Morgunblaðið - 23.04.1959, Blaðsíða 22
22
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 23. apríl 1959
RóSrarfélag Reykjavíkur
EINS og undanfarin ár, hefjast
útiæfingar Róðrarfélags Reykja-
víkur á Sumardaginn fyrsta, og
verða með svipuðu sniði og und-
anfarin sumur.
Róið verður úr Nauthólsvík við
Skerjafjörð og verða almennar
Drengjahlaup
UMFK 1959
HEÐ árlega drengjahlaup Ung-
mennafél. Keflavíkur fór fram
sunnudaginn 19. apríl. Þátttaka
í hlaupinu var góð, eins og
ávallt áður ,eða 20 keppendur.
Hlaupaleiðin var sú sama og und
anfarin ár en hún er kringum
2000 metra löng. í hlaupinu var
keppt um tvo bikara. Hlýtur sig-
urvegari hlaupsins annan en
hinn það félag sem sigrar í
þriggja manna sveitarkeppni.
Sigurvegari hlaupsins að þessu
sinni var Hólmbert Friðjónsson
UMFK. Tók hann þegar í upp-
hafi hlaupsins forustuna og hélt
henni út allt hlaupið. Tími Hólm-
berts var 5.52,0 mín. í fyrra sigr-
aði Hólmbert einnig í þessu
hlaupi og þá á 5.59,8 mín.
Fyrstu 10 menn í hlaupinu
urðu þessir:
1. Hólmb. Friðjónss. Umfk5.52,0
2. Marg. Sigurbj.ss. Umfk 6.02,0
3. Ólafur Gúnnarss. Umfk 6.16,0
4. Kjartan Sigtr.ss. Umfk 6.22,0
5. Agnar Sigurv.ss. Umfk 6.30,0
6. Hörður Karlsson Kfk 6.31,0
7. Ragnar Guðlaugss. Kfk 6.31,5
8. Magni Sigurhanss. Kfk 6.38,0
9. Einar Magnússon Umfk 6.38,5
10. Guðm. Guðmundss. Kfk 6.39,0
1 þriggja manna sveitarkeppni
sigraði UMFK með 6 stig. Önnur
varð B-sveit UMKF með 18 stig
og þriðja sveit KFK með 21 stig.
Keflvíkingar munu senda 8
keppendur í drengjahlaup Ár-
manns sem fer fram n.k. sunnu-
dag.
Knattspyrnumólin
að hef jast
K.R og Þróttur keppa
í dag
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í knatt-
spyrnu hefst í dag kl. 4.30 á
Melavellinum og leika þá KR og
Þróttur. Dómari verður Einar
Hjartarson.
Flest félaganna hafa æft vel
undanfarnar vikur og leikið
nokkra æfingaleiki í meistara-
flokki. Valur hefur náð beztum
árangri, sigrað Fram með 1:0 og
KR með 2:0, KR hefur sigrað
Víking með 5:1 og Fram hefur
sigrað Þrótt með 10:0.
Tveir kunnir knattspyrnumenn
hafa skipt um félag, Halldór
Halldórsson úr Val, hefur ákveð-
ið að keppa með Þrótti í sumar,
og mun hann jafnframt þjálfa
hjá Þrótti. Þá hefur Albert Guð-
mundsson tilkynnt, að hann
muni keppa með Val í sumar. Þó
mun hann ekki hafa réttindi til
þess að leika fyrir sitt gamla fé-
lag fyrr en eftir 20. maí.
Næsti leikur verður síðan á
sunnudag og leika þá Valur og
Víkingur. — (Frá K.R.R.)
Handknattleiks-
mótið
ÍSLANDSMÓTINU í handknatt-
leik verður fram haldið annað
kvöld. Þá verða leiknir eftirfar-
andi leikir:
Mfl. kv. Ármann — —Valur.
Þróttur — Fram. — Mfl. karla
Valur — Ármann. — 2. fl. karla
FH — Fram (úrslit).
æfingar tvisvar til þrisvar í viku
og er þá öllum karlmönnum frá
14—70 ára heimil þátttaka. Æf-
ingatími mun verða auglýstur í
Mbl. undir „Félagslíf“ innan
skamms.
Þeir ræðarar, sem lengra
eru komriir, og hafa ef til vill
hugsað sér að taka þátt í keppn-
um á sumrinu æfa að sjálfsögðu
oftar.
f vetur hefur Róðrarfélag Reykja
víkur haft æfingar í íþróttasal
Miðbæjarskólans einu sinni í
viku. Hafa þessar æfingar orðið
til ómetanlegs gagns fyrir félag-
ið. Þær gera mönnum kleift að
halda sér í þjálfun allan veturinn.
Eins og vitað er, þá er róðrar-
íþróttin sumaríþrótt a.m.k. hér á
landi. En með þeim áhöldum sem
notuð eru við innanhússæfingar,
verða átök á vöðvum líkamans
þau sömu og mundu verða ef ró-
ið væri í bát.
