Morgunblaðið - 25.05.1960, Page 15
Miðvikudaerur 25 maí 1960
^ ^ n r TMI n T TTllfl
15
81 nemandi lauk
prófi við Vélskólann
Fjárskortur tefur úr hófi aukningu
verklegrar kennslu
Gunnar Bjarnason, skólastjóri, við kennslu í kælitækni.
VÉLSKÓLANUM í Reykjavík
var sagt upp laugardaginn 21.
maí við aíhöfn er fram fór í há-
tíðasal Sjómannaskólans.
I skólaslitaræðu sinni minntist
skólastjórinn, Gunnar Bjarna-
son, fyrst þriggja nemenda er
látizt höfðu á skólaárinu, þeirra
Halldórs Tryggvasonar í2. bekk
B, Eiríks Steingrímssonar . í raf-
magnsdeild A og Öla Hrafns
Ólafssonar í rafmagnsdeild B. All
ir voru þessi menn efnileg ung-
menni og að þeim mikil eftirsjá.
Var þeim að lokum vottuð virð-
ing með því að menn risu úr
sætum.
Hálfgerður vélasalur
Síðan ræddi skólastjórinn
skólaárið s.l. vetur. Kvað hann
talsverða bót hafa orðið að því,
að hægt var að nota nýja véla-
salinn nú í vetur, þó ekki hafi
það verið nema að nokkru leyti,
enda langt frá því, að hann sé
enn kominn í sæmilegt horf
Harmaði skólastjórinn mjög, að
ekkert fé fengist til að ganga frá
neinu til fullnustu, og sagði að
það millibils ástand, sem nú hef-
ur ríkt í nokkur ár, torveldaði
ákaflega kennslustarfið. Taldi
'hann, að lítils samræmis gætti
mili þeirra milljónaverðmæta,
sem eru í höndum vélstjóranna,
bæði á sjó og í landi og þeirra
upphæða, sem fjárveitingavald-
ið telur sig geta af höndum innt
til að mennta þessa menn og búa
þá undir störf þeirra, sem þar
að. auki eru beint eða óbeint í
sambandi við aðalframleiðslu
þjóðarinnar. Á þessu ári er ekk-
ert unnið við framkvæmdir í
skólanum. Fyrir þær kr. 500.000 1
sem á fjárlögum fyrir árið 1960
voru veittar til Sjómannaskól-
ans, var gengið í fyrrasumar frá
gólfi og ljósum og öðru óhjá-
kvæmilegu, svo hægt væri að
koma vélum inn í nýja vélasal-
inn, og þar við situr. Timbur-
hlerar eru fyrir dyrum í stað
hurða og annað eftir pví. Það
þarf engan að undra, þótt tækni-
þróunin sé langt fná því að vera
ör á Islandi.
★ Til náms ytra
A s.l. sumri fór einn kennari
skólans, Andrés Guðjónsson til
Englands og var þar á olíurann-
sóknarstofu hjá Wakefieldfélag-
inu. Olíuverzlun íslands (BP) sá
um þessa för og kostaði hana og
er skólinn þakklátur fyrir þessa
fyrirgreiðslu. Hreinn Pálsson
forstjóri átti þar mestan hlut að.
Því miður er ekki útlit fyrir, að
hægt verði að senda neinn kenn-
ara utan í sumar. Við eigum að
vísu heimboð frá ýmsum fyrir-
tækjum, en getum fjárhagsins
vegna ekki þekkzt þau. Að því
er mikill skaði, því engum er
eins nauðsynlegt að fara utan,
helzt árlega, eins og tæknikenn-
urum, m. a. til að kynnast öllum
nýungum jafnóðum og þær koma
fram og ræða við menn í sínu
fagi.
Eitt tæki h'efur skólanum
bætzt á þessu ári. Er það raf-
magnstafla fyrir vélasalinn. Hún
var keypt í fyrra, en vegna þess
að fé til vélakaupa hrökk það
ár ekki til, var samið um að
greiða helming nú eftir áramót-
in, en greiðslan varð skólanum
nokkuð dýr, vegna gengisbreyt-
ingarinnar og hækkaðs tolls.
★ Aukin verkleg kennsla
Fallizt hefur verið á að ráða 1
fastan kennara í vélfræði að skól
anum í haust. Er þá hugmyndin
að auka verklegu kennsluna, svo
hún verði helmingi meiri næsta
vetur heldur en hún hefur verið
Yíirleitt hefur sú stefna ráðið,
að auka verklegu kennsluna eins
og hægt er, án þess að slá af
bóklegu kennslunni og verður
þetta eitt spor í þá átt.
Við skólann störfuðu í vetur
1P kennarar auk skólasjóra og
þakkaði skólastjóri þeim ánægju
iegt samstarf.
★ Hæstu einkunnir
Nemendur 'skólans voru í haust
131. Vélstjórar og vélstjóraefni
voru 123 en rafvirkjar 8. 1 1. bekk
voru 40 (2 bekkjardeildir) í 2.
bekk 42 (2 bekkir, í rafmagns-
deild vélstjóra 41 (2 bekkir) og
8 í eldri deild rafvirkja. Yngri
deild rafvirkja starfaði ekki
vegna ónógrar aðsóknar í haust.
2 nemendur í 1. bekk hættu við
nám og 3 létuzt, eins og áður
hefur verið sagt.
