Morgunblaðið - 17.02.1960, Side 15
Miðvik'udagur 17. febr. 1960
MORGUNfíT. AÐIÐ
15
tonn
af málningu
Þeir voru að mála Hekluna,
þegar Ijósmyndari Mbl.
rakst niður á höfn á dögun-
um. Heklan var orðin skell-
ótt, „það veitir ekki af að
lífga svolítið upp á hana“,
sagði Fjölnir Björnsson, sem
byrjaði í messanum fyrir 5
árum og er nú orðinn há-
seti — og málar af kappi.
Hann stendur á plönkum, er
hanga í köðlum framan á
stefni skipsins.
— Við erum alltaf að þessu,
allan ársins hring. Eg gæti
trúað, að við máluðum skip-
ið allt tvisvar eða þrisvar á
ári. Þ.e.a.s. borðstokkinn og
þar fyrir neðan. Yfirbygging
in er aðeins máluð einu sinni
á ári, segir Fjölnir.
— Ætli við förum ekki
með 5—600 lítra af svartri
málningu á hana yfir árið.
Það er ekkert smáræði, sem
fer á allan flotann. Kaup-
skipunum er alltaf haldið
vel við. Það er erfiðara með
togarana. Þeir skrapa máln-
inguna af hliðunum á þeim í
fyrstu veiðiferðinni. Við för-
um áreiðanlega með mörg
tonn af málningu á öll þessi
skip á hverju ári.
— Ég er a.m.k. orðinn
þreyttur á að mála. Ég er að
hugsa um að fara í Sjó-
mannaskólann. Mig langar
til að verða stýrimaður. Þeir
þurfa heldur ekki að mála.
4
LESBÓK BARNANNA
JVfálshrenna og hefnd Kára
111. En er Flosi íréttir víg
Kols, býr hann um lík hans
og gefur fé mikið til legs
honum. Flosa stukku aidrei
hermdaryrði tii Kára Flosi
fór þaðan suður og létti ekki
fyrr en hann kom til Róma-
borgar. Þar fékk hann svo
mikla sæmd, að hann tók
iausn af sjálfum páfanum.
Sigldi hann síðan út til Js-
iands. Fór hann þá heim til
Svínafelis. Hafði hann þá af
hendi innt alla sætt sína bæði
í utanferðum og fégjöldum.
•
112. Urn sumarið eftir bjóst
Kári til íslands, Skeggi fékk
honum byrðing. Voru þeir þar
á átján. Þeir urðu heldur síð-
búnir og sigldu þó í haf og
höfðu langa útivist. En um
síðir tóku þeir Ingólfshöfða
og brutu þar skipið allt Í
spón. Þar varð mannbjörg.
Þá gerði á hríð veðurs. —
Spyrja þeir nú Kára, hvað
nú skal til ráðs taka, en hann
sagði ráð að fara til Svína-
fells og reyna þegnskap Flosa.
Gengu þeir nú heim til Svína-
fells í hríðinni.
113. Fiosi var í stofu. Hann
kenndi Kára, er hann kom
í stofuna, og spratt upp í
móti honum og minntist til
hans og setti hann í hásæti
hjá sér.
Flosi bauð Kára þar að vera
nm veturinn. Kári þá það.
Sættust þeir þá heiium sátt-
um. Veturinn áður hafði and-
ast húsfreyja Kára, en Fiosi
gifti þá Kára Hildigunni, bróð
urdóttur sína. Bjuggu þau þá
fyrst að Breiðá.
•
114. Það segja menn, að
þau yrðu ævilok Flosa, að
hann færi utan, þá er hann
var orðinn gamall, að sækja
sér skáiavið, og var hann
Noregi þann vetur. En una
sumarið varð hann síðbúinn.
Ræddu menn um, að vont
væri skip hans. Flosi sagðt
vera ærið gott gömlum «g
feigum og sté á skip og lét
í haf, og hefir til pess skip*
aldrei spurzt síðan.
Og ljúkum vér þar Brennu-
Njáls sögu.
Tómas og eimvagninn
Eimvagninn hafði ekið
gegn um iokaðar dyrnar
á skúrnum, en slíkum
smámunum, hafði Tómas
fullkomlega gleymt, jafn
niðursokkinn og hann
var í starf sitt.
— Skeð er skeð, hugs-
aði hann með sér, um leið
og hann bætti á eldinn,
jók hraðann og lét eim-
vagninn þjóta eftir braut
arsporinu, knúinn fullri
orku. Neistaflugið stóð
upp um reykháfinn og
það hvæsti í gufuventl-
unum.
Honum skildist fyrst,
að hraðinn væri nokk-
uð mikill, þegar vagninn
tók eina beygjuna á
tveimur hjólum. Þá flýtti
hann sér að minnka súg-
inn á eldinum. Það var
strax skárta! En hvernig
'0
átti hann nú að nema
staðar? Jú, ef hann lok-
aði fyrir gufuna, hlaut
vagninn auðvitað að
stanza.
Tómas skrúfaði fyrir
gufukranann og beið með
eftirvæntingu þess, sem
næst mundi gerast.
Eimvagninn þeyttist á-
fram með sama hraða,
en hávaðinn var greini-
lega mun minni!
Hvernig stóð nú á
þessu? Hér var um að
ræða einhverja skekkju,
sem hann þurfti að átta
sig á. Hann hugsaði sig
um og allt í einu rann
upp Ijós fyrir honum. —
Hann var á leið niður
brekku og þess vegna hélt
vagninn áfram og jók stöð
ugt hraðann. Hann varð
að finna hemlana þeg»r
í stað, áður en eimvagn-
inn ylti af sporinu, eð*
geistist inn á næstu járn-
brautarstöð.
Tómas fann fljótlega
hemlana og hlýðinn og
þægur nam vagninn stað-
I ‘
XfimMLil({[(({[ ^
T5^—
U