Morgunblaðið - 05.05.1960, Page 6

Morgunblaðið - 05.05.1960, Page 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 5. maí 1960 Frá Bad Nauheim. Erik Jiiuranlo ræðismaður: Bad Nauheim ALLIR hljóta að vera á einu máli um að góð heilsa sé bezti fjár- sjóður mannsins. Flestir vita og að maður þarf að hugsa um heilsu sína þegar í æsku, ef mað- ur vill vera hraustur alla ævi . Elzta og þýðingarmesta efnið við heilsurækt er vatnið. í Kale- vala er sagt: „vesi vanhin voite- hista“, ellegar á íslenzku að vatnið sé elzta lyfið. Á meðan maður er hraustur, hugsar mað- ur ekki um alla möguleika, sem til eru að rækta heilsuna eða að fá heilsu sína aftur. En maður fær fyrr eða síðar að sjá, að ekki einu sinni heilsan er eilíf. Ef ekki fyrr, svo þá þegar líður að sextugu, verður manni ljóst að allt sé á hverfanda hveli. Maður fær minniháttar hjarta- bilun, gigt, svefnleysi og s. frv. Ef maður fer nógu snemma að hugsa um þess háttar veikindi, getur hann að miklu leyti fengið lireysti sína aftur. Heilsubaðstaður eins og Bad Nauheim hefur gefið mörgum þúsundum nýjan lífskraft. Þetta hefur greinarhöfundur og feng- ið vitneskju um, þar sem hann dvaldist mánaðartíma ásamt konu sinni í Bad Nauheim í októ ber 1959. Að drekka vatn og fara í bað hljómar einkennilega þeim, sem ekki þekkja undramátt vatnsins. Uppspretturnar í Bad Nauheim eru þekktar fyrir læknandi eðli sitt frá dögum hinna fornu Róm- verja. Síðustu öld hefur Bad Nauheim komizt í fremstu röð heilsubaðstaða, sem fólk leitar til vegna hjarta- og^ blóðrásartrufl- ana og gigtár. Úr öllum áttum koma menn til Bad Nauheim, jafnvel íslendingar hafa þekkt staðinn þegar á öldinni sem leið. Rithöfundurinn Nonni kom til Bad Nauheim í fjöldamörg ár og var vel þekktur þar. En í dag þekkja íslendingar líklega ekki eins vel Bad Nauheim Því hef ég skrifað þessa grein um reynslu mína í Bad Nauheim. Maður þarf að hafa mánaðar- tíma til þess að hafa gagn af baðinu þar. Þegar maður kemur til Bad Nauheim, þarf hann fyrst að fara til læknisins, sem athug- ar gaumgæfilega heilsuástand mannsins og fyrirskipar bað samkvæmt því. Dagurinn byrjar með því að maður fer í Alþjóðlegur heilsubaðstaður í Þýzkalandi vatnsdrykkjuhöllina og þar drekkur maður stórt glas af vatni úr uppsprettu, sem kennd er við Ludwig. Síðan sezt hann og les morgunblöðin. Ef maður á að fara í bað þann dag, fer hann í baðhöllina og tekur bað sitt á ákveðinni stundu. Eftir það fer hann aftur í herbergi sitt og hvílir sig hálfan annan klukku- tima. Þá er tími til að fara út í lystigarðinn, sem er forkunnar- fagur. Þar labbar maður rólega í klukkustund, þangað til hann fe í mat. Eftir hádegisverðinn tekur maður sér stundarhvíld, fer út og fær sér göngutúr, situr í lystigarðinum, hlustar á tónlist o. s. frv. Nú kemur síðdegisverð- urinn. Að því búnu getur maður setið í setustofu gistihússins og spjallað við vini og kunningja, tekur sér svo göngutúr að kvöldi til og fer í háttinn í síðasta lagi um klukkan tíu. Ef maður fer engar smáferðir í gistihús eða í nágrenni og lifir aðeins rólegu og skipulögðu lífi, getur hann • Almenningur sammála Afskipti ríkisstjórnarinnar af ballinu margumtalaða, sem Þjóðleikhúsið ætlaði að halda 17. júní í salarkynnum sín- um, virðast hafa mælzt vel fyrir. Ýmsir hafa komið að máli við Velvakanda og hrós- að ráðamönnum fyrir að hafa tekið í taumana. • Ekkert gaman Leiðinlegt þetta, að við skul um ekki mega lifa og leika okkur án tillits til þess hvað það kostar. Einmitt nú þegar okkar merkasta menningar- stofnun er búin að starfa í heil 10 ár, virðist vissulega ástæða til að gleðjast og horfa ekki í aurinn, því ekki er víst að við verðum svo spcæk á 50 ára eða 100 ára afmælinu að óhætt sé að bíða þangað til. Þá mundum við kannski missa af öllu gamninu. Síðan ríkisstjórnin tók upp á þeim fjára að vilja ekki leyfa okkur að lifa um efni fram, er ekkert gaman. Þegar Þjóðleikhúsið heldur með pomp og prakt upp á afmæli sitt í tvo mánuði og sparar ekkert til, fær það ekki einu sinni frið til »ð byggja yfir sætin sterkan pall, svo að menn geti setið þar að veitingum, óhræddir um að detta niður í sætin, þar sem þeir eru vanir að meðtaka andlegri hressingu. Það er þó bót í máli, að þeir sem e. t. v. hafa hugsað sér að dansa á sviði Þjóðleik- húsSíns og sitja á þessum nýja palli, eiga kost