Morgunblaðið - 23.04.1959, Qupperneq 24
VEDRID
Anstangola eða kaldi. Dpumb-
ungsveður og dálítil rigning.
f yrarbakkastúlkan
Sjá bls. 8.
91. tbl. — Fimmtudagur 23. apríl 1959
Stöðugt mikill tiskur og mikil
vinna i Vestmannaeyjum
VESTMANNAEYJAR 22, apríl.
I — Það hefur verið goðui afli það
I sem af er þessum mánuði og í
gær, hafði komið hér annar mesti
afladagur vertíðarinnar, og bor-
izt mikill fiskur á land. Var þá
allur þorri bátanna með 2000—
3000 fiska, og hæstu bátar með
yfir 5000 fiska. Gífurleg vinna
hefur að sjálfsögðu verið við
hagnýtingu aflans og hér er dag-
lega unnið 16—18 klst. á sólar-
hring.
J Þó að góður afli sé að heita
má dag hvern, þá er aflinn á-
kaflega misjafn á bát. Sem dæmi
má nefna að bátur sem var með
50 tonn á mánudaginn var með
lítinn sem engan afla á þriðju-
daginn. Meir að segja hinn mikli
aflabátur Gullborg, er var með
1 rúmlega 7000 fiska á mánudag-
inn, var aðeins með um 1200 á
þriðjudaginn.
Hér er mikill skortur á vinnu-
afli um þessar mundir. í morgun
var skólanemendum gefið frí til
þess að starfa við fiskinn, því að
það er fleira sem kallar að en
losun aflans úr bátunum og
vinnsla hans í fiskiðjuverunum.
Hér er í dag einnig skip, sem
losar salt, annað að lesta freð-
fisk og hið þriðja sem lestar
hrogn.
Ofan á þessa erfiðleika bætist
svo það, að sumt af vertíðar-
fólkinu sem hingað kom í verið,
er nú á förum og sumt farið. Er
þetta eðlilega mjög bagalegt fyr-
ir atvinnulífið hér, að framleiðsl-
an skuli þurfa að dragast saman,
þegar svo mikill fiskur berst að
sem raun ber vitni.
Hér er unnið jöfnun höndum
við flökun fisksins til frystingar
og við söltun. Talið var að aflinn
væri eitthvað minni í dag.
— Bj. Guðm.
Utilegubátar
frá Reykjavík
í GÆRDAG komu hingað til
Reykjavíkur tveir útilegubátar
voru það Hafþór og Rifsnesið.
Voru báðir báíarnir með góðan
afla, og var fiskurinrr ýmist einn-
ar- eða tveggja nátta fiskur, og
fór sá til herzlu, en hinn til fryst
ingar. Hafþór var með 70—80
tonn, en Rifsnesið með 45 tonn af
hvoru slægðu og óslægðu.
í einu helzta hraðfrystihúsinu
hér við Reykjavík, ísbirninum,
voru í gær miklar fjarvistir með-
al starfsfólksins, vegna inflúenzu
faraldursins sem hér geisar.
í gærkvöldi var verið að losa
við gömlu verbúðarbryggjurn-
ar trillur er verið höíðu hér úti
í Flóanum. Voru þær með hlað-
afla, og taldi trilluformaðurinn,
sem biaðamaður frá Mbl hitti, er
hann var að landa úr bác sínum,
að aflinn myndi vera svipaður og
í gær kringum 1,5 tonn. Allt var
þetta sérlega fallegur færafiskur,
allt þorskur og sumir_mjög væn-
ir, enda hafði trillufórmaðurinn
orð á því, að þeir hefðu blessaðír
verið líflegir er þeir kipptu í fær-
ið hjá honum.
Þilfarsbátar voru þá í óða önn
að koma inn og virtust vera með
góðan afla líka.
Upphoð á víni ólöglegt
Skemmtiskrá stúdentafélaganna rœdd
á Alþingi
ÁÐUR en gengið var til dagskrár
í neðri deild Alþingis í gær
kvaddi Pétur Ottesen sér hljóðs.
