Morgunblaðið - 25.09.1959, Blaðsíða 2
r MORFVl\Ttr/aÐlr
Fðsfudagur 28. sept. 1959
Z
Mæður kærðu ökumenn
fyrir ofsaakstur í návist barna
Annar þeirra dæmdur í 2500 króna sekt
TVEIR menn, sem í gærdag gerð-
ust sekir um hættulegan akstur
í einu íbúðarhverfanna í bænum,
voru síðdegis í gær, dæmdir í
háar fjársektir fyrir hinn háska-
lega akstur sinn. Mun sjaldan
hafa verið beitt jafnháum fjár-
sektum fyrir slíkt brot. Var ann-
ar maðurinn 'dæmdur í 2500 kr.
sekt.
Upp á síðkastið hafa fjársekt-
ir fyrir ýmis konar brot gegn
umferðalögunum verið hækkaðar
verulega, að því er Mbl. frétti
í gærkvöldi. Mun þetta vera til-
raun dómstólanna til þess að
spyrna við gáleysi og kæruleysi
manha í umferðinni.
f gærdag tóku húsmæður í einu
íbúðarhverfanna hér í bænum
eftir því að tveim bílum var ekið
hratt í námunda við barnahóp.
— Gerðu mæðurnar lögreglunni
aðvart, töldu bílana hafa ekið
með háskalegum hraða i gegnum
barnahópinn, sem tvístraðist, er
bílarnir geystust um götuna.
Lögreglan fór á stúfana og
náði báðum mönnunum. Þeir
höfðu aldrei áður gerzt brotlegir
við umferðalögin. — Dómarinn
hefur bersýnilega litið brot þeirra
mjög alvarlegum augum, því sá
sem ók á undan hlaut 2500 kr.
sekt, en hinn, sem á eftir ók, —
en ökumennirnir voru kuningj-
ar, hlaut 800 króna sekt.
Sýning Jóns Benediktssonar
□-------------□
Biðskák
BLED, 24. sept. — í 11. um-
ferð á áskorendamótirou í dag
fóru leikar þannig, að Petro-
sjan og Keres gerðu jafntefli,
en biðskákir urðu hjá Friðrik
og Tal; Gligoric og Fischer og
Benkö og Smyslov. — Reuter.
□-------------□
Stjórnmálafundur
í Firðinum
Verður nýju lögreglustöðin þnr
sem Gnsstöðin stdð áður
SKRIÐUR virðist nú vera að kom
ast á byggingu nýrrar lögreglu-
stöðvar hér í Reykjavík. Það er
búið að vera alllengi á döfinni,
og er sem kunnugt er afar að-
kallandi fyrir lögregluna, að fá
meira og betra húsnæði. Skýrði
lögreglustjóri frá því á fundi í
gær, er hann átti með blaðamönn
um, að nú væri byrjað á teikn-
ingum á nýrri lögreglustöð fyrir
Reykjavík á , lóðinni, þar sem
Gasstöð Reykjavíkur stóð áður.
Sagði lögreglustjóri, að ný lög-
reglustöð á þessum stað væri
mjög vel sett, þar sem hún yrði
miðsvæðis í borginni. Verið er
að athuga hvort ekki sé hægt
að byggja um leið nýja slökkvi-
stöð. Til lögreglustöðvarinnar
nægir um helmingur lóðarinnar.
Og fer nú athugun fram á því
hvort helmingurinn muni ekki
nægja Slökkvistöð Reykjavíkur.
Sagði lögreglustjóri að þess væri
að vænta, að endanleg ákvörð-
un um þessa staðsetningu yrði
Tónleikar í Eyrar-
bakkakirkju
UNGUR Eyrbekkingur, Haukur
Guðlaugsson efndi til fjölbreyttra
tónleika í Eyrarbakkakirkju s. 1.
sunnudag og flutti þar orgel-
verk eftir Buxtehude, Bach og
Reger og píanósónötu í A-dúr eft-
ir Mozart. Haukur lauk burtfar-
arprófi í píanóleik við Tónlistar-
skólann í Reykjavík fyrir nokkr-
lun árum, en hefur stundað orgel-
nám við Tónlistarháskólann í
Hamborg sl. þrjú ár. Kennari
hans í orgelleik er prófessor
Förstemann. Haukur hefur nokk
um sinnum leikið í útvarp hér, og
er þegar orðinn kunnur organ-
leikari.