Ýmsar æfingar eru og gerðar
að auki til styrktar þeim vöðv-
um, sem mest á reynir, þá er ró-
ið er.
Að auki hefur þol ræðara verið
aukið með hlaupum.
Fyrstu æfingar Róðrarfélags
Reykjavíkur verða eins og að
framan greinir í dag, og hefjast
kl. 2 í Nauthólsvík. Allir þeir,
sem áhuga mundu hafa á að kynn
ast þessari fögru íþrótt eru hvatt-
ir til að mæta á æfinguna. Gott
væri ef þeir sömu hefðu með sér
íþrótabúning eða vinnubuxur og
peysu til að róa í. — Aðalfundur
félagsins var haldinn nýlega og
var mik-ill áhugi fyrir væntanleg-
um æfingum ríkjandi. — G. Ól.
Ball ettd ansmærin
farin frá Panama
Lundúnum, 22. apríl. —
í DAG var brezka ballett-
dansmærin Margot Fonteyn
leyst úr varðhaldi og henni
leyft að fara heim til Bret-
lands. Fór hún með flugvél
þegar í stað. *
Panamastjórn sagðist harma,
að hún skyldi þurfa að skipta sér
af ferðum brezks þegns í Panama,
en það hafi verið nauðsynlegt
vegna öryggis ríkisins. Stjórnin
neitar, að dansmærin hafi verið
sett í fangelsi en geta má þess í
því sambandi, að hún var höfð í
stofufangelsi heima hjá yfir-
manni leynilögreglu landsins í
fyrrakvöld og síðan svaf hún í
fangelsinu í Panamaborg um nótt
ina. Þá heldur stjórnin því fram,
að dansmærin sé flækt í bylting-
aráform til að steypa Ernesto de
la Guardia forseta af stóli. Segir
stjórnin, að byltingin hafi átt að
hefjast um leið og herlið frá
Kúbu gerði innrás í landið.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í fréttum, er dansmærin gift
dr. Roberto Arias, fyrrum sendi
herra Panama í Lundúnum, en
hann er sagður fyrirliði bylting-
armanna. Frúin er sögð hafa ver-
ið um borð í fiskibátnum Nola,
ásamt manni sínum og hafi báts-
verjar, ásamt skipshöfninni á tog-
aranum Elaine, reynt að smygla
vopnum á land í Panama. Dr.
Arias komst undan, en lögreglan
hafði hendur í hári frúarinnar.
Handtaka dansmeyjarinnar
vakti mikla athygli, enda eru
konur frægra stjórnmálamanna
mjög sjaldan fangelsaðar í Pan-
ama.
Ekki er vitað um dvalarstað dr.
Arias, en sumir haf da, að hann
hafi komizt undan til útlanda.
Aðrir fullyrða aftur á móti, að
hann hafi farið í land í Panama
af Nola í litlum báti. Hann er
sonur dr. Harmodios Arisa, sem
er einn af helztu málflutnings-
mönnum Panama og að áliti La
Guardia forseta, skæður stjórn-
arandstæðingur.
Undanfarið hefur staðið yfir sýning á verkum eftir tvo unga
listamenn í „Mokkakaffi“ á Skólavörðustíg. Eru það þeir Þor-
lákur Haldorsen (h. h. á myndinni) og Guðmundur Karl Ás-
björnsson (t. v.) Málverkið á milli þeirra heitir „Brimlending“
og er eftir Þorlák Haldorsen.
* Akurnesingar draga
þorsk upp við landsteina
AKRANESI, 22. apríl. — Tuttugu
þorskanetjabátar lönduðu hér í
gær 247 lestum. Minnstur afli var
4 lestir, en aflahæstir voru þess-
ir: Höfrungur með 32 lestir, Sig-
urvon með 31,5, Sigrún með 25,6
og Sæfari með 24,7. í gær reru
hér 14 trillubátar og fengu alls
23 lestir. Hæst var Sæljón með
rúmar 2 lestir, Freyr og Ægir
höfðu 2 lestir hvor og Reynir
fékk 1,5 lest.
Þrír unglingsdrengir reru kl.
átta í morgun og komu að kl. 3
í dag með 1 þús. kg., er þeir
drógu úti hjá baujunni, sem er
rétt út af Suðurflasartagli. Tveir
menn xeru í morgun á tveggja
tonna trillu á sömu slóðir. Þeir
komu að landi kl. 11 f.h. með
800 kg. Reru þeir svo aftur e.h.
og fengu samtals lVz lest í þess-
um tveimur róðrum. — Og
einn á báti fékk á 3 klst. 700
kg. Þorskurinn var svo grunnt,
að hægt var að sjá, þegar hann
tók önglana.
Þetta er annar dagurinn, sem
þorskurinn gefur sig svona til.
— Oddur.
Hafnarfjarðar-
deild B.F.Ö.
stofnuð
SL. fimmtudagskvöld var hald-
inn stofnfundur Hafnarfjarðar-
deildar Bindindisfé.lags öku.
manna, en í fyrra mánuði var
kjörin sérstök nefnd til þess að
undirbúa stofnun félagsins. —
Stofnfundurinn var vel sóttur og
voru stonfélagar 50 talsins.
