sjálfu sér'
Tómas Guðmundsson skáld, flutti
forspjall á Varðarfundi s.l. sunnudag
Landsmálafélagið Vörður efndi
sl. sunnudagskvöld til Varðar-
fagnaðar í Sjálfstæðishúsinu. Var
skemmtun þessi með sama sniði
og áður og tókst mjög vel í hví-
vetna.
Sveinn Björnsson, kaupm. og
gjaldkeri Varðar, setti Varðar-
fagnaðinn og bauð gesti vel-
komna. Hann kynnti síðan dag-
skráratriðin.
Tómas Guðmundsson, skáld,
flutti forspjall og mæltist hon-
um mjög vel og máli hans vel
tekið af áheyrendum.
Forspjallið fjallaði að megin-
hluta um samskipti einstaklings-
ins og ríkisvaldsins. f öllum lönd
um heims, sagðj ræðumaður, hef-
ur þróunin miðað í þá átt að
ganga á rétt einstaklingsins,
persónufrelsið. Ríkið verður í æ
ríkara mæli forsjón mannsins,
vakir yfir hverju fótmáli hans og
hpimtar æ meiri umráð yfir sál
hans og sannfæringu.
Þessi mannkynsfjandsamlega
þróun 'jiefuf að sjálfsögðu náð
hámarki í einræðisríkjum nútím-
ans, sem tekið hafa sér slíkan
eignarétt yfir þegnunum, að þess
eru áður engin dæmi í gögunni.
Þrælaríki fornaldar, guðveldi
miðalda og byltingar fyrri tíma
áttu að vísu líf þegnanna í hendi
,sér, en.þau höfðu engin tök á að
undiroka sálir mannanna í nein-
um sambærilegum skilningi við
það, er síðar hefur gerzt. Með
þrotlausri og lymskulegri áróð-
urstækni nútímans er ríkisvald-
inu í lófa lagið að taka hvern
einstakling í sína vörzlu allt frá
þeirri stund, er hann byrjar að
skynja tilveruna í kringum sig,
ög skammta honum upp frá því
þá fræðslu eina, er hentar skipu-
laginu .... Það er engin furða,
þó að slíkt uppeldi venji ekki
æskulýðinn á allt of mikla
heimtufrekju, að því er varðar
réttinn til persónulegrar sann-
færingar og sérþroska. I skáld-
sögu eftir rússneska rithöfundinn
Samjatin, gamlan bolshevika og
einkavin Gorkis, leitar aðalsögu-
hetjan á fund læknis til heilsu-
farslegrar athugunar, og verða
þá með þeim svofelld orðaskipti:
„Þér eruð sjúkur", segir lækn-
irinn. „Þér hugsið. Það er slæmt,
mjög slæmt. Mér kæmi ekki á
óvart, þó að það væri farið að
myndast í yður þetta, sem kallað
er sál“.
„Er það .... er það mjög
hættulegt?", stynur sjúkling-
urinn upp.
„ÓIæknandi“, svarar læknir-
inn.
En hvers vegna líka að vera að
burðast með sál í einræðisríki?
Ríkisvaldið ber þar alla ábyrgð á
þegnunum og þeim kemur ekk-
ert við, hvort þeim líður betur
eða verr. Það er einmitt í sömu !
skáldsögu og ég vitnaði til áðan,,
að fyrir koma þessi huggunarríku
orð:
„Við erum komnir til að færa
yður hina fullkomnu hamingju,
hamingju, sem er stærðfræðilega
gallalaus. Ef þér látið yður ekki
skiljast þetta, þá er skylda vor
að neyða yður til að gerast ham-
ingjusamir".
Vitanlega blöskrar okkur svona
ríkisforsjón — og þó! Höfum við
ekki líka hér vesturfrá spurnir
af einhverju, sem nefnt er vel-
ferðarríki. Við höfum reyndar i
fyrir satt, að þar sé ólíku saman
að jafna, velferðarríkið okkar á
upptök sín í mannúðlegum hug-
sjónum, en gæti samt ekki farið
svo, að umhyggja þess fyrir þegn-
unum yrði að lokum frelsi þeirra
tvíeggjað sverð? Að minnsta
kosti verður því ekki neitað, að
víðsvegar í lýðræðislöndum er
Tómas Guðmundsson
nú mjög haft á orði það, sem
hefnt hefur verið uppreisn eip-
staklihgsins, og' gæti ékki hvað
úr hverjú farið að bóla á hinu
sama í okkar litla 'þjóðfélagi?
Temur ríkið sér ékki margskonar
hegðun, sém ekki mundi þykja
göð latína í innbyrðis sdmskipt-
um þegnanna, hnýsni í einka-
mál, fjármunalega ágengni, þarf-
lausta afskiptasemi? .... Ef til
vill ér þetta framar öðru afleið-
ing þess, að rikismorall stendur
yfirleitt á lægrá stigi en einka-
siðgæði. Þetta er því hættulegra
í ungu þjóðfélagi sem það á
venjulega síður á að skipa
traustu almenningsáliti, er geti
haldið þessum ríkismoral í hæfi
legum skefjum og varnað því, að
hann smiti út frá sér meðal
þeirra, sem með völdin fara. Fyr-
ir nokkrum dögum var frá því
sagt, að velmetinn þingmaður og
varaborgarstjóri úti í Danmörku
hefði verið sviftur öllum trúnaði
fyir þá sök eina að hafa augastað
á viskýflösku, sem lá á glámbekk
í opinberri veizlu. Þegar íslenzk-
ur ráðherra hrökklast.úr embætti
þykir gott ef hann tekur ekki
alla áfengisverzlunina með sér.