Tónleikar þessir voru mjög á-
nægjulegir og vel til þeirra vand
að. Haukur er jafnvígur á orgel
og píanó, og líkist í því hinum
gömlu organmeisturum sem léku
jöfnum höndum á orgel og Cem-
balo. Leikni Hauks er örugg og
fáguð og túlkun öll hin smekkleg
asta, að vísu gat hið litla orgel
kirkjunnar ekki fullnægt þeim
kröfum sem hér voru til þess
gerðar. En Haukur mun bráðlega
leika fyrir okkur Reykvíkmga í
Dómkirkjunni, þar sem list hans
mun njóta sín enn betur. En
furðu gegndi hversu orgeliö
hlýddi vilja listamannsins, því að
verkin voru mjög erfið.
Að tónleikunum loknum
kvaddi sóknarpresturinn, séra
Magnús Guðjónsson, sér hljóðs,
og þakkaði listamanninum í nafni
hinna fjölmörgu áheyrenda fyrir
ógleymanlega stund, og bað menn
að rísa úr sætum til heiðurs lista-
manninum.
P.L
tekin í bæjarráði áður en langt
um líður. En ef svo illa færi að
það reyndist ógerlegt, hefir lög-
reglustöðin til umráða óbyggða
lóð norðan við Arnarhól, eins og
kunnugt er, gömlu kolapor^n
þar.
f sambandi við þetta, gat lög-
reglustjóri svo þess, að nú væri
verið að byggja bækistöð fyrir
bíla lögreglunnar inn við Síðu-
múla. Þar mun sennilega síðar
.verða byggð lítil lögreglustöð fyr
ir hin fjölmennu hverfi þar inn-
frá.
— Halvard Lange utannkisrað-
herra Noregs tók í dag til máis
í hinum almennu umræðum á
Allsherjarþingi S. Þ. Skýrði hann
viðhorf Norðmanna tii ýmissa
alþjóðavandamála.
Lange lýsti ánægju sinni yfir
hinum gagnkvæmu heimsóknum
Eisenhowers og Krúsjeffs, því að
allur heimurinn þrái bætta sam-
búð stórveldanna. Hins vegar
kvað hann það óraunhæft, að
ætla að kalda stríðið leystist
skyndilega eða á áhrifamikinn
hátt. Norðmenn teldu hins vegar
að nú væri hafið timabil samn-
ingaumleitana og stigbatnandi
sambúðar þjóðanna. Má ætla að
það geti jafnvel tekið langan
tíma að semja um deilumálin og
að til þess þurfi þolinmæði og
hreinskilni allra aðilja.
Sem fulltrúar smáþjóðar, sagði
Lange, verð ég að leggja áherzlu
á það, að hvaða samkomulag sem
stórveldin gera sín á milli um
lausn heimsvandamálanna má
ekki fela í sér neina skerðingu
á réttindum annarra þjóða.
Lange taldi, að samningavið-
ræður stórveldanna ættu að fara
fram á vegum stofnunar Samein-
uðu þjóðanna, enda væri nú svo
komið, að spurningin um frið eða
deilur skipti ekki aðeins stór-
veldin máli, heldur allar þjóðir
heims.
Nokkuð ræddi Lange um Alsír-
málið. Hann vísaði í því sáha-
bandi til lausnar Kýpusdeilunn-
ar, sem tekizt hefði að ná, þeg-
ar deiluaðiljar fengust loks til að
setjast að samningaborði. Taldi
Lange, að tillögur de Gaulles í
Alsírmálinu lofuðu góðu.
