Morgunblaðið - 01.11.1959, Page 24
VEÐRIÐ
Hvass SV stormur með köflum,
éljagangur, hiti nálægt frost-
marki
243. tbl. — Sunnudagur 1. nóvember 1959
Reykjavíkurbréf
Sjá blaðsíðu 13.
17. landiö sem ball
ettinn heimsækir
BANDARÍSKI balletflokkurinn
kom til Iandsins í gærkvöldi. Con-
stellation-flugvélin frá KLM, sem
flutti dansflokkinn, lenti hér
skömmu eftir ljósaskiptin, eftir
7,35 stunda flug frá Lissabon.
Með vélinni voru allir listamenn-
irnir 37 talsins að stjórnandanum
Robbins undanskildum, en hann
hafði komið með Viscount-flugvél
Flugfélags íslands frá London
nokkrum mínútum áður.
Það var kuldalegt á flugvellin-
um, þegar listafólkið steig út úr
flugvélinni — og mátti sjá, að
það var að koma úr hlýindunum
í Lissabon og hafði ekki búizt við
því jafnköldu og raun varð á.
Meðal þeirra, sem tóku á móti
Bandaríkjamönnunum, voru Þjóð
leikhússtjóri, Guðlaugur Rósin-
kranz og Hörður Bjarnason, vara
formaður Þjóðleikhússráðs, auk
þess bandarískir sendimenn hér í
bæ.
Fréttamaður Mbl. náði tali af
Robbins sem snöggvast í fugaf-
greiðslunni og sagði hann ísland
vera seinasta viðkomustaðinn í
þessari löngu Evrópuferð. Lagt
var upp frá New York í júní og
síðan hefur flokkurinn sýnt í 19
borgum í 16 Evrópulöndum —
allt frá Norðurlöndum og til
ísrael. Sýningar hafa sjaldan
verið færri en 5 á hverjum stað,
en fiestar. í London, 9 talsins. — í
hópnum eru 19 dansarar, en hitt
eru hljómlistarmenn og farar-
stjórar. Sýningarnar hér verða 5,
sú fyrsta í dag.
ViðgerÖin a Vetti tekur
18 daga
EFTIR þeim upplýsingum að
dæma, sem borizt hafa vestan frá
St. Johns á Nýfundnalandi, varð
andi strand togarans Vattar, þá
mun fullnaðarviðgerð á skipinu
taka 18 daga.
Deildarstjóri skipatrygginga hjá
Samvinnutryggingum Jón Rafn
Guðmundsson, skýrði Mbl. frá
þessu í gær, en Vöttur er tryggð-
ur hjá fyrirtækinu.
Þá sagði Jón Rafn, að eftir
þeim uppl. sem fyrirtækinu hefði
borizt, þá hefði Vöttur eigi losnað
af skerinu, af eigin ramleik, heid-
ur hefði 700 tonna skip, sem starf
rækt er sem björgunarskip á þess
um slóðum, Algerin dregið Vött á
flot klukkan 4 að morgni sl. mið-
vikudags. Kom þetta skip til skjal
anna eftir að fyrri björgunartil-
raunir höfðu ekki borið árangur.
Fyrrnefnt björgunarskip dró í
sumar er leið togarann Þorstein
þorskabít til hafnar í St. Johns.
Að lokum sagði Jón Rafn Guð-
mundsson, að skipasmíðastöð í
St. Johns, hafi gert tilboð í að
framkvæma viðgerð á Vetti. Til-
boðið hljóðaði upp á 935.000 krón
ur. Væru Samvinnutryggingar að
leita hagstæðari tilboða á öðrum
stöðum t. d. í Halifax. Ekki
kvaðst deildarstjórinn hafa heyrt
á það minnzt að áhöfn togarans
komi heim meðan á viðgerð stend
ur, og væri sér ekki kunnugt um
annað, en að viðgerðin væri við
það miðuð að skipið gæti að
henni lokinni haldið beint tii
veiða aftur.
Þýxkir ferðamenn mis-
nota gestrisni íslendinga
Líflegt við togarabryggjurnar
ÞÝZKA sendiráðið í Reykja-
vík hefur fengið ítrekaðar
kvartanir frá íslendingum
vegna slæmrar framkomu
þýzkra stúdenta og annarra
þýzkra ferðamanna, sem
heimsótt hafa ísland í sumar.
Skýra þýzk blöð frá því að
utanríkisráðuneytið í Bonn
hafi komið umkvörtunum
þessum áfram til Sambands
þýzkra stúdentafél. (VDS).
Blöðin segja. að stöðugt fjölgi
þýzkum ferðamönnum á íslandi.
Margir þeirra eru stúdentar og
annað ungt fólk, sem ferðast um
„á þumalfingrinum", en lætur
einnig bjóða sér næturgistingu
og mat. Allmargt þessa unga
fólks hreykir sér eftir á af því,
að það hafi getað ferðast um
landið við gestrisni íbúanna án
þess að þurfa jafnvel svo vik-
um skiptir að leggja út einn
grænan eyri.
Mestar kvartanir hafa þó kom-
ið af því að þetta þýzka ferðafólk
misnotar sæluhús víða um land-
ið og ræðst jafnvel á matarbirgð
ir í þeim, sem ætlaðar eru aðeins
til notkunar í neyð. Þjóðverjarn-
ir skilja heldur ekkert endur-
gjald í peningum, þó beir eti upp
slikan neyðarmat.
