Morgunblaðið - 01.03.1960, Síða 6
6
MORCIJTSBLAÐIÐ
Þriðjudagur 1. marz 1960
Lausn deilunnar um bú-
vöruverðid landbúnaðar-
ráðherra mest að þakka
Leiðtogar Framsóknar reyndu að
spilla fyrir samkomulagi aðila
Ettir Jónas Pétursson trá Skriðuklaustri
1 LEIÐARA Tímans 28. febr. sl.
er verið að þakka Framsóknar-
mönnum þá hækkun á verði bú-
vöru til bænda, sem alveg ný-
lega er orðið samkomulag um
í 6 manna nefnd. Öllu meira
öfugmæli er naumast unnt að
segja. Enginn hefir sjálfsagt
ennþá gleymt hinni hatrömmu
baráttu Framsóknarmanna og þó
sérstaklega Eysteins Jónssonar
gegn því að Alþingi yrði frestað
fyrir 15. desember, þegar bráða-
birgðalögin um óbreytt verðlag
á búvörum féllu úr gildi. En það
er öllum alveg ljóst, sem til
þessara mála þekkja ,að það
samkomulag um endurskipun 6
manna nefndar og önnur atriði
er undirritað var af fulltrúum
bænda og neytenda á miðnætti
14.—15. des. sl. hefði aldrei náðzt,
ef Alþingi hefði þá setið.
Þetta vissi Eysteinn Jónsson og
aðrir Framsóknarþingmenn. Þá
voru það ekki hagsmunir
bænda, sem þeir vildu tryggja.
Nei. Þá mátti fórna hagsmunum
bænda ef unnt væri að skapa
ríkisstjórninni sem mesta erfið-
leika. Þá ' skiptu hagsmunir
bænda Eystein Jónsson engu.
Samkomulagið um breytingu
Loftferðasamn-
þá á framleiðsluráðslögunum,
sem nú er að ná samþykkt á Al-
þingi, náðist fyrir einbeitta for-
ustu landbúnaðarráðherra, Ing-
ólfs Jónssonar. Það þurfa bænd-
ur að festa sér vel í minni. Það
er engin tilviljun, að það er
sami maðurinn ,sem var formað-
ur kjötverðlagsnefndar 1942,
ÚRSLITAKEPPNI Skákþings
Reykjavíkur 1960 hófst á sunnu-
daginn 28. febrúar kl. 2 e.h. í
Breiðfirðingabúð. Keppendur
eru 8. Efstu menn úr undan-
rásum keppninnar urðu Björn
Þorsteinsson, Benóný Benedikts-
son, Jónas Þorvaldsson, Bragi
Þorbergsson, Halldór Jónsson og
Guðmundur Lárusson. Þessir
sex tefla nú til úrslita um titil-
inn Skákmeistari Reykjavíkur
1960 ásamt þeim Friðriki Ölafs-
syni stórmeistara og Inga R. Jó-
hannssyni, sem hefir verið Skák-
meistari Reykjavíkur undanfarin
ár.
þegar bændur fengu þá hækk-
un á dilkakjötinu, sem færði þá
fram í námunda við aðrar stétt-
ir þjóðfélagsins í afkomu. Sú
hækkun ,1942, er algjör grund-
völlur þess, sem síðan hefir gilt
um verðlag þeirrar vöru. Án
þeirrar leiðréttingar hefði af-
koma sauðfjárbænda verið enn
verri en verið hefir.
Það er skiljanleg tilraun Tím-
ans að klóra yfir framkomu for-
ustumanna Framsóknar í þessu
máli. Framkoma þeirra er hins
vegar með þeim endemum að
bændur sjá hið rétta. Þeir munu
átta sig á að mestan og beztan
þátt í farsælli lausn þessa máls
á núverandi landbúnaðarráð-
herra, Ingólfur Jónsson.
Númeraröðin er þessi:
1. Benóný Benediktsson
2. Jónas Þorvaldssc-n
3. Halldór Jónsson
4. Björn Þorsteinsson
а. Bragi Þorbergsson
б. Ingi lí íóhannsson
7. Friðrik. Olafsson
8. Guðmundur Lárusson.
í fyrstu umferðinni vann Ingi
R. Halldór í 37 leikjum og Ben-
óný vann Guðmund í 27 leikjum.