Noregur greiddi atkvæði með
því að innganga kommúnista-
Kína yrði að nýju tekin upp á
dagskrá Allsherjarþingsins, sagði
Lange. Hann skýrði þessa afstöðu
Noregs svo: í fyrsta lagi teljum
við, að það eigi að viðurkenna
ríkisstjórn lands, ef hún hefur
f GÆR var opnuð í sýningarsal
Ásmundar Sveinssonar við
Freyjugötu sýning á höggmynd-
um eftir Jón Benediktsson. Mun
hún verða opin til 4. okt. nk., frá
kl. 14—22. Tíðindamaður blaðs-
ins leit inn til Jóns í gær þegar
hann var að leggja síðustu hönd
á undirbúninginn, en sýningin
hófst kl. 20,30.
— Hvað hefur þú haldið marg-
ar sýningar, Jón?
— Þetta er önnur sjálfstæða
sýningin mín. Hina fyrri hélt ég
í Régnboganum árið 1957 en auk
þess hef ég tekið þátt í nokkrum
samsýningum hér heima og er-
lendis.
— Hvað sýnirðu margar mynd-
raunhæfa stjóm yfir landinu og
þarf það ekki að fela í sér sið-
ferðilega viðurkenningu á að-
gerðum hennar.
Og í öðru lagi getur Peking-
stjórnin með fullum rétti haldið
því fram, að hún sé ekki bund-
in af skuldbindingum þeim, sem
stofnskrá S. Þ. leggur á þátt-
tökuríkin. ' Það piá því leggja
mikla áherzlu á það, hve þýð-
ingarmikið það er í alþjóðasam-
búðinni, að Peking-stjórnin fái
inngöngu í S. >. Með slíkri inn-
göngu myndu kínverskir komm-
únistar skuldbinda sig til að
virða ákvæði stofnskrár S. Þ. um
friðsamlega lausn alþjóðadeilna.
Hvaða skáld
hlýtur 75,000 kr.
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Gils Guðmundsson,
rithöfund, framkvæmdastjóra
Menntamálaráðs, og spurði hann,
hvað skáldsagnakeppni liði, sem
Menntamálaráð hefur efnt til.
Gils upplýsti að dómnefndin
hefði nú skilað áliti sínu og
myndi kunngjört næstkomandi
mánudag, hvaða bók og höfund-
ur hlyti verðlaunin, sem eru 75
þúsund krónur. Verður verðlauna
bókin gefin út af Menningasjóði.
„Langjökull46
í reynslusiglingu
LANGJÖKULL, hið nýja skip,
sem skipafélagið Jökar h.f. læt-
ur smíða í Árósum, fer í reynslu-
siglingu á morgun. Skipið er um
2000 tonn og stærsta skip félags-
ins. Skipstjóri er Ingólfur Möller.
Langjökull siglir væntanlega til
íslands þann 28. þessa mánaðar.
— Þær eru 27, flestar úr járni,
en þó gefur að líta hér nokkrar
steinmyndir svo og tréskurðar-
myndir.
— Hvar stundaðir þú nám í
listgreininni?
— Ásmundur Sveinsson var
lærifaðir minn, en ég hafði að
vísu fengizt við teiknun og notið
dálítillar tilsagnar í þeim efnum.
En námið hófst fyrst fyrir alvöru
árið 1952.
— Ég sé að hér er mikið um
moderne-listaverk.
— Já, ég hef ekki neina fyrir-
mynd að þessum verkum mínum.
Þetta verður eins konar endur-
speglun af sálarlífinu og nöfmn
koma eftir sköpunina.
— Þú hefur unnið mest að
þessu í tómstundum?
— Ja. Ég veit ekki hvað skal
segja. Það er mest stolinn tími
frá húsgagnasmíðinni, því að ég
er nefnilega húsgagnasmiður, og
ég eyði hverri stund sem gefst.