Samband þýzkra Uúdentafé-
laga hefUT nú birt yfirlýsingu,
þar sem það fordæmir þetta
háttalag. Þar er það harmað að
ungt þýzkt fólk skuli misnota á
hinn herfilegasta hátt gestrisni
íslenzku þjóðarinnar. I yfirlýs-
ingunni er á það bent, að þetta
sé þeim mun hörmulegra, þar
sem allir viti að Þjóðverjar séu
rík þjóð, sem ekkert skortir,
meðan íslendingar eru smáþjóð,
sem býr við erfið skilyrði í köldu
landi. Telur stúdentasambandið
að slík framkoma sé hneysa fyr-
ir þýzku þjóðina.
ÞAÐ hefur verið nóg að gera við
togarabryggjurnar hér í höfninni
síðustu viku Togararnir hafa kom
ið hver af öðrum af Nýfundna-
landsmiðum með afia í íshúsin.
Ljósmyndari blaðsins tók þessa
mynd um borð í Þorkeli mána í
fyrradag, þegar verið var að
landa úr honum 308 lestum af
fiski. Gamli maðurinn, Reimar
Eyjólfsson ,var önnum kafinn við
að þvo borðin, enda er það ekk-
ert smáræðis verk að þvo 2500—
3000 borð úr hverju skipi. Bak
Fyrsti íslenzki
botuflugmaðurinn
. FRÉTTAMAÐUR Mbl. hafði
; tal af einum flugmannanna á
) KLM-flugvélinni, sem kom
S með bandaríska ballet-flokk-
| inn í gær og spurði tíðinda af
S íslenzku flugmönnunum, sem
| nú starfa hjá þessu hollenzka
i flugfélagi. Sagðist þeim svo
S frá, að Sveinn Gíslason, sem
■ um skeið hefur flogið á DC-7
i flugvélum félagsins milli
S Evrópu og N.-Ameríku mundi
| brátt fara til þjálfunar á þot-
i urnar, sem KLM er nú að fá,
S Douglas DC-8. Mun félagið
) nota þær á N.-Atlantshafsleið
inni. Sveinn verður þá vænt- S
anlega fyrsti íslenzkj flug- ^
maðurinn, sem flýgur stóru s
farþegaþotunum, en þar verð- s
ur hann að sjálfsögðu að- '
stoðarflugmaður fyrst í stað. ^
Af Alberti Tómassyni sagði s
flugmaðurinn það, að nú s
væri hann að flytja suður til ■
Persío. Hann yrði þar um s
þriggja ára skeið og flygi S
Fokker-Friendship flugvél •
fyrir dótturfélag KLM, sem i
annaðist þar flug fyrir olíu- S
félög. Albert hefur hingað til £
flogið á N.-Atlantshafsleið- ^
inni. s
við hann sést Kjartan Björnsson.
Þorsteinn Ingólfsson landaði á
fimmtudag 312 lestum og í gær
komu þrír togarar, Þormóður
goði með um 340 lestir og Skúli
Magnússon með ca. 280—300 lest-
r, báðir af Nýfundnalandsmiðum,
og Marz af heimamiðum með um
200 lestir.
Óttazt um Græniundsíar
Hingað til lands hafa borizt
fregnir um það, frá Færeyjum,
að danska Grænlandsverzlunin,
sé farin að óttast um eitt af skip-
um sínum. Er hér um að ræða
rúmlega 100 tonna skip, Svend-
borg.
Hinn 24. október s. 1. hafði
þetta litla skip verið statt um 80
mílur til suðvesturs af íslandi.
Var það á leið til Kaupmanna-
hafnar og eru á því fimm menn.
Eftir þeim fregnum sem borizt
hafa, mun ekkert hafa heyrzt
frá skipinu síðan þennan dag.
Hafði skipið þá haft samband
við Reykjavíkur-radíó.
D-lista kvöldvökur
í Reykjaneskjördœmi
D-LISTINN í Reykjaneskjördæmi
efnir til skemmtunar fyrir starfs
fólk sitt í alþingiskosningunum, á
eftirtöldum stöðum:
í samkoiraihúsinu, Njarðvíkum
annað kvöld, mánudagskvöld, fyr
ir héraðið sunnan við Hafnar-
fjörð. Aðgöngumiðar afhentir hjá
trúnaðarmönnum Sjálfstæðisfl.
í héraðinu og á skrifstofu flokks-
ins í Keflavík eftir hádegi á morg
un.
í Góðtcmplarahúsinu í Hafnar-
firði n.k. þriðjudagskvöid. Að-
göngumiðar afhentir í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins kl. 5—7 á
mánudag og þriðjudag.
Hlégarður, Mosfellssveit. Fyrir
héraðið norðan Hafnarfjarðar h.
k. þriðjudagskvöld. Aðgöngumið
ar afhentir hjá trúnaðarmönnum
Sjálfstæðisflokksins í héraðinu
og í skrifstofu flokksins, Mel-
gerði 1. Kópavogi, kl. 7—10 á
mánudagskvöld.
Flutt verða stutt ávörp,
skemmtiatriði, dans. Skemmtan-
irnar hefjast stundvíslega kl. 8,30.
D-Iistinn í Reykjaneskjördæmi.
Dgí:-Gmni nSn uE eytno