Morgunblaðið - 25.09.1959, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.09.1959, Blaðsíða 21
Föstudagur 25. sept. 1959 MORGVTSBLAÐ1Q 21 Jassklúbburinn hefur vetrar- starfið Á STJÓRNARFUNDI Jazzklúbbs Reykjavíkur, sem haldinn var 8. þ. m., var ákveðið að félags- starfsemi skyldi hefjast næstkom- andi laugardag 26. september í Framsóknarhúsinu, kemur þar meðal annars fram hljómsveit Björns R. Einarssonar og kvart- ett Jóns Páls Bjarnasonar ásamt trompetleikaranum Viðari Al- freðssyni. Félagsstarfsemin mun verða rekin með nokkuð breýttu sniði frá því sem var, og er þá fyrst að nefna, að fundir verða aðeins hálfsmánaðarlega og verður ann- ar fundur músíkfundur á móti fræðslufundi. Koma fram þekkt- ir menn á sviði tónlistarinnar og flytja fyrirlestra, auk margs ann- ars, sem klúbburinn hefur á prjónunum. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að meðlimum er heimilt að taka með sér eian gest, en sú nýbreytni verður tekin upp, að hafin verður sala meðlimakorta, sem gilda til áramóta og er verð þeirra kr. 50.00. Klúbburinn hefur nú fengið til umráða húsnæði, sem hentar vel starfsemi klúbbsins. Húsið verður opnað kl. 2 síðd. n.k. laugardag. En fundurinn hefst hálftíma síðar með setn- ingarræðu formanns. — Dagur i Helsinki Frh. af bls. 13 sauna. Dýrmætar stundir sem veita manni algera hvíld. Finn- arnir hvorki hlæja eða eru með hávaða í sauna. Þeir eru alvarleg ir þegar þeir njóta þessara hvíld- arstunda einir eða með fjöl- skyldu sinni mitt í amstri nútíma lífs. SEINT Það er farið að kvölda. Blásvart myrkrið dettur yfir borgina eins og veggur. Hún skiptir um svip. Hinar stílhreinu byggingar rísa upp úr dökku malbikinu eins og hamrar. Borgin býr sig unair nóttina. Mér datt í hug að eyða kvöld- inu í sænska leikhúsinu (Svenska Teatern). Finnsku leikhúsin sýna sízt verri verk en af skiljanleg- um ástæðum þýðir lítið að fara þangað. Sænska leikhúsið sýnir um þessar mundir gamlan austur ískan gamanleik með söngvum af og til. f sænskri þýðingu nefn- ist leikurinn Levande ljus, á frum málinu heitir hann Beim Kerzen- licht. Með aðalhlutverkið fer hinn þekkti daski leikari Max Hansen. Þetta er fremur billeg kómedía og ekkert sérstakt um hana að segja. Reynt var eftir fremsta megni að ná hinni klass- ísku gamanleikjastemningu frá Vín en það tókst ekki sérlega vel. Max Hansen hélt sýningunni al- gerlega uppi og fólk skemmti sér allvel. • Að sýningu lokinni fór ég að hugsa til heimferðar. Klukkan var um ellefu og það er seint hér í Helsinki. Nóttin er komin. Það eru fáir á ferli. Kannski eru víða litlar hnátur sem byrja morgun- sönginn um fimmleytið. Njörður P. Njarðvík. Magnús Thorlatius hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa. Aðalstræti 9. — Sími 11875. Stúlka óskast til símavörzlu 9¥giitstMa&ife Skrifsfofustúlka með góða vélritunarkunnáttu óskast 1. október n. k. Vel launað starf. Uppl. um menntun og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir 29. sept. merkt: „Vélritun—9159“ Línubalar Þessir viðurkenndu þýzku línubalar eru væntanlegir á næstunni. Tökum á móti pöntunum. Þeir, sem óska að panta beint, tali við okkur sem fyrst. I.£ HEILDSALA — UMBOÐSSALA Vesturgötu 20 — Sími 24020 Kaupfélagsstjórastarf Framkvæmdastjórastarfið við Samvinnufélag Fljóta- manna er laust til umsóknar frá næstu áramótum. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Sambandi ísl. samvinnufélaga, Deild I, Rvík, eða Hermanni Jónssyni, Yzta-Mói, Haganeshreppi, fyrir 15. október n.k. SAMVINNUFÉLAG FLJÖTAMANNA Auglýsing um sveinspróf Sveinspróf fara fram, í þeim iðngreinum sem löggilt- ar eru, í október/nóvember 1959. Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að senda formanni viðkomandi prófnefndar umsóknir um próftöku nemenda sinna, ásamt venjulegum gögnum og próf- gjaldi, kr. 600.—, fyrir 6. október n.k. Reykjavík, 22. sept. 1959, IÐNFRÆÐSLURÁÐ. Tilkynning til rafmagnsnotenda á orkuveitusvæði Rafveitu Hafnarf jarðar. Um næstu mánaðarmót verður breytt til um fyrir- komulag innheimtu rafmagnsreikninga þannig að álestur og innheimta hjá hverjum notanda fari fram 6 sinnum á ári, í stað 12 sinnum nú. Þannig verður um næstu mánaðarmót aðeins lesið á og innheimt í suðurhluta bæjarins og utanbæjar, sunnan og austan haná. Um mónaðarmótin okt./nóvember verður aðeins lesið á mæla og innheimt í vesturhluta bæjarins og utan bæjar vestan og norðan hans. Síðan verður álestur og innheimta annan hvern mán- uð hjá hverjum notanda. Hjá stórum iðnfyrirtækjum og stofnunum verður þó óbreytt fyrirkomulag, frá því sem nú er. Þeir sem þess óska, geta þó greitt mánaðarlega upp í reikning á skrifstofu rafveitunnar. Hafnarfirði 21. sept. 1959. RAFVEITA HAFNARFJARÐÁR Innritun byrjar í dag kl. 5-7 og 8-9 í Gengið inn um norðurdyr /1 /oíHCl Jfflrffli [jfflðirsur T\u&enised T£i6bi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.