Ég geri þetta bara að gamni
mínu, ekki fyrir fólkið til að
kaupa, en svo þegar ég hef gert
dálítið safn, hef ég gaman af að
sýna það. Höggmyndalistin er
nokkurs konar ástríða í mér.
Brúðkaup Bald-
vins á Akureyri
AKUREYRI, 23. sept. — f gær-
kvöldi var Brúðkaup Baldvins
sýnt £ samkomuhúsinu hér á
Akureyri við góðar undirtektir,
en Bandalag íslenzkra leikfélaga
gengst fyrir leikför um Austur-
og Norðurland um þessar mund-
ir. Brúðkaup Baldvins ,er gaman
leikur í 3 þáttum eftir Vilhelm
Krag og gerist í Noregi um síð-
ustu aldamót. Sveinbjörn Jóns-
son hefur þýtt leikinn, en leik-
stjóri var frú Þóra Borg, auk
hennar leika Emelía Borg,
Kristín Jóhannsdóttir, Valdimar
Lárusson, Harry Einarsson og
Erlendur Blandon. Leiknum var
vel tekið eins og fyrr segir og
bárust leikstjóranum blóm.
— mag.
i KOSNINGASKFIF-
\ STOFA SJÁLF-
5 STÆÐISFLOKKSINS
i í REYKJAVÍK
i ■ er í Morgunblaðshús-
\ inu, Aðalstræti 6, II.
j hæð. — Skrifstofan er
s opin alla daga frá kl.
| 10—18. —
5 kr ★ 'k
i Stuðningsfólk flokksins
Heimsvandamálin verða
ekki leysf skjótlega
RœÖa Halvards Lange á þingi SÞ í gœr
NEW YOBK, 21,. sept. — (NTB)
HAFNARFIRÐI. — Næstkom-
andi mánudagskvöld kl. 8,30 efna
Landsmálafélagið Fram og Sjálf-
stæðisverkamannafélagið Þór til
stjórnmálafundar i Sjálfstæðis-
húsnu. Frummælendur verða
þeir Matthías Á, Mathiesen alþm.
og Sveinn Einarsson verkfr. Með
fundi þessum hefst starfsemi fé-
laganna á haustinu, og er allt
Sjálfstæðisfólk velkomið á fund
inn meðan húsrúm leyfir. — Er
þess að vænta að það fjölmennl
á þennan fyrsta fund félaganna.
— G.E.
Stjórnmálafimdir
á Norð-vestur-
landi
FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæð.
isflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra efna til almennra
stjórnmálafunda á eftirtöldum
stöðum: \
Siglufirði, föstudaginn 25. sept,
Sauðárkróki, laugard. 26. sept.
Blönduósi, sunnud. 27. sept.
Gunnar Thoroddsen borgarstj.
mætir á öllum fundunum.
Fundirnir hefjast á öllum stöð-
um kl. 8,30 sd.
Valdemar Björns-
son talar í Lídó
Á SUNNUDAGINN efnir íslenzk
ameríska félagið til samkomu i
Lídó, er hefst kl. 2,30 eftir há-
degi. Þar flytur Valdemar Björn3
son, fjármálaráðherra, erindi, er
hann nefnir: Það er svo erfitt að
standa í stað. Segir Valdemar þar
frá íslenzkum landnemum í Vest
urheimi.
Að erindinu loknu verður kaffi
drykkja og mun þá hinum mörgu
vinum Valdemars hér í borg gef-
ast kostur á að hitta hann að
máli.
er beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna
og gefa henni upplýs-
ingar varðandi kosn-
ingarnar.
kr ★ k
Athugið hvort þér séuð
á kjörskrá í síma
12757.
~k ★ 'k
Gefið skrifstofunni upp-
lýsingar um fólk sem
verður fjarverandi á
kjördag, innanlands og
utan.
kr ★ ~k
Símar skrifstofunnar eru
13560 og 10450.
I
>
s
s
s
s
s
s
•;
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s