Aðrar skákir fóru í bið. Friðrik
á tvö peð yfir í biðstöðunni gegn
Jónasi.
Friðrik og Ingi R.
ásamt sex öðrum
keppa um Reykjavíkurmeistaratifilinn
Henry Miller
— líka málari
MARGIR hér munu vafalaust
kannast nokkuð við hinn um-
deilda, bandaríska rithöfund
Henry Miller og verk hans á
bókmenntasviðmu — þótt sum
ir vilji sennilega ekki tala um
bókmenntir í því sambandi. —
Færri munu vita það, að Mill-
er er líka býsna fær listmálari
og hefir oft haldið sýningar á
málverkum sínum — t.d.
sýndi hann í Kaupmannahöfn
á dögunum.
★------------
1 Þótt Miller sé langtum
kunnari sem rithöfundur, var
hann byrjaður að mála löngu
áður en hann lagði út á rit-
höfundarbrautina. — Hann
vann meira að segja fyrir sér
með listmálun áður en hann
tók til við skriftirnar — en á
nokkuð óvenjulegan hátt. —
Hann setti sem sé auglýsingar
í blöðin, þar sem hann til-
kynnti, að hann ætti ekki
„salt út í grautinn“ — og
benti fólki á, að það gæti
„unnið sér fyrir“ góðri vatns-
litamynd með því að senda
honum mat eða ofurlítinn
skilding.
Þessi óvenjulegi — og óneit-
anlega dálítið ágengi við-
skiptamáti féll Bandaríkja-
mönnum svo vel í geð, að bæði
matvæli og fé tók að berast
til Millers í stríðum straum-
um. Hann hafði lengi vel
meira en nóg að gera við að
mála vatnslitamyndir til þess
að uppfylla sinn hluta við-
skiptanna — og þegar hann
með þessari ágætu „forretn-
ingu“ var búinn að koma und
ir sig fótunum, tók hann til
við skriftirnar.
★------------
Meðfylgjandi mynd var tek
in á dögunum, þegar verið var
að koma fyrir málverkum
Millers til sýningar í Kaup-
mannahöfn. — Þótt sum
þeirra þyki býsna frumleg,
hafa þau aldrei vakið annan
eins úlfaþyt og bækur hans.
Og til eru þeir, sem látið hafa
í ljós þá skoðun, að Henry
Miller hefði átt að halda sig
við pensilinn, en láta pennan
eiga sig . . . .
E^ji skrifor úr 1 daglega lífínu j
ingur við Finna
í DAG munu hefjast í Hels-
ingfors samningaviðræður um
loftferðasamning milli íslands og
Finnlands. Af íslands hálfu taka
þessir menn þátt í viðræðun-
um:
Magnús V. Magnússon, sendih.
Páll Ásg. Tryggvason, deildar
stjóri í utanríkisráðuneytinu.
Agnar Kofoed-Hansen, flug-
málastjóri.
Einnig munu sömu menn af fs-
lands hálfu taka upp framhalds
víðræður í Stokkhólmi hinn 11.
sama mánaðar um loftferðasamn
ing milli íslands og Svíþjóðar.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Kvöldvaka
í Kjósiimi
VALDA'sTÖÐUM, 18. febr. — Að
tilhlutan stjórnar Bræðrafélags
Kjósarhrepps var 13. þ.m. hald-
in kvöldvaka að Félagsgarði.
Form. félagsins Oddur Andrés-
son á Neðra Hálsi setti sam-
komuna. Þá talaði Gils Guð-
mundsson um borgfirzk ljóðskáld
fyrr og nú og mæltist honum
prýðisvel. Var síðan lesið upp úr
Ijóðum 6 skálda. Ljóðin lásu sr.
Kristján Bjarnason, Gils Guð-
mundsson, Karl Andrésson og
Guðmundur G. Hagalín, rithöf-
undur, sem flutti nokkur
ávarpsorð. Þá söng Karlakór
Kjósverja nokkur lög undir
stjórn Odds Andréssonar. Ein-
söngvari var Hjalti Sigurbjörns-
son. Að lokum var stiginn dans.