Nú hef ég vitanlega engan hug
á að fara að moralisera eins og
þjóðvarnarmaður. Mig langar
ekki einu sinni minnstu vitund
til að eiga heima í alfullkomnu
þjóðfélagi. Ég ætla jafnvel, að
fátt sé vanmetnara en það vellíð-
unarspursmál frjálsra manna að
hafa eitthvað til að gagnrýna og
láta sér leyfast það ....Einnig
þess vegna er það hverjum
manni höfuðakylda að standa
vörð um persónulegt frelsi,
tryggja það gegn hvaða ofríki sem
er. Ég trúi því fullum fetum,
sagði Tómas að lokum, að hvert
einstakt mannslíf sé takmark í
sjálfu sér, og þess vegna sé öll
þjóðfélagsbarátta unnin fyrir gíg,
éf manninum sjálfum, hverjum
einstaklingi, helzt ekki uppi að
ganga með þann ólækandi sjúk-
dóm, sem heitir sál.
Að loknú forspjallinu var flutt-
ur þáttur úr leikritinu „Rekkj-
an“ eftir Jan Hartog, en leikend-
ur voru Klemens Jónsson og Guð
rún Guðmundsdóttir, en síðan
flutti Klemens gamanþátt. Leik-
urunum var mjög vel fagnað og
þótti þeim takast mjög vel leik-
urinn.
Að loknum þessum dagskrár-
atriðum var stiginn dans. Axel
Helgason stjórnaði dansinum og
gerði það af miklu fjöri og rögg-
-semi. Var á ýmsan hátt aukin
ánægjan við dánsinn, svo sem
með því að fara í skiptidans,
hringdans ö.fl. ■ Hver áðgöngu-
rhiði gilti einnig sem happadrætt
ísmiði og voru nokkrir vinnng-
ar, mismunandi að verðgildi, en
vel til þess íallnir að auka kátín-
una.
Óhætt er að fullyrða að Varð-
arfagnaður þessi hafi tekizt méð
afbrigðum vel og að fólk það
sem hann sótti hafi skemmt sér
óvenjulega vel.
Barnavinafélagið
Sumargjöf
heldur aðalfund sinn í skrifstofu Sumargjafar sunnu
daginn 26. apríl n.k. kl, 3 e.h.
Vanaleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
3/o herb. íbúðarhœð
við Álfhólsveg, Kópavogi til sölu
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
Nánari upplýsingar gefur
ÖRN CLAUSBN hdl.
Bankastræti 12. — Sími 18499.
Vönduð 4ra herb.
íbúðarhœð
108 ferm. fyrsta hæð með sér inngangi, ásamt hálfum
kjallara við Barmahlíð, til sölu.
Hitaveita væntanleg. Bílskúrsréttindi.
NÝJA FASTEIGNASALAN
Bankastræti 7 — Sími 24300
og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546
Vörubíll
óskast, helzt Ford eða Chevrolet, minni
gerðin.
Upplýsingar í síma 13107.
Amersíkur verkfræðingur giftur íslenzkri konu
óskar eftir
góðri íbuð
með effa án húsgagna. Upplýsingar í síma 14995.
Klœðskerar
Vanur klæðskeri óskar eftir atvinnu. Má vera á
fyrsta flokks verkstæði eða hraðsaum. Tilboð send-
ist Morgunbl. fyrir 30. þ.m. merkt: „Reglusamur
— 9681“.
4 herb. og eldhús
óskast frá 14. maí rí.k., helzt á hitaveitusvæðinu.
Þrennt fullorðið í heimili. Tilboð merkt:: „Maí 1959
— 9670“ sendist afgr. Mbl. fyrir 26. þ.m.
Barnadagurinn er í dag
opið frá kl. 10—1.
Félag blomaverzlana
Notið fritímann
málið sjálf
INNIMÁLNING
Plast og gúmmímálning
Hörpusilki — Spred-sadin
Vitretex.
allir litir
Alabastine — fyllir.
ÚTIMÁLNING,
ÞAKMÁLING, rauð og græn, einnig máln-
ing á glugga og grindverk.
Birolía, Carbólin, Blakkfernis,
Plasttjara, Koltjara, Hrátjara,
Viðarolía (Trekk fast olía).
Ryðvairnarefnið FERRO-BET
PENSLAR
Flatir lakk-penslar, Hringpenslar,
Hjólhestalakk-penslar, Strik-penslar,
Ofna-penslar, Lím-penslar, Málningarkústar
Kalkkústar, Hreingerningarkústar,
Tjörukústar, Stálburstar, Kíttisspaðar, ‘
Sandpappír, Smergilléreft.
Verzlun
O. ELLINCSEN