á að dansa þetta kvöld á Lækjartorgi og tveim stöðum öðrum í mið- bænum. Og það kostar ekki eyri, hvorki fyrir opinberar stofnanir né einstaklinga, sem 1 sátt og samlyndi hafa dansað þarna alla þjóðhátíðardaga síðan lýðveldið var stofnað og enginn hópur klofið sig frá. • Einn einasti hátíðisdagur Úr því við erum farin að verið viss um, að hann kemur aftur eftir mánuð i sína daglegu vinnu hress og hvíldur. Bad Nauheim er fimmtán kíló- metra frá Frankfurt am Main, ellegar tvo klukkutíma og fjöru- tíu mínútur í flugvél frá Kaup- mannahöfn. Það er ekki dýrt að fá sér bað í Bad Nauheim, því þar er aragrúi af ýmsum gisti- húsum og matsölustöðum á mis- m-unandi verði og læknagjöldin eru mjög hófleg. Fyrir þá, sem þjást af alvar- legum hjartasjúkdóm eru í Nau- heim hinir ágætu læknar. Willi- am G. Kerckhoff-herzforschungs Institut der Max-Planck-Gesell- schaft, hjartarannsóknarstofnun er jþekkt alls staðar í veröldinni. Eg hafði ánægjuna að fá sem lækni prófessor Arthur Weber, mann á níræðisaldri, sem hefur helgað líf sitt sjúklingum sinum. Hann er alþjóðlega þekktur vegna rannsókna sinna á hjatrveiki og truflunum í blóð- rás. Sem skemmtileg sönnun á Skólaslit í Barnaskóla Keflavíkur KEFLAVÍK, 29. apríl. — Barna- skóla Keflavíkur var slitið í dag í Keflavíkurkirkju. Nemendur skólans í vetur voru 640. Þar af luku barnaprófi 78. Hæsta eink- unn hlaut Sigrún Ragnarsdóttir, 9.41. — Við skólaslit afhenti Rot- aryklúbbur þeim, sem hæsta eink unn hlutu í hverjum aldursflokki verðlaun. Bókabúð Keflavíkur veitir einnig árlega bókaverð- laun fyrir hæsta einkunn á hverju ári og hlaut Sigrún Ragn arsdóttir þau. Auk þess voru að þessu sinni veitt verðlaun til telpu, sem lauk barnaprófi, fyr- ir að hafa mætt dag hvern í skól- anum í sex ár að undanteknum tveimur, er hún var veik. Var það Guðrún Pétursdóttir. Ástundun nemenda var mjög góð sl. skólaár og heilsufar í skól- anum ágætt. — Helgi S. frægð prófessors Webers má nefna, að kóngur Saudi-Arabíu sótti pófessor Weber heim i sept- ember sl. ár og dvaldist mánað- artíma i Bad Nauheim, til þess að fá heilsu sína aftur. Vesalings kóngurinn hefur nefnilega um tuttugu og tvær konur í kvenna- búri sínu. Maður getur svosem .skilið, að hann hafi fengið hjarta bilun. Hann dvaldist í Bad Nau- heim ásamt 50 manna fylgiliði. Allir þessir menn tilheyrðu nán- asta umhverfi hans í heimaland- inu S'audi-Arabíu. Líklega hefur hann tekið alla þessa menn með sér, svo að þeir trufluðu ekki konumar hans tuttugu og tvær, sem uðru eftir í kvennabúrinu. • Nauheim er mjög fallega stað- settur, eins og sjá má af þessum myndum, og litli bærinn hefur einkenni friðar og unaðar. Lofts- lagið er mjög stöðugt og einmitt þetta hefur gert Bad Nauheim vinsælan. Island hefur áreiðanlega eins gott vatn og Bad Nauheim. Mér finnst, að íslendingar ættu að taka sig til og stofna heilsubað- stað. Þangað gæti fólk úr öllum áttum komið til þess að fá heilsu- bót. Ég hef frétt, að til sé þegar slíkur staður nálægt Reykjavik, en hanp er sennilega aðeins handa Islendingum. Meiningin með þessari grein er að benda íslendingum á, að vatnið getur virkilega verið til bbta fyrir heilsuna og einnig fyrir fjármál landsins. Segjum svo, að ísland yrði þekktur heilsu baðstaður, sem menn úr ýmsum löndum veraldar myndu streyma til. Það yrði mikill viðbótar- styrkur í gjaldeyrissjóð Lands- bankans. Ef einhver lesandanna skyldi ætla til Bad Nauheim, mæli ég með að hann skrifi til Hessisches Staatsbad, Bad Nauheim, og biðji um kynningarbækling. Þá fær hann og að vita allt, sem er í sambandi við Bad Nauheim, nöfn læknanna, gistihúsa o. s. frv., vit- neskju um verðlag og upplýsing- ar um allt, sem maður óskar sé. Juuranto aðalræðimaður og frú í Bad Nauheim nefna stofnun lýðveldis á Is- landi um leið og Þjóðleikhús- ið, minnist ég þess að einn einasti hátíðisdagur var lát- inn duga, á 10 ára afmæli lýð- veldisins, en það hefur kannski verið mesti nánasar- skapur. Engum hugkvæmdist þá að fá söngvara fyrir tugi þús. kr. greiðslu á kvöldi eða aðra fína útlendinga. Og eng. inn var svo frumlegur að láta sér detta í hug að byggja pall yfir stólana í Alþingi eða yfir Tjörnina, svo menn þyrftu ekki að dansa á venjulegu dansgólfi. Ja, svona getur stundum verið leiðinlegt að lifa-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.