Kosin var stjórn deildarinnar
og er hún þannig skipuð:
Formaður, Ásgeir Long, vél-
stjóri, og meðstjórnendur þeir
Árni Gunnlaugsson, hdl., og Jón
Jóhannesson, trésmiður. Vara-
menn í stjórn eru þeir Pétur
Óskarsson, verkamaður og Ólaf-
ur G. Gíslason, verzlunarmaður.
Sem gestir á fundinum voru
mættir þeir Ásbjörn Stefánsson,
framkvæmdastjóri B.F.Ö., og Sig-
urgeir Albertsson, forseti B.F.Ö.
Fluttu þeir fundinum ávörp og
deildinni árnaðaróskir.
Mikill áhugi ríkti á fundinum
á aðalmálefnum Bindindisfélags
ökumanna, sem er algert bindindi
og efling umferðarmenningar.
Víðavangshlaup
Meistaramótsins
VÍÐAVANGSHLAUP Meistara-
móts íslands í frjálsum íþróttum,
verður háð í Borgarnesi að þessu
sinni á vegum Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar.
Hlaupið fer fram 10. maí næst-
komandi og þátttökutilkynningar
þurfa að berast í pósthólf 1099,
Reykjavík fyrir 5. maí n.k.
(Fréttatilkynning frá FRÍ)
Horfur á mildu
veðri í dag
AÐþví er Veðurstofan tjáði blað
inu í gær, voru horfur á, að í dag
yrði austangola, dumbungsveður,
en rigningarlítið og milt, 6—9
stiga hiti. - -
Myndin sýnir kórinn í hinni nýju kirkju Óháða safnaðarins. T.h.
á myndinni sést skírnarfonturinn, sem Ásmundur Sveinsson
myndhöggvari gerði. Altarisklæðið gerði Unnur Ólafsdóttir.
Fonturinn og klæðið eru hvort tveggja mjög fallegir gripir.
Kirkja Óháða satnaðar-
ins við Háteigsveg vígð
í dag
KL. 2 í dag vígir biskup fslands,
herra Ásmundur Guðmundsson,
hina nýju kirkju Óháða safnað-
arins við Háteigsveg. Má búast
við, að mikið fjölmenni verði við
vígsluathöfnina.
Athöfnin hefst með klukkna-
hringingu. Þá ganga prestar í
skrúðgöngu í kirkju og bera muni
kirkjunnar, og verður biskup-
inn í fararbroddi.
f upphafi vígsluathafnarinnar
verður fluttur kafli úr Vígslu-
kantötu eftir Karl O. Runólfsson,
tónskáld, undir stjórn Jóns fs-
leifssonar. Einsöngvari verður
Kristinn Hallsson, en Einar
Sturluson syngur stólvers. Þessi
kantata er samin sérstaklega fyr-
ir þetta tækifæri og jafnframt
vígsluljóð við hana. Séra Emil
Björnsson, prestur Óháða safn-
aðarins, orti vígsluljóðin.
Vígsluvottar við athöfnina
verða séra Jón Auðuns, dómpró-
fastur, séra Jón Thorarensen,
prófessor og séra Kristinn Stef-
ánsson, Fríkirkjuprestur í Hafn-
arfirði. Biskupinn flytur vígslu-
ræðuna og safnaðarpresturinn
prédikar.
Kirkjuna vantar ennþá pípu-
orgel, og að vígsluathöfninni
lokinni gefst þeim, sem vilja,
kostur á að leggja eitthvað fram
x sjóð til orgelkaupa.
Ánægjuleg h\öld-
vaka Norræna
félagsins
NORRÆNA félagið í Reykjavík
efndi til kvöldvöku í Þjóðleik-
húskjallaranum fimmtudags-
kvöldið 16. apríl í tilefni þess
að um þessar mundir eru liðin
40 ár síðan norrænu félögin í Dan
mörku, Noregi og Svíþjóð voru
stofnuð.
Kvöldvakan hótst með því, að
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri flutti ávarp. Stuttar ræður
fluttu Bjarne Börde sendiherra
Norðmanna, Jens Ege sendiráðs-
ritari við danska sendiráðið og
prófessor Sven B.F. Jansson frá
Stokkhólmi. Frú Britta Gíslason
söng norræn lög með undirleik
dr. Páls ísólfssonar. Fil. mag. Kai
Sanila. frá Helsingfors las ljóð
frá Finnlandi og loks flutti Karl
Guðmundsson, leikari, gaman-
þátt, sem ekki hefur verið flutt-
ur áður opinberlega. Að lokum
var svo stiginn dans.
Kvöldvakan var vel sótt og
hin ánægjulegasta.
STÚDENTAR 1939 frá M.R. eru
beðnir að mæta á fundi í Þjóð-
leikhúskjallaranum kl. 8,30 á
föstudagskvöldið.