Einar Sturluson tenórsöngvari
hefur verið hér í nokkra daga til
þess að leiðbeina um söng og
hafa söngkórar sveitarinnar notið
þeirrar tilsagnar. — St. G.
• Barðir til frjósemi
Fastan hefst, samkvæmt
gamalli venju á morgun, ösku
dag, en á þeim degi jusu menn
sig ösku til forna, sem tákn
um iðrun sína og afneitun jarð
lífs gæða. Tveir síðustu dagar
fyrir föstu, eða þrír með
sunnudeginum, hafa aftur á
móti í margar aldir verið há-
tíðlegir haldnir einkum í mat
og drykk er menn voru að búa
sig undir strangan meinlæta-
lifnað föstuhaldsins. Á mánu-
dagsmorgun voru menn barð-
ir með hrísi í rúmum sínum
og helzt sá siður enn víða hér
á landi. Hrísinn er sem kunn-
ugt er tákn frjóseminnar, lífs-
neistans, sem lifir af veturinn
og skýtur frjóöngum sínum að
vori. Tilgangurinn með því að
berja mannfólkið með hrísi
fáklætt í rúmi sínu hefur því
verið sá, að örva frjósemi
þess. Nú hefur athöfnin löngu
tapað upprunalegum tilgangi
sínum, en lifir sem dauð
venja. Mundi forfeðrum vor-
um væntanlega hafa þótt lítið
til koma og ekki vænlegt til
aukinnar frjósemi, að vera
barðir með þeim gervivöndum
úr papppír, sem börn í Reykja
vík hýddu foreldra sína með
í gærmorogun.
* Meira en jieir gátu
torgað.
í dag er sprengidagur. Á
þeim degi mátti síðast kjöts
neyta fyrir föstuna, enda
neyttu menn þess ótæpilega
og oftast sér til óbóta. Segir
svo í Þjóðháttum: — Áður
var venja að ryðja í fólkið
svo miklu keti og floti, sem
það gat í sig látið og helzt
meiru en því var auðið að
torga. Mun þá margur hafa
borðað betur en hann hafði
gott af og eru til um það ýms-
ar skrítnar sögur. En leifarn-
ar voru teknar og hengdar
upp í baðstofumæni, hvers
leifar uppi yfir hans rúmi, og
mátti ekki snerta við þeim
fyrr en á páskadagsnótt, hvað
mikið sem mann langaði í
þær.
Þá segir sagan, að vinnu-
mennirnir hafi átt að greiða
þjónustunum sínum þjónustu-
kaupið fyrir árið, og enda gert
ráð fyrir, að það hafi ekki
verið ábætislaust, ef trúa má
þessari gömlu vísu um þessa
venju:
Þriðjudaginn í föstuinngang,
það er mér í minni,
þá á hver að falla/þjóta/í fang
þjónustunni sinni.
Virðist það benda til þess,
að menn hafi sleppt sér nokk-
uð lausum þann dag. Nógu
löng var fastan og leiðinleg
á eftir ....
9 Óhemjuskapurinn
en við líði
Menn fasta ekki lengur á
íslandi. Siðurinn kom hingað
úr suðlægari löndum þar sem
föstuhald var nauðsynlegt
heilsufars vegna, en einnig
iðkað til að undirbúa trúarat-
hafnir ýmsar, er menn gerð-
ust betur færir um aðþrengd-
ir af matarleysi. Hér norður í
kuldanum var fastan sem hver
önnur vitleysa og hafði
engan tilgang annan en
þann að kvelja vesalt
fólk, sem svalt hálfu
hungri þann hluta úr árinu,
sem það ekki fastaði. Það er
því ekki að ófyrirsynju að
fastan var lögð niður, en hitt
er athyglisvert, að sá óhemju-
skapur í mataræði, sem tíð-
kaðist á sprengidag og var af-
sakanlegur vegna föstuþglds-
ins, skuli haldast að nokkru
hér á landi.
Fljúga til ísafjarðar
í gærmorgun fór sjúkraflugvél
Norðurlands til Isafjarðar og er
það fyrsta flugferðin þangað eft-
ir að Katalína var tekin til skoð-
unar nú í vikunni. i
• SKÁK •
HAFNARFJÖRDUR
abcbefgh
★
KEFLAVÍK
ABCDEFGH
AKRANES
19. g5-g6 ....