Kvað hann sig langa til að bera
fram fyrirspurn til dómsmálaráð
herra vegna fréttar í Mbl. í gær
morgun um sumarfagnað stú-
denta, en þar væri komizt svo
að orði m.a.:
„Meðal skemmtiatriða verður
nýstárlegt uppboð, sem Sigurður
Benediktsson stjórnar. Verða þar
boðnar upp nokkrar flöskur af
fyrsta flokks áfengi, sem ýmsir
þjóðkunnir menn hafa áritað eða
myndskreytt. Meðal þeirra eru
Jóhannes Kjarval, Sigurður Nor-
dal, Tómas Guðmundsson og Jón
Nýkjörinn
biskup hylltur
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ hélt
norski háskólakennarinn dr. Carl
Fredrik Wislöff erindi í húsi
K. F. U. M., og var þar húsfyllir.
Að erindinu loknu gat fundar-
stjórinn, Bjarni Eyjólfsson rit-
stjóri, þess að hinn nýkjörni bisk-
up, Sigurbjörn Einarsson prófess-
or, væri meðal fundarmanna og
bað menn hylla hann. Risu menn
úr sætum og vottuðu hinum ný-
kjörna biskupi virðingu sína.
Pálmason. Má búast við skemmti
legri baráttu um þessa fágætu
muni“.
Kvaðst Pétur Ottesen vilja
spyrja dómsmálaráðherra, hvort
hann hefði veitt þessari frétt at-
hygli og hvort hann teldi, að
slíkt uppboð bæti samrýmzt
áfengislöggjöfinni.
Friðjón Skarphéðinsson, dóms-
málaráðherra sagði, að félög þau,
sem hefðu stofnað til þessa upp-
boðs, hefðu vafalaust gert það að
óathugðu máli. Þau hefðu ekki
haft leyfi frá ráðuneytinu til upp
boðsins, enda bryti það í bága
við lög. Hefði ráðuneytið þegar
gert ráðstafanir til þess að koma
í veg fyrir að uppboð þetta færi
fram.
Jarðhitarann-
sóknir í Kópavogi
SL. ÞRIÐJUDA® var hafizt
handa um jarðhitarannsóknir í
Kópavogi. Samkvæmt upplýsing-
um frá dr. Gunnari Böðvarssyni
forstöðumanni jarðhitadeildar
Raforkumálastjórnar, er fyrir-
hugað að bora 2 ca 30 metra
djúpa holu í tilraunaskyni.
Ef um jákvæðan árangur verð
ur að ræða má vænta frekari
framkvæmda. — Fyrst verður
borað á Kársnesi og síðan í aust-
bænum. — Axel.
„Er þér kalt, vinur?“ spurði ljósmyndarinn. „Ég er enginn
strákur, ég heiti Guðrún“, svaraði hnátan, en henni var þó hálf-
kalt — enda var sumarið þá ekki komið.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
ísbrúnin nokkru fjœr
VestfjörBum en venju-
legt er
í MARZMÁNUÐI var mikið um
ísrek á hafinu hér norður undan.
Var ísinn kominn ískyggilega
langt austur milli Jan Mayen og
Langaness, en þá er hætt við, að
hann lendi í Austur-íslands-
straumnum, reki suður að Langa
nesi og suður með Austfjörðum.
Þetta óvenju mikla ísrek mun
hafa stafað af því, að mikið var
þá um vestanátt þar nyrðra, og
hefir ísinn því rekið frá Græn-
landi austur um Jan Mayen.
Eftir það brá til austlægari
áttar þar nyrðra, hefir ísinn lónað
vestUr á bóginn upp að Græn-
landsströnd, og fylgir ísbrúnin
nú nokkurn veginn þeim tak-
mörkum, sem eru talinn venjuleg
í aprílmánuði, að því er Jón Ey-
þórsson, veðurfræðingur tjáði
blaðinu í gær. Þó er ísbrúnin
nokkru fjær Vestfjörðum en
venjulegt er á þessum tíma árs.
Sagði Jón Eyþórsson, að laust
fyrir miðjan þennan mánuð hefði
hornið á ísbrúninni verið um
90 sjómílur norður af Langanesi
og hefði legið þaðan hér um bil
beint vestur um 20 sjómílur norð
ur af Kolbeinsey og um 60 sjó-
mílur norður af Horni, en þaðan
suðvestur á 65. gráðu norðl.
breiddar og 32. gráðu vestl. lengd
ar.
Við suðurodda Grænlands náði
ísröstin um 60 mílur til suðurs,
og það er einnig mjög nærri því,
sem venjulegt er talið um þetta
leyti árs.
Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins
í DAG hefst sala á miðum í nýju
happdrætti, Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins, sem fjár-
málaráð flokksins efnir til, og
mun það standa yfir um nokk-
urra mánaða skeið, eða til 1. des-
ember nk. Er þetta stærsta og
glæsilegasta happdrættið, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur stað-
ið fyrir. Vinningar eru 20 talsins,
samtals að verðmæti kr. 315,460,-
00 og hefur verið vandað til
þeirra eftir föngum. Verð hvers
miða er 50 krónur, og verða mið-
Byrjað að leggja há-
spennulínu til Keflavíkur
SKAMMT fyrir sunnan Hafnar-
fjörð er nú hafin lagning nýrrar
háspennulínu um Suðurnesin og
verður þetta meir en helmingi
öflugri lína, en sú sem nú er
notuð.
Það eru Rafmagnsveitur ríkis-
lhs sem sjá um lagningu þessar-
i ar nýju háspennulínu. Hún verð
| ur alls 43 km. löng, og verður
: lögð frá Elliðaánum og suður í
► Keflavík. Þaðan verður lögð há-
| spennulína upp á Keflavíkurflug
' völl.
Þessi nýja lína verður lögð
kippkorn frá þeirri gömlu. Gamla
línan er íyrir 30 kílovolta straum
en nýja háspennulínan verður
fyrir 66 kílóvolta straum.
Tveir 15 manna flokkar eiga að
reisa línuna og verður það gert
frá báðum endum linunnar, þ.e.
a.s. að annar flokkurinn byrjar
nú skammt fyrir sunnan Hafnar-
fjörð, en hinn flokkurinn mun
byrja innan skamms suður við
Keflavík.
Gert er ráð fyrir að línan verði
fullgerð nú á þessu sumri. Bene-
dikt Gunnarsson verkfræðingur,
hefur yfirumsjón með lagningu
línunnar. Er nær allt efni til
hennar þegar komið til landsins,
t.d. allir staurarnir, en það eru
tréstaurar og bera þrjár karft-
línur.
ar seldir hjá 30—40 umboðsmönn
um um land allt, bæði í sveitum
og kaupstöðum.
Farið inn á nýja braut
Eins og kunnugt er, hafa happ-
drætti Sjálfstæðisflokksins á und
anförnum árum verið með því
sniði, að gefnir hafa verið út til-
tölulega fáir miðar, sem kostað
hafa 100 krónur hver, og vinn-
ingurinn hefur verið einn, venju-
legast fólksbifreið.
Með Landshappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins er hins vegar
farið inn á nýja braut, og er þess
vænzt, að það fyrirkomulag mæl
ist ekki verr fyrir en hið fyrra.
Vinningar eru nú margir, og
verð hvers miða er helmingi
minna en verið hefur. Þá er lögð
áherzla á að happdrættið nái sem
víðast um landið, þannig að sem
flestum gefist kostur á að styðja
Sjálfstæðisflokkinn í þeirri bar-
áttu og sókn, sem fram undan
er og stuðla að sem mestri starf-
semi Sjálfstæðisfélaganna um
land allt um leið og þeir skapa
sér vinningsmöguleika. Því hafa
nú verið fengnir umboðsmenn í
sveitunum, en fyrri happdrætti
hafa mest verið bundin við kaup-
staði og kauptún.
Skrifstofa happdrættisins í
Reykjavík verður opnuð á næst-
unni í Morgunblaðshúsinu, II.
hæð, og verður skrifstofutíminn
fyrst um sinn kl. 1—6 e. h. alla
virka daga, nema laugardaga,
'kl. 9—12 f. h., sími 17104.
Vinningaskrá
Rambler-station-bifreið, módel 1959
Braun-radíógrammófónn
Góðhestur
Philco-kæliskápur
Farmiði: Reykjavík — New York og heim
Farmiði: Reykjavík — New York og heim
Grundig-segulbandstæki
Farmiði fyrir tvo með Gullfossi til Khafnar og heim
Hoover, sjálfvirk þvottavél með þurrkara
Pfaff, sjálfvirk saumavél í tösku
Gólfteppi
Kvikmyndasýningarvél með tjaldl
Rafha-eldavél
Farmiði með Gullfossi til Kaupmannahafnar og heim
Shellgas-eldavél með bakaraofni og 10 kg. hleðslu
Kvikmyndaupptökuvél
14 feta flugustöng með hjóli
Passap Automatic-prjónavél með kambi
Armstrong-strauvél
General Electric-hrærivél
175,000,00
19,500,00
15,000,00
12,000,00
8,620,00
8,620,00
8,500,00
8,440,00
8,250,00
8,200,00
7,500,00
6,000,00
6,000,00
4.220,00
4,100,00
4,000,00
4,000,00
3,410,00
2,950,00
1,150,00