Undir próf gengu alls 88 nem-
endur og stóðust það 34 vélstjórar
í rafmagnsdeild, 39 vélstjórar og
8 rafvirkjar. Ágætiseinkunn
hlutu Óskar Pétursson, vélstj.
rafmagnsdeild, 7,07, rafvirkjarn-
ir Haukur Arinbjarnarson 7,36
og Ingimar Karlsson 7,31. Atta
vélstjórar hlutu ágætiseinkunn
þeir Guðlaugur Ketilsson 7,54,
Svavar Sveinsson 7,44, Jón Sig-
urðsson 7.32. Jón Vilhjálmsson
7,13, Kristmann Gunnarsson 7,13,
Brynjólfur Guðmundsson 7.10,
Sveinn Sigurðsson 7.04 og Gunn-
ar Guttormsson 7.00.
Hæstu einkunn í eimvélafræði
hlaut Svavar Sveinsson 38% (af
40 mögulegum), en hæstu eink-
unn í mótorfræði Guðlaugur
Ketilsson 39% (af 40 möguleg-
um). Beztan árangur úr vélfræði
fögunum samanlagt hlaut Guð-
laugur Ketilsson 100 stig (af 104
mögulegum).
Er skólastjóri hufði afhent
skírteini, árnaði hann nemendum
allra heilla og kvaðst vona, að
þeir yrðu gæfumenn í starfi, stétt
sinni til sóma og föðurlandinu til
heilla.
Síðan afhenti hann bókaverð-
laun þeim Óskari Péturssyni,
Hauki Arinbjarnarsyni, Guðlaugi
Ketilssyni og Svavari Sveinssyni.
★ Gjafir
Þegar skólastjóri hafði Iokið
máli sínu, kvaddi sér hijóðs Ey-
þór Þórðarson úr hópi 10 ára
vélstjóra, sem þarna voru mætt-
ir. Árnaði hann skólanum allra
heilla og tilkynnti, að þeir fé-
lagar myndu færa skólanum full-
komna kvikmyndasýningarvél að
gjöf. Skólastjóri þakkað) þessa
góðu gjöf og sagði síðan skólan-
um slitið.
Eftir skólaslitin sýndi skóla-
stjóri geStum vélasalina og til-
raunastofuna og skýrði fyrir
þeim framtíðaráætlanir.
Njósnarar
kominúnista
AÞENU 20. maí. — Sex Griklclr
voru dæmdir til lífstíðarfangels-
isvistar í Aþenu í dag. Voru þeir
fundnir sekir um njósnarstarf-
semi fyrir kommúnistaríkin og
sannaðist einnig, að þeir höfðu
notið þjálfunar í starfi sínu i
njósnaskólum austan járntjalds.
Einn njósnaranna var kona.
4
LESBÓK BARNANNA
GRETTISSAGA
41. Hjarrandi hét bróðir
Bjarnar. Hann varð reiður
mjög:, er hann frétti vígið og
vildi engum sáttum eða fé-
bótum taka. Þorfinnur fékk
til Arinbjörn, frænda sinn,
að ganga með Gretti hvern
dag, því að hann vissi, að
Hjarrandi sat um líf hans.
I*að var einn dag er þeir
gengu úti á stræti, að mað-
ur hljóp út úr garðshliði
nokkru með reidda öxi oe
hjó til Grettis tveim hönd-
um. Hann varði einskis um
þetta og gekk undan seint.
Arinbjörn þreif til Grettis og
hratt honum áfram svo hart,
að hann féll á hné. Öxin
kom á herðablaðið og renndi
út undir höndina.
42. Grettir snaraðist vil
fast og brá saxinu. Hann
kenndi, að þar var koniinn
Hjarrandi. Öxin stóð föst í
strætinu, og varð honum
seint að sér að kippa, og í þvi
hjó Grettir til Hjarranda, og
kom á höndina uppi við öxl,
svo að af tók. Þá hlupu að
fylgdarmenn Hjarranda fimm
saman. Sló þá í bardaga með
þeim. Urðu þar skjót um-
skipti. Drápu þeir Grettir og
Arinbjörn þá fimm, er með
Hjarranda voru, en einn
komst undan, og sá fór þegar
á fund Sveins jarls og sagði
bonum þessi tíðindi.
43. Jarl varð afar reiður, er
íiann frétti þetta. Stefndi hann
Gretti til Túngsbergs, en þar
var Gunnar, bróðir þeirra
Bjarnar og Hjarranda, garðs-
bóndi.
Gunnar var í bænum og sat
um Gretti, nær sem færi gæfi
á honum.
Það bar tii á einhverjum
degi, að Grettir sat í búð nokk
urri og drakk, því að hann
vildi eigi verða fyrir Gunnari.
Og er minnst varði er hlaupið
á hurðina svo hart, að hún
brotnaði 1 sundur, þar hlupu
inn fjórir menn alvopnaðir.
Var þar kominn Gunnar og
fylgdarmenn hans. Þeir sóttu
að Gretti. Lauk svo að Grettir
felldi Gunnar og félaga hans
alla, nema einn, sem fór þeg-
ar á fund jarls og sagði hon-
um tíðindin.
44. Sveinn Jarl varð ákaf-
lega reiður við þessa sögu og
itefndi þegar þing í bænum.
Bersi Skáld-Torfuson bauð
fram allt sitt góss, ef Grettir
aæði sættum, en jari kvaðst
ikki gefa grið, þeim sem ó-
lífismenn væru.
Þá bauð Þorsteinn drómund
ur, bróðir Grettis, mörg boð
fyrir hann,
Jarl svarar: „Drengskapur
er þér í, þó að þú viljir hjálpa
honum. En vér skulum hafa
(íf Grcttis, hváð er kostar.
Barnaþula
Sofa urtu börn
á útskerjum,
veltur sjór yfir,
og enginn þau
svæfir.
Sofa kisu börn
á kerhlemmum,
murra og mala,
og enginn þau
svæfir.
Sofa Grýlu börn
á grjóthólum,
N- urra og ýla,
og enginn þau
svæfir.